Fleiri fréttir

Murray þakkaði Sir Alex fyrir góð ráð

Andy Murray tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Wimbledon-mótsins í tennis en þetta verður annað árið í röð sem þessi 26 ára gamli Skoti spilar til úrslita á þessu virta móti. Murray sló Jerzy Janowicz frá Póllandi út í undanúrslitunum og mætir Novak Djokovic í úrslitaleiknum.

Knapi í lífshættu

Alvarlegt slys varð á veðreiðum um daginn þegar knapinn Brian Toomey féll af baki með skelfilegum afleiðingum.

Andy Murray mætir Djokovic í úrslitaleiknum

Andy Murray og Novak Djokovic mætast í úrslitaleiknum á Wimbledon-mótinu í tennis en heimamaðurinn Murray tryggði sér leik á móti Djokovic með öruggum 3-1 sigri á Pólverjanum Jerzy Janowicz í kvöld.

Guardiola hefur trú á Messi og Neymar

Knattspyrnuheimurinn bíður spenntur eftir því að sjá Lionel Messi og Neymar spila saman hjá Barcelona næsta vetur. Margir efast þó um þeir geti spilað saman. Pep Guardiola, þjálfari Bayern og fyrrum þjálfari Barcelona, er þó ekki einn þeirra.

Coquelin á lán til Freiburg

Frakkinn Francis Coquelin er farinn á lán til þýska knattspyrnuliðsins Freiburg en leikmaðurinn verður hjá félaginu í eitt ár.

Robben er gjöf til mín

Pep Guardiola er tekinn við hjá Bayern München og þýskir fjölmiðlar velta sér nú mikið upp úr því hvaða breytingar verði á leikmannahópi félagsins í sumar.

Maicon til sölu á tombóluverði

Ein verstu kaup Man. City síðustu árin voru kaupin á brasilíska bakverðinum Maicon frá Inter síðasta sumar. Hann kostaði félagið þrjár milljónir punda.

Doninger auglýsir sjálfan sig á Twitter

Knattspyrnumaðurinn Mark Doninger virðist vera orðin örvæntingafullur í leit sinni að nýju félagi en hann setti inn einskonar auglýsingu á Twitter-síðu sinni í dag.

Ferguson á leið undir hnífinn

David Moyes, nýr stjóri Man. Utd, þarf ekki að óttast að Sir Alex Ferguson, fráfarandi stjóri félagsins, líti yfir öxlina á honum í fyrstu leikjum tímabilsins.

Ótrúlegur fjöldi NFL-leikmanna kemst í kast við lögin

Leikmennirnir í NFL-deildinni eru margir hverjir skrautlegir karakterar. Þeir eiga það ansi margir sameiginlegt að vera sérfræðingar í að koma sér í vandræði og athygli vekur hversu margir þeirra komast í kast við lögin.

Jakki boltastráksins kominn á uppboð

Eitt eftirminnilegasta atriði síðari ára í enska boltanum er þegar Eden Hazard, leikmaður Chelsea, sparkaði í boltastrák hjá Swansea í vetur.

Ásgeir Börkur á leiðinni heim í Fylki

Knattspyrnumaðurnn Ásgeir Börkur Ásgeirsson er líklega á leiðinni til uppeldisfélagsins Fylkis þegar félagsskiptaglugginn opnar þann 15. júlí. Þetta staðfesti Ásgeir í samtali við vefsíðuna 433.is fyrr í dag.

FIBA-menn minnast Ólafs

Ólafur Rafnsson, forseti íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, var jarðsunginn í gær. Hans er minnst víða. Ólafur var bráðkvaddur í Sviss á dögunum.

Tevez hlustaði ekki á Balotelli

Mario Balotelli, framherji AC Milan, beitti sér fyrir því að fá Carlos Tevez til félagsins frá Man. City en Argentínumaðurinn hlustaði ekki á Balotelli.

Ekkert tilboð borist í Thiago

Barcelona virðist ekki hafa fengið nein tilboð í Thiago á undanförnum vikum ef marka má orð forráðamanna félagsins.

Anelka vill enda ferilinn hjá WBA

Knattspyrnumaðurinn Nicolas Anelka samdi við enska knattspyrnuliðið West Bromwich Albion í gær en framherjinn gerði eins árs samning við liðið.

