Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Einn úr áhöfn taílenska herskipsins fannst á lífi Björgunarlið fann einn sjóliða úr áhöfn taílensks herskips á lífi í gær, um hálfum sólarhring eftir að það sökk á aðfaranótt mánudags. Á þriðja tug manna er enn saknað en yfirvöld viðurkenna að ekki hafi verið nógu mörg björgunarvesti um borð í skipinu. 20.12.2022 14:18
Búa sig undir að kveðja jarðskjálftamælinn á Mars Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur misst samband við lendingarfarið Insight á reikistjörnunni Mars. Orka geimfarsins hefur farið dvínandi undanfarna mánuði og er nú gert ráð fyrir að dagar þess séu taldir. 20.12.2022 12:19
Dæmdur fyrir að nauðga og myrða fimmtán ára stúlku fyrir tæpum fimmtíu árum Breskur maður hefur verið dæmdur fyrir að nauðga og myrða fimmtán ára stúlku, nærri því fimmtíu árum eftir að mál gegn honum var fellt niður. Ný greining á lífsýnum sem tekin voru þegar Jacqueline Montgomery var myrt sýndi fram á sekt Dennis McGory. 20.12.2022 10:17
Íbúar Klakksvíkur hvattir til að yfirgefa heimili sín Fjöldi íbúa í Klaksvík í Færeyjum, næststærsta bæ eyjanna þurfti í gær að yfirgefa heimili sín eftir að nokkrar aurskriður féllu í bænum. 20.12.2022 08:50
Farþegar flugu í loftið í gríðarlegri ókyrrð Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum rannsakar nú atvik sem varð um borð í flugi Hawaiian Airlines frá Phoenix í til Havaí. Gríðarleg ókyrrð varð til þess að ellefu farþegar vélarinnar slösuðust alvarlega. 20.12.2022 07:51
Weinstein dæmdur fyrir aðra nauðgun Kviðdómur í Los Angeles í Bandaríkjunum hefur fundið kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein sekan af ákæru um að hafa nauðgað konu. 20.12.2022 06:24
Mælast til þess að Trump verði ákærður Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti einróma í kvöld að mælast til þess að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, verði ákærður í fjórum ákæruliðum fyrir þátt hans í árásinni á þinghúsið þann 6. janúar árið 2020. 19.12.2022 23:09
Heard hættir við áfrýjun eftir samkomulag Leikkonan Amber Heard hefur tilkynnt að hún hafi gert samkomulag um að hætta við áfrýjun í meiðyrðamál Johnny Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar. Hún var í fyrra dæmd til að greiða Depp um tvo milljarða króna í skaðabætur vegna greinar sem hún skrifaði í Washington Post árið 2018, þar sem hún sagðist hafa verið fórnarlamb heimilisofbeldis. 19.12.2022 16:33
Erfið vika í vændum hjá Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, stendur frammi fyrir erfiðri viku. Þingnefnd mun mögulega leggja til að hann verði ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra og skattaskýrslur hans verða mögulega opinberaðar. 19.12.2022 15:48
Geimárið 2022: Gleggsta auga mannkynsins opnaðist og jarðvarnir voru efldar Geta mannkynsins til þess að rannsaka óravíddir alheimsins tók risavaxið stökk fram á við á árinu sem er að líða. James Webb-geimsjónaukinn hreiðraði um sig í sólkerfinu og byrjaði að senda myndir sem eiga sér enga hliðstæðu aftur til jarðar. 19.12.2022 14:00
Pútín, Lavrov og Shoigu allir í Hvíta-Rússlandi Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fer í dag á fund Alexanders Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands. Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem Pútín sækir Lúkasjenka heim en hann er einn af fáum bandamönnum Pútíns. 19.12.2022 13:44
Samþykkja að vernda þriðjung hafs og jarðar Samkomulag sem ríki heims náðu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika er sagt stærsta skrefið til þessa í verndun land- og hafsvæða. Það felur einnig í sér fjárhagslegan stuðning til þess að vernda líffræðilegan fjölbreytileika í þróunarríkjum. 19.12.2022 11:49
Fimm skotnir í „hrottalegri“ árás í Kanada Fimm voru skotnir til bana í fjölbýlishúsi í úthverfi Toronto í Kanada í nótt. Árásarmaðurinn særði minnst einn til viðbótar en hann var svo skotinn til bana af lögregluþjónum. Lögreglan hefur lýst árásinni sem hrottalegri. 19.12.2022 09:24
Haraldur Noregskonungur lagður inn á sjúkrahús Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á Ríkissjúkrahúsið í Osló. 19.12.2022 08:37
Ellefu slösuðust alvarlega í mikilli ókyrrð í lofti Að minnsta kosti þrjátíu og sex slösuðust og þar af ellefu alvarlega eftir að Airbus farþegaþota frá Hawaian Airlines á leið frá Phoenix í Arizona til Hawaii lenti í mikilli ókyrrð í lofti. 19.12.2022 08:26
Tuga sjóliða saknað eftir að taílensku herskipi hvolfdi Taílensku herskipi hvolfdi í ofsaveðri á Taílandsflóa í gær og lentu um hundrað sjóliðar í sjónum þegar skipið sökk. 19.12.2022 08:21
Könnuðu skemmdirnar á ferjunni við geimstöðina Áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á braut um jörðu notuðu vélmennaarm til þess að kanna skemmdir sem urðu á rússneskri Soyuz-geimferju í gær. Yfirvöld á jörðu niðri íhuga hvort senda þurfi annað geimfar til þess að ferja hluta áhafnarinnar heim. 19.12.2022 08:05
Drónaárásir á Kænugarð í morgunsárið Loftvarnaflautur hafa ómað í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði í morgun vegna drónaárása rússneska hersins. Vítalí Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, segir að fjöldi sprenginga hafi heyrst í höfuðborginni í morgun. 19.12.2022 06:31
Nítján létust þegar vörubíll fullur af eldsneyti sprakk Nítján létust og yfir þrjátíu særðust þegar vörubíll fullur af eldsneyti sprakk í jarðgöngum norður af Kabúl, höfuðborg Afganistan. Fjölmargir festust inni í göngunum og gæti tala látinna hækkað. 18.12.2022 21:18
Auglýsingaherferð sýnir glæstan lífsstíl rússneskra hermanna Ný auglýsingaherferð Rússa sýnir ungan mann kaupa sér glænýjan bíl fyrir peningana sem hann fékk fyrir þátttöku í innrásinni í Úkraínu. Yfirvöld í Rússlandi halda áfram að sækja fleira fólk í herinn þrátt fyrir að hafa sagt að til væri feykinóg af hermönnum. 18.12.2022 18:53
Spánn: Eina land Evrópu sem heldur í grímuskyldu Spánn er eina landið í Evrópu þar sem enn er skylda að nota grímur í öllum almenningssamgöngum, þar á meðal þegar flogið er á milli landa. Spænsk flugfélög og ferðaskrifstofur mótmæla þessu ákaft og segja þetta hafa skaðleg áhrif á viðskiptin. 18.12.2022 14:30
Búist við auknum sóknarþunga Rússa Valdímír Pútin Rússlandsforseti hefur fundað með herforingjum sínum nú þegar hávær orðrómur er um að Rússar muni gera metnaðarfulla tilraun til að snúa vörn í sókn á vígvellinum. 17.12.2022 16:48
Kona lést í troðningi á tónleikum í London Kona á fertugsaldri lést í troðningi á tónleikum í O2 höllinni í London í gær. Alls voru átta fluttir á spítala alvarlega slasaðir. 17.12.2022 15:39
Búist við ákæru á hendur Trump vegna árasar á þinghúsið Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því að þingnefnd, sem rannsakar árásina á þinghúsið 6. janúar, muni leggja til að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, verði ákærður vegna þáttar hans í atlögunni. 17.12.2022 10:01
Dæmdur fyrir að smita fyrrverandi af HIV-veirunni Karlmaður á fertugsaldri í Noregi hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa smitað fyrrverandi eiginkonu sína af HIV-veirunni. Þá þarf hann að greiða henni 220 þúsund norskar krónur í bætur, eða sem svarar til 3,2 milljóna íslenskra króna. 16.12.2022 19:06
Sænskir simpansar skotnir til bana af lögreglu Upplausnarástand hefur ríkt í Furuvík í Svíþjóð að undanförnu og hefur lögreglan gripið til þess örþrifaráðs að skjóta og drepa fjóra simpansapa sem sluppu úr búrum sínum í dýragarðinum þar. Dýravinir eru afar ósáttir við hvernig staðið hefur verið að málum. 16.12.2022 14:37
Sextíu flugskeytum skotið á borgir Úkraínu í morgunsárið Rússar eru sagðir hafa skotið tugum flugskeyta á borgir Úkraínu snemma í morgun. Skipulega hafi verið ráðist á innviði þjóðarinnar. Rafmagnslaust er í borgunum Kharkiv og Poltava eftir árásirnar. 16.12.2022 10:47
Risastórt fiskabúr á Radisson í Berlín sprakk Sextán metra hátt fiskabúr á Radisson Blu-hótelinu í Berlín í Þýskalandi sprakk í morgun. Allir fimmtán hundruð fiskarnir sem voru í búrinu hrundu niður á gólf hótelsins. Tveir einstaklingar slösuðust eftir sprenginguna vegna glerbrota. 16.12.2022 09:01
Segir bönnuðu blaðamennina hafa deilt ígildi „launmorðshnita“ Bandaríski samfélagsmiðillinn Twitter hefur eytt reikningum nokkra þekktra blaðamanna sem að undanförnu hafa fjallað um auðkýfinginn Elon Musk, eiganda Twitter. Sjálfur segir Musk að blaðamennirnir hafi deilt staðsetningu hans, sem ígildi „launmorðshnitum“. 16.12.2022 09:00
Mannskæð aurskriða í Malasíu Að minnsta kosti sextán eru látnir og fleiri er saknað eftir að aurskriða hreif með sér tjaldsvæði í Selangor héraði í Malasíu í gær. 16.12.2022 08:24
Tíu látnir eftir eldsvoða skammt frá Lyon Tíu eru látnir, þar af fimm börn, eftir eldsvoða sem varð í átta hæða íbúðahúsi í úthverfi frönsku stórborginnarinnar Lyon í austurhluta landsins í nótt. 16.12.2022 06:41
Þúsundir skjala um morðið á Kennedy birt Bandaríkjastjórn hefur fyrirskipað að þúsundir skjala um morðið á John F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem hingað til hafi verið óaðgengileg almenningi, skuli birt. 16.12.2022 06:29
Grunar að örloftsteinn hafi valdið skemmdum á geimferju Rússneska geimstofnunin segir að mögulega hafi örloftsteinn valdið skemmdum á Soyuz-geimferju sem liggur við Alþjóðlegu geimstöðina á braut um jörðu. Geimferjan lekur kælivökva en hún á að vera nokkurs konar björgunarbátur fyrir áhöfnina. 15.12.2022 23:54
Viss um að Rússar geri aðra atlögu að Kænugarði Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segist handviss um að Rússar muni gera aðra atlögu að Kænugarði. Þeir séu að þjálfa og vopna um tvö hundruð þúsund nýja hermenn og muni reyna að nota þá til að opna nýja víglínu á nýju ári. 15.12.2022 23:05
Mette Frederiksen sögð hafa tekið kröftuga hægri beygju Ný þriggja flokka ríkisstjórn Mette Frederiksen, leiðtoga jafnaðarmanna, tók við völdum í Danmörku í dag. Stjórnarskiptin þykja söguleg þar sem þetta er í fyrsta sinn í 44 ár sem Danir fá ríkisstjórn yfir miðjuna í samstarfi vinstri, miðju og hægri flokka. 15.12.2022 19:59
Gríðarlegur gámaveggur veldur usla Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur stefnt stjórnvöldum í Arisóna-ríki Bandaríkjanna vegna gámaveggs sem komið hefur fyrir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Gámunum er ætlað að stoppa upp í göt á landamærunum til að hefta för ólöglegra innflytjenda. 15.12.2022 13:44
Tveir látnir og margir slasaðir eftir fjörutíu bíla árekstur í Danmörku Tveir eru látnir eftir árekstur á fjórða tug bíla á hraðbraut á milli bæjanna Randers og Hobro á Jótlandi í Danmörku í morgun. Fjöldahjálparmistöð hefur verið opnuð á lögreglustöðinni í Hobro vegna slyssins. 15.12.2022 11:23
Løkke verður utanríkisráðherra Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, kynnti ráðherrana í nýrri ríkisstjórn Jafnaðarmannaflokksins, hægriflokksins Venstre og miðjuflokksins Moderaterne í morgun. 15.12.2022 09:03
Tom Hanks var einnig á „dauðalista“ árásarmanns Pelosi Maðurinn sem sakaður er um að hafa ráðist á eiginmann Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, með hamri í lok október ætlaði sér einnig að ráðast á fleiri þekkta einstaklinga. Í hóp þeirra var bandaríski stórleikarinn Tom Hanks. 15.12.2022 07:52
Breskir hjúkrunarfræðingar leggja niður störf Umfangsmestu verkfallsaðgerðir breskra hjúkrunarfræðinga í sögunni hefjast klukkan átta þegar hjúkrunarfræðingar í Englandi, Wales og Norður-Írlandi munu leggja niður störf. 15.12.2022 06:36
Japanir óttast stríð og ætla að kaupa mikið magn vopna Deilur um það hvernig fjármagna eigi umfangsmikla hernaðaruppbyggingu í Japan eru sagðar ógna stjórnarsamstarfinu þar í landi. Fumio Kishida, forsætisráðherra og leiðtogi Frjálslynda lýðræðisflokksins, vill fjármagna uppbygginguna með skattlagningu en sú áætlun er ekki vinsæl innan flokksins. 14.12.2022 23:00
Lýsa yfir neyðarlögum vegna mótmælanna í Perú Ný ríkisstjórn Perú lýsti í dag yfir neyðarlögum vegna ofbeldisfullra mótmæla sem brutust út eftir að Pedro Castillo forseti var vikið úr embætti í síðustu viku. Lögregla fær auknar valdheimildir með lögunum og samkomufrelsi er afnumið. 14.12.2022 20:16
Stærsta rafmyntakauphöll heims stöðvaði úttektir Binance, stærsta rafmyntakauphöll í heimi, stöðvaði tímabundið úttektir af reikningum viðskiptavina í gær. Fjárfestar hafa samanlagt tekið ígildi þriggja milljarða bandaríkjadala út af reikningum sínum síðustu daga. 14.12.2022 14:02
Afnema einn frídag og setja kolefnisskatt á landbúnaðinn Ný ríkisstjórn Danmerkur hyggst vinna að fjölgun starfa og afnema einn frídag til að fá Dani til að vinna meira. Þá stendur til að setja á sérstakan kolefnisskatt á landbúnaðinn. 14.12.2022 11:53
Lýsti fyrir dómi hvernig hún varð fyrir skotárás af hendi Tory Lanez Bandaríski rapparinn Megan Thee Stallion lýsti fyrir kviðdómi í gær áfallinu sem hún varð fyrir þegar rapparinn Tory Lanez skaut hana í fótinn í júlí 2020. 14.12.2022 09:10