Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sahin á leið til Arsenal Spænskir fjölmiðlar fullyrtu í gærkvöld að Tyrkinn, Nuri Sahin, væri á leið til Arsenal á lánsamningi. Sahin kom til Real Madrid frá Borussia Dortmund fyrir síðasta tímabil en hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá liðinu vegna meiðsla. 5.8.2012 10:00
Dzeko: Ég er of góður fyrir bekkinn Edin Dzeko, leikmaður Manchester City hefur varað Roberto Mancini, knattspyrnustjóra liðsins við og segist hann þurfa að finna sér nýtt lið ef hann komi ekki til með að fá fleiri tækifæri í byrjunarliðinu á næsta tímabili. 5.8.2012 06:00
Brasilía og Suður-Kórea í undanúrslit | Bretar úr leik eftir vítakeppni Brasilía og Suður-Kórea komust í kvöld í undanúrslit á Ólympíuleikunum í knattspyrnu. Brasilía vann í dag nauman 3-2 sigur á baráttuglöðu liði Hondúras á meðan Suður-Kórea vann lið Bretlands eftir vítaspyrnukeppni. 4.8.2012 21:22
Rodgers hvetur Suarez til þess að gleyma fortíðinni Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool hefur hvatt Luis Suarez til þess að gleyma kynþáttafórdómamálinu sem tröllreið öllu í enska boltanum í fyrra. Þar var Suarez dæmdur fyrir að hafa beitt Patrice Evra, leikmanni Manchester United, kynþóttafordómum. 4.8.2012 20:15
Mackay: Mikill styrkur í Heiðari Malky Mackay, knattspyrnustjóri Cardiff City segir að kaupin á íslenska landsliðsmanninum Heiðari Helgusyni séu mikill styrkur fyrir liðið og að Heiðar muni setja pressu á aðra framherja félagsins að standa sig. 4.8.2012 19:15
Hønefoss nálægt því að landa óvæntum sigri Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kristján Örn Sigurðsson voru báðir í vörn nýliða Hønefoss í dag þegar liðið tók á móti toppliði Strømsgodset í efstu deild Noregs. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli en Íslendingaliðið var óheppið að vinna ekki leikinn. 4.8.2012 18:00
Björn Bergmann og Eggert Gunnþór spiluðu í tapi Úlfanna Íslensku landsliðsmennirnir, Björn Bergmann Sigurðarson og Eggert Gunnþór Jónsson komu báðir við sögu í 2-0 tapi liðsins í æfingaleik gegn úrvalsdeildarliði Southampton nú fyrr í dag. 4.8.2012 16:49
Japan og Mexíko áfram í undanúrslit Japan og Mexíko eru komin áfram í undanúrslit Ólympíuleikanna í knattspyrnu eftir góða sigra í dag. Japanir fóru auðveldega í gegnum Egypta á meðan Mexíko vann Senegal í framlengingu. Liðin tvö munu einmitt mætast í undanúrslitum keppninnar. 4.8.2012 16:30
Íslenska landsliðið gerði jafntefli við Skota Íslenska kvennalandsliðið gerði 1-1 jafntefli við Skota í æfingaleik sem fór fram í Glasgow. Sandra María Jessen kom íslensku stúlkunum yfir eftir að hafa komið inn á sem varamaður en Skotarnir jöfnuðu á lokamínútum leiksins og jafntefli því staðreynd. 4.8.2012 16:12
Glódís Perla í byrjunarliði í sínum fyrsta A-landsleik Nú rétt í þessu er að hefjast æfingaleikur íslenska kvennalandsliðsins og Skota, en leikurinn fer fram í Glasgow. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarliðið og vekur athygli að Glódís Perla Viggósdóttir, sem er að leika sinn fyrsta landsleik er í byrjunarliðinu í dag. 4.8.2012 14:00
Manchester United gerir risa treyjusamning Manchester United mun fá 559 milljónir dollara fyrir nýjan treyjusamning sinn en liðið samdi á dögunum við bílaframleiðandann General Motors. 4.8.2012 11:45
Dómar felldir á Ítalíu | Bonucci í vondum málum Leonardo Bonucci, varnarmaður Juventus og ítalska landsliðsins í knattspyrnu, gæti átt yfir höfði sér þriggja og hálfs árs bann frá knattspyrnuiðkun verði hann fundinn sekur um hagræðingu úrslita í ítalska boltanum. Reuters greinir frá þessu. 3.8.2012 23:15
Metfjöldi félagaskipta í seinni glugganum - 104 skiptu um lið á lokadeginum Það var nóg að gera á Skrifstofu Knattspyrnusambands Íslands á lokadegi félagsskiptagluggans á þriðjudaginn en ekki er hægt að hafa félagskipti innanlands eða til landsins eftir þann dag. Á heimasíðu KSÍ segir að nýtt met hafi verið sett í fjölda félagaskipta í seinni glugganum. 3.8.2012 22:30
Aquilani kveður Liverpool eftir þriggja ára þrautargöngu Ítalski miðjumaðurinn Alberto Aquilani hefur gengið frá samningi við Fiorentina. Kaupverðið á Aquilani er talið vera sjö milljónir evra eða sem nemur rúmum milljarði íslenskra króna. 3.8.2012 19:00
Rúrik í sigurliði OB | Bjarni Þór fylgdist með uppi í stúku Rúrik Gíslason og félagar í OB Odense fögnuðu 1-0 útisigri á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Eina mark leiksins kom í viðtbótartíma. 3.8.2012 18:58
Muamba sparkaði bolta í sumarfríinu sínu Fabrice Muamba, miðjumaður Bolton og sá sem var lífgaður við í miðjum bikarleik á White Hart Lane eftir hjartastopp í mars, segist hafa spilað fótbolta í sumarfríinu sínu. 3.8.2012 18:15
Terry neitar sök John Terry, miðvörður Chelsea og enska landsliðsins, hefur neitað að hafa haft kynþáttafordóma í frammi gagnvart Anton Ferdinand í viðureign QPR og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í haust. 3.8.2012 16:45
Wambach búin að skora í öllum leikjunum - Bandaríkin í undanúrslitin Abby Wambach skoraði annað marka bandaríska kvennalandsliðsins í fótbolta þegar liðið vann 2-0 sigur á Nýja-Sjálandi í dag í átta liða úrslitunum á Ólympíuleikunum í London. Bandaríska liðið er því komið í undanúrslitin á fimmtu leikunum í röð þar sem liðið mætir annaðhvort Bretlandi eða Kanada sem spila seinna í kvöld. 3.8.2012 16:00
Mourinho: Beckham ætti að vera að spila á Ólympíuleikunum Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, skilur ekkert í Stuart Pearce, þjálfara breska landsliðsins, að hafa ekki valið David Beckham í Ólympíuliðið. 3.8.2012 15:15
Lindegaard fékk nýjan fjögurra ára samning hjá Manchester United Danski markvörðurinn Anders Lindegaard er búin að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Manchester United en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. 3.8.2012 14:30
Rodgers var bara að passa upp á Agger Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, ætlaði sér aldrei að nota danska miðvörðinn Daniel Agger á móti hvít-rússneska liðinu Gomel í forkeppni Evrópudeildarinnar í gær. Liverpool vann þá fyrri leikinn 1-0 á útivelli. 3.8.2012 13:45
Frönsku stelpurnar í undanúrslitin í fótbolta kvenna - slógu út Svía Frakkland er komið í undanúrslit á fótboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum eftir 2-1 sigur á Svíþjóð í átta liða úrslitunum. Frakkland mætir annaðhvort Brasilíu eða Japan í undanúrslitunum. 3.8.2012 13:36
Real Madrid fór illa með Los Angeles Galaxy Real Madrid byrjaði undirbúningstímabilið sitt með látum þegar spænsku meistararnir unnu 5-1 sigur á Los Angeles Galaxy í æfingaleik í Bandaríkjunum í nótt. 3.8.2012 13:15
Bjarni samdi við Silkeborg til fjögurra ára Knattspyrnumaðurinn Bjarni Viðarsson hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið Silkeborg en hann var áður í herbúðum Mechelen í Belgíu. Bjarni, sem er 24 ára gamall miðjumaður, hóf atvinnumannaferilinn hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton en hann hefur einnig leikið í Hollandi með Twente og Roeselare. 3.8.2012 08:35
Ferguson: Ég græði ekkert á aukningu hlutafjár Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, sendi í dag breskum fjölmiðlum yfirlýsingu. Þar þvertekur hann fyrir að hagnast nokkuð á nýjustu fjárhagsaðgerðum Glazer-fjölskyldunnar, eigenda félagsins. 3.8.2012 09:00
Downing hetja Liverpool í Hvíta-Rússlandi Stewart Downing skoraði sigurmark Liverpool sem lagði FC Gomel 1-0 í fyrri viðureign liðanna í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í Hvíta-Rússlandi í kvöld. 2.8.2012 20:02
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - KR 0-1 | Gary Martin skaut KR í úrslit KR-ingar eru komnir í úrslit Borgunarbikars karla í knattspyrnu þriðja árið í röð eftir 1-0 sigur á Grindavík. Gary Martin skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. 2.8.2012 14:20
Þór lagði Hauka | Chijindu á skotskónum Chukwudi Chijindu og Sigurður Marinó Kristjánsson skoruðu mörk Þórs sem sigruðu Hauka í 1. deild karla en leikið var á Þórsvelli. 2.8.2012 20:13
Heiðar Helguson genginn til liðs við Cardiff Framherjinn Heiðar Helguson hefur gengið frá eins árs samningi við velska knattspyrnufélagið Cardiff City. Heiðar staðfesti þetta í samtali við íþróttadeild Stöðvar 2 í dag. 2.8.2012 17:35
Suarez: Þeir púa bara af því að þeir óttast leikmann eins og mig Luis Suarez getur nú farið að einbeita sér að komandi tímabili með Liverpool eftir að Úrúgvæ sat eftir í riðlakeppninni á Ólympíuleikunum í London. 2.8.2012 16:45
Slær Bjarni föður sinn út úr undanúrslitunum annað árið í röð? Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR og faðir hans Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindavíkur, verða í sviðsljósinu í kvöld þegar Grindavíkur og KR mætast í undanúrslitum Borgunarbikars karla. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 2.8.2012 16:00
Valur fær langmest frá Knattspyrnusambandi Evrópu Knattspyrnusamband Evrópu hefur ákveðið að þau félög sem áttu leikmenn í landsliðum sem tóku þátt í Evrópukeppni landsliða 2012 fái hlutdeild í hagnaði keppninnar, alls 100 milljónir evra. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ og þar kemur líka fram að Valsmenn fá langstærsta hluta þessarar upphæðar. Hér hefur mest að segja að með Valsliðinu léku nokkrir færeyskir landsliðsmenn. 2.8.2012 15:30
Jóni Páli sagt upp störfum hjá Fylki Jóni Páli Pálmasyni, þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Fylki, hefur verið sagt upp störfum. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Ásgrímur Helgi Einarsson og Kjartan Stefánsson stýra liði Fylkis út tímabilið. 2.8.2012 15:03
Arsenal að fá tvo sterka landsliðsmenn Forráðamenn Arsenal vinna hörðum höndum þessa stundina að ganga frá kaupum á Santi Cazorla frá Malaga og lánssamningi við Nuri Sahin frá Real Madrid. Ljóst er að þessir tveir sterku leikmenn væru mikill liðstyrkur fyrir lið Arsene Wenger. 2.8.2012 14:45
