Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hodgson ráðinn til Inter Enski knattspyrnuþjálfarinn Roy Hodgson sem í dag sagði af sér sem landsliðsþjálfari Finna, hefur ráðið sig í vinnu sem aðstoðarmaður Massimo Moratti, forseta Inter á Ítalíu. 30.11.2007 19:33
Breytingar á Evrópukeppnunum í knattspyrnu Úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu fer fram á laugardegi frá og með árinu 2010 þar sem Wembley verður einn þeirra leikstaða sem kemur til greina. 30.11.2007 19:27
Ítarleg upphitun fyrir leiki helgarinnar Enski boltinn rúllar á fullu alla helgina þar sem Englendingar einbeita sér nú að félagsliðum sínum á ný eftir vonbrigði landsliðsins. Að venju eru nokkrir áhugaverðir leikir á dagskrá þar sem tveir nýir stjórar mæta til starfa. 30.11.2007 17:49
Eiður Smári í hópi Börsunga Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. 30.11.2007 16:14
Fabregas gæti misst af næstu þremur leikjum Arsenal Arsene Wenger, stjóri Arsenal, býst við því að Cesc Fabregas verði frá næstu tíu dagana og missi því af næstu þremur leikjum Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. 30.11.2007 16:06
Ronaldo: Augljóst að Kaka vinnur Brasilíumaðurinn Ronaldo segir að enginn vafi leiki á því að Kaka hljóti Gullboltann svokallaða sem France Football tímaritið veitir ár hvert. 30.11.2007 15:52
Paul McShane í Fram Skotinn Paul McShane hefur yfirgefið Grindavík og samið við Fram til næstu tveggja ára. 30.11.2007 15:44
Scolari: Ronaldinho búinn að toppa Luis Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgals, segir að Brasilíumaðurinn Ronaldinho sé búinn að toppa og að hann nái ekki fyrra formi aftur. 30.11.2007 15:31
Kaka, Messi og Ronaldo tilefndir sem leikmaður ársins Brasilíumaðurinn Kaka, Lionel Messi frá Argentínu og Portúgalinn Cristiano Ronaldo hafa verið tilefndir sem leikmaður ársins af Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. 30.11.2007 14:25
Kristinn í beinni á Sýn Leikur Everton og Zenit St. Pétursborgar í Evrópukeppni félagsliða verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn á miðvikudaginn. 30.11.2007 14:12
Henry ekki með Barcelona gegn Espanyol Thierry Henry mun ekki leika með Barcelona sem mætir Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. 30.11.2007 14:01
Hodgson hættur með Finna Roy Hodgson hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við finnska knattspyrnusambandið og hætta sem landsliðsþjálfari Finnlands. 30.11.2007 13:44
Breytinga að vænta á fyrirkomulagi Meistaradeildarinnar Knattspyrnusambandið hefur lagt til að breyta fyrirkomulagi Meistaradeildar Evrópu. Samkvæmt tillögunni komast þrjú lið úr ensku úrvalsdeildinni beint í riðlakeppnina. 30.11.2007 11:46
England tekur sér tíma til að ráða landsliðsþjálfara Brian Barwick, formaður enska knattspyrnusambandsins, segir að hann muni ræða við fjölda manna og taka sér góðan tíma til að ráða nýjan landsliðsþjálfara. 30.11.2007 10:15
Riðill U17-landsliðs karla leikinn á Íslandi Í gær var dregið í undankeppni Evrópumeistaramóts U-17 og U-19 landsliða karla í knattspyrnu. Riðill yngra liðsins verður leikinn á Íslandi í lok september. 30.11.2007 10:03
Eiður Smári vill spila á morgun Eiður Smári Guðjohnsen hefur jafnað sig fljótt og vel af meiðslunum sem hann hlaut í leik Barcelona og Lyon í Meistaradeildinni í vikunni og vonast til að vera klár í slaginn gegn Espanyol í spænsku deildinni á morgun. 30.11.2007 09:50
Tottenham bjargaði andlitinu Margir forvitnilegir leikir voru á dagskrá í Uefa keppninni í knattspyrnu í kvöld. Tottenham náði að bjarga andlitinu gegn danska liðinu Álaborg og vinna 3-2 sigur eftir að hafa verið 2-0 undir á heimavelli í hálfleik. 29.11.2007 21:39
Ólarnir á skotskónum í Uefa keppninni Íslensku leikmennirnir sem voru í eldlínunni með liðum sínum í Uefa keppninni í knattspyrnu í kvöld létu mikið að sér kveða. Ólafur Örn Bjarnason kom Brann á bragðið úr vítaspyrnu þegar liðið lagði Dinamo Zagreb að velli 2-1 og Ólafur Ingi Skúlason skoraði fyrsta mark Helsingborg þegar liðið skellti Austría frá Vín 3-0. 29.11.2007 21:05
Benfica rauf 500 marka múrinn Portúgalska liðið Benfica varð í gærkvöld sjöunda liðið til að skora 500 mörk í Evrópukeppninni í knattspyrnu þegar Maximiliano Pereira skoraði í 1-1 jafntefli liðsins við AC Milan. 29.11.2007 19:34
Þorvaldur framlengir við Víking Þorvaldur Sveinn Sveinsson skrifaði í dag undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við knattspyrnudeild Víkings. Þessi 19 ára landsliðsmaður er því samningsbundinn uppeldisfélaginu sínu til loka árs 2010. 29.11.2007 19:25
Owen á undan áætlun Framherjinn Michael Owen hjá Newcastle gæti snúið aftur til æfinga eftir aðeins tvær vikur eftir að hafa verið í endurhæfingu í Þýskalandi. Owen sleit vöðva í læri á æfingu með enska landsliðinu um miðjan mánuðinn. 29.11.2007 18:11
Benitez: Ég er bara að reyna að vinna vinnuna mína Rafa Benitez segist vonast til að geta fundað með eigendum Liverpool fyrir leik liðsins gegn Manchester United í næsta mánuði. Hann segist ekki vera fúll út í eigendur félagsins og segist fyrst og fremst vera að reyna að sinna vinnu sinni sem best. 29.11.2007 17:48
Dregið í milliriðla á EM U19 Íslenska U19 ára landslið karla verður í milliriðli með Noregi, Ísrael og Búlgaríu í undankeppni EM 2008 þar sem sigurvegarinn í riðlinum kemst í úrslitakeppnana sem fram fer í Tékklandi í júlí á næsta ári. Milliriðillinn verður leikinn í Noregi í apríl og maí í vor. 29.11.2007 17:40
Leikjaniðurröðun á Algarve mótinu Íslenska kvennalandsliðið tekur þátt í æfingamótinu Algarve Cup í mars á næsta ári þar sem sterkar þjóðri munu leiða saman hesta sína. Íslenska liðið verður með Póllandi, Írlandi og Portúgal í riðli og fer mótið fram dagana 5.-12. mars. 29.11.2007 17:25
Torres: Benitez er einn sá besti Fernando Torres heldur því fram að Rafael Benitez sé einn besti knattspyrnustjóri í sögu félagsins. Torres skoraði tvívegis í sigri Liverpool á Porto í Meistaradeild Evrópu í gær. 29.11.2007 16:05
Redknapp bitur vegna framgöngu lögreglunnar Harry Redknapp sagði í dag að hann hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum með framgöngu lögreglunnar í Englandi sem handtók hann í gær í tengslum við rannsókn á spillingu í ensku knattspyrnunni. 29.11.2007 14:58
Wenger og Rijkaard fá eins leiks bann Arsene Wenger, stjóri Arsenal, og Frank Rijkaard hjá Barcelona munu báðir fá sjálfkrafa eins leiks bann fyrir brottvísanir sínar í Meistaradeildinni í vikunni. 29.11.2007 12:40
West Ham sagt vilja fá Ragnar Expressen heldur því fram í dag að Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, vilji fá Ragnar Sigurðsson til liðs við félagið. 29.11.2007 12:23
Johansson: Góð laun í boði á Íslandi Sænski knattspyrnumaðurinn Tobias Johansson segist í samtali við sænska fjölmiðla vera með samningstilboð frá Keflavík. 29.11.2007 12:05
Kristján Örn þarf að fara í aðgerð Kristján Örn Sigurðsson er með brotið bein í augntóftinni eftir samstuð við Grétar Rafn Steinsson í landsleik Íslands og Danmerkur í síðustu viku. 29.11.2007 11:15
Heiðar Geir til reynslu í Hollandi Heiðar Geir Júlíusson æfir þessa dagana með hollenska liðinu SC Cambuur Leeuwarden sem leikur í næstefstu deild þar í landi. 29.11.2007 10:44
Tottenham yfirspilað í fyrrihálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureign Tottenham og Aalborg í riðlakeppni UEFA keppninnar og hafa gestirnir frá Danmörku verðskuldaða 2-0 forystu. Enevoldsen og Risgard skoruðu mörk danska liðsins, en frammistaða heimamanna hefur verið í besta falli sorgleg. 29.11.2007 20:34
Góður endasprettur tryggði Liverpool sigur Liverpool heldur enn í vonina um að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 4-1 sigur á Porto í kvöld þar sem góður endasprettur enska liðsins gerði útslagið. 28.11.2007 21:30
Þessi var fyrir stuðningsmennina Rafa Benitez, stjóri Liverpool, tileinkaði stuðningsmönnum liðsins 4-1 sigurinn á Porto í Meistaradeildinni í kvöld. 28.11.2007 23:04
Aston Villa burstaði Blackburn Einn leikur fór fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Aston Villa gerði sér lítið fyrir og burstaði Blackburn 4-0 á útvielli. John Carew kom gestunum yfir í fyrri hálfleik og staðan var 1-0 þegar flautað var til hlés. 28.11.2007 21:52
Kaka ætlar að læra til prests Miðjumaðurinn strangtrúaði Kaka hjá AC Milan og brasilíska landsliðinu segir að sig langi að læra til prests þegar hann leggur skóna á hilluna. 28.11.2007 20:12
Ferguson: Náið í Jose Breska blaðið Sun hefur eftir heimildamanni sínum í kvöld að Sir Alex Ferguson hafi aðeins einn mann í huga þegar kemur að næsta landsliðsþjálfara Englendinga - Jose Mourinho. 28.11.2007 19:30
Stuðningsmenn Liverpool styðja Benitez Stuðningsmenn Liverpool munu í kvöld marsera til stuðnings Rafa Benitez knattspyrnustjóra fyrir leik liðsins gegn Porto í A-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld. 28.11.2007 19:14
BBC búið að grafa frétt sína um Mourinho Fyrr í dag birti fréttastofa BBC frétt um Jose Mourinho sem var ein aðalfrétt dagsins á íþróttavef fréttastofunnar. Nú er búið að grafa fréttina í annarri frétt. 28.11.2007 18:58
Redknapp einn hinna handteknu Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni, var einn þeirra fimm sem handteknir voru í tengslum við rannsókn Lord Stevens á spillingu í ensku knattspyrnunni. 28.11.2007 18:16
Defoe og Kaboul ekki með Tottenham á morgun Þeir Jermain Defoe og Younes Kaboul eru ekki í leikmannahópi Tottenham sem mætir Álaborg á heimavelli sínum í UEFA-bikarkeppninni á morgun. 28.11.2007 15:28
Ari Freyr semur við Sundsvall Ari Freyr Skúlason hefur skrifað undir þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Sundsvall og fer þangað frá Häcken sem leikur í 1. deildinni. 28.11.2007 15:15
Sven-Göran hissa á tíðum brottrekstrum Sven-Göran Eriksson, knattspyrnustjóri Manchester City, segist hissa á tíðum brottrekstrum knattspyrnustjóra á Englandi en nú þegar hafa sex stjórar fengið að taka poka sinn í ensku úrvalsdeildinni. 28.11.2007 15:03
Mourinho líklegastur hjá veðmöngurum Veðmangarar í Englandi telja nú líklegast að Jose Mourinho verði næsti þjálfari enska landsliðsins. 28.11.2007 14:54
Ekkert vandamál með Ronaldinho Frank Rijkaard, stjóri Barcelona, að það sé ekkert vandamál í kringum Brasilíumanninn Ronaldinho en hann var á bekknum í leik liðsins gegn Lyon í Meistaradeild Evrópu í gær. 28.11.2007 14:42