Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Houllier stjórnar ekki fleiri leikjum á tímabilinu Gérard Houllier, stjóri Aston Villa, þarf að taka sér frí út tímabilið en hann var fluttur á sjúkrahús á miðvikudagskvöldið með verki fyrir brjósti. Gary McAllister mun stjórna liði Aston Villa í síðustu fimm leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. 22.4.2011 11:45
Tilþrifin sem kveiktu í Miami-liðinu í nótt - myndband Dwyane Wade og LeBron James voru saman með 56 stig og 25 fráköst í 100-94 sigri Miami Heat á Philadelphia 76ers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt en það voru flestir á því að troðsla Wade eftir skrautlega stoðsendingu frá James hafi kveikt í liðinu þegar þeir voru 68-62 undir í þriðja leikhlutanum. 22.4.2011 11:15
NBA: Chicago og Miami komin í 3-0, Portland vann Dallas NBA: Chicago og Miami komin í 3-0, Portland vann DallasChicago Bulls og Miami Heat stigu stórt skref í átt að annarri umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt þegar þau komust bæði í 3-0 í einvígum sínum. Portland Trail Blazers tókst hinsvegar að minnka muninn í 2-1 á móti Dallas Mavericks. 22.4.2011 11:00
Barcelona hefur ekki tapað leik í vetur með Puyol í liðinu Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, er kannski mikilvægari fyrir Barcelona-liðið en flestir gera sér grein fyrir. Það er líklega engin tilviljun að allir fjórir tapleikir Barca á þessu tímabili hafa litið dagsins ljós þegar fyrirliðinn var fjarverandi. 22.4.2011 10:00
Stuðningsmenn ensku liðanna völdu Meireles leikmann ársins Raul Meireles, miðjumaður Liverpool, var valinn besti leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni af stuðningsmönnum liðanna í deildinni. Meðlimir leikmannasamtaka ensku deildarinnar tilnefna leikmenn til verðlaunanna en það eru síðan stuðninsmennirnir sem kjósa. 22.4.2011 09:00
Cech: Þetta verður bara á milli Chelsea og Manchester United Petr Cech, markvörður Chelsea, segir að baráttan um Englandsmeistaratitilinn sé nú aðallega á milli Chelsea og Manchester United og að Arsenal sé þegar búið að klúðra sínum möguleika á að vera með í titilbaráttunni. 22.4.2011 08:00
Sergio Ramos getur andað léttar - það var til varabikar Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, komst í heimsfréttirnar þegar hann missti spænska Konungsbikarinn fyrir rútuna sem ók með liðið í sigurhátíðinni eftir að félagið varð spænskur bikarmeistari á miðvikudagskvöldið. 22.4.2011 07:00
Arndís Ýr og Þórólfur Ingi unnu 96. Víðavangshlaup ÍR Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni og Þórólfur Ingi Þórsson úr ÍR voru sigurvegarar í 96. Víðavangshlaup ÍR sem fram fór í miðbæ Reykjavíkur á Sumardaginn fyrsta. 370 hlauparar á öllum aldri tóku þátt þrátt fyrir leiðinda veður en hlaupið er liður í Powerade mótaröðinni. 22.4.2011 06:00
Nigel de Jong: Ég var meðhöndlaður eins og stríðsglæpamaður Hollenski landsliðsmaðurinn Nigel de Jong var langt frá því að vera vinsælasti knattspyrnumaður heimsins eftir að hann komst upp með fólskulega tæklingu á Xabi Alonso í úrslitaleik HM síðasta sumar. Hann lenti síðan í því að fótbrjóta Hatem Ben Arfa fyrr á þessu tímabili og hefur nú slæmt orð á sér. 21.4.2011 23:30
Kahn þarf að borga 20 milljónir í sekt fyrir smygl Oliver Kahn, fyrrum markvörður Bayern Munchen og þýska landsliðsins, hefur verið dæmdur til að greiða 125 þúsund evrur eða 20 milljónir íslenskra króna í sekt fyrir að reyna að smygla fatnaði til Þýskalands. Kahn gaf ekki upp lúxus-klæðnað sem hann keypti fyrir meira en 6000 evrur í ferð sinni til Dúbæ. 21.4.2011 22:45
Varnarlína Barca veikist - Adriano frá í fjórar vikur Barcelona verður án brasilíska bakvarðarins Adriano næstu fjórar vikurnar eftir að hann meiddist í tapinu á móti Real Madrid í úrslitaleik spænska bikarsins í gær. Adriano meiddist í lok leiksins en var gagnrýndur í spænsku pressunni fyrir að missa af Cristiano Ronaldo þegar Portúgalinn skoraði eina mark leiksins í framlengingunni. 21.4.2011 22:00
Dalglish ánægður með unglingana Flanagan og Robinson Jamie Carragher og Andy Carroll verða væntanlega fjarri góðu gammni þegar Liverpool mætir Birmingham City í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Kenny Dalglish mun því halda áfram að nota unglingana John Flanagan og Jack Robinson. 21.4.2011 21:15
Spænska liðið Getafe er nú í eigu viðskiptajöfra frá Dúbæ Fjárfestingahópurinn Royal Emirates Group frá Dúbæ er búið að kaupa spænska úrvalsdeildarfélagið Getafe og hefur sett stefnuna á að koma félaginu í hóp sex bestu liða Spánar á næsta tímabili. Getafe hefur aðsetur í úthverfum Madrid og ætlar að komast á sama stall og nágrannar þeirra í Real og Atletico. 21.4.2011 20:30
Vignir með sjö mörk í þriðja sigri Hannover í röð Hannover-Burgdorf vann mikilvægan fimm marka sigur á HSG Ahlen-Hamm í botnbaráttuslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Hannover vann leikinn 28-23 eftir að hafa verið 12-9 yfir í hálfleik. 21.4.2011 19:45
IFK Gautaborg stigalaust á botninum eftir fjórða tapið í röð Íslendingaliðið IFK Gautaborg tapaði í kvöld 2-0 á móti AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. IFK-liðið hefur þar með tapað fjórum fyrstu leikjum tímabilsins og er eitt stigalaust á botni deildarinnar með markatöluna 2-8. 21.4.2011 19:00
Malouda: Þrjú lið eiga enn möguleika á titlinum Florent Malouda segir að Chelsea sé komið aftur inn í titilbaráttuna eftir að liðið er nú aðeins sex stigum á eftir Manchester United þegar aðeins fimm leikir eru eftir. 21.4.2011 18:30
Stelpurnar unnu Pólland í fyrsta sinn Íslenska kvennalandsliðið í handbolta byrjar vel undir stjórn Ágústar Þórs Jóhannssonar en liðið vann 24-22 sigur á Póllandi í dag í æfingaleik í Tyrklandi eftir að hafa unnið heimastúlkur í gær. Íslenska liðið var 12-11 yfir í hálfleik. 21.4.2011 18:00
Tevez ætti að ná bikarúrslitaleiknum Roberto Mancini, stjóri Manchester City, segir góðar líkur á því að fyrirliði sinn, Argentínumaðurinn Carlos Tevez, verði orðinn góður af meiðslum sínum fyrir bikarúrslitaleikinn á móti Stoke sem fer fram á Wembley 14.maí næstkomandi. 21.4.2011 17:30
Sölvi Geir orðinn danskur meistari með FCK Sölvi Geir Ottesen og félagar í FC Kaupmannahöfn urðu í dag danskir meistarar eftir 2-1 útisigur á Lyngby en liðið er með 26 stiga forskot á OB þegar aðeins sjö leikir eru eftir. 21.4.2011 16:44
Rúrik og félagar töpuðu óvænt á heimavelli Rúrik Gíslason og félagar í OB Odense töpuðu óvænt á heimavelli í dag á móti FC Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni. OB er áfram í 2.sæti þremur stigum á eftir FC Midtjylland sem vann 1-0 sigur á AC Horsens. 21.4.2011 16:38
Wenger neitar að gefast upp: Þetta er allt galopið ennþá Arsene Wenger, stjóri Arsenal, ætlar ekkert að gefa upp vonina að gera að Arsenal að enskum meisturum á ný þrátt fyrir að liðið hafi misst tvo síðustu leiki sína niður í jafntefli og sé sex stigum á eftir toppliði Manchester United þegar aðeins fimm leikir eru eftir. 21.4.2011 16:00
Ólafur: Ætla ekki að búa til einhverjar skýjaborgir Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, stýrði sínum mönnum inn í úrslitaleik Lengjubikars karla eftir 1-0 sigur á KR í undanúrslitaleik liðanna á Fylkis-gervigrasinu í gær. 21.4.2011 15:30
Valur í úrslitaleikinn eftir sigur í framlengingu Valsmenn tryggðu sér í dag sæti í úrslitaleik Lengjubikars karla eftir 2-1 sigur á FH í framlengdum leik í undanúrslitum. 21.4.2011 14:59
Rúnar: Ég veit hvar við erum staddir Rúnari Kristinssyni, þjálfara KR, tókst ekki að koma sínum mönnum í úrslitaleikinn í Lengjubikar karla í fótbolta í gær en KR tapaði þá 0-1 fyrir Fylki í undanúrslitaleik liðanna á Fylkisvellinum. 21.4.2011 14:45
Víkingar fá finnskan miðjumann að láni frá Örebro Nýliðar Víkings í Pepsi-deild karla hafa styrkt liðið sitt fyrir átökin sem hefjast eftir rúma viku. Víkingar náðu í morgun samkomulagi við sænska liðið Örebro um að fá finnska miðjumanninn Denis Abdulahi að láni. Þetta kemur fram á víkingur.net. 21.4.2011 14:00
Iniesta verður ekki í leikbanni gegn Real Madrid Andrés Iniesta leikmaður Barcelona verður ekki í leikbanni í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid eins og UEFA hafði lagt til. Iniesta fékk gult spjald í fyrri leiknum í 8-liða úrslitunum gegn Shaktar Donetsk – og taldi UEFA að hann hafi tafið leikinn vísvitandi til þess að vera í leikbanni í síðari leiknum gegn úkraínska liðinu og byrja með "hreint“ borð í undanúrslitum keppninnar. 21.4.2011 13:15
Hvaða atvinnulið heimsins greiða hæstu meðallaunin? - topp 20 listinn Leikmenn spænska fótboltaliðsins Barcelona voru með hæstu meðallaunin á árinu 2010 samkvæmt fréttaskýringu á bandarísku íþróttafréttastöðinni ESPN sem byggð er á útreikningum Sporting Intelligence. Leikmenn Spánarmeistaraliðs Barcelona fá um 17 milljónir kr. að meðaltali í laun á viku eða rétt um 900 milljónir kr. á ári. Enska úrvalsdeildarliðið Liverpool er í 20. sæti á þessum lista en Chelsea er í 6. sæti. Alls eru 11 atvinnulið frá Bandaríkjunum á listanum, 4 frá Englandi, 2 frá Ítalíu, 2 frá Spáni og 1 frá Þýskalandi 21.4.2011 12:15
Konur mega ekki keppa í stuttbuxum í badminton Alþjóðabadmintonsambandið hefur samþykkt nýja reglugerð þar sem konum er bannað að leika í stuttbuxum í alþjóðlegri keppni – og verða þær að keppa í stuttum pilsum þess í stað. Markmiðið er að auka vinsældir íþróttarinnar í sjónvarpi en ákvörðunin hefur alls ekki fallið í góðan jarðveg í Evrópu og á Norðurlöndunum. 21.4.2011 11:45
Real Madrid rútan ók yfir Konungsbikarinn - Ramos sökudólgurinn Leikmenn Real Madrid fögnuðu sigrinum í Konungsbikarnum í gær með hefðbundnum hætti enda löng bið liðsins eftir titli á enda. Mikil sigurhátíð var í Madrid í gær þar sem leikmenn liðsins óku um borgina og lyftu Konungsbikarnum á loft í opnum strætisvagni. Það gekk mikið á þeim fögnuðu og eitthvað fór úrskeiðis þegar bikarinn féll af þaki rútunnar niður á götuna – og rútan ók yfir Konungsbikarinn og það er ljóst að bikarinn var ekki eins glæsilegur eftir þá meðferð. 21.4.2011 11:00
Platini baðst afsökunar á háu miðaverði á úrslitaleikinn á Wembley Michel Platini forseti UEFA telur að miðaverðið á úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer á Wembley í maí sé of hátt og hann baðst afsökunar á miðaverðinu sem margir hafa gagnrýnt. Platini var í London í gær þar sem að Meistaradeildarbikarinn verður varðveittur fram að úrslitaleiknum en Frakkinn ætlar sér að lækka miðaverðið á úrslitaleiki Meistaradeildarinnar í framtíðinni. 21.4.2011 10:30
Ancelotti hefur enn trú á því að Man Utd tapi stigum á lokakaflanum Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri enska meistaraliðsins Chelsea telur að liðið eigi enn möguleika á að verja titilinn eftir 3-1 sigur liðsins í gær gegn Birmingham. Ítalinn trúir því að Manchester United, sem er í efsta sæti með 70 stig, eigi eftir að tapa stigum á lokakaflanum, en Chelsea þarf að mati Ancelotti að vinna alla fimm leikina sem eftir eru. 21.4.2011 10:00
Gerard Houllier fluttur á sjúkrahús vegna verkja í brjósti Gerard Houllier var fluttur á sjúkrahús í gær þar sem hann kvartaði yfir verkjum í brjósti en hinn 63 ára gamli knattspyrnustjóri Aston Villa fékk hjartaáfall fyrir áratug þegar hann var knattspyrnustjóri Liverpool. Ástand Houllier er ekki talið alvarlegt en Houllier fór í hjartaaðgerð árið 2001 og var frá vinnu í hálft ár. 21.4.2011 09:30
NBA: Lakers og San Antonio jöfnuðu metin - Denver í vandræðum Meistaralið LA Lakers lagði New Orleans Hornets 87-78 í gær í úrslitakeppni Vesturdeildar NBA deildarinnar í körfubolta og er staðan í einvíginu 1-1. Þrír leikir fóru fram í gær og náði San Antonio Spurs að jafna metin gegn Memphis Grizzlies með 93-87 sigri á heimavelli. Oklahoma er 2-0 yfir gegn Denver Nuggets eftir 106-89 sigur liðsins í gær. 21.4.2011 09:00
Marcus tók stigametið af Damon Marcus Walker verður örugglega á milli tannanna hjá íslensku körfuboltafólki um ókomna tíð eftir magnaða frammistöðu sína í úrslitakeppninni. Þegar menn fóru að skoða sögubækurnar betur kom líka í ljós að spilamennska þessa eldfljóta og stórskemmtilega bakvarðar væri einstök í 28 ára sögu úrslitakeppninnar. 21.4.2011 07:00
Balotelli gaf heimilislausum manni 200 þúsund krónur Vandræðagemsinn Mario Balotelli, leikmaður Man. City, á sínar mjúku hliðar þó svo það sé ekki skrifað mikið um þær í breskum fjölmiðlum. Í dag mátti þó finna jákvæða frétt um hann í bresku slúðurblaði. 20.4.2011 23:30
Eltihrelli Rios hent í steininn til verndar Rio og fjölskyldu Dómarinn í máli Rio Ferdinand gegn eltihrellinum Susanne Ibru ákvað í dag að stinga Ibru í steininn á meðan hann ákveður hvaða dóm hún skuli fá fyrir að hrella Rio og fjölskyldu. 20.4.2011 23:00
Elfar, Arnór og Haukur framlengja við Blika Þrír sterkir leikmenn Breiðabliks hafa gert nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2014. Þetta eru þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Elfar Freyr Helgason og Haukur Baldvinsson. Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu í kvöld. 20.4.2011 22:31
Ronaldo tryggði Real Madrid bikarmeistaratitilinn Real Madrid varð í kvöld bikarmeistari á Spáni eftir sigur á Barcelona, 1-0, í framlengdum úrslitaleik. Cristiano Ronaldo skoraði eina mark leiksins. Þetta er fyrsti titill Real Madrid undir stjórn Jose Mourinho. 20.4.2011 22:01
Redknapp: Lehmann sagði að við værum búnir að vera Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var að vonum með strákana sína eftir að liðið hafði unnið upp 3-1 forskot Arsenal og nælt í stig í kvöld. 20.4.2011 21:33
Wenger: Mætum brjálaðir í næstu leiki Arsene Wenger, stjóri Arsenal, bar sig ágætlega eftir jafnteflið gegn Tottenham í kvöld og þá niðurstöðu að liðið er komið í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar þar sem Chelsea lagði Birmingham. 20.4.2011 21:28
Fylkir lagði KR og komst í úrslit Fylkir komst í kvöld í úrslit Lengjubikarsins í knattspyrnu með sigri á KR, 1-0, en leikið var í skítakulda á Fylkisvellinum. 20.4.2011 20:56
Sigur í fyrsta leik hjá Ágústi Ágúst Þór Jóhannsson byrjaði vel með kvennalandslið Íslands í handbolta í dag er það lagði Tyrkland, 27-25, í vináttulandsleik ytra. 20.4.2011 20:51
Gunnar Heiðar skoraði í sigri á Jónasi Guðna og félögum Gunnar Heiðar Þorvaldsson fer ágætlega af stað með liðinu sínu IFK Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 20.4.2011 20:48
Kiel skellti toppliði Hamburgar Kiel vann sætan sigur á Hamburg í kvöld, 38-35, er liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Hamburg er svo gott sem búið að hrifsa titilinn af Kiel í ár en sigurinn er mikilvægur fyrir Kiel sem er í harðri baráttu við Rhein-Neckar Löwen um annað sætið í deildinni. 20.4.2011 20:03
Tevez ætlar að ná bikarúrslitaleiknum Carlos Tevez, fyrirliði Manchester City, stefnir að því að ná bikarúrslitaleiknum gegn Stoke sem fer fram þann 14. maí næstkomandi. 20.4.2011 19:45