Fleiri
Verður annað gott sumar í Stóru Laxá? 10.6.2011 10:47 Kolbeinn: Held að ég verði klár á morgun Kolbeinn Sigþórsson gat æft með íslenska U-21 landsliðinu í morgun eftir að hafa legið veikur upp í rúmi með 39 stiga hita í gær. 10.6.2011 10:45 Stuðningurinn á heimavelli frábær Sóknarmaðurinn Niki Bille Nielsen segir að danska U-21 landsliðið hafi verið vel stutt í síðustu æfingaleikjum sínum fyrir mótið í Danmörku í sumar. 10.6.2011 10:30 Annað stigamót ársins fer fram í Eyjum um helgina Annað stigamót ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi fer fram í Vestmannaeyjum um helgina og verða leiknar 54 holur að þessu sinni. Aðeins 83 keppendur eru skráðir til leiks og sigurvegararnir frá fyrsta stigamóti ársins sem fram fór á Garðavelli á Akranesi eru báðir fjarverandi. 10.6.2011 10:26 Tómas Ingi kominn til Danmerkur Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U-21 liðs Íslands, er kominn til Danmerkur eftir að hafa verið á hliðarlínunni hjá HK, liði sínu í 1. deildinni, í gærkvöldi. 10.6.2011 10:14 Fimm landsliðsmenn Mexíkó féllu á lyfjaprófi Fimm leikmenn mexíkóska landsliðsins í knattspyrnu hafa verið sendir heim eftir að þeir greindust með efnið clenbuterol í þvagsýnum sínum. Á meðal leikmannanna eru markvörðurinn reyndi Guillermo Ochoa og varnarmaður PSV Eindhoven Francisco Rodriguez. 10.6.2011 10:00 Smalling: Getum farið alla leið Chris Smalling, leikmaður Manchester United og enska U-21 landsliðsins, hefur mikla trú á sínum mönnum fyrir EM U-21 landsliða í Álaborg. 10.6.2011 09:30 Dallas komið í 3-2 eftir sigur á Miami í nótt Dallas Mavericks sigraði Miami Heat 112-103 í fimmtu viðureign liðanna í úrslitum NBA körfuboltans í nótt. Leikið var í Dallas. Dallas leiðir 3-2 í einvíginu en sjötti og mögulegur sjöundi leikur fara fram í Miami. 10.6.2011 09:00 Kolbeinn vaknaði hitalaus í morgun Kolbeinn Sigþórsson er allur að koma til eftir að hafa legið upp í rúmi með 39 stiga hita í gær. Hann er hitalaus en verður þó ekki með á æfingu U-21 landsliðsins nú fyrir hádegi. 10.6.2011 08:15 Þurfum allir að róa í sömu áttina Á morgun hefur Ísland leik á EM U-21 landsliða í Danmörku. Liðið mætir Hvíta-Rússlandi í Árósum, en strákarnir hafa aðsetur í Álaborg þar sem hinir tveir leikir Íslands í riðlakeppninni fara fram. 10.6.2011 07:00 Markvörður fagnaði of snemma Ótrúlegt atvik átti sér stað í 7. deild ítalskrar knattspyrnu nýverið. Markvörðurinn Loris Angeli hjá Dro hefði betur sleppt fagnaðarlátum sínum þegar vítaspyrna andstæðingsins small í slánni. Angeli hljóp í burtu en á meðan tók boltinn sig til, skoppaði nokkrum sinnum og lak inn í markið. 10.6.2011 06:00 Þjálfari Skota: Íslendingar líklegir til að koma á óvart Billy Stark, þjálfari U-21 landsliðs Skotlands, segir íslenska landsliðið líklegast til þess að koma á óvart á Evrópumótinu í Danmörku. 10.6.2011 06:00 Justin Shouse má spila strax með landsliðinu Bandarísku körfuboltamennirnir Justin Shouse og Darrell Flake fengu í fyrradag úthlutað íslenskum ríkisborgararétti hjá allsherjanefnd Alþingis. 10.6.2011 06:00 Tíu töpuð stig hjá FH tvö ár í röð FH-ingar töpuðu 0-2 á KR-vellinum á þriðjudagskvöldið og hafa því aðeins náð í 8 af 18 mögulegum stigum í fyrstu sex leikjum sínum í sumar. 10.6.2011 06:00 KR með 11 stigum meira en í fyrra KR-ingar hafa byrjað frábærlega í Pepsi-deild karla og verða með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar í EM-fríinu. 10.6.2011 06:00 Sjá næstu 50 fréttir
Cantona snýr aftur á Old Trafford Eric Cantona mun snúa aftur á Old Trafford í ágúst og taka þátt í kveðjuleik Paul Scholes. Scholes sem lagði skóna á hilluna fyrir skemmstu spilaði við hlið Cantona á sínum tíma í framlínu Manchester United. 11.6.2011 06:00
Þýskar landsliðskonur í myndasyrpu hjá Playboy Fimm leikmenn úr þýska U 20 ára kvenna-landsliðinu í fótbolta hafa vakið gríðarlega athygli í heimalandi sínu og víðar eftir að myndasyrpa af þeim var birt í þýskri útgáfu af tímaritinu Playboy. Eins og gefur að skilja eru leikmennirnir ekki í vetrarfatnaði í þeirri myndasyrpu. 10.6.2011 23:00
Chelsea greiðir hæstu launin - laun fara hækkandi Í nýrri skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte kemur fram að laun í ensku úrvalsdeildinni fari hækkandi. Tekjur félaganna fara einnig hækkandi en þó ekki jafnhratt og launakostnaður. Það er áhyggjuefni fyrir félögin en launakostnaður étur upp 68 prósent af tekjum félaganna. 10.6.2011 23:30
Alonso náði besta tíma dagsins Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Hann varð 0.369 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Felipe Massa á Ferrari varð þriðji, 0.494 á eftir Alonso. Alonso náði besta tíma dagsins, en Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingunni i dag. 10.6.2011 22:20
Skagamenn juku forskot sitt á toppnum í sex stig Skagamenn eru komnir með sex stiga forskot í 1. deild karla eftir leiki kvöldsins sem voru í 6. umferð deildarinnar. ÍA vann 3-1 sigur á ÍR upp á Skaga og græddi á því að bæði Haukar og Þróttur, liðin í næstu sætum á eftir, töpuðu bæði sínum leikjum. 10.6.2011 22:10
Keppnisbann Kolo Toure - ekki við lækninn að sakast Enska knattspyrnusambandið hefur hreinsað Jamie Butler, lækni hjá Manchester City, af ásökunum Kolo Toure. Toure, sem dæmdur var í keppnisbann vegna lyfjanotkunar í mars síðastliðnum sagðist hafa borið töflurnar undir Butler og fengið grænt ljós. 10.6.2011 21:00
Xhaka: Viljum verða Evrópumeistarar Svisslendingurinn Granit Xhaka er aðeins átján ára en verður sjálfsagt lykilmaður með landsliði Sviss á EM U-21 liða í Danmörku. 10.6.2011 20:30
Fjölnismenn aftur á sigurbraut eftir stórsigur á KA fyrir norðan KA-mönnum líður greinilega ekkert alltof vel á Þórsvellinum því þeir steinlágu 1-4 á "heimavelli" á móti Fjölni í 6. umferð 1. deildar karla í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Fjölnismanna síðan í 2. umferð en þeir komust upp í 3. sætið með því að krækja í þessi þrjú stig. 10.6.2011 20:14
Ódýrast að klára UEFA-þjálfaragráðurnar á Íslandi Knattspyrnusamband Íslands hefur tekið saman á heimasíðu sinni kostnað þjálfara á Norðurlöndum að sækja sér UEFA-þjálfaragráðurnar. Þar kom í ljós að það er ódýrast að taka þessar gráður hér á Íslandi. KSÍ útskrifaði á dögunum 35 þjálfara með KSÍ A gráðu. 10.6.2011 19:30
Henderson og Jones einbeittir Stuart Pearce, landsliðsþjálfari Englands, telur að þeir Stuart Pearce og Phil Jones muni einbeita sér af fullum krafti að EM U-21 mótinu í Danmörku í sumar. 10.6.2011 19:00
Peter Öqvist: Íslenskar skyttur eru í hæsta gæðaflokki Peter Öqvist var í dag kynntur til leiks sem nýr þjálfari karlaliðs Íslands í körfuknattleik. Landsliðið tekur þátt í Norðurlandamótinu í júlí. Öqvist segir alla leikmennina sem hann vildi fá í hópinn hafa gefið kost á sér. 10.6.2011 18:15
Rútubílstjóri landsliðsins á villigötum Síðari æfingu dagsins hjá íslenska U-21 landsliðsins hér í Álaborg seinkaði um 40 mínútur vegna þess að rútubíltsjóri liðsins villtist á leiðinni. 10.6.2011 17:39
Breyting á leikmannahópi Dana Keld Bordinggaard, þjálfari U-21 liðs Dana, hefur neyðst til að gera eina breytingu á leikmannahópi sínum fyrir EM sem hefst í Danmörku á morgun. 10.6.2011 17:30
Ashley Young búinn að semja við Manchester United Enski landsliðsmaður Ashley Young hefur samið um persónuleg kjör við Englandsmeistara Manchester United. Sky fréttastofan greinir frá því að Young hafi gengist undir bráðabirgða læknisskoðun og skrifi undir þegar hann kemur heim úr sumarfríi sínu. 10.6.2011 17:00
Jón Arnór og Yao Ming mætast í haust Körfuknattleikssamband Íslands tilkynnti í dag að sambandið hefði þegið boð Kínverja um tvo æfingaleiki í haust. Leikirnir fara fram í Kína 9. og 11. september en gestgjafarnir greiða allan kostnað við ferð íslenska liðsins. 10.6.2011 16:15
Guðmundur: Austurríkismenn hafa reynst okkur erfiðir „Við getum ekki leyft okkur að spila með sama hætti gegn Austurríkismönnum og við gerðum á miðvikudaginn gegn Lettum," sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari á blaðamannafundi í Safamýrinni í dag. Fundurinn fór fram strax eftir æfingu íslenska landsliðsins. 10.6.2011 16:00
Rosberg á Mercedes fljótastur í Montreal, en Vettel ók á vegg Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu Formúlu 1 liða á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Fernando Alonso á Ferrari varð annar, en hann var rúmlega hálfri sekúndu á eftir Rosberg og Michael Schumacher á Mercedes náði þriðja besta tíma. Önnur æfing verður síðar í dag. 10.6.2011 15:40
Aron var sprækur á æfingu í dag - meiri óvissa með Snorra Stein Íslenska handboltalandsliðið mætir Austurríkismönnum í Laugardalshöllinni í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu í Serbíu sem fram fer í janúar næstkomandi. Íslenska liðið leik án tveggja aðalleikstjórnenda sinna í sigrinum á Lettlandi í vikunni en landsliðsþjálfarinn vonast eftir því að þeir verði með á sunnudaginn. 10.6.2011 15:30
Jón Arnór: Held ég haldi mig á Spáni Jón Arnór Stefánsson hefur saknað strákanna í íslenska landsliðinu í körfuknattleik. Nýr landsliðsþjálfari, Svínn Peter Öqvist, var kynntur til leiks á blaðamannafundi KKÍ í dag. 10.6.2011 15:15
Jón Guðni: Ferðaþreytan farin Jón Guðni Fjóluson segir að spennan sé farin að magnast í leikmannahópi íslenska U-21 landsliðsins en liðið mætir Hvíta-Rússlandi í sínum fyrsta leik á EM í Danmörku á morgun. 10.6.2011 15:00
Sneijder áfram hjá Inter Wesley Sneijder hefur blásið á allar sögusagnir þess efnis að hann sé á förum frá Inter. Hann hefur ítrekað verið orðaður við Chelsea og Manchester United undanfarið en segist vilja vera áfram hjá Inter. 10.6.2011 14:30
Martinez tekur ekki við Aston Villa Roberto Martinez hefur ákveðið að virða samning sinn við Wigan Athletic þrátt fyrir áhuga Aston Villa. Leit Villa að nýjum knattspyrnustjóra heldur því áfram. 10.6.2011 14:00
Hætt við mótshald í Barein Mótshaldarar í Barein hafa hætt við að halda Formúlu 1 mót, en FIA tilkynnti í síðustu viku á mót yrði í Barein 30. október. En í frétt á autosport.com í dag segir að mótið muni ekki fara fram samkvæmt tilkynningu frá skipuleggjendum mótins. Upphaflega átti mótið að fara fram 13. mars, en var frestað vegna pólitísks ástands í landinu. 10.6.2011 13:47
Rúrik orðinn góður af meiðslunum Rúrik Gíslason hefur verið að glíma við ökklameiðsli síðustu vikurnar en segist orðinn góður af þeim. 10.6.2011 13:30
Veiðiskóli SVAK hefst á sunnudaginn Veiðiskóli SVAK hefst sunnudaginn 19. júní og þar verður eitthvað í boði fyrir alla fjölskylduna. þEtta er upplagt fyrir þá sem vilja læra meira um veiði og vera betur undirbúnir áður en sá stóri bítur á í sumar. 10.6.2011 13:18
Pearce: Verður að taka EM U-21 alvarlega Stuart Pearce segir að ef Englendingar ætli sér að vinna aftur stórmót í knattspyrnu verði að taka mót eins og Evrópumeistaramót U-21 landsliða alvarlega. 10.6.2011 12:30
Gylfi: Enginn veikur andstæðingur "Ég er allur að koma til,“ sagði U-21 landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson fyrir æfingu liðsins hér í Álaborg í morgun.„ Ég var frekar slappur á miðvikudaginn en betri í gær og fínn núna. Vonandi verð ég orðinn 100 prósent á morgun." 10.6.2011 12:00
Austurríska landsliðið mætt til Íslands - Aron líklega leikfær Ljóst er að landslið austurríkis í handknattleik ætlar sér stóra hluti í viðureign sinni gegn Íslandi á sunnudag. Landsliðið kom til landsins í gær. Algengt er að landslið mæti til leiks daginn fyrir leik en Austurríkismenn eru tímanlega á ferðinni. 10.6.2011 11:30
Liverpool gerir tilboð í Gaël Clichy Enska úrvaldeildarliðið Liverpool hefur gert 5 milljóna punda tilboð í franska landsliðsmanninn Gaël Clichy hjá Arsenal. Clichy á aðeins 12 mánuði eftir af samningi sínum. Hann hefur neitað að skrifa undir nýjan samning við Lundúnarliðið. 10.6.2011 11:00
Köld byrjun á hlýrri veiðihelgi? Það brá eflaust mörgum þegar þeir sáu Esjuna hvíta í morgun eftir að hafa heyrt veðurspánna þar sem spáð er hlýindum um helgina. Það eru margir á leiðinni í veiðitúr og nokkrir af vinum okkar hjá Veiðivísi eru við Norðurá og þar var kalt í morgun. Það veiðist þó ágætlega í kuldanum og hollið sem tók við af opnunarhollinu var t.d. með fleiri laxa en opnunin. það hefur ekki gerst lengi. Það veit vonandi á góðann júnímánuð þegar veiðin fer jafnvel af stað og hún virðist gera og það verður því spennandi að heyra aflatölur úr ánni eftir helgina. 10.6.2011 10:54
Kolbeinn: Held að ég verði klár á morgun Kolbeinn Sigþórsson gat æft með íslenska U-21 landsliðinu í morgun eftir að hafa legið veikur upp í rúmi með 39 stiga hita í gær. 10.6.2011 10:45
Stuðningurinn á heimavelli frábær Sóknarmaðurinn Niki Bille Nielsen segir að danska U-21 landsliðið hafi verið vel stutt í síðustu æfingaleikjum sínum fyrir mótið í Danmörku í sumar. 10.6.2011 10:30
Annað stigamót ársins fer fram í Eyjum um helgina Annað stigamót ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi fer fram í Vestmannaeyjum um helgina og verða leiknar 54 holur að þessu sinni. Aðeins 83 keppendur eru skráðir til leiks og sigurvegararnir frá fyrsta stigamóti ársins sem fram fór á Garðavelli á Akranesi eru báðir fjarverandi. 10.6.2011 10:26
Tómas Ingi kominn til Danmerkur Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U-21 liðs Íslands, er kominn til Danmerkur eftir að hafa verið á hliðarlínunni hjá HK, liði sínu í 1. deildinni, í gærkvöldi. 10.6.2011 10:14
Fimm landsliðsmenn Mexíkó féllu á lyfjaprófi Fimm leikmenn mexíkóska landsliðsins í knattspyrnu hafa verið sendir heim eftir að þeir greindust með efnið clenbuterol í þvagsýnum sínum. Á meðal leikmannanna eru markvörðurinn reyndi Guillermo Ochoa og varnarmaður PSV Eindhoven Francisco Rodriguez. 10.6.2011 10:00
Smalling: Getum farið alla leið Chris Smalling, leikmaður Manchester United og enska U-21 landsliðsins, hefur mikla trú á sínum mönnum fyrir EM U-21 landsliða í Álaborg. 10.6.2011 09:30
Dallas komið í 3-2 eftir sigur á Miami í nótt Dallas Mavericks sigraði Miami Heat 112-103 í fimmtu viðureign liðanna í úrslitum NBA körfuboltans í nótt. Leikið var í Dallas. Dallas leiðir 3-2 í einvíginu en sjötti og mögulegur sjöundi leikur fara fram í Miami. 10.6.2011 09:00
Kolbeinn vaknaði hitalaus í morgun Kolbeinn Sigþórsson er allur að koma til eftir að hafa legið upp í rúmi með 39 stiga hita í gær. Hann er hitalaus en verður þó ekki með á æfingu U-21 landsliðsins nú fyrir hádegi. 10.6.2011 08:15
Þurfum allir að róa í sömu áttina Á morgun hefur Ísland leik á EM U-21 landsliða í Danmörku. Liðið mætir Hvíta-Rússlandi í Árósum, en strákarnir hafa aðsetur í Álaborg þar sem hinir tveir leikir Íslands í riðlakeppninni fara fram. 10.6.2011 07:00
Markvörður fagnaði of snemma Ótrúlegt atvik átti sér stað í 7. deild ítalskrar knattspyrnu nýverið. Markvörðurinn Loris Angeli hjá Dro hefði betur sleppt fagnaðarlátum sínum þegar vítaspyrna andstæðingsins small í slánni. Angeli hljóp í burtu en á meðan tók boltinn sig til, skoppaði nokkrum sinnum og lak inn í markið. 10.6.2011 06:00
Þjálfari Skota: Íslendingar líklegir til að koma á óvart Billy Stark, þjálfari U-21 landsliðs Skotlands, segir íslenska landsliðið líklegast til þess að koma á óvart á Evrópumótinu í Danmörku. 10.6.2011 06:00
Justin Shouse má spila strax með landsliðinu Bandarísku körfuboltamennirnir Justin Shouse og Darrell Flake fengu í fyrradag úthlutað íslenskum ríkisborgararétti hjá allsherjanefnd Alþingis. 10.6.2011 06:00
Tíu töpuð stig hjá FH tvö ár í röð FH-ingar töpuðu 0-2 á KR-vellinum á þriðjudagskvöldið og hafa því aðeins náð í 8 af 18 mögulegum stigum í fyrstu sex leikjum sínum í sumar. 10.6.2011 06:00
KR með 11 stigum meira en í fyrra KR-ingar hafa byrjað frábærlega í Pepsi-deild karla og verða með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar í EM-fríinu. 10.6.2011 06:00