Fótbolti

Obama Bandaríkjaforseti skrifaði bréf til FIFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Mynd/GettyImages

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar að beita sínum áhrifum til að hjálpa Bandaríkjamönnum að fá að halda HM í fótbolta árið 2018 eða árið 2022. Hann hefur nú sent formlegt bréf til Alþjóðaknattspyrnusambandsins.

„Ég spilaði fótbolta sem barn á skítugum vegi í Jakarta og öll börnin í nágrenninu sameinuðust til að spila þennan leik," skrifaði Obama í bréfinu en hann hefur verið meira þekktur fyrir áhuga sinn á körfubolta.

„Fótbolti er íþrótt alls heimsins og þar sameinast heimurinn í heiðarlegri keppni. Þetta boð snýst um meira en að hýsa fótboltaleiki heldur er bandaríska þjóðin að bjóða öllum heiminum til að koma og upplifa drauma sína," skrifaði Obama.

FIFA mun ákveða það í desember 2010 hvar þessar tvær heimsmeistarakeppnir verða spilaðar. HM fór síðast fram í Bandaríkjunum árið 1994 og þá komu 69.991 að meðaltali á hvern leik sem er enn met.

England og Spánn eru talin líklegust til að fá að halda keppnina árið 2018 en menn búast við því að Bandaríkjamenn fái að halda HM árið 2022. Spánverjar ætla að halda keppnina með nágrönnum sínum Portúgölum.

Það eru líka fleiri þjóðir að sækjast eftir keppnunum. Á listanum eru Ástralía, Indónesía, Japan, Mexíkó, Rússland og sameiginlegt boð frá Hollandi og Belgíu. Katar og Suður-Kórea sækjast síðan aðeins eftir að halda HM 2022.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×