Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákærður fyrir morðið á Miu 37 ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir morðið á hinni 22 ára gömlu Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku fyrir rúmu ári síðan. Maðurinn kveðst vera saklaus. 22.3.2023 14:25
Stöðva sýningu hryllingsmyndar um Bangsímon í Hong Kong Búið er að stöðva sýningar hryllingsmyndarinnar Winnie The Pooh: Blood and Honey, eða Bangsímon: Blóð og hunang, í Hong Kong. Bangsímon hefur lengi verið óvinsæll í Kína vegna gríns um að hann og Xi Jinping, forseti, séu líkir. 22.3.2023 12:11
Héldu handjárnuðum manni niðri í ellefu mínútur þar til hann dó Héraðssaksóknari í Virginíu í Bandaríkjunum hefur ákært sjö lögregluþjóna og þrjá starfsmenn sjúkrahúss fyrir morð. Myndbönd úr öryggisvélum sýna hvernig hópur manna hélt handjárnuðum Irvo Otieno niðri í um ellefu mínútur, þar til hann dó. 22.3.2023 10:48
Öfgafull fjölkærni sæfíla gæti orsakað ótímabær dauðsföll Rannsókn vísindamanna við Háskólann í Tasmaníu hefur leitt í ljós að pressan á bak við „öfgafulla fjölkærni“ sæfíla í suðvestur Kyrrahafi gæti orsakað því að lífslíkur karldýra hrynji stuttu eftir kynþroska. 22.3.2023 09:04
Trump sagður spenntur fyrir því að vera handjárnaður Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera spenntur fyrir því að birtast handjárnaður í dómsal ef svo fer að hann verður handtekinn fyrir þátt sinn í því að hafa greitt klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels mútur. 22.3.2023 08:07
Öflugur skjálfti í Afganistan og Pakistan Að minnsta kosti 12 eru látnir og tugir slasaðir eftir að jarðskjálfti sem mældist 6,5 stig reið yfir í Pakistan og Afganistan í gærkvöldi. 22.3.2023 07:26
Ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu Bandaríkjamenn segja ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu. „Það er ekki á neinn hátt raunhæft að ætla Kínverjum að vera hlutlausir,“ sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær. 22.3.2023 07:11
Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda. 21.3.2023 19:41
Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur. 21.3.2023 17:09
Thunberg fær að stefna sænska ríkinu fyrir seinagang Héraðsdómstóll í Svíþjóð gaf Gretu Thunberg og hundruð umhverfissinnum grænt ljós á að stefna sænska ríkinu vegna þess sem þau telja ófullnægjandi loftslagsaðgerðir þess. Krafa þeirra er að Svíar dragi saman losun sína um milljónir tonna. 21.3.2023 14:34
Búa sig undir ákæru á hendur Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verður mögulega ákærður í dag eða á næstu dögum, fyrir brot á lögum um kosningar. Hann yrði fyrsti fyrrverandi forseti til að verða ákærður en Trump hefur sjálfur kallað eftir umfangsmiklum mótælum og Repúblikanar hafa brugðist reiðir við fregnunum. 21.3.2023 14:01
Bretar banna dönskum Kóranbrennumanni að koma Rasmus Paludan, stofnandi danska hægriöfgaflokksins Strangrar stefnu, fær ekki að koma til Bretlands. Hann ætlaði sér að brenna Kóraninn í bænum Wakefield í vikunni við upphaf föstumánaðar múslima. 21.3.2023 10:56
Funduðu í fjóra og hálfan tíma Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan. 21.3.2023 10:26
Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19 Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar. 21.3.2023 08:27
Sex ára drengur látinn eftir árás sleðahunda á Grænlandi Sex ára drengur er látinn eftir að hafa orðið fyrir árás sleðahunda í grænlenska bænum Aasiaat á vesturströnd landsins í gær. 21.3.2023 07:41
