Fleiri fréttir

Viðar kominn heim í Fram

Miðjumaðurinn Viðar Guðjónsson er aftur genginn í raðir Fram og hefur samið við félagið út tímabilið. Viðar fékk sig lausan frá Fylki fyrir skömmu en í fyrra lék hann með Víkingi.

Evra ákærður eftir átökin á Stamford Bridge

Franski varnarmaðurinn Patrice Evra hjá Manchester United hefur verið ákærður fyrir ósæmilega hegðun af enska knattspyrnusambandinu eftir áflog sem brutust út eftir leik Chelsea og Manchester United þann 26. apríl sl.

Carson semur við WBA

Markvörðurinn Scott Carson hefur gengið frá þriggja ára samningi við enska úrvalsdeildarfélagið WBA og fær Liverpool um 3,25 milljónir punda fyrir hann. Carson er sjöundi leikmaðurinn sem gengur í raðir nýliðanna í sumar.

Ferguson: Ronaldo spilar með United næsta vetur

Sir Alex Ferguson virðist nú hafa tekið af allan vafa með framtíð Cristiano Ronaldo hjá Manchester United. Knattspyrnustjórinn fullyrti í samtali við BBC nú rétt áðan að leikmaðurinn yrði hjá félaginu á næstu leiktíð.

Giuly semur við PSG

Vængmaðurinn Ludovic Giuly hefur gert þriggja ára samning við PSG í Frakklandi eftir eitt ár hjá Roma á Ítalíu. Giuly var lykilmaður í velgengni Barcelona árið 2006 en síðan hefur heldur hallað undan fæti hjá kappanum. Hann var aðeins 17 sinnum í byrjunarliði Roma á síðustu leiktíð.

Ronaldo kemur

Stjórn Real Madrid kom saman í síðasta skipti fyrir sumarfrí í gærkvöld. Spænskir fjölmiðlar hafa áhugaverða hluti eftir forseta félagsins, Ramon Calderon.

Gerðu Ferguson bara reiðan

Sápuóperunni í kring um Cristiano Ronaldo hjá Manchester United er hvergi nærri lokið og nú hefur Roy Keane blandað sér í hana með áhugaverðum ummælum.

Ronaldinho gerði þriggja ára samning

Ronaldinho hefur nú formlega verið kynntur til leiks sem nýjasti leikmaður AC Milan á Ítalíu. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið og á myndinni með fréttinni má sjá kappann í búningi Milan.

Ferguson staðfestir tilboð í Berbatov

Sir Alex Ferguson staðfesti í dag að Manchester United hefði gert kauptilboð í framherjann Dimitar Berbatov hjá Tottenham. Ekki hefur verið gefið upp hve hátt það var en fregnir herma að það hafi verið undir 25 milljónum punda - sem er sögð upphæðin sem Tottenham vill fyrir Búlgarann.

Selfyssingar unnu Víkinga

Heil umferð var leikin í 1. deildinni í kvöld en þá hófst seinni helmingur mótsins. Selfyssingar unnu Víking Reykjavík á heimavelli sínum og söxuðu á forystu Eyjamanna sem gerðu jafntefli við Leikni.

Peter Reid þjálfar Tæland

Enski knattspyrnustjórinn Peter Reid er tekinn við landsliði Tælands en hann hefur skrifað undir samning til fjögurra ára.

FH vann eftir að hafa lent tveimur mörkum undir

FH vann í kvöld 3-2 sigur á Grevenmacher frá Lúxemborg í forkeppni Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn fór fram á Kaplakrikavelli en þetta var fyrri viðureign þessara liða.

Buffon: AC Milan líklegast

Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, segir að AC Milan sé sigurstranglegasta liðið fyrir komandi tímabil á Ítalíu. AC Milan hafnaði í fimmta sæti síðasta tímabil en liðið gekk frá kaupum á Ronaldinho í gær.

Gilberto farinn til Panathinaikos

Arsenal hefur staðfest að Gilberto Silva sé kominn til Panathinaikos. Gilberto missti sæti sitt til Mathieu Flamini á síðasta tímabili.

Skagamenn töpuðu með þriggja marka mun

ÍA tapaði fyrir finnska liðinu FC Honka í fyrri leik liðanna í UEFA bikarnum í dag. Honka vann leikinn 3-0. Liðið var komið með tveggja marka forystu eftir hálftíma leik og innsiglaði síðan sigurinn með þriðja markinu snemma í seinni hálfleik.

Af hverju að spila fyrir 6000 áhorfendur?

Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, segir að félagið hafi neitað 12 milljón punda tilboði Monaco í króatíska landsliðsmanninn Niko Kranjcar. Hinn 23 ára gamli miðjumaður hefur verið orðaður við nokkur félög í Evrópu í sumar, en virðist ánægður í herbúðum Portsmouth.

Lampard er milli steins og sleggju

Massimo Moratti, forseti Inter Milan, segir að Frank Lampard hjá Chelsea viti ekki í hvorn fótinn hann á að stíga varðandi það hvort hann á að halda áfram hjá Chelsea eða breyta til og fara til Inter.

Ferguson vonast til að landa einum sterkum leikmanni

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir félagið hafa gert kauptilboð í leikmann sem muni styrkja liðið til muna. Annars ætlar hann að mestu að byggja lið sitt á sömu mönnum og tryggðu United frábæran árangur á síðustu leiktíð.

Everton hafnaði tilboði Wigan í Johnson

Sky fréttastofan greindi frá því í dag að Everton hefði neitað 9 milljón punda tilboði Wigan í framherjann Andy Johnson í dag. Johnson hefur skorað 17 mörk í þeim 53 leikjum sem hann hefur verið í byrjunarliði Everton síðan hann kom frá Crystal Palace árið 2006.

Cahill missir af fyrstu leikjum Everton

Miðjumaðurinn Tim Cahill mun missa af fyrstu leikjum Everton á leiktíðinni þar sem hann er enn að jafna sig eftir ristarbrot. Sömu sögu er að segja af framherjanum James Vaughan, en hann verður ekki klár þegar flautað verður til leiks í næsta mánuði.

Stoke hætt við að kaupa Carson

Stoke City hefur dregið sig út úr kapphlaupinu um markvörðinn Scott Carson hjá Liverpool, sem á dögunum samþykkti 3,5 milljón punda kauptilboð nýliðanna í landsliðsmarkvörðinn.

Hlakka til að spila með Keflavík aftur

Miðjumaðurinn Jóhann B. Guðmundsson hjá Gais í Svíþjóð er á leið heim til Keflavíkur eftir rúman áratug í atvinnumennsku erlendis. Vísir náði tali af Jóhanni í dag og spurði hann hvernig honum litist á að koma heim á ný.

Aimar semur við Benfica

Argentínski landsliðsmaðurinn Pablo Aimar gekk í dag frá samningi við portúgalska félagið Benfica, en hann var áður á mála hjá Real Zaragoza sem féll úr spænsku úrvalsdeildinni í sumar.

Lætur Seedorf tíuna af hendi?

Koma Brasilíumannsins Ronaldinho til AC Milan hefur eðlilega vakið mikla athygli á Ítalíu. Forvitni vekur hvort brasilíski töframaðurinn muni fá treyju númer 10 hjá Milan, en það verður að teljast nauðsynlegt í ljósi þess að fyrirtækið sem sér um ímynd hans heitir R10.

Liverpool semur við Ungverja

Liverpool gekk í dag frá samningi við fjórða Ungverjann á skömmum tíma þegar það fékk hinn 17 ára gamla Zsolt Poloskei frá MTK Budapest á eins árs lánssamning.

Robinho orðaður við Barcelona

Umboðsmaður brasilíska ungstirnisins Robinho hjá Real Madrid segir að Barcelona, Chelsea og Manchester United hafi öll áhuga á að fá hann í sínar raðir í sumar.

