Upp­gjörið: KR - Stjarnan 91-82 | KR stóðst spennuna og allt jafnt

Árni Jóhannsson skrifar
KR-ingar eru búnir að jafna metin í þessu spennandi einvígi.
KR-ingar eru búnir að jafna metin í þessu spennandi einvígi. vísir/Diego

KR-ingar jöfnuðu einvígið við Stjörnuna í 1-1 í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Liðin mætast að nýju í Garðabæ á föstudaginn en vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslitin.

Lokatölur í Vesturbænum í kvöld urðu 91-82 en spennan var þó afar mikil nánast til loka.

Spennan var það mikil í byrjun að rafmagnið fór af salnum þegar flautan var við það að hringja til að gefa til kynna að leikurinn ætti að fara að byrja. Ástæðan fyrir því var að eldingu sló niður dreifikerfið rafmagns sem olli trufluninni á rafmagninu. Leikmenn fengu því auka 10 mínútur eða svo til að hita upp fyrir leikinn.

KR komst yfir og hélt Stjörnunni fyrir aftan sig allan tímann. KR byrjaði leikinn heilt yfir betur, spilaði góða vörn og fékk nóg af körfum til að mynda níu stiga forskot þegar um þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. Stjarnan tók örlítið við sér þegar Pablo Bertone og Bjarni Guðmann komu inn á en KR náði að halda gestunum í skefjum og voru með sex stig forskot þegar fyrsti leikhlutinn kláraðist.

Annar leikhlutinn var svo mjög hraður og skipst á körfum á löngum köflum en heimamenn komust fyrr í takt varnarlega og náðu að koma í veg fyrir að gestirnir kæmust á sprett. Friðrik Anton Jónsson steig vel upp og skoraði sjö stig í leikhlutanum og hélt heimamönnum gangandi þegar fór að kólna sóknarmegin hjá KR. Luka Gasic og Hilmar Smári gerðu þá vel í að setja niður stóra þrista til að halda KR í seilingarfjarlægð. Stjörnumenn voru búnir að ná að minnka muninn niður í fjögur stig þegar lítið var eftir af leikhlutanum en KR náði vopnum sínum í blálokin og þegar Þórir Guðmundur Þorbjarnarson negldi niður flautuþrist þá var forskotið komið aftur í níu stig þegar gengið var til búningsherbergja.

Liðin skiptust á að skora í upphafi þriðja leikhluta en eftir um tvær mínútur þá náði KR að toga sig frá Stjörnunni. Aftur var varnarleikurinn góður og skotin fóru ofan í og sjálfstraust KR-inga í sókn var mikið. Komust þeir meðst 14 stigum yfir og hafði maður á tilfinningunni að Vesturbæingar væru að fara að sigla leiknum heim. Annað kom á daginn. Upp steig Luca Gasic. Hann skoraði sjö stig í röð en Stjörnumenn náðu ekki að grípa það tækifæri. Það hinsvegar gaf þeim þannig byr undir vængina að þeir lögðu ekki árar í bát.

Liðin kólnðu á sóknarhelmingnum og KR hélt því forystunni. Staðan var 70-59 eftir að Friðrik Anton boraði niður þrist. Þá var tekið leikhlé og Stjarnan sprakk út. Pablo Bertone og Ægir Þór réðust á KR-ingana af mikilli hörku og áður en við var litið þá var Stjarnan búin að jafna metin í 70-70 og lokamínúta þriðja leikhluta var farin af stað. Linards Jauntsems náði þá loksins að skora af vítalínunni og kom í veg fyrir að Stjarnan komst yfir og Þórir bætti við tveimur stigum og KR hélt forskotinu yfir leikhlutaskiptin, 73-70.

KR byrjaði betur og komst í sjö stig forystu en Stjarnan var fljót að svara fyrir og minnkaði muninn í tvö stig. KR komst í fimm stiga forskot og Stjarnan jafnaði 80-80 en það virtist vera gesturnum úr Garðabæ lífsins ómögulegt að komast yfir en þeir fengu sannarlega tækifærin til þess. 

Mikill hamagangur var í öskjunni og skoruðu liðin sitthvora körfuna og staðan var 82-82. Þá hættu Stjörnumenn að ná í körfur. Þeim gekk vel að koma í veg fyrir að KR skoraði af krafti en þar sem engar körfur komu á móti þá náðu þeir ekki að komast yfir hólinn. KR náði að gera þá vel að stoppa Stjörnuna af og með flautuþrist frá Toms þá lauk leiknum með níu stiga sigri 91-82 fyrir heimamenn.

KR er þar með búið að jafna metin í einvíginu og við fáum í það minnsta fjóra leiki í þessu einvígi. Næsti leikur á föstudaginn í Garðabænum.

Atvik leiksins

Í stöðunni 85-82 stal Tóti Túrbó boltanum og Þorvaldur Orri Árnason tvö stig úr hraðaupphlaupi en það voru hans einu stig. Þá var ekki búið að skora stig í dágóðan tíma og kláraði þetta nánast leikinn fyrir KR.

Stjörnur og skúrkar

Linards Junzems skoraði 31 stig fyrir KR og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson bætti við 22 stigum og 13 stoðsendingum. Fengu KR framlag frá mörgum í dag en Toms Elvis Leimanis átti ekki góðan skotleik en hann hitti úr einu skoti af 11 og það kom alveg í blálokin.

Hjá Stjörnunni var Pablo Bertone stigahæstur með 19 stig en Hilmar Smári kom næstur með 16 stig. Seth LeDay gat ekki beitt sér almennilega en hann fékk sína fjórðu villu í lok fyrri hálfleiks og þurfti því að sitja mikið og gat kannski ekki beitt sér eins mikið og hann gerir. Hann skoraði fjögur stig en venjulega skorar hann um 18 stig í leik.

Umgjörð og stemmning

KR kann náttúrlega að halda leik í úrslitakeppni og hafa engu gleymt þó að fjögur ár séu liðin frá því að þeir voru hér síðast. Fleiri en 1200 áhorfendur létu svo vel í sér heyra og úr varð frábær stemmning hjá báðum stuðningsmannasveitum.

Dómarar

Sigmundur Már Herbertsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Jón Þór Eyþórsson höfðu í mörgu að snúast í kvöld í mjög erfiðum leik. Úr blaðamannastúkunni var ekki séð að hallaði á annað liðið en þegar tölfræðiblaðið er skoðað þá voru dæmdar 25 villur á Stjörnuna og 17 á KR. Heimamenn fengu úr þessum villum 29 vítaskot gegn átta vítaskotum Stjörnunnar og voru þjálfarar Stjörnumanna ekki par sáttir við þessa staðreynd. Þetta getur skipt miklu máli þegar á hólminn er komið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira