Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Breska leikkonan fannst heil á húfi Breska leikkonan Tanya Fear er fundin, heil á húfi. Lögreglan í Los Angeles mun ekki aðhafast meira vegna málsins. 13.9.2021 21:02
Þrjár íslenskar konur slösuðust þegar pálmatré féll á þær Þrjár íslenskar konur eru slasaðar eftir að hafa orðið fyrir pálmatré í bænum San Miguel de Abona á spænsku eyjunni Tenerife í gær. 13.9.2021 20:09
Fyrstu tölur benda til þess að átta ára valdatíð Solberg sé á enda Fyrstu tölur í þingkosningunum í Noregi benda til þess að Verkamannaflokkur Jonasar Gahr Støre verði stærsti flokkurinn á þingi. Útlit er fyrir að ríkisstjórn Ernu Solbergs forsætisráðherra muni falla. 13.9.2021 19:33
Breskrar leikkonu leitað í Los Angeles Bresku leikkonunnar Tönyu Fear er leitað í Los Angeles í Kaliforníu en síðast sást til hennar á fimmtudag að sögn vina hennar og fjölskyldu. Hún var skráð sem týnd manneskja hjá lögreglunni í Los Angeles á fimmtudag, 9. september. 13.9.2021 15:49
Sólin gæti sest á forsætisráðherratíð Solberg Skoðanakannanir benda til þess að dagar Ernu Solberg sem forsætisráðherra Noregs gætu verið taldir. Norðmenn gengu að kjörborðinu í dag en loftslagsbreytingar og ójöfnuður í samfélaginu hafa verið efst á baugi í kosningabaráttunni. 13.9.2021 15:25
Stefna á tímamótageimskot á miðvikudagskvöldið SpaceX stefnir að því að skjóta fjórum almennum borgurum á braut um jörðu á miðvikudagskvöld. Búið er að koma Falcon 9 eldflaug og Crew Dragon geimfari fyrir á skotpalli og virðist allt tilbúið fyrir geimskotið, sem er það fyrsta sinnar tegundar. 13.9.2021 14:46
Örlög ríkisstjóra Kaliforníu ráðast á morgun Kosningu um hvort að Gavin Newsom verði settur af sem ríkisstjóri Kaliforníu lýkur á morgun. Skoðanakannanir benda til þess að Newsom haldi embættinu en 46 manns sem vilja taka við af honum eru á kjörseðlinum. 13.9.2021 09:49
Rannsaka mannrán á eina eftirlifanda kláfslyssins í maí Yfirvöld á Ítalíu rannsaka nú meint mannrán á dreng sem var sá eini sem komst lífs af þegar kláfur hrapaði til jarðar í Mottarone Stresa í norðurhluta landsins í maí síðastliðnum. 13.9.2021 08:44
Gerðu tilraunir með nýja gerð langdrægrar stýriflaugar Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðust í morgun hafa prófað nýja gerð nokkuð landrægrar stýriflaugar sem ógnar stærstum hluta Japans. 13.9.2021 07:20
Heilu þorpin rýmd vegna skógarelda í Andalúsíu Um tvö þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Andalúsíu á Spáni eftir að skógareldar kviknuðu þar í síðustu viku. 13.9.2021 07:12
Falla frá áformum um „bólusetningarvegabréf“ Stjórnvöld í Bretlandi eru hætt við að taka í notkun svokölluð bólusetningarvegabréf, líkt og til stóð að gera í lok þessa mánaðar. Vegabréfinu var ætlað að gera bólusettum kleift að sýna fram á bólusetningu, til þess að fá að fara á skemmtistaði og mannmarga viðburði. 12.9.2021 20:44
Talibanar aðskilja háskólanema eftir kyni Afganskir stúdentar verða aðskildir eftir kyni og nýjar reglur um klæðaburð í háskólum verða settar í landinu. Þetta tilkynntu Talibanar í dag og sögðu að konum í landinu verði leyft að mennta sig, en ekki á sama stað og karlar. 12.9.2021 17:52
Íranar leyfa aftur eftirlit með kjarnorkuframleiðslu Stjórnvöld í Íran samþykktu í dag að heimila eftirlitsfólki Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) að hefja eftirlitsupptökur að nýju í kjarnorkurannsóknarstöðvum landsins. 12.9.2021 16:00
Leiðtogi Al Qaeda: Birti ávarp 11. september Hryðjuverkasamtökin Al Qaeda birtu í gær myndbandsávarp frá leiðtoga sínum Ayman al-Zawahri. Ávarpið er birt á sama degi og 20 ár voru liðin frá árásum samtakanna á Tvíburaturnana í New York og Pentagon, þar sem um 3.000 manns létust. 12.9.2021 15:19
Borgarstjóri Parísar blandar sér í forsetaslaginn Borgarstjórinn í París, Anne Hidalgo, lýsti yfir framboði til frönsku forsetakosninganna í dag. Hidalgo, sem er fyrsta konan til að gegna embætti borgarstjóra í París, bíður ærið verkefni þar sem flokkur hennar, sósíalistaflokkurinn, hefur staðið höllum fæti á landsvísu síðustu ár. 12.9.2021 14:31
Þinghúsið í Washington: Herða öryggi fyrir samkomu til stuðnings rósturseggja Áformað er að herða á öryggisráðstöfunum í kringum þinghúsið í Washingtonborg fyrir næstu helgi þegar hinir ýmsu öfgahópar hliðhollir Donald Trumps fyrrverandi forseta hyggjast koma saman. 12.9.2021 10:35
FBI opinberar fyrsta skjalið um árásirnar 2001 Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) svipti í gær leyndarhulunni af fyrsta skjalinu í tengslum við árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í september 2001. Skjalið snýr að aðstoð sem tveir hryðjuverkamenn frá Sádi-Arabíu fengu í aðdraganda árásanna. 12.9.2021 10:05
Líkti bandarískum öfgamönnum við hryðjuverkamennina frá 2001 George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti ofbeldisfullum bandarískum öfgaöflum við hryðjuverkamennina sem gerðu árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna 11. september 2001. Hann sagði að heimaræktaðir hryðjuverkamenn gætu ógnað Bandaríkjunum eins og erlendir hryðjuverkamenn. 12.9.2021 07:58
Haldlögðu kókaín að andvirði tæplega þrjátíu milljarða króna Sex menn voru handteknir um borð í snekkju við strendur Englands á fimmtudag. Um borð í snekkjunni voru ríflega tvö tonn af kókaíni. 11.9.2021 19:33
Upplifun íbúa New York 11. september 2001: „Ógnarástand og fólk var lengi að jafna sig“ „Þetta var eins fallegur haustdagur og gerist í New York. Blár himinn og haust í lofti,“ segir Ólafur Jóhann Ólafsson aðspurður um morguninn örlagaríka, 11. september 2001. Hann var þá, sem nú, búsettur í New York með fjölskyldu sinni. 11.9.2021 15:27
Alþjóðakerfið eftir 11. september 2001: Bandaríkin grófu undan eigin stöðu með viðbrögðunum Strax að kvöldi 11. september 2001 voru George W. Bush og hans fólk viss um að Al-Qaeda stæði bak við árásirnar mannskæðu. Þjóðaröryggisráðið kom saman, en þar var einhugur um að Bandaríkin þyrftu að svara fyrir sig. Al-Qaeda og Osama Bin Laden hefðu skákað í skjóli Talibana í Afganistan í áraraðir en nú yrði gripið til aðgerða. Enginn greinarmunur yrði gerður á milli Al-Qaeda og Talibana og önnur ríki skyldu láta sér það að kenningu verða. 11.9.2021 11:11
Síðasta drónaárásin í Kabúl: Sjö börn úr sömu fjölskyldunni dóu Síðasta eldflaugin sem vitað er að Bandaríkjamenn skutu í Afganistan grandaði ekki ISIS-liða eins og ráðamenn hafa haldið fram. Þess í stað lenti hún á bíl manns sem hefur starfað fyrir bandarísk hjálparsamtök sem var að skutla vinnufélögum sínum til og frá vinnu. 11.9.2021 10:52
Óbólusettir ellefu sinnum líklegri til að deyja Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) segir óbólusetta vera ellefu sinnum líklegri til að deyja vegna Covid-19 en þeir sem hafa verið bólusettir. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknum sem stofnunin opinberaði í gær og sýna að bóluefnin draga verulega úr alvarlegum veikindum og koma í veg fyrir dauðsföll. 11.9.2021 08:12
20 ár frá 11. september 2001: Dagurinn sem allt breyttist Sum andartök eru þess eðlis að tilvera þess sem upplifir þau verður aldrei söm á eftir. Fá hafa þó skekið heimsbyggðina jafn skyndilega og jafn afgerandi og þegar tvær farþegaþotur skullu á Tvíburaturnunum við World Trade Center á Manhattan á heiðskírum þriðjudagsmorgni fyrir réttum 20 árum, hinn 11. september árið 2001. 11.9.2021 06:01
MH17: Ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syninum í hans hinstu för Faðir fórnarlambs sem lést þegar MH17, farþegaflugvél Malaysian Airlines, var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syni hans í sinni hinstu för. Bakpokinn fannst nánast óskemmdur í braki vélarinnar. 10.9.2021 23:31
Rannsaka hvort viðbrögð fyrrverandi ráðherra í upphafi faraldursins hafi verið saknæm Sérstakur rannsóknarréttur franska lýðveldisins rannsakar nú hvort sækja eigi Agnès Buzyn, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Frakklands, til saka vegna viðbragða hennar í upphafi kórónuveirufaraldursins. 10.9.2021 22:50
Skipuleggjendur minningarathafnar ákærðir fyrir að ógna þjóðaröryggi Skipuleggjendur minningarathafnar um ódæðisverkin sem framin voru á Torgi hins himneska friðar hafa verið ákærðir fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi Hong Kong. 10.9.2021 16:03
Svíþjóðardemókrati handtekinn grunaður um morð Karlmaður hefur verið handtekinn í Svíþjóð grunaður um að hafa myrt konu í suðurhluta Vestur-Gautlands í síðustu viku. Maðurinn er sagður stjórnmálamaður í flokki Svíþjóðardemókrata og sinnir mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. 10.9.2021 15:27
Trudeau í kröppum dansi í sjónvarpskappræðum Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, lenti í harðri sennu í sjónvarpskappræðum flokksformanna í gær, en þingkosningar fara fram þar í landi eftir tíu daga. Trudeau, sem hefur setið í stóli forsætisráðherra í sex ár, rauf óvænt þing í síðasta mánuði og boðaði til kosninga tveimur árum fyrr en ráðgert var. Þetta gerði hann í ljósi góðrar stöðu hans og Frjálslynda flokksins í skoðanakönnunum. 10.9.2021 14:25
Ný ríkisstjórn loks tekin við í Líbanon Ný ríkisstjórn hefur loks tekið við í Líbanon, um þrettán mánuðum eftir að sú síðasta hrökklaðist frá völdum í kjölfar spreningarinnar miklu í höfuðborginni Beirút í ágúst 2020. 10.9.2021 13:46
Hangandi nashyrningar og bakteríuflóra götutyggjós Hvernig er best að flytja nashyrning? Getur fullnæging dregið úr nefstíflum? Breytist líkamslykt áhorfenda í kvikmyndahúsum eftir því hvað verið er að horfa á? Þetta eru nokkrar þeirra spurninga sem handhafar Ig Nóbelsverðlaunanna freistuðu þess að svara. 10.9.2021 08:47
Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný. 10.9.2021 08:00
Yfir 100 manns flogið frá Kabúl til Katar Fyrsta vélin til að yfirgefa Kabúl í Afganistan með útlendinga innanborðs eftir að talíbanar tóku þar öll völd hóf sig til flugs í gærkvöldi. 10.9.2021 06:42
Ótrúlegt og rándýrt listaverkasafn á uppboð vegna hatrammrar skilnaðardeilu Uppboðshaldarinn Sotheby's mun í vetur og á næsta ári halda uppboð á einstöku listaverkasafni sem sett var á sölu að skipan dómara í hatrammri skilnaðardeilu aldraðra milljarðamæringa. Selja á bestu bitana úr safninu svo hægt sé að ljúka deilunni. 9.9.2021 23:31
