Fleiri fréttir

Lennon skoraði sigurmarkið gegn Liverpool í uppbótartíma

Martin Skrtel skoraði fyrir bæði lið þegar Tottenham vann 2-1 sigur á Liverpool í lokaleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Skemmtanagildi leiksins var feykilega hátt en Aaron Lennon skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma.

Brotið blað - Öll liðin skoruðu um helgina

Fimmtánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar 2010-2011 kemst í sögubækurnar. Öllum liðum deildarinnar tókst að skora í umferðinni en það er í fyrsta sinn í sögu deildarinnar sem það gerist.

Ancelotti: Þurfum að gera betur fyrir framan markið

Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segir að liðið þurfi að fara að skora meira á útivöllum ef það ætli sér að verja Englandsmeistaratitil sinn. Þeir bláklæddu hafa aðeins skorað eitt útivallamark í síðustu þremur deildarleikjum.

Sol Campbell sáttur með stigið

Sol Campbell, varnarmaður Newcastle, var ánægður eftir að hafa leikið sinn fyrsta byrjunarliðsleik í ensku úrvalsdeildinni fyrir félagið. Hann stóð sig vel í 1-1 jafntefli gegn Englandsmeisturum Chelsea í dag.

Casillas fullur sjálfstrausts fyrir El Clasico

„Undir stjórn Mourinho erum við orðnir vanir því að tapa ekki leik," segir Iker Casillas, markvörður og fyrirliði Real Madrid. Liðið mætir Barcelona annað kvöld í risaslag spænska boltans.

Ísmaðurinn Gylfi Þór slær í gegn

Gylfi Þór Sigurðsson gengur undir nafninu ísmaðurinn í þýskum fjölmiðlum í dag eftir jöfnunarmarkið sem hann skoraði fyrir Hoffenheim gegn Leverkusen í gær.

Myndband af jöfnunarmarki Kolbeins

Kolbeinn Sigþórsson skoraði jöfnunarmark AZ Alkmaar á 90. mínútu gegn Heerenveeen í hollensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Peter Crouch vill vera hjá Tottenham út ferilinn

Sóknarmaðurinn Peter Crouch vill vera með Tottenham út ferilinn. Hann hóf feril sinn hjá félaginu en var seldur til Queens Park Rangers áður en hann hafði leikið með aðalliði félagsins.

Moyes efstur á lista Tottenham ef Redknapp fer

Eins og oft áður er heitt undir landsliðsþjálfara Englands. Raddir sem vilja fá heimamann við stjórnvölinn á ný verða æ háværari og þar er Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, oft nefndur til sögunnar.

Ferguson: Van der Sar hættir líklega í vor

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, á von á því að Edwin van der Sar muni leggja hanskana á hilluna þegar að tímabilinu lýkur í ensku úrvalsdeildinni.

Grant himinlifandi með sigurinn

Avram Grant, stjóri West Ham, var vitaskuld afar ánægður með 3-1 sigurinn á Wigan í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Kolbeinn tryggði AZ jafntefli

Strákarnir í U-21 landsliðinu eru greinilega mikið fyrir það að skora dramatísk jöfnunarmörk með sínum liðum í Evrópu - alla vega í dag.

Myndband af jöfnunarmarki Gylfa

Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Hoffenheim er hann tryggði sínu mönnum annað stigið gegn Leverkusen í dag.

QPR vann toppslaginn

QPR styrkti stöðu sína á toppi ensku B-deildarinnar með 2-1 sigri á Cardiff í toppslag ensku B-deildarinnar í dag.

Grétar Rafn og Eiður Smári á bekknum

Grétar Rafn Steinsson og Eiður Smári Guðjohnsen eru báðir á varamannabekk sinna liða í leikjum þeirra í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal á toppinn

Arsenal er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar, um stundarsakir að minnsta kosti, eftir 4-2 útisigur á Aston Villa í dag.

United búið að kaupa Lindegaard

Danski landsliðsmarkvörðurinn Anders Lindegaard hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Manchester United.

Kristinn Björnsson til Keflavíkur

Njarðvíkingurinn Kristinn Björnsson hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs við granna sína í Keflavík. Þetta var staðfest á heimasíðu Keflavíkur.

Gunnar Þór til KR

Gunnar Þór Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við KR og hefur hann samið við félagið til eins árs. Frá því er greint á heimasíðu KR.

Hermann kom við sögu í sigurleik Portsmouth

Hermann Hreiðarsson kom inn á sem varamaður þegar að Portsmouth gerði sér lítið fyrir og vann sterkt lið Swansea á útivelli í ensku B-deildinni í gær, 2-1.

Schalke vill fá Michael Owen

Þýska úrvalsdeildarfélagið Schalke er sagt í frönskum fjölmiðlum í dag vilja fá Michael Owen frá Manchester United þegar félagaskiptaglugginn opnar um áramótin.

Wenger: Fabregas verður ekki eins og Owen

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er viss um það að Cesc Fabregas lendi ekki í sama vítahring og Michael Owen er búinn að ganga í gegnum á sínum ferli. Fabregas hefur eins og Owen misst úr mikið af leikjum hjá Arsenal á þessu tímabili.

Reina: Liverpool verður að styrkja sig til að halda sínum bestu mönnum

José Reina, markvörður Liverpool, segir að Liverpool sé ekki eins sterkt og Arsenal, Chelsea, Tottenham eða Manchester-félögin. Hann segir að Liverpool eigi þó möguleika á Meistaradeildarsæti en það verður erfitt að gera betur en fyrrnefnd lið í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.

Noble ekki meira með á árinu

Ekkert virðist ganga West Ham í hag þessa dagana. Nú hefur verið greint frá því að Mark Noble verði frá keppni þar til á nýju ári vegna meiðsla.

King hittir sérfræðing vegna meiðslanna

Ledley King hefur ekkert getað spilað með Tottenham undanfarinn mánuð vegna meiðsla í nára. Hann mun hitta sérfræðing í Kaupmannahöfn í næstu viku vegna meiðslanna.

Fletcher ekki með United á morgun

Darren Fletcher er enn meiddur á ökkla og getur því ekki spilað með Manchester United gegn Blackburn í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Redknapp vill frekar verða Englandsmeistari en Evrópumeistari

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segist vilja frekar gera Tottenham að Englandsmeisturum í vor en að vinna Meistaradeildina fyrstir Lundúnaliða. Tottenham tryggði sér sæti í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni og framundan er leikur á móti Liverpool um helgina.

Forsætisráðherra Spánar spáir Barca 4-2 sigri á móti Real

Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar er viss um að Barcelona-liðið muni vinna El Clasico á móti Real Madrid en leikurinn fer fram á Camp Nou á mánudagskvöldið. Ráðherrann er reyndar hlutdrægur því hann er harður stuðningsmaður Barcelona.

Ramsey lánaður til Nottingham Forest

Aaron Ramsey hefur verið lánaður til Nottingham Forest þar sem hann fær tækifæri til að koma sér aftur á skrið eftir að hafa tvífótbrotnað í leik með Arsenal á síðustu leiktíð.

Sjá næstu 50 fréttir