Eto´o er í Úsbekistan

Ein óvæntasta fréttin í knattspyrnuheiminum í vikunni var án efa yfirlýsingin frá meistaraliði Kuruvchi í Úsbekistan, þar sem því var haldið fram að félagið hefði náð samkomulagi við framherjann Samuel Eto´o hjá Barcelona um að leika með liðinu.

James Posey semur við Hornets

Framherjinn James Posey hjá meistaraliði Boston Celtics ákvað í gærkvöld að gera fjögurra ára samning við New Orleans Hornets í NBA deildinni. Samningurinn er sagður metinn á 25 milljónir dollara, en Boston var ekki tilbúið að bjóða honum svo mikið.

Djemba-Djemba í danska boltann

Stjörnuhrap miðjumannsins Eric Djemba-Djemba hélt áfram í dag þegar hann gerði þriggja ára samning við danska liðið OB Odense. Djemba-Djemba var fenginn til Manchester United 2003.

Hull bætir við sig

Hull City hefur gengið frá kaupum á þremur leikmönnum. Það eru þeir Peter Halmosi, George Boateng og Tony Warner en félagið er að undirbúa sig undir sitt fyrsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni.

Koma Ronaldo gæti valdið usla í hópi Real Madrid

Wesley Sneijder, leikmaður Real Madrid, telur að ef Cristiano Ronaldo verði keyptur til félagsins gæti það valdið óróa í leikmannahópnum. Nokkrir leikmenn myndu ekki sætta sig við að fá mun lægri launatölur en sá portúgalski.

Of margir slakir útlendingar í deildinni?

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, sagði í þætti á Stöð 2 Sport í gær að of margir slakir erlendir leikmenn væru í Landsbankadeildinni. Það kæmi niður á ungum íslenskum leikmönnum.

Sigur hjá Helga og félögum

Helgi Valur Daníelsson og félagar í sænska liðinu Elfsborg unnu 2-1 útisigur á Halmstad í sænska boltanum í dag. Helgi Valur lék allan leikinn á miðju Elfsborg.

Innkaupum AC Milan er lokið í sumar

Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að með kaupunum á Ronaldinho frá Barcelona sé innkaupum félagsins lokið í sumar.

Hversu mikilvægur er Frank Lampard?

Miðjumaðurinn Frank Lampard hjá Chelsea hefur verið orðaður við Inter Milan á Ítalíu allar götur síðan Jose Mourinho tók þar við stjórnartaumunum.

Hleb: Ég vil vinna alla titla með Barcelona

Alexander Hleb er nú í Barcelona þar sem hann er í læknisskoðun vegna fyrirhugaðra félagaskipta sinna frá Arsenal. Hann ætlar sér stóra hluti með Katalóníufélaginu.

Shevchenko fær tækifæri hjá Scolari

Luiz Felipe Scolari, nýráðinn stjóri Chelsea, ætlar að gefa Úkraínumanninum Andriy Shevchenko fullt tækifæri til að sanna sig hjá liðinu næsta vetur. Shevchenko hefur átt misjöfnu gengi að fagna síðan hann var keyptur til Chelsea frá AC Milan á metfé.

Jo spilar sinn fyrsta leik í Færeyjum

Brasilíumaðurinn Jo sem kostaði Manchester City hátt í 20 milljónir punda, mun væntanlega spila sinn fyrsta leik fyrir liðið í Þórshöfn í Færeyjum annað kvöld þegar City mætir EB/Streymur í Uefa keppninni.

Gilberto á leið til Panathinaikos

Brasilíski miðjumaðurinn Gilberto Silva sem leikið hefur með Arsenal síðustu sex ár mun væntanlega semja við gríska liðið Panathinaikos á morgun. Kaupverðið er talið um ein milljón punda en sagt er að hann verði launahæsti leikmaður Grikklands með um 6 milljónir punda í laun á þeim þremur árum sem samningur hans spannar.

Hleb í læknisskoðun í Barcelona

Miðjumaðurinn Alexander Hleb hjá Arsenal mun í dag gangast undir læknisskoðun hjá spænska félaginu Barcelona og mun því væntanlega skrifa undir samning fljótlega.

Sjá næstu 50 fréttir