Framkvæmdastjóri Fram: Þorvaldur nýtur 100 prósent trausts Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. júní 2012 15:30
Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fram, segir að Þorvaldur Örlygsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu, njóti fulls trausts. Fram situr í næstneðsta sæti Pepsi-deildar karla með sex stig eftir átta umferðir. Framarar hafa unnið tvo af fyrstu átta leikjum sínum. Annars vegar heimaleik gegn Grindavík 4-3 og hins vegar 2-0 sigur gegn Blikum í Kópavogi. Liðið átti líklega sinn slakasta leik í gærkvöldi þegar Keflavík vann 2-0 sigur í Laugardalnum. „Þorvaldur nýtur 100 prósents trausts. Bæði stjórnin og allir í félaginu hafa 100 prósent trú á því sem hann er að gera og hefur gert fyrir félagið þessi ár. Þetta er auðvitað ástand sem félagið í heild sinni þarf að snúa við, ekki bara þjálfari og leikmenn, heldur allir sem koma að félaginu. Vonandi fer þá liðið að sýna þann fótbolta sem til er ætlast af Frömurum. Þá fara hlutirnir að rúlla, ég hef enga trú á öðru," segir Jón sem viðurkennir að Framarar hafi flestir reiknað með því að mótið myndi spilast öðruvísi hjá Safamýrarpiltum. „Auðvitað vonuðust flestir Framarar til þess að þetta væri á uppleið eins og ég tel það klárlega vera. Þessi hópur sem við höfum er einn sá besti sem við höfum haft í langan tíma. Það voru ýmsir hlutir sem að voru ekki að falla með okkur í upphafi. Það vill verða að ef hlutirnir byrja að ganga illa og það vefur upp á sig er erfitt að brjótast út úr því," segir Jón sem telur liðið hafa spilað sérstaklega illa í tveimur leikjum í sumar. „Auðvitað hefur maður alltaf áhyggjur þegar liðið er að tapa. Sérstaklega þegar það er ekki í spilunum að liðið nái í stig eins og var í gær. Þetta var mjög dapur leikur af okkar hálfu. Ég vil þó meina að á tímabilinu hafi bara verið tveir daprir leikir. Þessi í gær og svo 2-0 tapið á heimavelli gegn Selfossi. Ég vil meina að við höfum verið inni í hinum leikjunum en hlutirnir ekki fallið með okkur," segir Jón og segir ekki hafa verið boðað til krísufundar í Safamýrinni vegna dapurs gengis. „Alls ekki en auðvitað þurfa menn að vera á tánum. Við getum ekki rúllað inn í annað ástand eins og í fyrra. Hópurinn í ár er hins vegar með það mikla karaktera innanborðs og gæðin eru það mikil að ég hef ekki trú á því að þetta fari í sama horf," segir Jón. Þorvaldur Örlygsson tók við sem þjálfari Fram haustið 2007. Hann er samningsbundinn félaginu líkt og flestir leikmenn þess til 2013.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fram - Keflavík 0-2 Keflvíkingar unnu þægilegan og virkilega sanngjarnan sigur á hugmyndasnauðu liði Fram í kvöld í Pepsideild karla í fótbolta, 0-2. Frans Elvarsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu mörk Keflvíkinga í fyrri hálfleik og voru gestirnir aldrei í teljandi vandræðum í þessum leik. 20. júní 2012 00:01 Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fram - Keflavík 0-2 Keflvíkingar unnu þægilegan og virkilega sanngjarnan sigur á hugmyndasnauðu liði Fram í kvöld í Pepsideild karla í fótbolta, 0-2. Frans Elvarsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu mörk Keflvíkinga í fyrri hálfleik og voru gestirnir aldrei í teljandi vandræðum í þessum leik. 20. júní 2012 00:01