

Fram gerði góða ferð norður yfir heiðar í dag og vann sterkan 25-28 sigur á KA/Þór í næstsíðustu umferð Olís deildar kvenna í handbolta. Fram hafði yfirhöndina í leiknum en heimakonur náðu þó að gera leikinn spennandi í blálokin.
Þórir Jóhann Helgason æfði ekki með íslenska karlalandsliðinu í Liechtenstein í dag vegna veikinda. Hann verður að líkindum ekki í hópnum í leik morgundagsins.
Fram hafði betur gegn KA/Þór fyrir norðan í dag í næstsíðustu umferð Olís deildar kvenna. Fram hafði frumkvæðið allan leikinn en KA/Þór tókst að minnka muninn í eitt mark þegar mínúta lifði leiks en Fram gerði vel í lokin og landaði þriggja marka sigri. Lokatölur 25-28.
ÍBV er deildarmeistari í Olís-deild kvenna í handbolta eftir öruggan 14 marka sigur gegn Selfyssingum í Suðurlandsslag í dag, 41-27.
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, segist lítið lesa af umræðunni um hans störf. Mikil neikvæð umræða hefur umlukið liðið síðan á fimmtudag.
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands og Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði liðsins, sátu fyrir svörum á blaðamannafundi landsliðsins í Vaduz í Liechtenstein í dag. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi.
Atlantic Esports og Þór berjast um Stórmeistaratitilinn í CS:GO í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi.
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt marka Juventus þegar liðið lagði Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
U-19 ára landslið karla í knattspyrnu vann í dag frábæran sigur á Englandi þegar liðin mættust ytra í dag.
Stjarnan er komin í úrslit Lengjubikars kvenna eftir sigur á Þrótti Reykjavík í undanúrslitum í dag. Vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslit en Stjarnan mætir Þór/KA í úrslitaleik.
Framarar gerðu sér lítið fyrir og unnu 27-24 sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Vestmannaeyjum í Olísdeild karla í dag. Fram er nú aðeins einu stigi á eftir ÍBV í töflunni.
FH vann öruggan tíu marka útisigur gegn Herði 30-40. Eftir rólegan fyrri hálfleik skipti FH um gír í seinni hálfleik og Hörður átti engin svör.
Knattspyrnusamband Evrópu hefur hafið rannsókn á meintri spillingu og mútugreiðslum knattspyrnufélagsins Barcelona. Félagið hefur verið ákært fyrir að hafa greitt valdamiklum dómara andvirði 1.000 milljóna íslenskra króna til að tryggja sér hagstæða dómgæslu á 17 ára tímabili.
Ísland mætir Liechtenstein í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2024 í Vaduz á morgun. Liðinu gekk ekki vel í fyrsta leik í Bosníu á fimmtudagskvöld og tapaði 3-0. Áhugavert verður að sjá hvort miklar breytingar verði á byrjunarliði liðsins á morgun.
Leikmenn og lið sem hafa skarað fram úr á tímabilinu í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO verða verðlaunaðir að loknum úrslitaleik Stórmeistaramótsins milli Atlantic Esports og Þórs í kvöld. Verður þetta í fyrsta skipti sem verðlaunahóf af þessu tagi er haldið í kringum Ljósleiðaradeildina.
Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar gagnrýnir ummæli Ómars Smárasonar samskiptastjóra KSÍ harðlega í tengslum við fréttaflutning af meintu kynferðisofbeldi leikmanna íslenska landsliðsins.
Fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 Nelson Piquet hefur verið sektaður af brasilískum dómstóli vegna rasískra og hómófóbískra ummæla sem hann viðhafði um Lewis Hamilton.
Fredrik Reinfeldt er nýr formaður sænska knattspyrnusambandsins en þessi fyrrverandi forsætisráðherra Svía var kjörinn formaður á þingi sambandsins nú í morgun.
Ársþing Körfuknattleikssambands Íslands fer nú fram í dag en þar verður kosið í nýja stjórn sambandsins og þar að auki kosið um fjölmargar áhugaverðar tillögur sem fyrir þinginu liggja.
Handknattleiksdeild Hauka hefur kært framkvæmd leiksins gegn Gróttu síðastliðinn fimmtudag en þetta hefur HSÍ staðfest í samtali við Vísi.
Næstsíðasta umferð Subway-deildar karla í körfuknattleik lauk í gær og Hörður Unnsteinsson, Örvar Þór Kristjánsson og Brynjar Þór Björnsson fóru yfir alla leikina í þættinum Subway Körfuboltakvöld í gærkvöldi.
Lárus Jónsson verður þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn næstu þrjú árin en Þórsarar greindu frá þessu nú í morgun. Þá voru samningar við tvo lykilmenn framlengdir.
Ísland á að vinna Liechtenstein örugglega í Vaduz í undankeppni EM 2024 á morgun. Gestgjafarnir hafa ekki unnið leik síðan í október 2020.
Stórmeistaramóti Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lýkur í kvöld með úrslitaleik milli Atlantic Esports og Þórs. Deildarmeistarar Dusty hafa einokað titlana undanfarin ár, en nú er ljóst að ný Stórmeistari verður krýndur.
Sjeik Jassim Al Thani hefur lagt fram nýtt tilboð í Manchester United en fjórir aðilar berjast nú um að kaupa enska stórliðið af Glazer fjölskyldunni.
Fjörtíu og sex stig frá Joel Embiid dugðu skammt þegar Golden State Warriors vann góðan sigur á Philadelphia 76´ers í NBA-deildinni í nótt. Þá vann Lakers mikivægan sigur í baráttunni um sæti í úrslitakeppni.
Julian Nagelsmann er opinn fyrir viðræðum við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham en Þjóðverjanum var sagt upp hjá Bayern Munchen í vikunni. Framtíð Antoino Conte þjálfara Tottenham er í lausu lofti eftir slakt gengi að undanförnu.
Erling Braut Håland, stjörnuframherji Manchester City, er tæpur fyrir leik liðsins gegn Liverpool þann 1. apríl næstkomandi. Hann er mættur til Katalóníu en þangað sendir Man City leikmenn sína er þeir glíma við meiðsli.
„Þetta er búið að vera í samtali við þennan klúbb í einhverjar vikur. Endanlega í dag var þetta klárt,“ sagði Jónatan Magnússon, núverandi þjálfari KA í Olís deild karla í handbolta en í dag var staðfest að hann muni taka við sænska liðinu Skövde í sumar.
Það er að venju mikið um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport á laugardegi. Við bjóðum upp á 8 beinar útsendingar í dag.
Síðari undanúrslitaleikur Stórmeistaramóts Ljósleiðaradeildarinnar var á milli Þórs og FH
„Það er stór helgi framundan í körfuboltasamfélaginu. Ákvarðanir sem verða teknar um helgina eru mikilvægar, bæði í karla- og ekki síst í kvennaboltanum,“ sagði Hörður Unnsteinsson, stjórnandi Körfuboltakvölds kvenna en um helgina fer ársþing KKÍ, Körfuknattleikssambands Íslands, fram.
Phoenix Suns og Los Angeles Lakers mætast í leik sem gæti skipt sköpum rétt áður en deildarkeppni NBA-deildarinnar lýkur. Það gæti farið svo að það yrði fyrsti leikurinn sem Kevin Durant og LeBron James spila gegn hvor öðrum síðan 2018.
Valur valtaði yfir Njarðvík í Ljónagryfjunni 76-101. Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn og Kristófer Acox, leikmaður Vals, var ánægður með sigurinn.
Öllum leikjum kvöldsins í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu er nú lokið. Færeyjar gerðu 1-1 jafntefli við Moldóvu á útivelli á meðan Belgía vann stórsigur í Svíþjóð. Zlatan Ibrahimović kom hins vegar inn af bekknum hjá Svíum og varð það með elsti leikmaður í sögu undankeppninnar.
Valur er deildarmeistari í Subway-deild karla 2023. Íslandsmeistararnir tryggja sigurinn með öruggum sigri í Njarðvík.
Frakkland og Holland mættust í áhugaverðasta leik kvöldsins í undankeppni EM 2024. Bæði lið fóru langt á HM í Katar en töpuðu gegn Argentínu sem stóð uppi sem heimsmeistari. Leikur kvöldsins var aldrei spennandi en Frakkar kláruðu dæmið strax í fyrri hluta fyrri hálfleiks.
Þórsarar eru til alls líklegir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Liðið er á mikilli siglingu og vann í kvöld sinn sjöunda sigur í átta leikjum. Andstæðingurinn í kvöld var Stjarnan og varð niðurstaðan nokkuð þægilegur fjórtán stiga sigur. Einn af lykilmönnum liðsins, og stór þáttur í því að Þór varð meistari fyrir tveimur árum, er Styrmir Snær Þrastarson. Hann ræddi við Vísi eftir sigurinn í kvöld.
Dusty og Atlantic börðust um sæti í úrslitum Stórmeistaramóts Ljósleiðaradeildarinnar í kvöld.
ÍR-ingar náðu í einkar mikilvægan sigur í baráttu sinni um að forðast fall úr Olís-deild karla í handbolta þegar liðið mætti Stjörnunni í Skógarseli í kvöld.
Fjárhagsstaða enska knattspyrnufélagsins Everton er einkar slæm. Talið er að félagið hafi brotið reglur úrvalsdeildarinnar um fjárhagslega háttvísi. Verði það sannað gæti farið svo að stig verði tekin af liðinu.
Þórsarar eiga séns á því að enda í sjötta sæti deildarinnar eftir sjöunda sigurinn í síðustu átta leikjum. Stjörnumenn urðu fyrir barðinu á þeim í kvöld, lokatölur 84-98 fyrir gestina í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ.
Svíþjóðarmeistarar Rosengård gerðu aðeins jafntefli við Piteå þegar nýtt tímabil sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu hófst. Guðrún Arnardóttir spilaði allan leikinn í hjarta Rosengård.
„Þetta er áframhaldandi undirbúningur fyrir Þjóðadeildina í haust. Þurfum að halda áfram að vinna í hlutum sem við byrjuðum á í Pintar og halda áfram að skerpa á þeim,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, eftir að hann tilkynnti hópinn sem verður til taks í vináttuleikjum liðsins í næsta mánuði.
Það gæti farið svo að Birkir Bjarnason gæti gengið aftur í raðir Viking í Noregi en hann er að reyna fá samning sínum hjá tyrkneska liðinu Adana Demirspor rift. Viking gæti verið að selja leikmann sem myndi opna pláss fyrir Birki.