Aron var sprækur á æfingu í dag - meiri óvissa með Snorra Stein Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2011 15:30 Aron Pálmarsson í leik á móti Austurríki á HM í Svíþjóð. Mynd/Valli
Íslenska handboltalandsliðið mætir Austurríkismönnum í Laugardalshöllinni í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu í Serbíu sem fram fer í janúar næstkomandi. Íslenska liðið leik án tveggja aðalleikstjórnenda sinna í sigrinum á Lettlandi í vikunni en landsliðsþjálfarinn vonast eftir því að þeir verði með á sunnudaginn. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, sagði að þeir Aron Pálmarsson og Snorri Steinn Guðjónsson væru að koma til en það væri þó heldur meiri óvissa með Snorra Stein. Guðmundur sagðist þó vonast til þess að Snorri Steinn gæti tekið þátt í leiknum en hann tjáði blaðamönnum jafnfram að Aron hafi virkað sprækur á æfingu í dag. Aron Pálmarsson tók þátt í æfingunni í morgun og kenndi sér ekki neins meins. Hann sagðist vera tilbúinn og klár í slaginn á sunnudag. „Auðvitað er það rétt að þetta er úrslitaleikur og pressan er mikil. Það eru nú þessi leikir sem við lifum fyrir," sagði Aron. Snorri Steinn fór í sneiðmyndatöku í morgun og í framhaldinu tók við meðhöndlun hjá sjúkrateymi íslenska liðsins. Eftir daginn í dag binda menn vonir til þess að hann gæti tekið þátt í æfingu á morgun.
Handbolti Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Fleiri fréttir Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Sjá meira