Fleiri fréttir

Nasri segir Old Trafford ekki vera jafn ógnvekjandi og áður

Frakkinn Samir Nasri hefur farið á kostum með Arsenal-liðinu að undanförnu og hann er sannfærður um að liðið geti náð góðum úrslitum í toppslagnum á móti Manchester United á Old Trafford á morgun. Arsenal fór upp fyrir United um síðustu helgi og komst í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Drogba klikkaði á víti í lokin í jafntefli Tottenham og Chelsea

Lundúnaliðin Tottenham og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli á White Hart Lane í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Roman Pavlyuchenko kom Tottenham yfir en Didier Drogba kom inn á sem varamaður og tryggði Chelsea stig en hann hefði getað tryggt liðinu sigur úr víti í uppbótartíma leiksins. Leikurinn var frábær skemmtun, mikill hraði og nóg af dramatík.

Fletcher: Ég er ekki grófur leikmaður

Enskir fjölmiðlar hafa rifjað upp ummæli Arsene Wenger, stjóra Arsenal, sem hann átti um Manchester United manninn Darren Fletcher í fyrra. Franski stjórinn gagnrýndi spilamennsku Fletcher eftir leik liðanna í fyrra og kallaði hann grófan og óheiðarlegan leikmann.

Bolton skoraði tvö mörk manni færri og vann Blackburn

Bolton vann 2-1 sigur á Blackburn í ensku úrvalsdeildini þrátt fyrir að lenda manni undir í stöðunni 0-0 þegar 34 mínútur voru eftir af leiknum. Wolves bætti stöðu sína á botninum með því að vinna 1-0 sigur á Birmingham.

Bruno Labbadia verður þriðji þjálfari Stuttgart á tímabilinu

Bruno Labbadia hefur verið ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Stuttgart og mun verða kynntur til leik seinna í dag. Labbadia fær það krefjandi verkefni að koma þessu gamla stórliði upp út fallsæti en það eru aðeins þrjú ár síðan liðið varð þýskur meistari.

Dýrmætt sigurmark en dýrkeyptur fögnuður

Juan Angel Albin tryggði Getafe 1-0 sigur á Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær en markið skoraði hann á 90. mínútu leiksins og tryggði sínu liði þar sem þriðja sigurinn í röð.

Zlatan Ibrahimovic maðurinn á bak við sigur AC Milan

Svíinn Zlatan Ibrahimovic var maðurinn á bak við 3-0 útisigur AC Milan á Bologna í ítölsku deildinni í dag en með honum náði liðið sex stiga forskot á Lazio og Napoli. Lazio á reyndar leik inni seinna í dag.

Schweinsteiger: Vil frekar vinna Meistaradeildina með Bayern en Real

Bastian Schweinsteiger, miðjumaður Bayern Munchen og þýska landsliðsins, hefur verið orðaður við mörg stórlið í Evrópu að undanförnu en eyddi öllum vangaveltum í gær með því að skrifa undir nýjan samning við þýska liðið sem gildir til ársins 2016.

Farið að minna á Rooney-farsann - City hafnar beiðni Tevez

Manchester City hefur hafnað beiðni Carlos Tevez um að vera seldur frá félaginu og hafa forráðamenn félagsins lýst yfir vonbrigðum með fyrirliðann sinn sem hefur slegið í gegn hjá stuðningsmönnum félagsins á þeim átján mánuðum sem liðnir eru síðan að hann kom frá Manchester United.

Carlos Tevez vill fara frá Manchester City

Carlos Tevez er ekki lengur ánægður hjá Manchester City því samkvæmt frétt á Guardian þá hefur hann lagt inn formlega beiðni um að vera seldur frá enska félaginu. Tevez og stjórinn Roberto Mancini hafa deilt upp á síðkastið og argentínski framherjinn er víst ósáttur með varnarsinnaðan leik liðsins.

Brian Kidd líkir Mancini við Sir Alex Ferguson

Brian Kidd, aðstoðarmaður Roberto Mancini hjá Manchester City, ætti að þekkja muninn á stjórum Manchester-liðanna betur en flestir enda búinn að vinna með þeim báðum.

YNWA hefur fengið nýja þýðingu hjá Liverpool-mönnum

Lagið "You will never walk alone" er heimsfrægur baráttusöngur Liverpool-manna og að eilífu tengt félaginu en eftir enn eitt tapið á útivelli í kvöld hafa stuðningsmenn Liverpool undið nýja þýðingu fyrir skammstöfunina YNWA.

Pardew: Ekki mörg lið sem skora þrjú á móti Liverpool

„Þetta var frábær sigur og það eru ekki mörg lið sem geta skorað þrjú mörk á móti Liverpool," sagði stoltur Alan Pardew eftir 3-1 sigur Newcastle á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þetta var fyrsti leikur liðsins undir hans stjórn og hann skilaði liðinu upp fyrir Liverpool og í 8. sætið í deildinni.

Newcastle vann 3-1 sigur á Liverpool í fyrsta leik Pardew

Newcastle byrjaði frábærlega undir stjórn Alan Pardew í kvöld þegar liðið vann 3-1 sigur á Liverpool á St James' Park í ensku úrvalsdeildinni. Newcastle-liðið komst með þessum sigri upp í áttunda sæti en Liverpool heldur áfram skelfilegu gengi sínu á útivelli undir stjórn Roy Hodgson.

Tony Pulis: Stundum er þetta ekki bara þinn dagur

Tony Pulis, stjóri Stoke, lét Eið Smára Guðjohnsen sitja á varamannabekknum áttunda leikinn í röð þegar liðið tapaði 0-1 á heimavelli á móti Blackpool í ensku úrvalsdeildinni í dag. Blackpool skoraði sigurmark sitt í upphafi seinni hálfleiksins.

Enski boltinn: Manchester City skoraði þrjú mörk án Tevez

Manchester City komst upp að hlið Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á botnliði West Ham á Upton Park í dag en Arsenal-menn halda toppsætinu á markatölu. Aston Villa vann sinn fyrsta sigur í fimm leikjum og Stoke tapaði heimavelli á móti Blackpool.

Gylfi lék allan leikinn í jafnteflisleik

Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Hoffenheim í þriðja sinn á tímabilinu og lék allan leikinn þegar liðið vann gerði 1-1 jafntefli á heimavelli á móti Nürnberg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Lampard verður ekki með á móti Tottenham á morgun

Frank Lampard þarf að bíða enn lengur eftir að snúa til baka í lið Chelsea eftir að ljóst varð að hann er ekki klár í að spila með liðinu á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Roy Hodgson neitaði að selja menn sem stjórnin vildi losna við

Roy Hodgson, stjóri Liverpool, fékk síðasta sumar lista frá Christian Purslow, fyrrum yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu en á listanum voru leikmenn sem stjórnin vildi selja frá félaginu. Hodgson hefur nú komið fram og þakkað gott gengi liðsins að undanförnu því þar hafi leikmenn af umræddum lista spilað mikilvægt hlutverk í velgengi liðsins síðustu vikur.

Ancelotti: Roman hefur lofað að reka hann ekki

Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, er öruggur í starfi þrátt fyrir skelfilegt gengi liðsins að undanförnu. Ítalinn segir að eigandinn Roman Abramovich ætli að standa með honum á meðan hann kemur Chelsea-liðinu aftur í gang.

Forseti Parma: Allir vilja Cassano

„Cassano er frábær leikmaður sem allir vilja hafa í sínu liði," segir Tommaso Ghirardi, forseti Parma á Ítalíu, sem er einn þeirra sem hafa lýst yfir áhuga á því að fá sóknarmanninn Antonio Cassano frá Sampdoria.

Houllier biðst afsökunar: Var sagt í gríni

„Ef það er eitthvað lið sem ég vil tapa fyrir 3-0 þá er það Liverpool á Anfield," sagði Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Aston Villa, eftir að lið hans tapaði illa síðasta mánudag. Þessi ummæli hans féllu í grýttan jarðveg hjá stuðningsmönnum Villa.

Xavi finnst furðulegt að Sneijder sé ekki meðal þriggja efstu

„Hann átti stórkostlegt ár," segir miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona um Wesley Sneijder hjá Inter. Mörgum finnst furðulegt að Sneijder sé ekki einn þeirra þriggja sem eiga möguleika á að hljóta gullknöttinn; vera knattspyrnumaður ársins hjá FIFA.

Heiðar tapaði gegn gömlu félögunum

Watford vann 3-1 útisigur á toppliði QPR í ensku B-deildinni í kvöld. Heiðar Helguson var í byrjunarliði QPR gegn sínu fyrrum félagi og lék í 70 mínútur áður en honum var skipt af velli.

Yaya Toure: Styttist í að ég sýni mínar bestu hliðar

Miðjumaðurinn Yaya Toure segir að stuðningsmenn Manchester City séu nú loks farnir að sjá það besta frá honum. Miklar væntingar voru gerðar til Fílabeinsstrendingsins enda keyptur frá Barcelona á morðfjár.

Platini hlynntur því að HM 2022 verði í janúar

Michel Platini, forseti knattspyrnusambands Evrópu, segist ekki vera mótfallinn þeirri hugmynd að spila heimsmeistaramótið 2022 um vetrartímann til að forðast steikjandi hitann í Katar yfir sumarið.

Dómari segir að Ronaldo sé svindlari

Cristiano Ronaldo, stórstjarna Real Madrid, er óheiðarlegur leikmaður. Þetta segir danski dómarinn Claus Bo Larsen sem dæmdi í vikunni sinn síðasta leik í Meistaradeildinni þegar Ajax vann AC Milan á San Siro.

Alan Pardew: Aðrir stjórar segja að ég sé klikkaður

Alan Pardew er sestur í stjórastólinn hjá Newcastle United þrátt fyrir að fjöldi stjóra hafi varað hann við að taka við liðinu. Pardew er áttundi stjóri félagsins á rúmlega fjórum árum og eigandinn Mike Ashley hefur ekki gott orð á sér fyrir að sýna stjórum sínum þolinmæði.

Ferguson bannar sínum mönnum að vera með hárband um hálsinn

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er ekki hrifinn af nýjustu tísku leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar en margir þeirra hafa spilað með þykkt hárband um hálsinn til þess að verjast kuldanum sem hefur verið í Englandi síðustu vikur.

Gylfi og Hólmfríður eru knattspyrnufólk ársins

Gylfi Sigurðsson og Hólmfríður Magnúsdóttir eru knattspyrnufólk ársins að mati Knattspyrnusambands Íslands. Þetta er í sjöunda sinn sem KSÍ útnefnir sérstaklega knattspyrnumann og -konu ársins.

Steven Gerrard ætti að ná Fulham-leiknum - ekki með um helgina

Steven Gerrard verður ekki með Liverpool á móti Newcastle um helgina en ætti að geta spilað leikinn á móti Fulham um næstu helgi. Gerrard er enn að ná sér góðum eftir að hafa meiðst aftan í læri í vináttulandsleik Englendinga og Frakka á dögunum.

Patrice Evra segir Arsenal vera eins og knattspyrnuskóli

Sálfræðistríðið fyrir toppslag Manchester United og Arsenal á mánudagskvöldið er hafið og franski bakvörðurinn hjá Manchester United, Patrice Evra, hraunaði aðeins yfir Arsenal-liðið í viðtali við frönsku sjónvarpsstöðina Canal+.

Meiðslavandræði Arsenal halda áfram - Gibbs frá í 3 vikur

Kieran Gibbs, bakvörður Arsenal, verður frá næstu þrjár vikurnar vegna ökklameiðsli sem hann varð fyrir í Meistaradeildarleik á móti Partizan Belgrad í vikunni. Gibbs er enn einn leikmaður Arsenal á þessu tímabili sem verður lengi frá vegna meiðsla.

Ítalskir leikmenn hættir við að fara í verkfall um helgina

Leikmannasamtök ítölsku A-deildarinnar hafa hætt við boðað verkfall um helgina eftir að þau náðu samkomulagi við forráðamenn ítölsku deildarinnar í gær. Samingurinn hefur ekki verið undirritaður en leikmenn hafa engu að síður hætt við verkfallið.

Mancini: Lærið að vinna án Carlos Tevez

Carlos Tevez verður í leikbanni um helgina þegar Manchester City mætir hans gamla félagi West Ham og það gæti skapað vandræði fyrir City-liðið enda hefur Tevez verið allt í öllu í sóknarleik liðsins.

Sjá næstu 50 fréttir