Ferguson gaf Murray góð ráð

Bretinn Andy Murray skreið inn í undanúrslitin á Wimbledon-mótinu í tennis og nú bíður hans leikur gegn Pólverjanum Jerzy Janowicz í undanúrslitum. Hann hefur fengið góða aðstoð fyrir þá viðureign.

Van Ginkel verður að fá að spila hjá Chelsea

Marc Overmars, íþróttastjóri Ajax og fyrrum landsliðsmaður Hollands, er svekktur yfir að hafa misst af Marco van Ginkel til Chelsea og óttast að það muni hafa slæm áhrif á feril leikmannsins.

Björgólfur fór á djammið

Björgólfur Takefusa mun líklega yfirgefa herbúðir Valsmanna í félagsskiptaglugganum sem opnar 15. júlí næstkomandi. Leikmaðurinn var settur í agabann á dögunum og því út úr leikmannahópi Vals.

Vítavörslurnar hans Páls Gísla skila ekki sigri

Páll Gísli Jónsson, markvörður Skagamanna, er mikill vítabani og tókst á miðvikudagskvöldið að verja víti annan leikinn í röð í Pepsi-deildinni. Páll Gísli hefur nú varið fimm af tíu síðustu vítaspyrnum sem hann hefur reynt við í efstu deild, þar af þrjár af þeim fjórum síðustu.

Ekki einu sinni enn

Óheppnin virðist elta Katrínu Ásbjörnsdóttir en hún missir af lokakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fer fram í Svíþjóð í júli. Katrín fékk beinmar.

Aníta er óslípaður demantur

Hin 17 ára gamla Aníta Hinriksdóttir hefur sett tólf Íslandsmet á síðustu átján mánuðum og bætt metið í 800 metra hlaupi utanhúss um fjórar sekúndur. Fréttablaðið fékk Jónas Egilsson, Þóreyju Eddu Elísdóttir og Fríðu Rún Þórðardóttur til að segja okkur hversu öfluga íþróttakonu Ísland hefur eignast.

Einar Ingi og Þórey Rósa til Noregs

Handboltaparið Einar Ingi Hrafnsson og Þórey Rósa Stefánsdóttir eru á leið til Noregs en þau hafa undirritað samninga við úrvalsdeildarfélög þar í landi.

FIFA vill að Argentína og Úrúgvæ haldi saman HM 2030

Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu mun halda upp á hundrað ára afmælið sitt árið 2030 og Julio Grondona, formaður argentínska knattspyrnusambandsins segir að Alþjóðaknattspyrnusambandið hafi óskað eftir því að Argentínumenn og Úrúgvæmenn haldi keppnina saman.

Anelka gerði eins árs samning við West Brom

Franski framherjinn Nicolas Anelka gekk í kvöld frá eins árs samningi við enska úrvalsdeildarfélagið West Bromwich Albion og verður þetta sjötta enska félagið hans á ferlinum. Þetta kemur fram í enskum fjölmiðlum.

Áfram vandræðagangur á Víkingum í Víkinni

Víkingum gengur áfram ekkert að landa sigri í Víkinni en liðið tapaði stigum á móti Tindastól í 9. umferð 1. deild karla í fótbolta í kvöld. Víkingar gátu minnkað forskot Grindvíkinga á topppnum í eitt stig með sigri því Grindvíkingar náðu á sama tíma aðeins í eitt stig á móti Fjölni í Grafarvogi.

Mancini vill þjálfa á Spáni eða Englandi

Ítalinn Roberto Mancini er atvinnulaus eftir að hann var rekinn frá Man. City í lok síðasta tímabils. Hann er farinn að líta í kringum sig eftir nýrri vinnu.

Pálmi Rafn hetja Lilleström í bikarnum

Pálmi Rafn Pálmason skoraði eina mark leiksins þegar Lilleström komst áfram í undanúrslit norsku bikarkeppninnar í kvöld. Lilleström vann þá 1-0 sigur á Start í slag tveggja Íslendingaliða.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - HB 1-1

Færeyingarnir í HB frá Þórshöfn náðu að skora mikilvægt útivallarmark og tryggja sér 1-1 jafntefli á móti ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld þegar liðin mættust í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir