Fleiri fréttir

Arnór markahæstur í fimmtán marka sigri AG

Arnór Atlason skoraði átta mörk og var markahæstur í 36-21 sigri AG Kaupmannahöfn á nágrönnum sínum í FIF frá Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Lið Alfreðs og Dags drógust saman í bikarnum

Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar og THW Kiel, lið Alfreðs Gíslasonar mætast í átta liða úrslit þýska bikarsins en það var dregið í kvöld. Füchse Berlin sló HSV Hamburg út úr 16 liða úrslitunum en hafði ekki heppnina með sér því liðið mætir sjálfum þýsku meisturunum í næstu umferð.

Rhein-Neckar Löwen tapaði sínum fyrstu stigum á heimavelli

Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Rhein-Neckar Löwen urðu að sætta sig við 31-31 jafntefli á móti TBV Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þetta var fyrsta stigið sem Rhein-Neckar Löwen tapar á heimavelli í deildinni í vetur en liðið hafði unnið sjö fyrstu heimaleiki sína.

Dagur þjálfar og Alexander spilar í Stjörnuleik þýsku deildarinnar

Í dag var tilkynnt á heimasíðu þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta hvaða leikmenn verða í Stjörnuliði deildarinnar sem mætir þýska landsliðinu í Stjörnuleik sem fer fram í fyrsta sinn Leipzig 5. febrúar næstkomandi. Þetta verður fyrsti leikurinn eftir að HM í Svíþjóð klárast.

Félagi Gylfa á leiðinni til FC Bayern

Gylfi Þór Sigurðsson mun ekki leika áfram með brasilíska miðjumanninum Luiz Gustavo hjá Hoffenheim á næstu leiktíð því hann verður seldur til FC Bayern.

Balotelli ætlar sér að komast til AC Milan

Mario Balotelli virðist ekki vera allt of ánægður í herbúðum Man. City því hann gefur AC Milan undir fótinn hvað eftir annað.Nú hefur Balotelli lýst því yfir að hann muni spila með Zlatan Ibrahimovic.

Cassano fer til AC Milan

Það er nú orðið ljóst að Antonio Cassano mun ganga í raðir AC Milan og spila með liðinu eftir áramót. Búið er að ganga frá öllum pappírum og Sampdoria því laust við leikmanninn sem það sagði hreinlega upp.

Haukar selja sextán ára strák til AGF

Haukar og AGF hafa komist að samkomulagi um kaup danska b-deildarfélagsins á fótboltamanninum Arnari Aðalgeirrssyni. Arnar er aðeins sextán ára gamall og hefur aldrei spilað með meistaraflokki félagsins. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá Haukum.

Denilson orðaður við Barcelona

Svo gæti farið að brasilíski miðjumaðurinn Denilson yfirgefi herbúðir Arsenal í janúar. Sjálfur vill leikmaðurinn ekki útiloka brottför frá liðinu.

Hodgson biður um þolinmæði

Roy Hodgson, stjóri Liverpool, ætlar sér ekki að vera stórtækur á leikmannamarkaðnum í janúar. Hann hefur beðið stuðningsmenn félagsins um að sýna sér þolinmæði enda taki það tíma að byggja upp liðið hjá félaginu.

Ancelotti vill fá Modric

Zdravko Mamic, varaforseti Dinamo Zagreb, heldur því fram í dag að Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hafi sagt sér að hann vonist til að geta keypt Luka Modric frá Tottenham.

Dallas stöðvaði Miami

Tólf leikja sigurhrina Miami Heat tók enda í nótt er liðið tapaði fyrir Dallas í æsispennandi leik. Dirk Nowitzki skoraði 26 stig fyrir Dallas og Jason Terry var með 19.

Mansell hefur trú á getu Schumachers 2011

Breska Formúlu 1 kempan fyrrverandi, Nigel Mansell spáir því að Lewis Hamilton og Jenson Button hjá McLaren láti að sér kveðja á næsta ári. Þeir stóðust þó ekki Sebastian Vettel, Fernando Alonso og Mark Webber snúning á þessu tímabili. Þá hefur hann trú á að Michael Schumacher eigi eftir að standa sig betur á næsta ári.

Kuyt bjartsýnn fyrir jólavertíðina

Hollendingurinn Dirk Kuyt hjá Liverpool er bjartsýnismaður og hann fer inn í jólatörnina fullviss um að Liverpool geti mokað inn stigum og farið að þjarma að fjórum efstu liðunum í ensku úrvalsdeildinni.

Beckham útilokar ekki að spila aftur með Man. Utd

David Beckham er ekki af baki dottinn þrátt fyrir háan fótboltaaldur og erfið meiðsli. Kappinn stefnir nú á að spila í Evrópu eftir áramót eins og hann hefur áður gert með AC Milan.

Manchester United á toppnum yfir jólin í sautjánda sinn

Manchester City átti möguleika á því að vera á toppi ensku úrvalsdeildarinnar yfir jólin hefði liðið unnið Everton á heimavelli í kvöld. Everton vann hinsvegar leikinn 2-1 og sá til þess að City tókst ekki að vera í efsta sæti yfir jólin í fyrsta sinn síðan 1929.

David Moyes: Ég er eitt stórt bros í kvöld

David Moyes, stjóri Everton, var að sjálfsögðu í skýjunum eftir 2-1 sigur Everton á Manchester City í kvöld en Everton-liðið hafði ekki unnið deildarleik síðan í lok október.

Tim Cahill: Gríðarlegt afrek hjá okkur

Tim Cahill og félagar í Everton unnu 2-1 útisigur á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þetta var langþráður sigur hjá liðinu sem hafði leikið sjö deildarleiki í röð án þess að vinna.

Cassano spilar með AC Milan eftir áramótin

Antonio Cassano, framherji Sampdoria og ítalska landsliðsins, er á leiðinni til AC Milan eftir að hann samþykkti samning um að ganga til liðs við Zlatan Imbrahimovic og félaga.

Hlynur og Jakob saman með 45 stig í sigri á toppliðinu

Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson fóru á kostum í 94-88 sigri Sundsvall Dragons á toppliði LF Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Leikurinn var æsispennandi en Sundsvall var sterkari á lokasprettinum.

Bojan Krkic með nýjan samning við Barcelona til 2015

Bojan Krkic er búinn að framlengja samning sinn við Barcelona um tvö ár og er því með samning við spænsku meistarana til ársins 2015. Krkic er enn einn leikmaður Barcelona sem hefur framlengt samning sinn á síðustu vikum og mánuðum.

Þriggja marka tap í síðasta leiknum á móti Norðmönnum

Íslenska 21 árs landsliðið tapaði 32-35 á móti Noregi í þriðja og síðasta æfingaleik þjóðanna sem fram fór á Selfossi í kvöld. Ísland vann fyrsta leikinn 29-29 á laugardaginn en liðin gerðu síðan 25-25 jafntefli í gær. Selfyssingurinn Ragnar Jóhannsson var markahæstur en hann skoraði 7 mörk einu meira en Akureyringarnir Guðmundur Hólmar Helgason og Oddur Gretarsson.

Berbatov: Hættið að kjósa mig

Dimitar Berbatov, leikmaður Manchester United, bað búlgarska blaðamenn um að hætta að kjósa besta knattspyrnumann í Búlgaríu eftir að hann fékk verðlaunin í sjöunda sinn í dag.

Carlos Tevez verður með fyrirliðabandið á eftir

Carlos Tevezverður í byrjunarliði Manchester City og með fyrirliðabandið þegar liðið tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni á eftir. Manchester City gaf út tilkynningu fyrr í kvöld þar sem kemur fram að Tevez sé hættur að vilja fara frá félaginu.

José Mourinho varar Chelsea við Sölva og félögum í FCK

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur sagt sínum gömlu lærisveinum í Chelsea að passa sig á Sölva Geir Ottesen og félögum í FC Kaupmannahöfn sem verða mótherjar ensku meistaranna í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Sunnudagsmessan: Hermann Hreiðarsson spáir Man Utd titlinum

Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson spáir Manchester United sigri í ensku úrvalsdeildinni í viðtali sem Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamaður tók við Hermann í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport í gær.

Skil ekki hvað Svíar kalla nágrannaslagi

Lið þeirra Hlyns Bæringssonar og Jakobs Arnar Sigurðarsonar, Sundsvall Dragons, á mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld er það mætir toppliði deildarinnar, LF Basket.

Sigurður Ragnar framlengir við KSÍ

Sigurður Ragnar Eyjólfsson skrifaði í dag undir nýjan samning við KSÍ. Hann mun því þjálfa kvennalandsliðið til ársloka 2012.

Ferguson hugsar ekki um að hætta

Hinn 68 ára gamli stjóri Man. Utd, Sir Alex Ferguson, er enn við hestaheilsu og hann segist ekki einu sinni vera farinn að íhuga að yfirgefa stjórastólinn hjá félaginu.

Beckham grét er hann fékk heiðursverðlaun

Knattspyrnumaðurinn David Beckham fékk sérstök heiðursverðlaun frá BBC í gær fyrir ævistarf sitt í boltanum. Hann fékk verðlaunin frá annarri Man. Utd goðsögn, Sir Bobby Charlton.

Sjá næstu 50 fréttir