Svört skýrsla um rasisma og kvenfyrirlitningu hjá Lundúnarlögreglunni Lundúnarlögreglan er ónýt, rúin trausti og þjáist af kerfisbundnum rasisma, kvenfyrirlitningu og fordómum gegn samkynhneigðum. Þetta segir í nýrri 363 blaðsíðna skýrslu um stöðu lögreglunnar, sem unnin var undir forystu barónessunnar Louise Casey. 21.3.2023 07:33
Játar að hafa sett konuna í frystinn og er með nauðgunardóma á bakinu Norskur karlmaður, sem var handtekinn á fimmtudag eftir að lík sambýliskonu hans fannst í frystikistu á sveitabæ hans í Vermalandi í Svíþjóð, hefur játað að hafa vanvirt lík konunnar en neitar að hafa myrt hana. Hann á langan sakaferil að baki og hefur meðal annars hlotið dóma fyrir tvær nauðganir. 20.3.2023 23:46
Víggirtu dómshús eftir að Trump hvatti til mótmæla Lögregluyfirvöld í New York í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir það að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verði hugsanlega veitt réttarstaða sakbornings í ríkinu. Lögreglumenn reistu varnargirðingar við dómshús á Manhattan í dag eftir að Trump hvatti fylgjendur sína til mótmæla. 20.3.2023 20:44
Ríkisstjórn Frakklands heldur velli Vantrauststillaga á hendur ríkisstjórn Frakklands var felld með minnsta mun í dag. Ríkisstjórnin heldur því velli á meðan Frakkar mótmæla á götum úti. 20.3.2023 19:44
Þarf hraðan samdrátt til að aftengja loftslagstímasprengju Mannkynið þarf að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna líkir loftslagsvandanum við tifandi tímasprengju. 20.3.2023 14:24
Spilling og óöryggi plaga Írak 20 árum eftir innrás hinna „viljugu“ Í dag eru 20 ár liðin frá því að 295 þúsund hermenn Bandaríkjanna og „bandalags viljugra“ réðust inn í Írak. Um það bil 200 þúsund almennir borgarar létust, 45 þúsund íraskir her- og lögreglumenn og fleiri en átta þúsund Bandaríkjamenn; hermenn og verktakar. 20.3.2023 12:31
Xi lentur í Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er lentur í Moskvu. Hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag og í kvöld munu þeir snæða saman kvöldverð. 20.3.2023 11:14
Í viðbragðsstöðu með bóluefni gegn fuglaflensu Lyfjafyrirtæki telja sig geta framleitt hundruð milljóna skammta af bóluefni gegn fuglaflensu fyrir menn á nokkrum mánuðum ef nýtt afbrigði kemur fram sem getur borist á milli manna. Heilbrigðisyfirvöld telja líkurnar á því enn litlar. 20.3.2023 10:05
Salman sagður hafa boðið Raisi í opinbera heimsókn Mohammad Jamshidi, háttsettur embættismaður í Íran, segir Salman bin Abdul Aziz al-Sád, konung Sádi Arabíu, hafa boðið Ebrahim Raisi, forseta Íran, í opinbera heimsókn. 20.3.2023 09:21
Ætlaði að opna fyrir bankandi gesti en var bitinn af krókódíl Karlmaður í Flórída-fylki í Bandaríkjunum var bitinn af krókódíl í lærið er hann opnaði útidyrahurð sína eftir að hafa heyrt þar bank. Hann hlaut ekki lífshættulega áverka. 20.3.2023 09:09
Æfðu kjarnorkuárás á Suður-Kóreu Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafði umsjón með æfingum hersins fyrir kjarnorkugagnárás á Suður-Kóreu um helgina. Yfirlýst markmið æfinganna var að slá ótta í brjóst fjandríkja landsins. 20.3.2023 09:04
Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. 20.3.2023 07:47
Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð. 20.3.2023 06:52
Grófu undan endurkjöri Carters og spiluðu með líf fimmtíu og tveggja gísla Fyrir rúmum fjórum áratugum tóku Demókratar á vegum Repúblikanans Ronalds Reagans þátt í því að koma í veg fyrir endurkjör Jimmy Carter, þáverandi forseta, með því að spila með líf 52 bandarískra gísla í Íran. Maður sem heitir Ben Barnes viðurkenndi nýverið að hann hefði tekið þátt í þessu verkefni. 19.3.2023 16:52
