Umfjöllun og viðtöl: KA - Grindavík 2-3 | Ameobi hetjan Björn Ívar Björnsson skrifar 25. júní 2012 14:01 Pape Faye (með boltann) og markaskorarinn Tomi Ameobi. Mynd/Valli
Grindvíkingar gerðu góða ferð á Akureyri og unnu KA með þremur mörkum gegn tveimur í háspennuleik á Akureyrarvelli í kvöld. Grindvíkingar eru því komnir áfram í 8-liða úrslitin á kostnað Akureyringa. Tomi Ameobi var hetja Grindvíkinga en hann skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu uppbótartímans. Grindvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og tóku öll völd á vellinum á fyrstu mínútu. Það leið ekki langur tími þar til fyrsta markið kom. Björn Berg Bryde skallaði þá hornspyrnu Óla Baldurs Bjarnasonar í netið á sjöundu mínútu. Gunnar Valur Gunnarsson, varnarmaður norðanmanna, jók svo forystuna fyrir gestina þegar hann ætlaði að hreinsa skot Scott Ramsay frá en skaut boltanum þess í stað í eigið net. Grindvíkingar héldu áfram að pressa en undir lok fyrri hálfleiks náðu KA menn að minnka muninn þvert gegn gangi leiksins. Jóhann Helgason skallaði þá fyrirgjöf Hallgríms Steingrímssonar glæsilega í netið. Óskar Pétursson markvörður gestanna fór í glannalegt úthlaup og reyndi að kýla fyrirgjöf Hallgríms en kýldi þess í stað markaskorarann Jóhann í andlitið og Jóhann þurfti að fara meiddur af velli. Eftir það var einstefna að marki Grindavíkur. Bjarki Baldvinsson fékk dauðafæri á 60. mínútu en lét Óskar verja frá sér. Þá klúðraði Brian Gilmour vítaspyrnu á 70 mínútu og virtist sem boltinn vildi ekki inn fara hjá KA-mönnum. Það var svo á 88. mínútu sem pressan skilaði sér. Varamaðurinn Gunnar Örvar Stefánsson slapp einn í gegn og kláraði færið glæsilega, einn gegn Óskari. En þá var eins og Grindvíkingar vöknuðu af værum svefni því síðustu mínúturnar lágu þeir á heimamönnum. Eftir langt innkast frá öðrum varamanni, Hafþóri Ægi Vilhjálmssyni, kom sigurmark gestanna. Tomi Ameobi var allt í einu einn og óvaldaður á markteig Norðanmanna og setti knöttinn auðveldlega í netið framhjá Sandor Matus. Sigur Grindvíkinga staðreynd og þeir fara því áfram í 8-liða úrslitin. Bjarki Baldvinsson: Einbeitingarleysi kostaði sigurinnBjarki Baldvinsson leikmaður KA var svekktur í leikslok. „Þetta var mjög svekkjandi, sérstaklega eftir að við áttum seinni hálfleikinn algjörlega. Við byrjuðum reyndar hrikalega og fyrsti hálftíminn var hræðilegur. Þetta fór svo að ganga eftir að við minnkuðum muninn," sagði Bjarki sem sá vel hvað gerðist í sigurmarki gestanna. „Besti framherjinn þeirra var aleinn og þetta einbeitingarleysi kostaði okkur sigurinn. Við verðum að bæta það fyrir næsta leik," sagði Bjarki. Bikarævintýri norðanmanna er búið en næsta verkefni KA er leikur gegn Þrótti R. á Valbjarnarvelli á laugardaginn. „Við verðum bara að halda áfram í deildinni núna. Unnum góðan sigur á Þór hér í síðustu viku og við stefnum á þrjú stig á Valbjarnarvelli um helgina, það er ekki spurning" sagði Bjarki að lokum. Guðjón Þórðarson: Akureyri yljar mér um hjartaræturGuðjón Þórðarson þjálfari Grindvíkinga var að vonum sáttur í leikslok. „Byrjunin lofaði góðu og eftir að hafa tekið 2-0 forystu vildi maður ganga ennþá lengra og setja þriðja markið því í stöðunni 3-0 þá hefði verið mjög erfitt fyrir KA að koma til baka. Við gáfum eftir og þeir komust inn í leikinn. Eftir að þeir komust í 2-1 var ljóst að leikurinn hafði breyst og við áttum í meiri erfiðleikum en fyrsta hálftímann þar sem við höfðum öll tök á vellinum," sagði Guðjón. Spil Grindvíkinga gjörbreyttist eftir að heimamenn minnkuðu muninn. Guðjón var ekki sáttur við hvernig hans menn byrjuðu seinni hálfleikinn. „Menn hættu að spila boltanum. KA menn voru í eltingarleik í fyrri hálfleik en þegar þessi 2-1 staða kemur þá er eins og við förum í stress. Þú sérð hvernig seinni hálfleikurinn byrjar. Við tökum miðju og gefum hann til baka, svo lengra til baka og því næst alveg aftur á markmanninn . Hann sparkar fram og við missum boltann útaf," sagði Guðjón sem var ánægður með framlag sinna manna. „Ég er ánægður með karakterinn og það er kaldhæðnislegt að eftir að við fáum á okkur jöfnunarmarkið þá fáum við 2-3 fín færi til að vinna leikinn á þeim 5 mínútum sem eftir voru. Svo kom sigurmarkið í lokin eftir eina af þessum sóknum," sagði Guðjón sem hefur áður þjálfað KA sem og KR sem eru næstu andstæðingar Grindvíkinga. „Þetta eru KA og KR, lið sem ég hef þjálfað og á margar góðar minningar frá. Akureyri yljar mér alltaf um hjartarætur þegar ég kem hingað. Ég veit að það verður erfiður dagur hjá mér að mæta á KR-völlinn á sunnudagseftirmiðdag en ég hlakka til og það verður bara gaman," sagði sigurreifur Guðjón Þórðarson í leikslok.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira