Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - KR 2-1 Stefán Hirst Friðriksson á Kópavogsvelli skrifar 20. júní 2012 00:01 Mynd/Valli
Blikar stoppuðu fimm leikja sigurgöngu KR í kvöld með því að vinna Íslands- og bikarmeistarana 2-1 í leik liðanna í 8. umferð Pepsi-deildar karla en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. KR-ingar voru búnir að vinna alla leiki sína síðan í byrjun maí en sigur heimamanna var verðskuldaður. Blikar er þar með búnir að vinna þrjá leiki í röð og eru nú farnir að nálgast efstu liðin. Það var hinn 19 ára gamli Sverrir Ingi Ingason sem skoraði sigurmarkið fjórum mínútum fyrir leikslok með skalla eftir aukaspyrnu Kristins Jónssonar. Lítið gerðist á upphafsmínútum leiksins á hundblautum Kópavogsvelli. Heimamenn voru þó ívið betri í upphafi leiks en hvorugu liðinu tókst að skapa sér almennileg færi. Blikar fengu svo fyrstu tvö færi leiksins og voru það Andri Rafn Yeoman og Petar Rnkovic sem fengu þau. Þeim tókst þó ekki að setja boltann í netið og staðan því markalaus eftir verulega dapran fyrri hálfleik. Síðari hálfleikurinn byrjaði á sömu nótum en heimamenn héldu áfram að stýra leiknum og voru nokkrum sinnum nálægt því að koma boltanum í netið á upphafsmínútum hálfleiksins. Gestirnir úr KR komust svo yfir þvert gegn gangi leiksins á 73.mínútu. Þá átti Dofri Snorrason góða fyrirgjöf sem endaði fyrir fótum Þorsteins Más Ragnarssonar, sem lét sér ekki segjast og kláraði færið vel. Mark gestanna var sem innspýting fyrir heimamenn en þeir svöruðu markinu frábærlega og tóku öll völd á vellinum á næstu mínútum. Þeim tókst svo að jafna leikinn á 79. mínútu, en þar var að verki besti maður vallarins, Kristinn Jónsson, en hann náði að koma boltanum yfir línuna eftir gott skot samherja hans. Heimamenn héldu áfram að sækja og tókst svo að ná forystunni á 86. mínútu. Þá átti Kristinn frábæra aukaspyrnu sem rataði beint á kollinn á Sverri Inga og átti hann ekki í neinum vandræðum að stýra boltanum í netið. Gestunum úr KR tókst ekki að sækja neitt af viti í kjölfarið og unnu heimamenn því gríðarlega mikilvægan, 2-1 sigur.Blikar stoppuðu fimm leikja sigurgöngu KR í kvöld með því að vinna Íslands- og bikarmeistarana 2-1 í leik liðanna í 8. umferð Pepsi-deildar karla en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. KR-ingar voru búnir að vinna alla leiki sína síðan í byrjun maí. Blikar er þar með búnir að vinna þrjá leiki í röð og eru nú farnir að nálgast efstu liðin. Það var hinn 19 ára gamli Sverrir Ingi Ingason sem skoraði sigurmarkið fjórum mínútum fyrir leikslok með skalla eftir aukaspyrnu Kristins Jónssonar.Ólafur Kristjáns: Erum þremur yfir pari „Þetta var flott hjá okkur í dag. Ég er mjög ánægður með þennan sigur. Við fengum mikið af opnunum og tækifærum áður en þeir komust yfir en boltinn vildi ekki inn. Þeir komast svo yfir en við höldum áfram og vinnum leikinn verðskuldað í lokin að mínu mati," sagði Ólafur. Blikar hafa nú unnið síðustu þrjá leiki eftir erfiða byrjun og bauð Ólafur upp á athyglisverða samlíkingu. „Við erum þremur yfir pari núna. Fótbolti er bara eins og golfvöllur. Á sumum holum nær maður fugli, góðum skotum en á öðrum gengur manni verr. Við náðum góðum höggum hér í kvöld og unnum því leikinn.Rúnar: Áttum ekkert skilið úr þessum leik „Við vorum virkilega slakir í þessum leik. Það var lítið sem ekkert að gerast í okkar sóknaraðgerðum og áttum við ekkert skilið úr þessum leik," sagði Rúnar. „Við héldum að við værum tilbúnir í þennan slag en við vorum það augljóslega ekki. Ég ætla samt ekkert að taka frá Blikunum en þeir spiluðu frábærlega í þessum leik og réðum við lítið við þá," bætti Rúnar við. Aðspurður um bikarleikinn gegn Blikum sem framundan er sagði Rúnar. „Við ætlum að sjálfsögðu að rífa okkur upp fyrir þann leik. Við ætluðum að mæta klárir til leiks hérna í dag en það gekk ekki eftir og stefnum við á að breyta því í næsta leik," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR í leikslok.Kristinn: Erum einungis á uppleið „Þetta var gríðarlega mikilvægt. Við héldum áfram að berjast eftir markið og unnum að lokum verðskuldaðan sigur. Við erum virkilega sáttir," sagði Kristinn. „Við erum búnir að vera að spila mun betur í undanförnum leikjum. Við erum byrjaðir að berjast fyrir hvorn annan, hlaupa meira og leggja okkur meira fram. Við erum einungis á uppleið," sagði Kristinn Jónsson, leikmaður Breiðabliks, kampakátur í leikslok.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira