Íslenski boltinn

Skagamenn töpuðu með þriggja marka mun

Elvar Geir Magnússon skrifar

ÍA tapaði fyrir finnska liðinu FC Honka í fyrri leik liðanna í UEFA bikarnum í dag. Honka vann leikinn 3-0 á heimavelli sínum.

Liðið var komið með tveggja marka forystu eftir hálftíma leik og innsiglaði síðan sigurinn með þriðja markinu snemma í seinni hálfleik.

Honka fékk síðan vítaspyrnu undir lokin en Esben Madsen varði spyrnuna. Síðari viðureign þessara liða fer fram fimmtudaginn 31. júlí eða eftir tvær vikur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×