Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Borgunarmörkin í beinni útsendingu á Vísi Sextán liða úrslit Borgunarbikars karla í knattspyrnu verða gerð upp í Borgunarmörkunum á Stöð 2 Sport klukkan 22. Þátturinn verður einnig í opinni dagskrá hér á Vísi. 26.6.2012 20:12
Þróttarar slógu Valsmenn út úr bikarnum | Myndasyrpa Þróttur Reykjavík, sem leikur í næstefstu deild, gerði sér lítið fyrir og sló efstudeildarlið Vals út úr Borgunarbikar karla í knattspyrnu með 2-1 sigri á Valbjarnarvellinum í kvöld. 25.6.2012 22:33
Sveinbjörn hetja Fram í Mosfellsbænum Sveinbjörn Jónasson skoraði tvívegis þegar Fram kreisti fram 3-2 sigur gegn Aftureldingu í viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu í kvöld. 25.6.2012 22:12
Stjarnan í tómu basli með Reyni en slapp fyrir horn Efstu deildarlið Stjörnunnar marði 1-0 sigur á Reyni Sandgerði í viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu í Garðabæ í kvöld. 25.6.2012 22:04
Selfyssingar fóru létt í gegnum KB Pepsi-deildarlið Selfoss vann öruggan 4-0 sigur á 3. deildarliði KB úr Breiðholti í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu á Selfossi í kvöld. 25.6.2012 21:28
Eyjamenn rúlluðu Hetti upp Pepsi-deildarlið ÍBV tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu með 6-1 heimasigri á Hetti sem leikur í 1. deild. Eyjamenn leiddu 4-0 í hálfleik en heimamenn höfðu mikla yfirburði í leiknum. 25.6.2012 20:10
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. - Valur 2-1 Fyrstudeildarlið Þróttar gerði sér lítið fyrir og lagði Val 2-1 í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld á heimavelli sínum eftir framlengdan leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 en Þróttur tryggði sér verðskuldaðan sigur á síðustu mínútum framlengingarinnar. 25.6.2012 14:02
Umfjöllun og viðtöl: KA - Grindavík 2-3 | Ameobi hetjan Grindvíkingar gerðu góða ferð á Akureyri og unnu KA með þremur mörkum gegn tveimur í háspennuleik á Akureyrarvelli í kvöld. Grindvíkingar eru því komnir áfram í 8-liða úrslitin á kostnað Akureyringa. Tomi Ameobi var hetja Grindvíkinga en hann skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu uppbótartímans. 25.6.2012 14:01
FH til Liechtenstein en ÍBV og Þór fara bæði til Írlands Það er búið að draga í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta en þrjú íslensk félög voru í pottinum; FH, ÍBV og Þór Akureyri. Norðanmenn, sem eru í 1. deild, fengu sætið af því að þeir komust í bikaúrslitaleikinn í fyrra sem og að bikarmeistarar KR urðu einnig Íslandsmeistarar. 25.6.2012 11:48
KR mætir HJK Helsinki í Meistaradeildinni Íslands- og bikarmeistarar KR drógust á móti finnska liðinu HJK Helsinki í annarri umferð Meistardeildarinnar en dregið var í dag. KR átti einnig möguleika á því að lenda á móti liðum frá Sviss, Austurríki, Svíþjóð, Lettlandi eða Litháen. Þetta kemur fram á ksi.is 25.6.2012 10:47
Þjálfari Þórs/KA: Við vorum kærulausar og lélegar ÍBV vann frábæran sigur á Þór/KA, 4-1, á Þórsvellinum í gær og varð því fyrsta liðið til að leggja topplið Þórs/KA að velli í sumar. Eyjastúlkur réðu lögum og lofum í leiknum og var sigurinn aldrei í hættu. 25.6.2012 06:30
Stjarnan fór létt með botnlið Aftureldingar | Harpa Þorsteins með þrennu Stjarnan skellti sér í efsta sæti Pepsi-deildar kvenna með öruggum sigri á Aftureldingu, 4-1, en leikurinn fór fram á Stjörnuvellinum í Garðabæ. 24.6.2012 18:41
Nóg af mörkum í Pepsi-deild kvenna - Blikar gengu frá KR-ingum Þremur leikjum er nýlokið í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu en þar ber helst að nefna markaleik á Selfossi þar sem gestirnir úr Fylki völtuðu yfir heimastúlkur, 5-1. 24.6.2012 15:57
Umfjöllun: Eyjakonur bundu enda á sigurgöngu Þór/KA ÍBV vann 4-1 sigur á Þór/KA í toppleik 7. umferðar Pepsi-deildar kvenna norðan heiða í dag. Þór/KA var ósigrað í sumar en sá aldrei til sólar gegn Eyjakonum sem léku við hvern sinn fingur. 24.6.2012 13:05
Markalaust á Ísafirði BÍ/Bolungarvík og Haukar skildu jöfn í markalausum leik á Ísafirði í dag. Þrátt fyrir ágæt tilþrif tókst hvorugu liðinu að skora. Heimamenn þó ívið sterkari. 23.6.2012 15:58
Víkingsliðin töpuðu bæði stigum á heimavelli | Fyrsti sigur Leiknis Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í kvöld og Víkingsliðin töpuðu bæði stigum á heimavelli. Reykjavíkur-Víkingar náðu að tryggja sér 2-2 jafntefli á móti Hetti með marki á fjórðu mínútu í uppbótartíma og Leiknismenn fóru til Ólafsvíkur og unnu sinn fyrsta sigur í sumar. 22.6.2012 22:05
Björn Bergmann gæti fært ÍA 50 milljónir króna Knattspyrnudeild ÍA væntir þess að fá á bilinu 12-14 milljónir króna í sinn hlut, verði af sölunni á Birni Bergmann Sigurðarsyni frá norska liðinu Lilleström til Wolves á Englandi. 22.6.2012 06:00
KA vann Þór og Fjölnismenn fóru á toppinn Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla í fótbolta í kvöld og stórleikur kvöldsins var nágrannaslagur Akureyrarliðanna KA og Þórs. KA vann þar dramatískan 3-2 sigur á nágrönnunum sínum en Þórsliðið missti fyrir vikið toppsætið til Fjölnismanna sem unnu á sama tíma 2-0 sigur á Tindastól. 21.6.2012 22:01
Margrét Lára: Við ætlum okkur að vinna þennan riðil Margét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir íslenska kvennalandsliðið þegar liðið vann 10-0 sigur í Búlgaríu í dag. Margrét Lára er þar með búin að skora 66 mörk í 82 landsleikjum. 21.6.2012 17:48
Stelpurnar okkar hafa bara einu sinni unnið stærri sigur Íslenska kvennalandsiðið bauð upp á mikla markaveislu í Lovech í Búlgaríu í dag þegar þær unnu 10-0 sigur á heimastúlkum og komu sér aftur í toppsæti riðilsins síns í undankeppni EM. Þetta er annar stærsti sigur kvennalandsliðsins frá upphafi. 21.6.2012 17:24
Framkvæmdastjóri Fram: Þorvaldur nýtur 100 prósent trausts Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fram, segir að Þorvaldur Örlygsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu, njóti fulls trausts. Fram situr í næstneðsta sæti Pepsi-deildar karla með sex stig eftir átta umferðir. 21.6.2012 15:30
Pepsi-mörkin: Markaregnið úr áttundu umferð Áttunda umferðin í Pepsi-deild karla fór fram í kvöld. Mikil spenna var í leikjum kvöldsins og Hörður Magnússon fór yfir gang mála í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport með þeim Reyni Leóssyni og Tómasi Inga Tómassyni. Það var hljómsveitin Howler sem sá um tónlistana, og lagið heitir Back of your neck. 21.6.2012 00:09
Pepsi-mörkin: Guðmundur Hreiðarsson í aðalhlutverki í ellismellinum Ellismellurinn hefur vakið mikla athygli í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport það sem af er sumri. Þar eru ýmsir gullmolar dregnir fram í sviðsljósið. Í gær var innslag sem Heimir Karlsson vann fyrir Stöð 2 á sínum tíma birt en þar var Guðmundur Hreiðarsson markvörður KR í aðalhlutverki. 21.6.2012 00:26
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Selfoss - Fylkir 1-2 Fylkir lagði Selfoss að velli, 2-1 á útivelli í Pepsi-deild karla í fótbolta í kvöld. Ingimundur Níels Óskarsson og Finnur Ólafsson skoruðu mörk Fylkis. Ólafur Karl Finsen skoraði marka heimamanna sem voru einum færri síðustu 15 mínúturnar í leiknum. 20.6.2012 19:30
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Stjarnan 2-2 FH og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í góðum fótboltaleik í Kaplakrika í kvöld. Stjarnan komst í 2-0 en staðan í hálfleik var 2-1. FH náði verðskuldað að jafna metin í seinni hálfleik en Stjarnan náði að hanga á góðri byrjun sinni og ná stigi. 20.6.2012 18:30
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - ÍA 2-1 Valsmenn lögðu Skagamenn að velli 2-1 í leik liðanna í 8. umferð Pepsi-deildar karla á Hlíðarenda í kvöld. Rúnar Már Sigurjónsson skoraði bæði mörk Valsmanna sem voru sterkari aðilinn og lönduðu sanngjörnum sigri. 20.6.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fram - Keflavík 0-2 Keflvíkingar unnu þægilegan og virkilega sanngjarnan sigur á hugmyndasnauðu liði Fram í kvöld í Pepsideild karla í fótbolta, 0-2. Frans Elvarsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu mörk Keflvíkinga í fyrri hálfleik og voru gestirnir aldrei í teljandi vandræðum í þessum leik. 20.6.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - ÍBV 1-3 Eyjamenn unnu sinn þriðja leik í röð í Pepsí-deildinni í kvöld þegar þeir lögðu Grindvíkinga að velli í Grindavík 1-3. Með sigrinum kemst ÍBV í 11 stig í 8.sætinu en Grindvíkingar sitja sem fastast á botninum með 3 stig. 20.6.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - KR 2-1 Blikar stoppuðu fimm leikja sigurgöngu KR í kvöld með því að vinna Íslands- og bikarmeistarana 2-1 í leik liðanna í 8. umferð Pepsi-deildar karla en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. KR-ingar voru búnir að vinna alla leiki sína síðan í byrjun maí en sigur heimamanna var verðskuldaður. 20.6.2012 00:01
Stjörnumenn misstu niður tveggja marka forystu - myndir FH og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í Kaplakrika í kvöld í 8. umferð Pepsi-deildar karla en stigið nægði FH-ingum til að halda toppsætinu. 20.6.2012 23:08
Rúnar Már hetja Valsmanna - myndir Rúnar Már Sigurjónsson tryggði Valsmönnum 2-1 sigur á Skagamönnum í 8. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Hann skoraði fyrra markið eftir glæsilegan einleik og seinna markið úr vítaspyrnu tveimur mínútum fyrir leikslok. 20.6.2012 23:06
Færði landsliðsstelpunum rós á kvenréttindadaginn Guðni Kjartansson, aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, sló í gegn í Búlgaríu í gær þegar hann færði öllum konum í liðinu rós í tilefni af kvenréttindadeginum. Íslenska landsliðið mætir heimastúlkum á morgun í undankeppni EM. 20.6.2012 17:45
Heil umferð í Pepsi-deild karla í kvöld Knattspyrnuáhugamenn fá nóg að gera í kvöld þótt enginn sé leikurinn á EM. Öll áttunda umferðin í Pepsi-deild karla fer þá fram. Eyjamaðurinn Christian Steen Olsen var valinn leikmaður 7. umferðar hjá Fréttablaðinu en hann skoraði þá þrennu gegn ÍA. Hann verður í eldlínunni með ÍBV í Grindavík í kvöld. 20.6.2012 06:00
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. 20.6.2012 19:00
Keimlík fyrstu landsliðsspor hjá Söndru og Margréti Láru Hin 17 ára gamla Sandra María Jessen skoraði með sinni fyrstu snertingu í sínum fyrsta landsleik þegar Ísland vann 3-0 sigur á Ungverjalandi í undankeppni EM um helgina. 19.6.2012 07:30
Pepsi-mörkin: Markaregnið úr sjöundu umferð Öll mörkin úr sjöundu umferð Pepsi-deildar karla voru sýnd í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport í gærkvöld. Bandaríska hljómsveitin The Black Keys skreytir markaregnið með laginu Dead and gone. Umfjöllun um alla leiki umferðarinnar er að finna á Vísi ásamt ítarlegri tölfræði sem birt er í rauntíma frá leikjum. 17.6.2012 10:00
Pepsi-mörkin: Er Gummi Torfa hinn eini sanni Michael Bolton? Guðmundur Torfason fyrrum landsliðsmaður í fótbolta átti sviðið í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport í gær. Þar var sýnt gamalt myndband með upptökum frá árinu 1988 þar sem að markakóngurinn fyrrverandi sýndi tónlistarhæfileika sína með gítarspili og söng. Friðrik Karlsson, sem oftast er kenndur við stórhljómsveitina Mezzoforte, sagði í viðtali á þessum tíma að söngur Guðmundar minnti töluvert á hetjusöngvara á borð við Michael Bolton. 16.6.2012 23:00
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - FH 2-4 FH skaust á topp Pepsideildar karla með góðum sigri á Keflavík í dag. Leikurinn endaði 2-4 fyrir gestina úr Hafnarfirðinum og var sanngjarn í meira lagi. Fyrri hálfleikur var frekar daufur og fátt um færi. FH-ingar voru þó hættulegri og skoruðu eina mark hálfleiksins. Þar var að verki Atli Viðar Björnsson. 16.6.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Breiðablik - Grindavík 2-0 Það þarf svo sem ekki að eyða of miklum orðum í þennan leik. Hann var alls ekki góður, sendingar lélegar, tæklingar fáar og lítið um baráttu. Þó voru Blikar alltaf aðeins á undan. 16.6.2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Selfoss 3-1 Íslandsmeistarar KR þurftu að hafa mikið fyrir að leggja nýliða Selfoss í fjörugum leik á KR-vellinum í dag. 3 -1 sigur þeirra var ansi torstóttur en Selfyssingar klúðruðu vítaspyrnu þegar rúmlega 10 mínútur voru eftir af leiknum í stöðunni 2-1. Í staðinn gengu KR-ingar á lagið og gerðu útum leikinn með skallamarki Mývetningsins Baldurs Sigurðssonar. 16.6.2012 00:01
1. deild karla: Víkingar úr Ólafsvík tylltu sér á toppinn Alls fara fjórir leikir fram í 1. deild karla í fótbolta í dag og er þremur þeirra lokið. Nýliðar Tindastóls lögðu Víkinga frá Reykjavík á heimavelli, 2-1. Haukar töpuðu á heimavelli 2-0 gegn Víkingum úr Ólafsvík. Þróttur og BÍ/Bolungarvík gerðu 1-1 jafntefli í Laugardalnum. 16.6.2012 16:12
Skagamenn steinlágu gegn Eyjamönnum - Myndir Skagamenn töpuðu sínum fyrsta leik í Pepsi-deild karla í sumar þegar Eyjamenn unnu 4-0 sigur á Skipaskaga í gærkvöldi. 16.6.2012 08:38
Pepsimörkin í beinni á Vísi Sjöundu umferð í Pepsi-deild karla verður gerð skil í Pepsimörkunum á Stöð 2 Sport og verður hægt að sjá þáttinn í beinni útsendingu hér á Vísi. Úrslit leikjanna má sjá hér fyrir neðan en útsendingn hefst um klukkan 20. Smelltu á hlekkinn hér fyrir ofan til að sjá þáttinn í beinni útsendingu. Þátturinn er einnig sýndur í ólæstri dagskrá. 16.6.2012 19:30
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis. 16.6.2012 13:45
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - ÍBV 0-4 | Olsen sá um Skagamenn ÍBV lyfti sér upp í sjöunda sæti Pepsí deildar karla með 4-0 sigri á toppliði ÍA á Skipaskaga í kvöld. Eins og tölurnar gefa til kynna var sigurinn fyllilega verðskuldaður en Christian Steen Olsen fór mikinn og skoraði þrennu í leiknum. 15.6.2012 10:25