Fótbolti

Ketsbaia hættur hjá Famagusta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Temuri Ketsbaia, fyrrum stjóri Famagusta frá Kýpur.
Temuri Ketsbaia, fyrrum stjóri Famagusta frá Kýpur. Nordic Photos / AFP
Temuri Ketsbaia er hættur sem knattspyrnustjóri kýpverska félagsins Anorthosis Famagusta sem sló í gegn í Meistaradeild Evrópu í vetur.

Þetta var í fyrsta sinn sem félag frá Kýpur kemst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið á þó enga möguleika lengur á meistaratitlinum í heimalandi sínu og ákvað hann því að hætta.

„Við báðum hann um að endurskoða sína ákvörðun þar sem hann var helsta ástæðan fyrir velgengni okkar. En hann sagði ákvörðun sína endanlega," sagði í yfirlýsinu sem félagið birti á heimasíðu sinni.

Ketsbaia er fyrrum leikmaður Newcastle og hefur verið orðaður við stjórastöðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×