Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bowyer enn sektaður Lee Bowyer, leikmaður West Ham og fyrrum leikmaður Newcastle, var í dag sektaður um 1600 pund fyrir þátt sinn í slagsmálunum frægu við Kieron Dyer í fyrra, en dómsmáli í kjölfar þessa er nú lokið. Þessi upphæð er aðeins skiptimynt í samanburði við sektina sem hann þurfti að greiða enska knattspyrnusambandinu á sínum tíma, en Bowyer hefur þurft að punga út hátt í 300 þúsund pundum í sektir. 5.7.2006 15:11
Morientes komin til Valencia Spænski framherjinn Fernando Morientes er genginn formlega í raðir Valencia fyrir um þrjár milljónir punda eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag. Morientes náði sér aldrei á strik í ensku úrvalsdeildinni og segist fagna nýjum kafla í lífi sínu. 5.7.2006 15:04
Viss um að landa Fabregas Ramon Calderon, nýkjörinn forseti Real Madrid, segist 70% viss um að geta landað miðjumanninum efnilega Cesc Fabregas frá Arsenal á næstunni. Calderon lýsti því yfir í kosningabaráttunni að hann ætlaði að koma pilti til heimalandsins á ný, en ljóst er að Arsenal verður tregt til að láta þennan frábæra knattspyrnumann renna sér úr greipum. 5.7.2006 14:47
Sex leikmenn í bann Sex leikmenn úr Landsbankadeild karla hafa verið úrskurðaðir í leikbann af aganefnd KSÍ, en hún fundaði í gær. Þetta eru þeir Björgólfur Takefusa KR, Peter Gravesen Fylki, Igor Pesic ÍA, Andrew Mwesigwa ÍBV og þeir Hörður Bjarnason og Jón Guðbrandsson úr Víkingi. Allir þessir leikmenn fá eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda, utan Björgólfs, sem fær eins leiks bann fyrir rautt spjald. 5.7.2006 14:15
Bridgestone sér um alla hjólbarða árið 2008 Forráðamenn japanska dekkjaframleiðandans Bridgestone hafa undirritað samning sem tryggir að framleiðandinn skaffar öllum keppnisliðunum dekk á heimsmeistaramótinu árið 2008. Michelin hættir að skaffa dekk í formúlu eitt eftir yfirstandandi tímabil, en þar á bæ eru menn mjög ósáttir við starfshætti í íþróttinni og segja hana mismuna dekkjaframleiðendum. 5.7.2006 14:06
Þýsk dagblöð voru dauf í dálkinn Fyrirsagnir þýskra dagblaða í morgun voru heldur betur ekki uppörvandi. Þær sögðu meðal annars "Draumurinn úti", "Þýskaland kemst aðeins í "litla" úrslitaleikinn", "Við grátum með ykkur" og "Táranóttinn". 5.7.2006 13:48
"Við erum tilbúnir" William Gallas, leikmaður Frakklands segir að lið sitt sé svo sannarlega tilbúið í undanúrslitaleikinn gegn Portúgal sem verður háður í kvöld á HM. Hann segir að Portúgalska liðið sé gott en þeir eiga að til að vera að láta sig detta í tíma og ótíma og dómarinn verði að hafa góð tök á þessum leik. 5.7.2006 11:54
Þjálfari Mexico hættur Richardo La Volpe er hættur sem þjálfari hjá Mexico. Mexico komst í 16-liða úrslit á HM og tapaði liðið fyrir Argentínu í framlengdum leik. La Volpe hefur þjálfað lið Mexico síðan 1998. Hann segist hafa áhuga að komast til Evrópu að þjálfa. 5.7.2006 11:51
"Klinsmann verður að vera áfram" Keisarinn sjálfur, Franz Beckenbauer segir að Jurgen Klinsmann eigi að vera áfram með liðið þrátt fyrir að liðið hafi verið slegið út í undanúrlitum á HM í gær. 5.7.2006 11:45
Draumur að rætast Marcello Lippi, þjálfari Ítala segir að draumur sinn hafi ræðst í gær þegar lið hans komst í úrslitaleikinn á HM eftir 2-0 sigur á Þjóðverjum í Dortmund. 5.7.2006 11:41
Æfingar fyrir leikinn í kvöld Frakkar og Portúgalar bjuggu sig undir komandi átök á æfingum liðanna í gær. Meðfylgjadi myndasyrpa sýnir leikmennina létta í lund við það tækifæri. Vitanlega ríkir mikill taugatitringur fyrir leikinn, enda úrslitaleikurinn undir. 5.7.2006 11:11
Hinir Bláu, ódauðlegu Ég er ennþá að jafna mig eftir undanúrslitaleikinn í gær, Hvítir á móti Bláum, og ég held að úrslit hans séu í meira lagi söguleg á HM mælikvarðann. 5.7.2006 10:00
Blikar töpuðu í vesturbænum Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. KR-stúlkur unnu góðan sigur á Breiðablik 3-2 í vesturbænum, þar sem Fjóla Friðriksdóttir skoraði þrennu fyrir KR. Topplið Vals vann auðveldan 5-1 sigur á Stjörnunni á útivelli og Keflavíkurstúlkur völtuðu yfir lánlaust lið Fylkis 10-0. Valur er á toppi deildarinnar með 24 stig og Breiðablik í öðru, sex stigum þar á eftir. 4.7.2006 22:09
Mjög stoltur af liði sínu Jurgen Klinsmann var að vonum vonsvikinn eftir tapið fyrir Ítölum í kvöld, en hrósaði liði sínu í hástert fyrir góðan anda og baráttu á mótinu. Hann hrósaði ítalska liðinu fyrir frammistöðuna í kvöld og bætti við að fátt hefði komið sér á óvart, því hann hefði búist við gríðarlega erfiðri baráttu þar sem bæði lið hefðu fengið tækifæri til að gera út um leikinn. 4.7.2006 22:00
Ítalar í úrslitin Ítalar eru komnir í úrslitaleikinn á HM eftir dramatískan 2-0 sigur á heimamönnum Þjóðverjum í framlengdum leik í Dortmund í kvöld. Allt stefndi í vítaspyrnukeppni eftir að hvorugu liðinu tókst að skora í venjulegum leiktíma og fyrri hálfleik framlengingar. 4.7.2006 21:27
Framlengt í Dortmund Staðan að loknum venjulegum leiktíma í leik Þjóðverja og Ítala er jöfn 0-0 og því þarf að grípa til framlengingar. Eins og reikna mátti með mætast stálin stinn þegar þessi lið eru annars vegar og ljóst að taugar leikmanna verða þandar á næstu mínútum. 4.7.2006 20:51
Jafnt í hálfleik Enn hefur ekki verið skorað mark í leik Þjóðverja og Ítala í undanúrslitum HM, en leikurinn fer fram í Dortmund. Ítalska liðið hefur verið öllu sterkara það sem af er leiknum en heimamenn hafa 45 mínútur til að finna svör við því. 4.7.2006 19:53
Tvær breytingar á liði Þjóðverja Jurgen Klinsmann hefur gert tvær breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Ítölum. Bastien Schweinsteiger og Torsten Frings detta út úr liðinu frá leiknum gegn Argentínu og í þeirra stað koma þeir Tim Borowski og Sebastien Kehl. Marco Materazzi er á ný í vörn Ítala eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik. 4.7.2006 18:47
Fabregas spenntur yfir áhuga Real Madrid Umboðsmaður táningsins efnilega Cesc Fabregas hjá Arsenal, segist ekki geta neitað því að skjólstæðingur hans sé spenntur yfir miklum áhuga spænska stórliðsins Real Madrid á að fá hann í sínar raðir. Nýkjörinn forseti Real hefur lýst því yfir að hann ætli að krækja í stjörnuna ungu, en hann er með langtímasamning við Arsenal og það verður því að teljast nokkuð langsótt. 4.7.2006 17:50
Ronaldo og Figo tæpir? Nokkrar spurningar hafa vaknað um þáttöku þeirra Luis Figo og Cristiano Ronaldo í undanúrslitaleiknum við Frakka á morgun, því hvorugur þeirra æfði með liðinu í dag, heldur tóku þeir létta æfingu sitt í hvoru lagi í Munchen. 4.7.2006 17:40
Boltinn grét undan mér Luiz Felipe Scolari gerði létt grín að sjálfum sér sem leikmanni á blaðamannafundi í dag þegar hann talaði um að sjónarsviptir yrði af þeim Figo og Zidane þegar þeir leggðu skóna á hilluna á næstunni. 4.7.2006 17:31
Verðum að gæta okkar á Portúgölunum Varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelse og franska landsliðinu, segir að hann og félagar hans verði að vera vel á verði í leiknum gegn Portúgölum í undanúrslitum HM á morgun. Hann segir Portúgalina vera þolinmóða og duglega að veiða mótherja sína í gildrur. 4.7.2006 17:26
Líkleg byrjunarlið í kvöld Leikur Þjóðverja og Ítala í undanúrslitunum á HM hefst klukkan 19 í kvöld og verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Búið er að tilkynna líkleg byrjunarlið þjóðanna. Torsten Frings tekur út leikbann hjá Þjóðverjum eftir ólætin í leiknum við Argentínumenn. Michael Ballack og Miroslav Klose eru búnir að hrista af sér smávægileg meiðsli og eiga að vera klárir, en ólíklegt þykir að Alessandro Nesta verði klár hjá Ítölum vegna nárameiðsla sem hafa kostað hann síðustu tvo leiki. 4.7.2006 17:06
Rossi semur til ársins 2010 Manchester United hefur framlengt samning ítalska framherjans Giuseppe Rossi til ársins 2010. Rossi er aðeins 19 ára gamall og þykir mikið efni. Hann kom nokkuð við sögu hjá liðinu á síðustu leiktíð og hefur Sir Alex Ferguson látið hafa eftir sér í samtali við sjónvarpsstöð félagsins að hann myndi treysta Rossi til að spila reglulega með aðalliðinu ef sú staða kæmi upp í nánustu framtíð. 4.7.2006 16:38
Carragher vill sjá Gerrard sem fyrirliða Jaimie Carragher telur að Steven Gerrard liðsfélagi hans já Liverpool sé betri kostur sem næsti fyrirliði enska landsliðsins heldur en John Terry leikmaður Chelsea. 4.7.2006 16:34
Ætlaði að rjúka í Ronaldo Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að enski framherjinn Wayne Rooney hafi ætlað að storma inn í búningsherbergi portúgalska landsliðsins eftir leik þjóðanna um helgina, þar sem enskum þótti Ronaldo reyna að hvetja dómarann til að reka félaga sinn hjá Manchester United af velli. 4.7.2006 16:27
Þeir bláu spila aftur í hvítu Franska landsliðið gengur jafnan undir nafninu "Hinir Bláu" í heimalandinu, en Frakkar verða þó eina þjóðin í undanúrslitum HM sem ekki leikur í sínum hefðbundna heimabúningi. Þjóðverjar spila í sínum hvíta, Portúgalar í þeim rauða og Ítalar í þeim bláa, en Frakkar spila í hvítum útibúningi sínum. Þetta er þó ekki líklegt til að koma illa við franska liðið, því það hefur slegið bæði Spánverja og Brasilíumenn í hvítu búningunum. 4.7.2006 16:12
Steypufylltir boltar til vandræða Að minnsta kosti tveir grunlausir knattspyrnuáhugamenn hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús í Berlín eftir að hafa sparkað í bolta sem hlekkjaðir voru við staura á götum borgarinnar. Hrekkjalómar höfðu fyllt boltana af steypu og skrifað á skilti við hliðina á þeim "getur þú sparkað?" Eins og nærri má geta lágu þeir meiddir eftir sem tóku þessari áskorun, en lögregla hefur engar vísbendingar um hver eða hverjir voru þarna að verki. 4.7.2006 15:54
Ítalir unnu Þjóðverja á HM-1982 Marco Tardelli skorar fyir Ítalíu gegn Vestur-Þjóðverjum í úrslitaleik HM-1982, sem fór fram í Madríd á Spáni. Þessi svarthvíta mynd var tekinn á vellinum þann 11. júlí árið 1982. Ítalir sigruðu leikinn 3-1 og urðu heimsmeistarar. Þessar þjóðir mætast aftur á HM í kvöld og berjast um að komast í úrslitaleikinn. 4.7.2006 15:35
Klinsmann vongóður um sigur Jurgen Klinsman, þjálfari Þýskalands er vongóður um sigur hjá sínum mönnum í kvöld, er liðið mætir Ítölum í Dortmund, í undanúrslitum á HM. Klinsman segir að sitt lið muni áfram spila sóknarbolta. 4.7.2006 15:19
Ben Wallace á leið til Chicago Miðherjinn "Stóri-Ben" Wallace, sem verið hefur lykilmaður í harðri vörn Detroit Pistons undanfarin ár, hefur samþykkt tilboð frá Chicago Bulls um að ganga í raðir liðsins. Wallace var með lausa samninga nú í sumar og fáir áttu von á því að hann færi frá félaginu, en Chicago gat boðið honum mikið hærri laun en Detroit og hefur hann því ákveðið að skipta um lið. 4.7.2006 15:17
Staðráðinn í að fara frá Chelsea Argentínski framherjinn Hernan Crespo er harðákveðinn í að fara frá Englandsmeisturum Chelsea í sumar og hefur enn á ný ítrekað ósk sína um að snúa aftur til Ítalíu. Talið er að annað Mílanó-liðanna verði fyrir valinu. 4.7.2006 15:06
Samningur Hasselbaink ekki endurnýjaður Gareth Southgate, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Middlesbrough, staðfesti í dag að samningur hollenska framherjans Jimmy Floyd Hasselbaink yrði ekki endurnýjaður. Hasselbaink er 34 ára gamall og þó hann sé ef til vill kominn af léttasta skeiði, verða eflaust nokkur lið sem sýna honum áhuga í framtíðinni. 4.7.2006 15:02
Viðbrögð á næstunni Enska knattspyrnusambandið ætlar að senda frá sér viðbrögð á næstunni vegna bottvísunar Wayne Rooney. Hann fullyrðir að hann hafi ekki sparkað viljandi í klof Carvalho, þegar hann var rekinn af velli gegn Portúgal á dögunum. 4.7.2006 14:54
Sharapova örugg í undanúrslit Maria Sharapova tryggði sér í dag nokkuð öruggan sigur á löndu sinni Elenu Dementievu í 8-liða úrslitunum á Wimbledon. Sharapova var í miklu stuði og kláraði leikinn 6-1 og 6-4 á rúmri klukkustund. Hún mætir því annað hvort Amelie Mauresmo eða Anastasiu Myskinu í undanúrslitunum. Gera þurfti hlé á leiknum í smá stund í dag þegar nakinn maður hljóp inn á völlinn, en hann var fjarlægður og virtist ekki hafa truflandi áhrif á Sharapovu, sem vann sigur á þessu móti árið 2004. 4.7.2006 14:48
Þjóðverjar með hernaðaráætlun Eitt þýsku dagblaðanna birti í dag hernaðaráætlun sem ætlað er að slá Ítala út af laginu í kvöld - hvernig sem fer í landsleik þjóðanna í Dortmund. Blaðið birti símanúmer yfir 40 pizza-staða víða í Þýskalandi og hvetur alla til að hringja og panta Pizzu á meðan á leiknum stendur. "Þessir deighnoðarar hlæja kannski núna, en þeim stekkur ekki bros þegar símarnir byrja að hringja um leik og leikurinn hefst í kvöld," sagði í blaðinu sem kemur út í Berlín. 4.7.2006 14:31
Við eigum harma að hefna gegn Ítölum Bakvörðurinn Philipp Lahm segir félaga sína í þýska landsliðinu hafa fullan hug á að hefna ófaranna frá því í síðasta vináttuleik gegn Ítölum þegar þjóðirnar mætast í undanúrslitum HM í Dortmund í kvöld. 4.7.2006 14:22
Fabio Capello hættur hjá Juventus Fabio Capello hefur sagt af sér sem þjálfari Juventus á Ítalíu, en líklegt þykir að félagið verði á næstunni dæmt til að leika í neðri deildunum þar í landi. Capello hefur verið sterklega orðaður við spænska liðið Real Madrid að undanförnu og er fyrsti kostur nýkjörins forseta félagsins Ramon Calderon. Capello hefur gert Juventus að tvöföldum meisturum á Ítalíu, en heldur nú væntanlega til Spánar á ný þar sem hann gerði einmitt Real að meisturum árið 1997. 4.7.2006 14:04
Bikarmeistararnir mæta Víkingi Í dag var dregið í átta liða úrslitum Visa-bikars karla og kvenna í fótbolta. Bikarmeistar Vals í karlaflokki mæta Víkingi á heimavelli, KR mætir ÍBV, ÍA mætir Leikni eða Keflavík og 1. deildarlið KA og Þróttar mætast fyrir norðan. Í kvennaflokki mætast Breiðablik og Keflavík, HK/Víkingur og Fjölnir, Stjarnan og ÍR og að lokum KR og Valur. 4.7.2006 13:56
Tekur Maradona við Argentínu? Diego Armando Maradona útilokar ekki að taka við Argentínska landsliðinu. Hann segist ekki útiloka neitt. Maradona segir að það séu skiptar skoðanir um hann innan knattspyrnusambands Argentínu. 4.7.2006 13:53
Carlos hættur með Brasilíu Roberto Carlos, leikmaður Real Madrid og Brasilíska landsliðsins er hættur með að spila með landsliðinu. Kappinn hefur spilað 132 leiki fyrir þjóð sína og skorað 11 mörk í þeim. 4.7.2006 13:49
Næstfæst mörk frá upphafi Undanúrslit á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi hefjast í kvöld með leik Þjóðverja og Ítala í Dortmund. Það hafa aðeins 138 mörk verið skoruð í 60 leikjum til þessa á HM í Þýskalandi eða 2,30 að meðaltali í leik. 4.7.2006 13:40
Rooney segist ekki hafa stigið á Carvalho viljandi Wayne Rooney gaf út yfirlýsingu í gær þar sem hann þvertók fyrir það að hann hefði stigið viljandi á portúgalska leikmanninn Ricardo Carvalho í 8-liða úrslitum á HM. 4.7.2006 13:36
Bandaríkjamenn falast eftir Klinsmann Það eru uppi sögusagnir um að bandaríska knattspyrnusambandið hafi áhuga á að fá Jurgen Klinsmann, þjálfara Þjóðverja, til að leysa Bruce Arena af sem landsliðsþjálfari. Breska blaðið Daily Telegraph greinir frá þessu í dag. 4.7.2006 11:25
Næst á dagskrá: Líf eða dauði Það hefur verið forvitnilegt að lesa blöðin í dag, annarsvegar afsagnir og afsakanir liða og leikmanna sem eru farin heim frá HM, hinsvegar vonir og væntingar þeirra sem ennþá eru með. Á morgun, Þýskaland - Ítalía, svakalegur leikur hvernig sem á það er litið. 3.7.2006 21:08