Deildarkeppnin í forgangi hjá Brendan Rodgers Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Liverppol, segir að deildarkeppnin sé í algjörum forgangi hjá liðinu á næsta tímabili. Liverpool leikur í kvöld fyrri leikinn í Evrópudeild UEFA gegn FC Gomel frá Hvíta-Rússlandi í þriðju umferð í kvöld. 2.8.2012 14:00
Cardiff hefur áhuga á að fá Heiðar Helguson Samkvæmt frétt Daily Mail á Englandi eru líkur á því að Heiðar Helguson framherji enska úrvalsdeildarliðsins QPR yfirgefi félagið og leiki með Cardiff í næst efstu deild á næstu leiktíð. Heiðar, sem var kjörinn íþróttamaður ársins 2011 á Íslandi, er 34 ára gamall og Mark Hughes knattspyrnustjóri QPR virðist ekki hafa not fyrir Heiðar í ensku úrvalsdeildinni. 2.8.2012 10:19
Söguleg stund þegar Stjarnan tryggði sér sæti í bikarúrslitum | Myndir Karlalið Stjörnunnar tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Borgunarbikars karla eftir 3-0 sigur á Þrótti í Garðabæ. Þetta er í fyrsta sinn sem Stjarnan kemst í úrslit keppninnar. 1.8.2012 23:00
Fjölnir heldur í við Ólsara | KA lagði Víking Fjölnir skaust í annað sæti 1. deildar karla í knattspyrnu í kvöld með 3-0 heimasigri á ÍR. Á sama tíma mátti Víkingur sætta sig við 1-0 tap á heimavelli gegn KA. 1.8.2012 20:55
Alfreð skoraði og lagði upp tvö í Meistaradeildinni | Myndband Alfreð Finnbogason og félagar í Helsingborg unnu 3-0 sigur á pólsku meisturunum Śląsk Wrocław í fyrri viðureign liðanna í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en leikið var í Póllandi. Alfreð skoraði og lagði upp hin mörk sænska liðsins. 1.8.2012 20:24
Ólsarar í góðum málum eftir sigur á Hetti | Djúpmenn lögðu Stólana Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði tvö marka Víkings Ólafsvíkur í 3-0 útisigri á Hetti í 1. deild karla í kvöld. Ólsarar hafa fimm stiga forskot á toppi deildarinnar eftir sigurinn. 1.8.2012 19:51
Lars Lagerbäck: Hitti Eið Smára í fyrsta skipti í gær Lars Lagerbäck, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, kynnti í dag sinn sterkasta hóp fyrir æfingaleikinn gegn Færeyingum sem fram fer á Laugardalsvelli 15. ágúst. 1.8.2012 16:50
Arbeloa fékk nýjan samning hjá Real Madrid Spænski landsliðsbakvörðurinn Alvaro Arbeloa verður áfram hjá Real Madrid næstu árin því hann er búinn að ganga frá nýjum samningi til ársins 2016. Arbeloa verður 33 ára gamall þegar samningurinn rennur út. 1.8.2012 16:45
Neymar og Messi saman í liði eftir ÓL? Jose Maria Bartomeu, varaforseti Barcelona, segir að Barcaelona ætli að reyna að sannfæra Brasilíumanninn Neymar um að ganga til liðs við félagið eftir Ólympíuleikanna í London en mikið hefur verið látið með þennan tvítuga strák. 1.8.2012 15:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þróttur 3-0 | Stjarnan í bikarúrslit Stjarnan mun leika til úrslita í Borgunar-bikarnum í fyrsta sinn eftir góðan 3-0 sigur á Þrótti í undanúrslitum á Samsung-vellinum í kvöld. Stjarnan vann fyllilega verðskuldaðan sigur og var hreinlega einu númeri of stórir fyrir 1. deildar lið Þróttar R. sem barðist þó vel og hefði með smá heppni getað komið sér inn í leikinn. 1.8.2012 14:11
Ingvar: Þetta var meira í framtíðardraumunum "Ég fékk bara að heyra af þessu í gærkvöldi," sagði Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar og nú íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, valdi hann í hóp sinn fyrir vináttuleik á móti Færeyjum. 1.8.2012 14:00