Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ragnar Ingi áfram hjá KTM Ragnar Ingi Stefánsson, nífaldur Íslandsmeistari í Mótorkrossi, mun keppa fyrir KTM í sumar. Ragnar ók KTM 525 keppnishjóli s.l. sumar og átti ágætt tímabil en reiknar með því að aka nýrri týpu, KTM 505 í sumar en það er útboruð keppnisútgáfa af hinu vinsæla 450 hjóli frá KTM. 11.1.2007 01:18
Bikarmeistararnir fá ÍR í heimsókn Í kvöld var dregið í undanúrslit bikarkeppninnar í körfubolta. Bikarmeistarar Grindavíkur í karlaflokki mæta þá ÍR og Hamar/Selfoss fær heimaleik gegn Keflavík. Í kvennaflokki mætast annarsvegar Keflavík og Hamar og hinsvegar Grindavík og Haukar. Leikirnir fara fram í lok mánaðarins. 10.1.2007 23:34
Wycombe náði jöfnu gegn Chelsea Kraftaverkalið Wycombe heldur áfram að koma á óvart í enska deildarbikarnum og í kvöld náði liðið 1-1 jafntefli gegn Chelsea á heimavelli sínum. Wayne Bridge kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik, en hinn magnaði Jermaine Easter jafnaði metin fyrir Wycombe, sem er þremur deildum neðar en Chelsea í töflunni. Easter hefur nú skorað í öllum leikjum liðsins í keppninni. Síðari leikur liðanna er svo á Stamford Bridge. 10.1.2007 21:58
Ójafn leikur í kvennakörfunni Tveir leikir fóru fram í efstu deild kvenna í körfubolta í kvöld þar sem grannarnir Grindavík og Keflavík völtuðu yfir andstæðinga sína. Keflavík rótburstaði Breiðablik 128-44 og Grindavík lagði Hamar 96-50. Keflavík hefur tveggja stiga forskot á Hauka á toppi deildarinnar en Íslandsmeistararnir eiga leik til góða. Grindavík er svo í þriðja sætinu. 10.1.2007 21:53
Hauka lögðu ÍBV Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild kvenna í kvöld. Haukastúlkur lögðu ÍBV 35-28 á Ásvöllum. Liðin eru á svipuðu róli í deildinni en Haukar eru í fjórða sætinu með 16 stig, en ÍBV í því fimmta með 11 stig. 10.1.2007 21:50
Marcelo frá í sex vikur Bakvörðurinn ungi Marcelo hjá Real Madrid verður frá keppni í um sex vikur eftir að hann meiddist á ökkla í 2-0 tapi Real gegn Deportivo í spænsku deildinni um síðustu helgi. Marcelo gekk í raðir Real frá Fluminese í heimalandi sínu Brasilíu um leið og janúarglugginn opnaði. 10.1.2007 20:37
Webber á leið frá Philadelphia Segja má að vorhreingerningarnar hefjist snemma hjá liði Philadelphia 76ers þetta árið en félagið er í þessum töluðu orðum að ganga frá því að kaupa framherjann Chris Webber út úr samningi sínum. Webber er 34 ára gamall og orðinn nokkuð lúinn sem leikmaður, en á hvorki meira né minna en 43 milljónir eftir á samningi sínum sem gildir út næsta keppnistímabil. 10.1.2007 19:35
Mijatovic tekur orð sín til baka Yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid, Predrag Mijatovic, hefur dregið ummæli sín við Sky sjónvarpsstöðina í dag til baka og segir ekkert til í þeim fréttaflutningi að David Beckham sé á förum frá stórliðinu. 10.1.2007 19:29
Souness leggur fram formlegt tilboð í Wolves Hópur fjárfesta undir stjórn fyrrum knattspyrnustjórans Graeme Souness lagði í dag fram formlegt yfirtökutilboð í knattspyrnufélagið Woves. Tilboðið hljóðar upp á 20 milljónir punda og þykir áhugavert fyrir þær sakir að aðeins Englendingar koma að því, en mikið veður hefur verið gert á Englandi vegna mikilla umsvifa erlendra fjárfesta í knattspyrnunni þar í landi. 10.1.2007 19:24
Kári Árnason til Danmerkur Landsliðsmaðurinn Kári Árnason hjá Djurgarden í Svíþjóð gengur í raðir danska liðsins AGF í Árósum um helgina ef marka má fréttir frá Danmörku. Langt er síðan ljóst varð að Kári yrði ekki áfram í herbúðum sænska liðsins og nú er útlit fyrir að leikmaðurinn gangi í raðir hins fornfræga danska liðs á næstu dögum. 10.1.2007 19:14
Tveir leikir í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með tvær beinar útsendingar í fótboltanum í kvöld og hefjast þær báðar klukkan 19:50. Fyrri leikur Wycombe og Chelsea í undanúrslitum enska deildarbikarsins verður sýndur á Sýn og á Sýn Extra verður fyrri leikur Alaves og Barcelona í spænska bikarnum, þar sem Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í byrjunarliði Katalóníuliðsins. 10.1.2007 19:02
Klose vill ekki fara hvert sem er Þýski landsliðsframherjinn Miroslav Klose segir aðeins fimm félög koma til greina fyrir sig ef hann ákveði að yfirgefa herbúðir Werder Bremen í sumar eins og flestir reikna með. Klose hefur verið orðaður við fjölda stórliða eftir að ljóst varð að hann ætlaði ekki að framlengja við Bremen. 10.1.2007 18:57
Portsmouth fær miðjumann að láni Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur fengið miðjumanninn Arnold Mvuemba að láni frá franska liðinu Rennes út leiktíðina. Mvuemba þessi er 21 árs gamall og ef hann stendur sig vel á Englandi gæti farið svo að Portsmouth gengi frá kaupum á honum í sumar. 10.1.2007 18:52
Jákvæðar fréttir hjá Everton Lið Everton fékk þær góðu fréttir í dag að miðjumaðurinn Tim Cahill sé orðinn heill á ný eftir meiðsli og svo gæti farið að hann fengi strax sæti í byrjunarliðinu á ný eftir að Everton tapaði illa í síðasta leik. David Moyes hefur boðað breytingar í kjölfarið og þá fékk félagið þau tíðindi í dag að meiðsli bakvarðarins Nuno Valente væru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu - svo gæti farið að hann missti aðeins úr tvo leiki. 10.1.2007 18:48
Mills frjálst að fara frá City Stuart Pearce, stjóri Manchester City, segir að varnarmanninum Danny Mills sé frjálst að fara frá félaginu. Mills missti sæti sitt í hendur hins unga og efnilega Micah Richards og hefur verið sem lánsmaður hjá Hull City í 1. deild í tvo mánuði. Þar hefur hann staðið sig vel og sagt er að félagið hafi áhuga á að ganga frá kaupum á leikmanninum. 10.1.2007 18:45
Pires að ná sér Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Villarreal er nú óðum að ná sér af hnémeiðslum sínum, níu mánuðum eftir að hann gekk í raðir spænska liðsins frá Arsenal. Pires hefur enn ekki spilað alvöruleik með Villarreal eftir að hann meiddist á hné í æfingaleik í sumar en er nú búinn í endurhæfingu og fær væntanlega tækifæri með liðinu fljótlega. 10.1.2007 18:41
Benitez kvartar yfir peningaleysi Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að félagið hafi ekki nógu mikla peninga úr að moða til að geta fjárfest í ungum og efnilegum leikmönnum. Leikmannakaup stjórans á liðnum árum voru gagnrýnd nokkuð í breskum blöðum í dag í kjölfar ófara liðsins í leikjunum tveimur gegn Arsenal. 10.1.2007 17:21
Stutt í endurkomu Petr Cech Nú styttist óðum í endurkomu markvarðarins Petr Cech hjá Chelsea, en hann hefur ekki spilað leik í þrjá mánuði eftir að hann höfuðkúpubrotnaði í leik gegn Reading í október. Markvörðurinn segist vera kominn í fínt form en bíður eftir að fá endanlega græna ljósið frá læknum til að fá að spila á ný. 10.1.2007 17:16
Treyja Kobe Bryant orðin vinsælust á ný Svo virðist sem vinsældir körfuboltamannsins Kobe Bryant séu aftur að ná hámarki, en samkvæmt nýjustu tölum frá Bandaríkjunum á hann nú söluhæstu keppnistreyjuna á markaðnum í dag. Bryant var á toppnum árið 2003, en Dwyane Wade hjá Miami hirti toppsætið árið 2005 og hafði haldið því síðan. Treyja LeBron James er í þriðja sætinu og liðsfélagarnir Allen Iverson og Carmelo Anthony hjá Denver eru í fjórða og fimmta sæti. 10.1.2007 16:44
Luis Garcia spilar ekki meira í vetur Spánverjinn Luis Garcia hjá Liverpool verður ekki meira með liðinu á leiktíðinni eftir að hann sleit krossbönd í hné í leiknum gegn Arsenal í bikarnum í gær. Garcia getur ekki spilað fótbolta í amk 6 mánuði vegna þessa. Þá verður félagi hans Mark Gonzalez frá í um þrjár vikur vegna meiðsla sem hann hlaut í sama leik. 10.1.2007 16:38
Búið að velja í stjörnuliðin Nú er búið að velja í stjörnulið karla og kvenna í körfubolta, en árlegir stjörnuleikir fara fram í DHL-höllinni í vesturbænum á laugardaginn. Kvennaleikurinn er klukkan 14 og karlaleikurinn klukkan 16. Blandað er í liðum í kvennaflokki en hjá körlunum er það úrvalslið Íslendinga gegn úrvalsliði Íslands. Þá verða skotkeppnin og troðkeppnin á sínum stað ef næg þáttaka verður. 10.1.2007 16:28
Raikkönen ætlar ekki að breyta um stíl Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen segist ekki ætla að breyta um stíl eftir að hann gekk í raðir Ferrari frá McLaren í Formúlu 1, hvorki utan vallar né innan. Raikkönen hefur verið gagnrýndur af Formúlusérfræðingum fyrir að taka ekki nógu vel leiðsögn og fyrir að taka íþróttina ekki nógu alvarlega. 10.1.2007 16:08
Wenger og Ljungberg ósáttir Sænska dagblaðið Expressen hefur eftir vini Freddy Ljungberg hjá Arsenal að Arsene Wenger knattspyrnustjóri sé að bola honum frá félaginu. Wenger á að hafa gert Svíanum það ljóst að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal. 10.1.2007 15:59
Ullrich á að snúa aftur til æfinga Erik Zabel, fyrrum liðsfélagi hjólreiðakappans Jan Ullrich, segir að honum ætti í það minnsta að vera gert kleift að æfa á meðan ekki þykir fullsannað að hann hafi neytt ólöglegra lyfja. Ullrich var rekinn frá liði T-mobile eftir að rannsókn var hrundið á stað í tengslum við harðar ásakanir um lyfjamisnotkun. 10.1.2007 15:52
Wie á ekki möguleika í karlana Ástralinn Stuart Appleby segir að ungstirnið Michelle Wie eigi ekki möguleika á að keppa á karlamótum og segir allt of snemmt fyrir hana að reyna fyrir sér á þeim vettvangi. Wie tekur þátt í sínu 13. móti um næstu helgi sem fram fer á Havaí. 10.1.2007 15:44
Venus Williams missir af opna ástralska Meiðslakálfurinn Venus Williams getur ekki tekið þátt í opna ástralska meistaramótinu í tennis vegna handameiðsla. Williams er aðeins í 48. sæti á styrkleikalistanum eftir að hafa vermt toppsætið í eina tíð. Stigahæsta tenniskona heims, Justine Henin-Hardenne, getur heldur ekki tekið þátt vegna meiðsla. 10.1.2007 15:40
Sainz eykur forskot sitt Spænski rallökumaðurinn Carlos Sainz hefur nú þriggja og hálfrar mínútu forskot á næsta mann í París-Dakar kappakstrinum þegar eknar hafa verið fimm dagleiðir. Sainz sigraði á fimmtu dagleiðinni þegar ekið var frá Ourzazate til Tan Tan í suðurhluta Marokkó í Afríku. Landi hans Isidre Esteve Pujol er í forystu í vélhjólaflokki. 10.1.2007 15:33
Nedved neitaði Tottenham Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hjá Juventus segist hafa neitað tilboði um að ganga í raðir Tottenham og fleiri liða síðasta sumar. Hann segist hafa neitað tilboðinu því fjölskylda hans sé búin að koma sér svo vel fyrir í Tórínó og þar ætli hann að búa eftir að hann leggur skóna á hilluna. 10.1.2007 15:27
Beckham á förum frá Real Madrid David Beckham fer frá Real Madrid í sumar. Þetta fullyrðir yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu Predrag Mijatovic við Sky sjónvarpsstöðina í dag. Samningur Beckham við Real rennur út í sumar og hafa viðræður um framlengingu hans nú strandað. Beckham er frjálst að ræða við önnur félög nú þegar. 10.1.2007 14:39
Dallas vann góðan sigur í Utah Dallas er komið aftur á sigurbraut eftir að liðið lagði keppinauta sína í Utah Jazz á útivelli 108-105 í hörkuleik í Salt Lake City. Dirk Nowitzki fór fyrir Dallas með 38 stigum en Carlos Boozer skoraði 29 stig fyrir Utah. 10.1.2007 14:28
Walter Smith tekur við Glasgow Rangers Walter Smith hefur sagt af sér sem landsliðsjálfari Skotlands og var í dag ráðinn knattspyrnustjóri Glasgow Rangers í annað sinn á ferlinum. Skoska knattspyrnusambandið ætlar að höfða mál á hendur Smith fyrir að svíkja samning sinn, en hann hefur þegar skrifað undir 3 ára samning við Rangers og tekur við liðinu í annað sinn á ferlinum. 10.1.2007 14:16
Benitez bað stuðningsmenn afsökunar Rafa Benitez bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar á frammistöðu liðsins gegn Arsenal í deildarbikarnum eftir 6-3 tapið á Anfield. Þetta var annað stóra tapið í röð hjá Liverpool gegn Arsenal á heimavelli á nokkrum dögum. 10.1.2007 01:56
Arsenal valtaði yfir Liverpool í sögulegum leik Arsenal burstaði Liverpool 6-3 á Anfield í ótrúlegum knattspyrnuleik sem fer í sögubækurnar. Arsenal sló Liverpool út úr enska bikarnum um helgina og sló heimamenn út úr deildarbikarnum í kvöld. Julio Baptista skoraði fjögur mörk fyrir Arsenal og misnotaði þar að auki vítaspyrnu. 9.1.2007 21:44
HK náði jafntefli við Val Þrír leikir fóru fram í DHL-deild kvenna í handbolta í kvöld. HK náði 29-29 jafntefli við topplið Vals á útivelli, Stjarnan skellti Gróttu 26-10 á útivelli og þá vann Fram sömuleiðis útisigur á botnliði Akureyrar. Valur er á toppnum með 18 stig eftir 11 leiki, Stjarnan hefur 16 stig eftir 10 leiki, Grótta hefur 16 stig eftir 12 leiki og Haukar hafa 14 stig eftir 11 leiki. 9.1.2007 21:24
Keflavík og ÍR í undanúrslit Keflavík og ÍR tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar í körfubolta. Keflvíkingar burstuðu lið FSU 117-77 og ÍR-ingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Skallagrím 82-88 í Seljaskóla. Það eru því Keflavík, Grindavík, Hamar/Selfoss og ÍR sem eru komin í undanúrslitin í bikarnum. 9.1.2007 21:09
Arsenal fer á kostum á Anfield Arsenal er svo sannarlega að gera Liverpool lífið leitt þessa dagana en liðið hefur 4-1 forystu á Anfield í hálfleik í leik liðanna í enska deildarbikarnum. Julio Baptista hefur skorað tvö marka Arsenal, Jeremie Aliadiere eitt og Alexandre Song eitt. Robbie Fowler skoraði mark Liverpool í þessum ótrúlega leik sem sýndur er beint á Sýn. 9.1.2007 21:00
Ronny Johnsen íhugar að hætta Norski varnarjaxlinn Ronny Johnsen er að íhuga að leggja skóna á hilluna ef marka má fréttir frá Svíþjóð í kvöld. Johnsen leikur með Árna Gauti Arasyni hjá Valerenga í Noregi, en fór ekki með liðinu í æfingabúðir á Kanaríeyjum sem standa nú yfir. Johnsen er 37 ára gamall og gerði garðinn frægan hjá Manchester United á árum áður. 9.1.2007 20:57
James Stewart sigraði í Anaheim James Stewart vann í þriðju umferð í supercrossinu í Anaheim. Annar varð Ricky Carmichael og Chad Reed þriðji. Í minni flokknum var það hinn ungi og efnilegi Ryan Villopoto sem sigraði. Annar var Christophe Pourcel en þriðji varð Jason Lawrance. 9.1.2007 20:51
Gylfi gagnrýnir vinnubrögð KSÍ Gylfi Orrason knattspyrnudómari gefur lítið fyrir þær fullyrðingar knattspyrnusambands Íslands að sambandið hafi reynt til fullnustu að fá Kristin Jakobsson hækkaðan um styrkleikalista dómara hjá UEFA. Formaður KSÍ kveðst sár yfir fréttaflutningi þessa efnis. 9.1.2007 20:30
Formaður dómara bjartsýnn Rofað hefur til í kjaraviðræðum knattspyrnudómara og KSÍ en samningafundur síðdegis í dag gekk framar vonum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. 9.1.2007 20:30
Josh Grant með marið lunga Sobe/Samsung Honda ökumaðurinn ungi Josh Grant kláraði ekki keppni í 125 flokknum í Anaheim. Josh meiddist á æfingu og var fluttur á slysadeild þar sem hann var greindur með marið lunga. 9.1.2007 20:22
Folald sem leikur sér eins og hundur Átta vikna gamalt folald af tegundinni shetlands pony upplifir sig eins og hund eftir að hryssan afneitaði því eftir að hún kastaði. Eigandi folaldsins sem býr í Englandi segir að eftir að hún tók að sér að fæða folaldið og vaka yfir því ásamt Labrador hundinum á bænum þá hagi folaldið sér eins og heimilishundurinn og því líki það vel. 9.1.2007 20:17
Ivan Tedesco komin á ról Team Suzuki/Makita ökumaðurinn Ivan Tedesco er farinn að keyra og æfa af krafti eftir slæmnt handleggsbrot í desember. Ivan lenti í árekstri við James Stewart á æfingum fyrir fyrsta Supercross mótið í Toronto. 9.1.2007 19:52
Memphis - LA Lakers í beinni í nótt Leikur Memphis Grizzlies og LA Lakers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Lið Lakers hefur verið á góðri siglingu undanfarið þrátt fyrir meiðsli lykilmanna og stöðvaði síðast ótrúlega sigurgöngu Dallas Mavericks. 9.1.2007 19:27
Stjórnarformaður Bolton ósáttur við Benitez Phil Gartside, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins Bolton, hefur sent enska knattspyrnusambandinu athugasemdir sínar við ummæli Rafa Benitez fyrir leik Bolton og Liverpool á nýársdag. Knattspyrnustjóri Liverpool sagði þá að Bolton kæmist aldrei upp með að spila jafn fast og það gerir ef liðið væri í spænsku deildinni. 9.1.2007 19:14