Ekkert lát á mótmælum í Frakklandi Ekkert lát er á mótmælum í Frakklandi vegna ákvörðunar forsetans Emmanuel Macron um að þröngva hækkun á eftirlaunaaldri þar í landi í gegnum þingið. Íbúar héldu út á götu í gærkvöldi, þriðja kvöldið í röð, og til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu. 19.3.2023 15:05
Grísk lögregla rænir og misþyrmir hælisleitendum kerfisbundið Gríska lögreglan misþyrmir og rænir flóttafólk með skipulögðum hætti. Hún hefur á síðustu árum stolið meira en tveimur milljónum evra af fólkinu. Grísk stjórnvöld hafa ennfremur flutt meira en 20.000 flóttamenn yfir til Tyrklands með ólögmætum hætti. 19.3.2023 14:31
Enn einni eldflauginni skotið frá Norður-Kóreu Enn einni eldflauginni var skotið frá Norður-Kóreu í morgun. Að þessu sinni var um að ræða skammdræga eldflaug og var henni skotið til austurs, á haf út frá Kóreuskaganum. 19.3.2023 10:07
Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær. 19.3.2023 08:05
Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum. 19.3.2023 00:15
Minnst fjögur látin eftir að jarðskjálfti skók Ekvador Að minnsta kosti fjögur létu lífið í kjölfar jarðskjálfta að stærð reið yfir Ekvador í dag. Jarðskjálftinn átti upptök á um 65 kílómetra dýpi í grennd við bæinn Baláo. 18.3.2023 21:32
Pútin heldur upp á ólöglega innlimun Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti óvænt á Krímskaga í dag. Þangað ku hann vera mættur til að halda upp á að níu ár eru frá „endursameiningu“ Krímskaga og Rússlands. 18.3.2023 14:56
Telur sig loks hafa fundið móður Leonardos Da Vinci Ítalskur sagnfræðingur hefur leyst meira en 500 ára ráðgátu um hver var móðir endurreisnarmálarans Leonardos Da Vinci. Hún var prinsessa og þræll sem rænt var frá heimkynnum sínum í barnæsku. 18.3.2023 14:30
Fundu líkamsleifar konu í frysti Lögreglan í Vermalandi í Svíþjóð fann hluta af líki konu í frystikistu á sveitabæ í fyrradag. Talið er að líkið hafi verið í frystinum í fjölda ára og karlmaður er sagður hafa játað að hafa myrt konuna. 18.3.2023 13:32
Trump segir að hann verði handtekinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að hann verði handtekinn á þriðjudaginn. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016. 18.3.2023 12:40
Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. 18.3.2023 09:57
Uppruni Covid: Spjótin beinast að marðarhundum en mikilvæg gögn hurfu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýndi kínverska embættismenn í gær fyrir að hylma yfir rannsóknir sem gætu varpað ljósi á uppruna Covid-19. Forsvarsmenn WHO spurðu af hverju gögn sem birtust á netinu í janúar og hurfu aftur þegar vísindamenn fóru að spyrjast fyrir um þau, voru ekki birt strax fyrir þremur árum og af hverju þau voru fjarlægð aftur. 18.3.2023 07:52
Unglingur skaut tvo lögreglumenn til bana Sextán ára drengur skaut tvo lögreglumenn til bana í Edmonton í Kanada í gær. Því næst skaut hann sjálfan sig einnig til bana. 17.3.2023 22:16
Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili. 17.3.2023 16:13
Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. 17.3.2023 15:23
Ætla að granda herþotum sem sendar verða til Úkraínu Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að granda herþotum sem bakhjarlar Úkraínu gefa Úkraínumönnum. Pólverjar tilkynntu í gær að þeir ætluðu að senda minnst ellefu gamlar MiG-29 orrustuþotur til Úkraínu og ríkisstjórn Slóvakíu tilkynnti svo í dag að þaðan yrðu sendar þrettán þotur af sömu gerð. 17.3.2023 14:29
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent