Fleiri fréttir

Frábært stig hjá Bolton

Bolton nældi sér í verulega gott stig í dag þegar Birmingham kom í heimsókn. Bolton kom til baka í leiknum eftir að hafa lent manni færri og tveim mörkum undir.

Umfjöllun: Karaktersigur Eyjamanna gegn Fylki

ÍBV sigraði Fylki, 2-1, í Árbænum í kvöld og óhætt er að segja að sigurinn hafi verið sanngjarn. Þrátt fyrir að leika manni færri megnið af leiknum voru það Eyjamenn sem réðu ferðinni og máttlítil mótspyrna Fylkismanna gerði það að verkum að ekki mátti á milli sjá hvort liðið væri með 10 menn inn á vellinum.

Umfjöllun: Dramatískur sigur hjá Fram

Framarar sigruðu Stjörnumenn, 3-2, á teppinu í Garðabæ í kvöld eftir að hafa náð forystu snemma leiks og síðan lent undir en Ívar Björnsson tryggði þeim sigurinn með marki á lokamínútum leiksins. Með þessu lyftir Fram sér upp fyrir bæði Keflavík sem tapaði í gær gegn Haukum og Stjörnumenn.

Umfjöllun: Blikar hvergi nærri hættir

Breiðablik reis upp eftir tapið gegn Haukum í síðustu umferð og lagði Grindvíkinga sannfærandi 4-2 á útivelli. Þetta var fyrsti tapleikur Grindavíkur sem þjálfarinn Ólafur Örn Bjarnason er viðstaddur á þessu sumri.

Gary Neville: Chelsea búið með létta leiki

„Chelsea hefur vissulega unnið stóra sigra í upphafi móts en þeir eiga eftir að leika erfiða leiki," segir Gary Neville, bakvörður Manchester United, í vikulegum pistli sínum í Sunday Times of Malta.

Meireles kom til Liverpool út af Hodgson

Liverpool er búið að festa kaup á portúgalska landsliðsmanninum Raul Meireles frá Porto. Meireles skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið.

Dyrnar enn opnar fyrir Beckham

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, neitar því að vera búinn að útiloka David Beckham frá enska landsliðinu.

Capello brjálaður út í The Sun

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, er algörlega brjálaður yfir því að hafa verið kallaður "Jackass" í enskum fjölmiðlum.

Var með 12 þúsund krónur í mánaðarlaun

Brasilíumaðurinn Ramires er klár í baráttuna hjá Chelsea en þessi harðduglegi 23 ára miðjumaður þekkir ekkert annað en að hafa verulega fyrir hlutunum í lífinu.

Benitez: Þarf að breyta ýmsu eftir Mourinho

Rafa Benitez, þjálfari Inter, segir að það muni taka tíma að breyta ákveðnum hlutum hjá félaginu sem José Mourinho innleiddi hjá félaginu. Inter tapaði fyrir Atletico Madrid í Ofurbikarnum og leit ekki of vel út.

Burdisso kominn til Roma

Roma er búið að kaupa argentínska varnarmanninn Nicolas Burdisso frá Inter en leikmaðurinn vildi ólmur ganga aftur í raðir Roma.

Milan fær Zlatan með góðum afslætti

AC Milan tilkynnti í kvöld að Zlatan Ibrahimovic væri orðinn leikmaður félagsins. Hann mun skrifa undir fjögurra ára samning á mánudag.

Lampard á leið í aðgerð vegna kviðslits

Chelsea staðfesti í dag að Frank Lampard þurfi að gangast undir aðgerð vegna kviðslits og hann mun þvi missa af leikjum Englands í undankeppni EM. Peter Crouch og Bobby Zamora eru einnig tæpir.

Guardiola reiður út í umboðsmann Zlatans

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hefur loksins rofið þögnina um Zlatan Ibrahimovic og hann ræðst harkalega að umboðsmanni leikmannsins, Mino Raiola, fyrir það hvernig hann heldur á málum skjólstæðings síns.

Willum: Vandræðagangur á okkur allan tímann

Það skein ákveðið vonleysi úr andliti Willums Þórs Þórssonar, þjálfara Keflavíkur, eftir tapið gegn Haukum í dag. Keflavík hefur aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum og leikur liðsins í dag var ekki góður.

Öruggur sigur hjá Man. Utd

Man. Utd komst aftur á beinu brautina í dag er liðið vann öruggan sigur á West Ham, 3-0, á Old Trafford.

KA og Leiknir gerðu jafntefli

Leikni mistókst að endurheimta toppsætið í 1. deild karla í dag er Breiðholtsliðið gerði jafntefli, 2-2, við KA á Akureyri.

Ferguson ósáttur við Wenger

Eina ferðina enn hefur slest upp á vinskap Sir Alex Ferguson og Arsene Wenger. Þeir félagar voru vanir að takast á hér áður en hafa verið merkilega kurteisir hvor við annan síðustu ár.

Umfjöllun. Haukar á uppleið en Keflavík í krísu

Haukar tóku á móti Keflavík á Vodafonevellinum í dag en þetta var fyrsti leikur 18. umferðar Pepsi-deildar karla. Botnliðið var miklu betra nær allan leikinn og vann sanngjarnan 2-0 sigur.

Benjani til Blackburn frá Man City

Blackburn hefur fengið sóknarmanninn Benjani Mwaruwari frá Manchester City. Benjani er 32 ára og hefur æft með Rovers í þessum mánuði eftir að hafa verið leystur undan samningi frá City í júní.

FC Bayern lá fyrir nýliðunum

Það urðu heldur betur óvænt úrslit í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar nýliðar Kaiserslautern unnu sigur á stórliði FC Bayern 2-0.

Sabrosa hættur með Portúgal

Simao Sabrosa, vængmaður Atletico Madrid, er hættur að leika með landsliði Portúgals. Hann segir ákvörðun sína byggða á persónulegum ástæðum.

Atletico Madrid vann Ofurbikarinn

Spænska liðið Atletico Madrid vann leikinn um Ofurbikarinn í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á Inter í þessum árlega leik milli sigurvegaranna í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni.

Platini: Dómarar hafa engar afsakanir lengur

Michel Platini, forseti UEFA, er hæstánægður með árangurinn af tilraununum með notkun fimm dómara. Hann segir að ekki sé lengur pláss fyrir slaka dómara í fótboltanum.

Hætta í stjórn vegna trúnaðarbrests

Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar Vals hafa, ásamt formönnum meistaraflokksráðs og heimaleikjaráðs, látið af stjórnarstörfum fyrir Val. Deilur innan stjórnar og trúnaðarbrestur er ástæða þess að fjórmenningarnir segja af sér.

Styttra í Ferdinand en talið var

Rio Ferdinand, leikmaður Manchester United, gæti snúið fyrr á fótboltavöllinn en reiknað var með. Fyrir viku síðan sagði Sir Alex Ferguson, að ekki mætti búast við endurkomu leikmannsins fyrr en í lok september.

Tilfinningaþrungin stund fyrir Cudicini

Ítalski markvörðurinn Carlo Cudicini segir að það hafi verið tilfinningaþrungin stund er hann kom aftur inn í lið Tottenham í fyrsta skipti eftir meiðsli sem hefðu getað bundið enda á feril hans.

Sjá næstu 50 fréttir