Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Karen: Átti ekki von á svona stórum sigri Karen Knútsdóttir fór á kostum með Fram í kvöld er liðið vann stórsigur á Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum N1-deildar kvenna. Karen skoraði 10 mörk í leiknum og lék á alls oddi. 30.3.2011 22:17
Einar: Spiluðum frábærlega í seinni hálfleik Einar Jónsson, þjálfari Fram, var að vonum ánægður með stórsigur á Stjörnunni í kvöld en leikurinn endaði 38-30. Fram því einum sigri frá því að komast í úrslit í N1-deild kvenna. 30.3.2011 22:10
Walker: Vil að mótherjarnir hræðist mig Marcus Walker átti enn einn stórleikinn með KR þegar liðið vann 18 stiga sigur á Keflavík í Toyota-höllinni í kvöld en KR er komið í 2-0 í einvíginu og getur tryggt sér sæti lokaúrslituum með sigri á heimavelli á föstudagskvöldið. 30.3.2011 22:07
Auðvelt hjá AGK - tap hjá Ingimundi og félögum Danska ofurliðið AGK er komið með 14 stiga forskot á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir stórsigur á Viborg í kvöld. 30.3.2011 22:04
Pavel: Við erum mjög sterkir andlega Pavel Ermolinskij átti flottan leik í kvöld þegar KR komst í 2-0 í undanúrslitaeinvíginu á móti Keflavík eftir sannfærandi 18 stiga sigur í Keflavík í gærkvöldi. Pavel endaði leikinn með 17 stig, 15 fráköst, 8 stoðsendingar og 5 stolna bolta. 30.3.2011 21:59
Umfjöllun: Öruggt hjá Fram gegn Stjörnunni Framarar sigruðu Stjörnuna auðveldlega í Safamýrinni í kvöld, 38-30, en þetta var fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum N1-deildar kvenna. 30.3.2011 21:31
Fær tæpar 3 milljónir á mánuði frá FIFA Mohamed Bin Hammam, sem ætlar að bjóða sig fram til forseta FIFA, er eini áhrifamaðurinn hjá FIFA sem er tilbúinn að greina frá því hvað hann fær í laun hjá FIFA. 30.3.2011 21:30
Umfjöllun: Sannfærandi hjá KR sem er komið í 2-0 KR-ingar eru einum sigurleik frá úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn eftir sannfærandi 18 stiga sigur á Keflavík, 87-105, í Toyota-höllinni í kvöld. KR varð þar með fyrsta liðið til að vinna Keflvíkinga á heimavelli á árinu 2011. 30.3.2011 20:58
Fyrirhafnarlítið hjá Fram og Val Fram og Valur unnu bæði auðvelda heimasigra þegar undanúrslit N1-deildar kvenna hófust í kvöld. 30.3.2011 20:53
Gerrard byrjaður að æfa á nýjan leik Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er byrjaður að æfa á nýjan leik með Liverpool. Hann hefur verið frá síðan hann lagðist undir hnífinn 10. mars síðastliðinn. 30.3.2011 20:30
Þórir skoraði 12 mörk í góðum útisigri Þórir Ólafsson og félagar í þýska liðinu TuS N-Lübbecke komust upp í tólfta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld er þeir lögðu Friesenheim á útivelli. 30.3.2011 19:56
Lokaskot Loga geigaði Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings eru komnir í sumarfrí eftir naumt tap, 88-90, á heimavelli gegn Svíþjóðarmeisturum Norrköping Dolphins. 30.3.2011 19:39
Lucas búinn að gera nýjan samning við Liverpool Lucas Leiva, brasilíski miðjumaðurinn hjá Liverpool, er búinn að framlengja samning sinn við félagið en hann er búinn að vera á Anfield frá því í júlí 2007. Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, var mjög ánægður með fréttirnar. 30.3.2011 19:00
Torres vill mæta Barcelona eða Real Madrid í úrslitaleiknum Spánverjinn Fernando Torres vonast eftir því að mæta löndum sínum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer á Wembley í vor. Chelsea gæti mætt Barcelona eða Real Madrid í úrslitaleiknum en Chelsea-liðið mætir Manchester United í átta liða úrslitunum. 30.3.2011 18:15
Marcus Walker með 21,7 stig að meðaltali í seinni hálfleik KR-ingurinn Marcus Walker hefur farið á kostum í úrslitakeppninni til þessa og á mikinn þátt í því að bikarmeistararnir hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína. Walker er með 29,0 stig að meðaltali í leik í þessum þremur leikjum en það er þó fyrst í seinni hálfleikjum leikjanna þar sem að hann fer fyrst á flug. KR heimsækir Keflavík í kvöld og getur þar komist í 2-0 í undanúrslitaeinvígi liðanna. 30.3.2011 17:30
Deildarmeistaralaus lokaúrslit í fyrsta sinn í fjórtán ár Njarðvíkurkonur tryggðu sér sæti í lokaúrslitum í fyrsta sinn í sögu úrslitakeppni kvenna þegar þær slógu út deildarmeistara Hamars í oddaleik í Hveragerði í gærkvöldi. Þetta er aðeins í annað skiptið í 19 ára sögu úrslitakeppninnar sem deildarmeistarar komast ekki í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn en síðast gerðist það fyrir fjórtán árum. 30.3.2011 16:45
Raul ætlar að vera áfram hjá Schalke Spánverjinn Raul ætlar að halda tryggð við Schalke og vera áfram hjá tímabilinu á næsta ári þrátt fyrir að knattspyrnustjóri liðsins, Felix Magath, hafi verið rekinn á dögunum. 30.3.2011 16:00
Kranjcar mögulega á förum frá Tottenham Miðvallarleikmaðurinn Nico Kranjcar, leikmaður Tottenham, hefur gefið í skyn að hann muni leita sér að nýju félagi nú í sumar. 30.3.2011 15:30
Forlan opinn fyrir tilboðum frá Englandi Diego Forlan, sem leikur með Atletico Madrid, segist vera opinn fyrir því að snúa aftur til Englands ef rétta tilboðið berst. 30.3.2011 14:45
Ferguson: Lundúnir fara á annan endann Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur varað við því að allt muni fara á annan endann í Lundúnum helgina sem báðir undanúrslitaleikirnir fara fram í ensku bikarkeppninni. 30.3.2011 14:15
Robin van Persie kemur enn á ný meiddur úr landsliðsverkefni Arsenal-maðurinn Robin van Persie snýr enn á ný haltur úr landsliðsverkefni með Hollendingum en hann meiddist í 5-3 sigri á Ungverjum í undankeppni EM í gær. Van Persie skoraði fyrsta markið í leiknum en þurfti síðan að yfirgefa völlinn rétt fyrir hálfleik. 30.3.2011 13:43
Spilað á Spáni um helgina Verkfalli félaga sem leika í spænsku úrvalsdeildinni hefur verið afstýrt eftir að dómstóll í Madríd ógilti verkfallsboðun samtaka úrvalsdeildarfélaga þar í landi. 30.3.2011 13:00
Sverrir: Leikskrá Hamars gaf okkur aukinn kraft Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur, segir að það hafi gefið sínum aukinn kraft fyrir oddaleikinn gegn Hamri í gær að sjá leikskrá Hvergerðinga fyrir leikinn. 30.3.2011 12:15
Blendnar tilfinningar í frumraun Welbeck Danny Welbeck viðurkenndi eftir frumraun sína með enska landsliðinu í gær að hann hefði upplifað blendnar tilfinningar. 30.3.2011 11:30
Benitez: Sigurinn í Meistaradeildinni ekki Houllier að þakka Rafa Benitez, fyrrverandi stjóri Liverpool, segir að forveri hans í starfinu, Gerrard Houllier, ætti að hætta að reyna eigna sér heiðurinn að sigri liðsins í Meistaradeildinni árið 2005. 30.3.2011 10:45
Alonso: Engin afhroð í Ástralíu hjá Ferrari Fernando Alonso lauk keppni í fjórða sæti í Formúlu 1 mótinu í Ástralíu á sunnudaginn, eftir að hafa misst marga ökumenn framúr sér í fyrsta hring. Alonso segir þó Ferrari ekki hafa beðið nein afhroð í mótinu, en liðsfélagi hans, Felipe Massa varð sjöundi í mótinu. Eftir að tveir Sauber ökumenn voru dæmdir úr leik. 30.3.2011 10:25
Ferguson: Einn titill nóg Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að tímabilið myndi vera vel heppnað þó svo að liðinu myndi takast að vinna aðeins einn titil á árinu. 30.3.2011 10:15
Þrjú lið enn með fullt hús stiga Þýskaland, Holland og Spánn eru í góðum málum í undankeppni EM 2012 eftir leiki gærkvöldsins en þá fóru einnig fjölmargir vináttulandsleikir fram. 30.3.2011 09:30
NBA í nótt: Cleveland kom fram hefndum LeBron James sneri aftur á sinn gamla heimavöll í NBA-deildinni í nótt og tapaði í þetta sinn er Cleveland lagði Miami, 102-90. 30.3.2011 09:00
Meistararnir í vandræðum - myndir Íslandsmeistarar Snæfells eru með bakið upp við vegginn eftir annað tap fyrir Stjörnunni í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. 30.3.2011 07:00
Þýskur táningur kastaði banananum Þýskur táningur hefur viðurkennt að hann kastaði banana inn á völlinn þegar Skotland og Brasilía áttust við í vináttulandsleik á Emirates-leikvanginum í Lundúnum á sunnudaginn. 29.3.2011 23:45
Butt hættir í sumar Markvörðurinn Hans-Jörg Butt hefur ákveðið að hann muni leggja hanskana á hilluna þegar að tímabilinu lýkur í sumar. 29.3.2011 23:30
Aftur neitaði Amoroso að taka í hönd Stjörnumanna Ryan Amoroso, leikmanni Snæfells, virðist vera eitthvað illa við Stjörnumenn því annan leikinn í röð neitaði hann að taka í hönd fulltrúa Stjörnunnar eftir viðureign liðanna. 29.3.2011 22:58
Fannar: Við getum unnið titilinn Stjörnumaðurinn Fannar Helgason frá Ósi segir að það sé mikið sjálfstraust í liði Stjörnunnar og hann segir liðið geta farið alla leið á þessu tímabili. Stjarnan vann Snæfell í kvöld og er komið í 2-0 í undanúrslitarimmu liðanna. 29.3.2011 22:36
Nonni Mæju: Þurfum að skrifa nýja sögu Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, var að vonum daufur í dálkinn eftir annað tap Snæfells í röð gegn Stjörnunni í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. 29.3.2011 22:21
Ágúst: Varnarleikurinn varð okkur að falli "Þetta eru gríðarleg vonbrigði,“ sagði Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars eftir að liðið tapaði fyrir Njarðvík á heimavelli, 76-74, og féll úr keppni um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna. 29.3.2011 21:46
Andy Carroll skoraði sitt fyrsta landsliðsmark Asamoah Gyan framherji Sunderland tryggði Gana 1-1 jafntefli gegn Englendingum í vináttulandsleik á Wembley í London í kvöld. Gyan fór illa með varnarmanninn Joleon Lescott á 90. Mínútu áður en hann skaut boltanum framhjá markverðinum Joe Hart. Andy Carroll skoraði sitt fyrsta landsliðsmark eftir góðan undirbúning Steward Downing. 29.3.2011 21:41
Ólöf Helga: Lið með svakalegan karakter "Ég er í skýjunum og ég veit varla hvernig ég á að lýsa þessu,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, leikmaður Njarðvíkur eftir að liðið tryggði sig inn í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna. Liðið lagði Hamar af velli í kvöld, 67-74, og mun mæta nágrönnum sínum í Keflavík í úrslitunum. 29.3.2011 21:08
Stjarnan þarf aðeins einn sigur til viðbótar gegn meisturunum Stjarnan þarf aðeins einn sigur til viðbótar gegn Íslandsmeistaraliði Snæfells til þess að komast í úrslitarimmuna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla. Stjarnan sigraði Snæfell 93-87 í Ásgarði í kvöld og er staðan 2-0 fyrir Stjörnuna í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Jovan Zdravevski fór á kostum í liði Stjörnunnar og skoraði hann 38 stig og tók að auki 10 fráköst. 29.3.2011 21:00
Umfjöllun: Njarðvík í úrslit í fyrsta sinn Njarðvík er komið í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna eftir sigur liðsins gegn Hamar, 67-74, í Hvergerði í kvöld. Þar með hefur liðið brotið blað í sögu félagsins en aldrei áður hefur kvennalið Njarðvíkur komist í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn. 29.3.2011 20:54
Njarðvík leikur til úrslita gegn Keflavík - Hamar úr leik Njarðvík leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn Keflavík í Iceland Express deild kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 74-67 sigur liðsins gegn deildarmeistaraliði Hamars í Hveragerði í kvöld. Njarðvík vann einvígið 3-2. 29.3.2011 20:42
Helmingslíkur á að Bendtner spili á EM í sumar Nicklas Bendtner hjá Arsenal hefur enn ekki gert upp hug sinn um það hvort hann ætli að spila með U-21 liði Dana í sumar í úrslitum Evrópumóts landsliða sem fer fram í Danmörku. 29.3.2011 20:30
Larsson tryggði Svíum sigur - Zlatan klúðraði víti Sebastian Larsson tryggði Svíum 2-1 sigur gegn Moldavíu í undankeppni Evrópumóts landsliða í karlaflokki í fótbolta í kvöld en þetta er fyrsta landsliðsmark Birminghamleikmannsins. 29.3.2011 20:09
Sigur hjá lærisveinum Dags Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Fuchse Berlin komust upp í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld með fínum heimasigri á Gummersbach. 29.3.2011 20:01
Xavi: Cesc vill koma til Barcelona Xavi, leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, segir að Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, vilji ganga til liðs við Börsunga. 29.3.2011 19:45