Erlent

Sænskir simpansar skotnir til bana af lög­reglu

Jakob Bjarnar skrifar
Frá dýragarðinum í Furuvík í Svíþjóð. Sannkallað upplausnarástand hefur ríkt þar eftir að hópur simpansa slapp úr búri sínu. Lögreglan hefur skotið nokkra þeirra til bana og það hefur ekki lagst vel í dýravini í Svíþjóð og víðar. (Myndin er samsett.)
Frá dýragarðinum í Furuvík í Svíþjóð. Sannkallað upplausnarástand hefur ríkt þar eftir að hópur simpansa slapp úr búri sínu. Lögreglan hefur skotið nokkra þeirra til bana og það hefur ekki lagst vel í dýravini í Svíþjóð og víðar. (Myndin er samsett.) vísir

Upplausnarástand hefur ríkt í Furuvík í Svíþjóð að undanförnu og hefur lögreglan gripið til þess örþrifaráðs að skjóta og drepa fjóra simpansapa sem sluppu úr búrum sínum í dýragarðinum þar. Dýravinir eru afar ósáttir við hvernig staðið hefur verið að málum.

Fimmti apinn var skotinn og særður en þrír simpansar ganga enn lausir nú þegar þetta er skrifað. Einn apanna, Santino, er svo þekktur að um hann er með sérstaka síðu á Wikipedia. Ekki er vitað hvort Santino sé meðal þeirra sem eru nú dauðir. Samkvæmt slúðurritinu Svenskdam er Santino í sérstöku dálæti hjá Victoríu krónprinsessu, en bæði hún og Madelaeine prinsessa, eru sagðar eiga málverk eftir apann.

Santino er ekki eini þekkti apinn sem hefur verið búsettur í dýragarðinum í Furuvík. Linda er annar api en frásagnir af því að hún hafi mátt horfa upp á fjölskyldu sína drepna í Liberiu, áður en henni var komið í dýragarðinn, hafa vakið mikla athygli.

Lögreglan heldur því fram að ekki hafi verið um annað að ræða en skjóta simpansapana því þeir hefðu ekki yfir deyfilyfjum og byssum til að nota til að taka apana úr leik. En þeir yfirtóku byggingu í dýragarðinum í Furuvik þannig að þar hefur enginn getað farið inn.

Sænskir fjölmiðlar, sem og reyndar heimspressan, fjalla vitaskuld um málið en meðal þeirra sem rætt hefur verið við er Ing-Marie Petsson, sem starfaði við dýragarðinn í heil 37 ár og annaðist þar meðal annars apana. Hún er afar ósátt með það hvernig úr hefur spilast, svo vægt sé til orða tekið.

Á Twitter-síðu Antons nokkurs Larssons, er grannt fylgst með gangi mála og keppast Twitternotendur við að setja inn upplýsingar um apana á þráð Larssons um málið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×