Ætlar að skylda ríkisstarfsmenn í bólusetningu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, stefnir á að skylda alla starfsmenn sem starfa fyrir alríkisstjórn Bandaríkjanna í bólusetningu. 9.9.2021 21:25
Dómsmálaráðuneytið fer í hart við Texas vegna „hjartsláttarlaganna“ Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur stefnt yfirvöldum í Texas-ríki Bandaríkjanna vegna umdeildra laga um þungunarrof sem nýlega tóku gildi í ríkinu. Ráðuneytið segir lögin vera andstæð stjórnarskrá Bandaríkjanna. 9.9.2021 20:31
Eyjafrýnan nú talin í útrýmingarhættu Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin (IUCN) telja nú að eyjafrýnan, sem einnig er nefnd kómódódrekinn, sé í útrýmingarhættu. Spáð er að búsvæði þessarar stærstu eðlutegundar á jörðinni minnki um að minnsta kosti 30% á næstu 45 árum. 9.9.2021 15:48
Húsleit í þýskum ráðuneytum vegna rannsóknar á spillingardeild Saksóknarar gerður húsleit í fjármála- og dómsmálaráðuneytum Þýskalands í dag. Leitin er sögð hluti af rannsókn á opinberri stofnun sem rannsakar peningaþvætti en hún kemur á versta tíma fyrir fjármálaráðherrann sem stendur í harðri kosningabaráttu. 9.9.2021 15:17
Lýsa eftir utanbæjarmanni í tengslum við sprengjutilræði í Washington Alríkislögreglan í Bandaríkjunum (FBI) birti á vef sínum í gær myndband sem talið er sýna mann koma fyrir rörasprengjum við höfuðstöðvar Demókrata og Repúblikana í Washingtonborg að kvöldi 5. janúar síðastliðins. 9.9.2021 14:05
Hóta stjórnarslitum verði útgöngusamningnum ekki breytt Flokkur sambandssinna á Norður-Írlandi hótar því að sprengja heimastjórnina þar verðir breytingar ekki gerðar á útgöngusamningi Bretland og Evrópusambandsins á næstu vikum. Bresk stjórnvöld tilkynntu í vikunni að aðlögunartímabil yrði framlengt á Norður-Írlandi. 9.9.2021 12:08
Getnaðarvarnir verða gjaldfrjálsar fyrir franskar konur 25 ára og yngri Franskar konur upp að 25 ára aldri munu ekki þurfa að greiða fyrir getnaðarvarnir þar í landi frá og með áramótum. Olivier Veran heilbrigðisráðherra tilkynnti þetta fyrr í dag, en fram kemur í frétt Reuters að áður hafi mörkin fyrir gjaldfrjálsar getnaðarvarnir verið dregin við átján ára aldur. 9.9.2021 12:07
Norðurkóreskt varnarlið marseraði í hlífðarbúningum Norður-Kórea fagnaði því að 73 ár eru liðin frá stofnun ríkisins í nótt með skrúðgöngu. Athygli hefur vakið að allir þeirra sem tóku þátt í skrúðgöngunni voru klæddir í appelsínugula hlífðarbúninga en engin flugskeyti voru til sýnis, sem gjarnan eru sýnd á slíkum viðburðum í Norður-Kóreu. 9.9.2021 11:33
Reykur í Alþjóðlegu geimstöðinni Viðvörunarkerfi í rússneska hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á braut um jörðu fór í gang þegar reykur greindist um borð. Geimfarar eru sagðir hafa ýmist séð reyk eða fundið lykt af brenndu plasti. 9.9.2021 08:36
Að minnsta kosti tíu látnir í eldsvoða á Covid-19 spítala Að minnsta kosti tíu hafa látið lífið í eldsvoða á bráðabirgðaspítala í Norður-Makedóníu fyrir einstaklinga sem hafa veikst alvarlega af Covid-19. Heilbrigðisráðherra landsins segir líkur á að fjöldi látinna muni hækka. 9.9.2021 08:33
Kína skýtur á Bandaríkin og heitir neyðaraðstoð til handa Afganistan Stjórnvöld í Kína hafa heitið 4 milljörðum króna í neyðaraðstoð til Afganistan, meðal annars í formi matarbirgða og bóluefna gegn Covid-19. Þá segjast þau reiðubúin til að eiga opið samtal við nýja stjórn talíbana. 9.9.2021 07:46