Fleiri fréttir

Tveir nýliðar í hópnum

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur valið 22 manna landsliðshóp fyrir leikina gegn Slóveníu og Grikklandi í undankeppni EM 2009 síðar í mánuðinum.

Ramos stoltur af áhuga United

Varnarmaðurinn Sergio Ramos er nú orðaður við Evrópumeistara Manchester United. Ramos sagði í viðtali við spænska útvarpsstöð að hann væri stoltur af áhuga United og mál myndu skýrast frekar eftir Evrópumótið.

Zambrotta á förum frá Barcelona

Varnarmaðurinn Gianluca Zambrotta er á förum frá Barcelona en viðræður um nýjan samning sigldu í strand. Líklegast er talið að Zambrotta muni semja við AC Milan um næstu mánaðarmót.

UEFA styður ákvörðun Webb

Talsmaður Knattspyrnusambands Evrópu segir að vítaspyrnudómur Howard Webb í leik Austurríkis og Póllands í gær hafi verið löglegur.

Herra og frú Rooney

Wayne Rooney kvæntist í gær unnustu sinni til síðustu ára, Coleen McLoughlin, á ítölsku rívíeríunni.

Megson á eftir Saha

Gary Megson, stjóri Bolton, hefur áhuga á að fá Louis Saha til félagsins frá Manchester United.

Boston einum sigri frá titlinum

Boston gerði sér lítið fyrir í nótt og vann fjórða leikinn í úrslitarimmu liðsins gegn Los Angeles Lakers í nótt. Boston er því komið með 3-1 forystu og þarf því aðeins einn sigur til að tryggja sér meistaratitilinn.

Woods lék á höggi yfir pari

Tiger Woods var nokkuð frá sínu besta á fyrsta hringnum á US Open þegar hann lék á 73 höggum eða höggi yfir pari. Þetta var fyrsti hringur Woods í keppni í tvománuði vegna hnéuppskurðar.

U-21 árs liðið tapaði fyrir Norðmönnum

Íslenska U-21 árs landsliðið tapaði í kvöld 4-1 fyrir Norðmönnum í vináttuleik á Vodafonevellinum. Norska liðið náði 4-0 forystu í leiknum áður en Jón Vilhelm Ákason náði að laga stöðuna fyrir íslenska liðið í blálokin.

HK/Víkingur lagði Keflavík

Sjöttu umferðinni í Landsbankadeild kvenna lauk í kvöld með þremur leikjum. HK/Víkingur lagði Keflavík 4-1, Fylkir vann Þór/KA 1-0 fyrir norðan og Fjölnir og Afturelding gerðu markalaust jafntefli.

Siena ítalskur meistari

Siena tryggði sér í kvöld ítalska meistaratitilinn í körfubolta með 92-81 sigri á Lottomatica Roma í fimmta leik liðanna í lokaúrslitunum.

Heimamenn héldu lífi

Austurríkismenn eiga enn veika von á EM eftir að heimaþjóðin tryggði sér 1-1 jafntefli gegn Pólverjum í B-riðli í kvöld með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Kvöld með eiginkonunni fyrir Celtics-miða

Fárið í kring um úrslitaeinvígið í NBA deildinni virðist nú komið á suðumark. Stuðningsmaður Boston liðsins hefur þannig boðið hverjum þeim sem útvegar honum aðgöngumiða á Boston-leik að eiga kvöld með eiginkonu sinni.

Del Piero byrjar gegn Rúmenum

Gamli refurinn Alessandro del Piero verður að öllum líkindum í byrjunarliði Ítala á morgun þegar þeir mæta Rúmenum í gríðarlega mikilvægum öðrum leik sínum á EM.

Tekst Lakers að jafna metin í nótt?

Fjórði leikur LA Lakers og Boston Celtics í lokaúrslitum NBA fer fram í Los Angeles klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Lakers-liðið getur jafnað metin í 2-2 í einvíginu með sigri í nótt.

Króatar næsta öruggir í 8-liða úrslit

Króatar tryggðu sér í kvöld nánast öruggt sæti í 8-liða úrslitunum á EM með fræknum 2-1 sigri á Þjóðverjum í toppslagnum í B-riðli. Sigur Króata var verðskuldaður, en þýska liðið fann raunar aldrei taktinn í leiknum.

Solano leystur undan samningi

Íslendingafélagið West Ham hefur leyst Nolberto Solano undan samingi sínum við félagið. Hann vonast þó til að spila áfram í Englandi.

Beljanski í Breiðablik

Miðherjinn Igor Beljanski hefur gengið frá samningi við körfuknattleiksdeild Breiðabliks þar sem hann mun spila undir stjórn Einars Árna Jóhannssonar. Beljanski lék með Grindavík síðasta vetur en spilaði fyrir Einar Árna hjá Njarðvík á sínum tíma. Þetta kom fram á karfan.is í dag.

Enskan ekkert mál fyrir Scolari

Talsmaður Luiz Felipe Scolari, verðandi knattspyrnustjóra Chelsea, segir að hann muni ekki eiga í vandræðum með að tjá sig á ensku.

Roma á eftir Ljungberg

Ítalskir fjölmiðlar halda því fram í dag að úrvalsdeildarliðið Roma sé ekki langt frá því að lokka Freddie Ljungberg til félagsins.

Úkraína gæti misst EM 2012

Svo gæti farið að sá hluti Evrópumótsins í knattspyrnu 2012 sem á að fara fram í Úkraínu verður færður annað eftir því sem þarlend knattspyrnuyfirvöld segja.

Redknapp vill fá Eið til Portsmouth

Harry Redknapp segir að hann hafi mikinn áhuga á að fá Eið Smára Guðjohnsen til liðs við enska úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth.

Aston Villa hafnaði Liverpool aftur

Aston Villa hefur hafnað öðru tilboði Liverpool í Gareth Barry. „Tilboðið sem við fengum var aðeins skárra en afstaða okkar hefur ekkert breyst,“ sagði talsmaður Aston Villa.

David Winnie mælir með Guðjóni

David Winnie, fyrrum leikmaður og þjálfari KR, segir að Guðjón Þórðarson sé rétti maðurinn til að gera Hearts samkeppnishæft við Rangers og Celtic.

Guðjón sagður líklegastur

The Daily Record í Skotlandi heldur því fram í dag að Guðjón Þórðarson sé líklegastur til að verða ráðinn knattspyrnustjóri Hearts en nýr stjóri verði ráðinn á næstu tíu dögunum.

Shearer sagði "nei takk" við Blackburn

Alan Shearer hefur afþakkað að komast á óskalista forráðamanna Blackburn sem næsti knattspyrnustjóri félagsins. Shearer sagðist ætla að einbeita sér að því að vinna fyrir Sky sjónvarpsstöðina þegar hann var spurður út í málið í kvöld.

Bent snýr aftur til Charlton

Framherjinn Marcus Bent mun ekki ganga formlega í raðir Wigan á næstu leiktíð eftir að hafa verið þar sem lánsmaður frá Charlton í vetur.

Heimamenn úr leik á EM

Heimamenn Svisslendingar þurftu í kvöld að bíta í það súra epli að verða fyrsta þjóðin til að falla úr leik á EM í knattspyrnu. Svisslendingar töpuðu 2-1 fyrir Tyrkjum í æsilegum leik.

Valur með fullt hús

Íslandsmeistarar Vals höfðu betur 2-1 gegn KR í stórleik kvöldsins í Landsbankadeild kvenna. Valsliðið er því eina liðið með fullt hús á toppi deildarinnar eftir leiki dagsins.

Ólafur: Hef engar áhyggjur

Ólafur Stígsson, fyrirliði Fylkis, hefur engar áhyggjur af sínum mönnum þó svo að liðið hafi tapað síðustu tveimur leikjum sínum, nú síðast fyrir Fjölni á útivelli.

Fjölnir lagði Fylki

Einn leikur fór fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Fjölnismenn unnu 1-0 sigur á grönnum sínum í Fylki í Grafarvogi. Það var Tómas Leifsson sem skoraði markið sem réði úrslitum á 40. mínútu leiksins.

Scolari tekur við Chelsea 1. júlí

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur staðfest að Brasilíumaðurinn Luiz Felipe Scolari muni hefja störf sem knattspyrnustjóri liðsins þann 1. júlí nk. Scolari stýrir nú landsliði Portúgal á EM.

Wenger: Ítalir eru í sárum eftir skellinn

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að ítalska landsliðið sé í sárum eftir 3-0 skellinn gegn Hollendingum á EM og segir að taugar leikmanna verði þandar til hins ítrasta á föstudaginn þegar þeir mæta Rúmenum.

Boltavaktin: Fjölnir - Fylkir

Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins er með beina lýsingu frá leik Fjölnis og Fylkis í Landsbankadeild karla.

Sjá næstu 50 fréttir