Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fylgdist með útförinni heima Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, fylgdist með útför Filippusar prins á heimili hennar og Harry Bretaprins í Kaliforníu í dag. Hertogaynjan er ólétt af öðru barni þeirra hjóna og réðu læknar henni frá því að ferðast til Bretlands fyrir útförina. 17.4.2021 19:54
Sjónin versnar og aukin hætta á nýrnabilun Stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur nú verið í hungurverkfalli í yfir tvær vikur og er það farið að hafa veruleg áhrif á heilsufar hans. Hann hefur krafist þess að fá læknisheimsókn í fangelsið þar sem hann þjáist af bakverkjum. 17.4.2021 18:04
Drottningin sat ein næst altarinu við jarðarförina Filippus prins, maki Elísabetar Bretadrottningar, var borinn til grafar í dag en athöfnin fór fram í kapellu St. Georgs við Windsorkastala. Fjöldi þeirra sem sóttu jarðarförina var takmarkaður við þrjátíu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. 17.4.2021 16:06
Þrjár milljónir dánar vegna Covid-19 Rúmlega þrjár milljónir manna hafa nú dáið á heimsvísu vegna Covid-19. Heilt yfir hafa rúmlega 140 milljónir smitast, svo vitað sé. Mögulega er raunverulegur fjöldi látinna þá hærri og jafnvel töluvert hærri. 17.4.2021 14:31
Filippus prins borinn til grafar Filippus prins, maki Elísabetar Bretadrottningar, var borinn til grafar í dag. Fjöldi þeirra sem sóttu jarðarförina var takmarkaður við þrjátíu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar en sýnt var frá athöfninni í beinni útsendingu. 17.4.2021 11:41
Til rannsóknar hvort fermingarbúðir 140 ungmenna standist sóttvarnareglur Norska lögreglan hefur til rannsóknar hvort sóttvarnareglur hafi verið brotnar þegar 140 fermingarbörn komu saman til fermingarfræðslu í Gjøvik síðustu helgi. Þátttakendur voru fermingarbörn úr fimm sveitarfélögum sem komu saman í Campus Arena í Gjøvik en viðburðurinn var liður í borgaralegri fermingarfræðslu á vegum samtakanna Human-Etisk. 17.4.2021 10:44
Ný ríkisstjórn Grænlands með nauman meirihluta Hinn 34 ára gamli Múte B. Egede, er yngsti forsætisráðherra Grænlands. Hann leiðir nýja ríkisstjórn landsins sem opinberuð var í gær. Egede er formaður Inuit Ataqatigiit (IA) en flokkurinn vann mikinn sigur í kosningunum sem haldnar voru á Grænlandi í byrjun mánaðarins. 17.4.2021 08:52
Saksóknarar vilja samtök Navalnís á sama stall og ISIS og al-Qaeda Ríkissaksóknarar í Moskvu fóru í gær fram á það við dómara að andspillingarsamtök Alexei Navalní verði sett á lista hryðjuverka- og öfgasamtaka. Slík skilgreining fæli í sér að hægt yrði að dæma aðgerðasinna og fólk sem tekur þátt í mótmælum samtakanna gegn ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta, til langra fangelsisdóma. 17.4.2021 07:59
Teikna beina línu frá framboði Trumps til Rússa Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, opinberaði í gær að samstarfsmaður starfsmanna framboðs Donalds Trump, fyrrverandi forseta, útvegaði rússneskum leyniþjónustum gögn úr framboðinu. 16.4.2021 23:34
Ráðleggja óléttum að fá bóluefni Pfizer eða Moderna Breskum barnshafandi konum er ráðlagt að fá bóluefni við kórónuveirunni frá annað hvort Pfizer eða Moderna þar sem fleiri rannsóknir liggi fyrir sem benda til þess að þau séu örugg. Þetta kemur fram í tilmælum ráðgjafanefndar um bólusetningar þar í landi. 16.4.2021 23:33
Fjöldi fólks fylgdist með komu fallbyssukerranna Fjöldi fólks fylgdist með því þegar þegar hin konunglega viðhafnarsveit breska hersins kom ríðandi með þrjár fallbyssukerrur í eftirdragi að Windsor-kastala í dag til undirbúnings útfarar Filippusar prins á morgun. 16.4.2021 22:12
Handteknir grunaðir um aðild að mannráni á átta ára stúlku Fjórir menn eru nú í haldi frönsku lögreglunnar vegna gruns um aðild að þaulskipulögðu mannráni á átta ára stúlku. Stúlkan heitir Mia og er talin vera með móður sinni, sem lögreglu grunar að hafi fyrirskipað mannránið. 16.4.2021 21:51
Merkel skorar á sambandsþingið að taka í neyðarhemilinn í Covid-aðgerðum Angela Merkel Þýskalandskanslari hvatti þýska sambandsþingið í dag til að samþykkja frumvarp sem heimilar landstjórninni að grípa til hertra sóttvarnaaðgerða í öllum sextán sambandsríkjum Þýskalands. Hún segir löngu tímabært að stíga fast á neyðarhemilinn í landinu öllu. 16.4.2021 21:03
Árásarmaðurinn karlmaður á tvítugsaldri Lögregla í Indianapolis í Bandaríkjunum hefur borið kennsl á mann sem talinn er hafa skotið átta manns til bana á starfsstöðvum FedEx. Maðurinn, sem framdi sjálfsvíg eftir árásina, hét Brandon Scott og var nítján ára gamall. 16.4.2021 19:31
Stefna að samfélagi án sígarettna Nýja-Sjáland hyggst útrýma tóbaksreykingum í landinu fyrir árið 2025. Aðstoðarheilbrigðisráðherra landsins segir brýnt að vernda komandi kynslóðir fyrir þeim hættum sem fylgja tóbaksreykingum, enda deyi hátt í fimm þúsund Nýsjálendingar ár hvert af völdum tóbaks. 16.4.2021 18:27
Helen McCrory látin Breska leikkonan Helen McCrory er látin 52 ára að aldri. Frá þessu greindi eiginmaður hennar Damian Lewis á Twitter-síðu sinni í dag. McCrory lést eftir baráttu við krabbamein. 16.4.2021 17:18
Úran í Íran: Segjast geta auðgað úran að vild Vísindamenn í Íran byrjuðu í dag að auðga úran í 60 prósent hreinleika, sem er hærra en gert hefur verið áður þar í landi. Með því er hreinleiki þess úrans orðinn nálægt því sem til þarf í kjarnorkuvopn. 16.4.2021 14:17
Egede kynnir ríkisstjórn sína síðdegis Múte B. Egede, formaður Inuit Ataqatigiit (IA), mun kynna nýjan stjórnarsáttmála og ráðherra í ríkisstjórn sinni á fundi í menningarmiðstöðinni Katuaq í Nuuk síðar í dag. 16.4.2021 13:08
Fjölmargar skotárásir í Bandaríkjunum á þessu ári Eftir tiltölulega rólegt ár í fyrra virðist mannskæðum skotárásum fara hratt fjölgandi í Bandaríkjunum. Átta eru látnir eftir skotárás í Indianapolis í nótt og fimm voru fluttir á sjúkrahús vegna skotsára. 16.4.2021 12:41
Hollusta við Trump borgar sig Helstu stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á þingi vestanhafs hafa grætt töluvert á hollustu sinni við forsetann. Öll hafa þau safnað fúlgum fjár í kosningasjóði sína sem að mestu hafa borist í smáum skömmtum frá kjósendum Trumps. 16.4.2021 11:43
Gestir Fyre-hátíðarinnar fá um sjö þúsund dala bætur hver Dómstóll í New York hefur dæmt að 277 einstaklingar sem ferðuðust til Bahamaeyja til að sækja Fyre-hátíðina árið 2017 skuli hver um sig fá greiddar sjö þúsund dala í sáttagreiðslu. Það samsvarar tæplega 900 þúsund krónum. 16.4.2021 11:36
Merkel vill herða aðgerðir gegn Covid-19 Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur kallað eftir því að þingmenn samþykki að veita henni heimildir til að beita ströngum sóttvarnaraðgerðum á svæðum landsins þar sem dreifing nýju kórónuveirunnar er mikil. Hún segir það nauðsynlegt og að meirihluti Þjóðverja styðji hertar aðgerðir. 16.4.2021 10:52
Þrettán ára drengur með hendur á lofti skotinn til bana Lögreglan í Chicago birti í gærkvöldi myndband sem sýnir lögregluþjón skjóta þrettán ára dreng til bana í lok mars. Drengurinn virðist hafa verið með hendur sínar á lofti þegar hann var skotinn. 16.4.2021 09:36
Auðjöfur í fangelsi vegna aðildar að mótmælunum í Hong Kong Dómstóll í Hong Kong hefur dæmt fjölmiðlamógúlinn og auðjöfurinn Jimmy Lai í tólf mánaða fangelsi eftir að hafa fundið hann sekan um að hafa brotið gegn reglum um samkomur. 16.4.2021 09:15
Þrír látnir af völdum salmonellu í Danmörku Þrír eru látnir eftir að hafa smitast af salmonellu í Danmörku á síðustu dögum. Nítján hafa verið lagðir inn á sjúkrahús vegna sýkingarinnar og þá hafa 33 hið minnsta veikst. 16.4.2021 08:36
Berlínarbúar mótmæltu ógildingu á þaki á leiguverði Þúsundir Berlínarbúa mótmæltu á götum úti í gær niðurstöðu stjórnlagadómstóls Þýskalands að ákvörðun yfirvalda í höfuðborginni að setja þak á leiguverð standist ekki stjórnarskrá. Leigjendur óttast að niðurstaðan muni leiða til skyndilegrar hækkunar á leiguverði. 16.4.2021 07:51
Átta sagðir látnir í skotárás í Indianapolis Að minnsta kosti átta eru látnir eftir skotárás í Indianapolis í Bandaríkjunum og margir særðir. Vitni segjast hafa heyrt skothvelli á starfsstöðvum FedEx og einn segist hafa séð mann hleypa af sjálfvirku skotvopni. 16.4.2021 07:12
Dæmdur fyrir að hafa „laumast til kynmaka“ Ungur karlmaður í Árósum í Danmörku var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun en dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa „laumast til kynmaka“ með jafnöldru sinni í sumarhúsi í Odder í janúar á þessu ári. Var talið að maðurinn hafði ekki haft ásetning til nauðgunar þegar brotið var framið. 15.4.2021 22:56
Danir taka upp Covid-vegabréf í síma Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hvetur til áframhaldandi notkunar á AstraZeneca bóluefninu sem Danir hafa ákveðið að hætta að nota. Þeir hafa tekið í notkun rafrænt Covid-vegabréf í símum fyrir aðgang að ýmis konar þjónustu. 15.4.2021 22:02
Vilja rannsaka leka nektarmyndar af þingmanni Þingmenn á kanadíska þinginu hafa kallað eftir rannsókn á því hvernig mynd af lokuðum fundi fór í dreifingu. Umrædd mynd sýnir þingmanninn Will Amos nakinn, þar sem hann gleymdi að slökkva á vefmyndavél sinni þegar hann skipti um föt á meðan fundi stóð. 15.4.2021 21:46
Forstjóri Pfizer segir líklegt að fólk muni þurfa þriðja skammtinn Albert Bourla, forstjóri lyfjafyrirtækisins Pfizer, segir líklegt að fólk muni þurfa viðbótarskammt (e. booster) af bóluefni við Covid-19 innan við ári eftir að það lýkur bólusetningu. Þá sé sá möguleiki fyrir hendi að fólk þurfi að fara í árlega bólusetningu gegn kórónuveirunni til að viðhalda vernd. 15.4.2021 19:09
Drottningin situr ein við útförina Þrjátíu verða viðstödd útför Filippusar prins sem fer fram í kapellu St. Georgs við Windsor-kastala næstkomandi laugardag. Elísabet Bretadrottning, eiginkona Filippusar, mun sitja ein við útförina. 15.4.2021 17:49
Lögreglumaðurinn ber ekki vitni um dauða Floyd Málsvörn Dereks Chauvin, fyrrverandi lögreglumannsins sem er ákærður fyrir að valda dauða Georges Floyd í Minneapolis í fyrra, lauk í dag án þess að hann bæri sjálfur vitni. Hann ákvað að nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt sinn til þess að bendla sjálfan sig ekki við glæp með því að bera vitni. 15.4.2021 15:21
Vísa tíu Rússum úr landi og beita refsiaðgerðum Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að tíu rússneskum erindrekum verður vikið úr landi og refsiaðgerðum beitt gegn 32 einstaklingum og fyrirtækjum í Rússlandi. Þar að auki verður bandarískum bönkum meinað að taka þátt í ríkisskuldabréfaútboðum í rúblum. 15.4.2021 13:30
Stofna til nýrrar Kína-rannsóknar á tíu klukkustunda fresti Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur um 2.000 mál í rannsókn sem rekja má til kínverskra stjórnvalda. Þá er stofnað til nýrrar rannsóknar á „tíu klukkustunda fresti“, segir forstjóri stofnunarinnar. 15.4.2021 12:51
Danir gætu gefið fátækari ríkjum AstraZeneca-bóluefni Dönsk stjórnvöld kanna nú möguleikann á því að deila skömmtum af bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni sem þau hafa ákveðið að hætta alfarið að nota með þróunarríkjum. Notkunin í Danmörku var stöðvuð vegna fátíðra tilfella blóðtappa. 15.4.2021 12:29
Ófyrirséð afleiðing Covid-19: „Við erum að verða uppiskroppa með sæði“ Þegar kórónuveirufaraldurinn braust út voru brögð að því að salernispappír og aðrar nauðsynjar væru hamstraðar. Nú er kominn upp óvæntur, og ef til vill ófyrirséður skortur í Svíþjóð: 15.4.2021 08:42
Sagður hafa í hyggju að grípa til refsiaðgerða gegn Rússum Bandaríkjastjórn er sögð ætla að grípa til umfangsmikilla refsiaðgerða gegn Rússum vegna meintra afskipta af bandarísku forsetakosningunum og fjölda tölvuárása á bandarísk fyrirtæki og stofnanir. 15.4.2021 07:33
Bandalagsríki NATO kalla herinn heim frá Afganistan Danir ætla að kalla herafla sinn heim frá Afganistan í skrefum fram til 11. september næstkomandi, samhliða því sem NATO og Bandaríkin hyggjast draga úr umsvifum sínum í landinu. Danir sendu fyrstu hermennina til Afganistan í janúar 2002 og hafa tekið þátt í stríðinu síðan. Guðlaugur Þór Þórðarson segir að nú hefjist nýr kafli í samskiptum NATO og Afganistan. 14.4.2021 20:26
Gunnar Jóhann laus úr haldi Gunnari Jóhanni Gunnarssyni sem hefur í Noregi verið dæmdur fyrir morðið á hálfbróður sínum Gísla Þór Þórarinssyni, hefur verið sleppt úr haldi þar til niðurstaða liggur fyrir um hvort mál hans verður tekið fyrir í Hæstarétti. 14.4.2021 19:24
Lögreglukonan sem skaut Wright ákærð fyrir manndráp Lögreglukonan sem skaut Daunte Wright til bana eftir að hann var stöðvaður fyrir umfarðalagabrot verður ákærð fyrir manndráp. Hin 48 ára gamla Kimberly A. Potter, sem hafði starfað hjá lögreglunni í Brooklyn Center í Minnesota, segist hafa skotið Wright fyrir mistök er hann reyndi að komast á brott. 14.4.2021 16:54
Féll í yfirlið fyrir framan blaðamenn á AstraZeneca-fundinum Tanja Erichsen, yfirmaður Lyfjastofnunar Danmerkur, féll í yfirlið á blaðamannafundi heilbrigðisyfirvalda í dag, þar sem ákvörðun um að stöðva notkun á bóluefni AstraZeneca í Danmörku var til umræðu. 14.4.2021 16:53
Drottningin mætt aftur til starfa Elísabet Bretadrottning sneri aftur til starfa sinna fjórum dögum eftir að Filippus eiginmaður hennar lést. Hinn 94 ára gamla drottning sótti viðburð í gær þar sem æðsti starfsmaður konungsfjölskyldunnar fór á eftirlaun og þar að auki heimsótti hún í dag siglingaklúbb ásamt dóttur sinni. 14.4.2021 15:40
Svikahrappurinn Bernie Madoff er dáinn Hinn víðfrægi svikahrappur Bernie Madoff er dáinn. Hann dó fangelsi í Norður-Karólínu, þar sem hann var að afplána 150 ára fangelsisdóm fyrir umfangsmikil fjársvik. 14.4.2021 13:57
Bann við þungunarrofi vegna Downs fær að standa Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að lög sem leggja bann við þungunarrofi þegar fóstur greinist með Downs-heilkenni í Ohio megi standa. Annar áfrýjunardómstóll hafði áður fellt sambærileg lög í Arkansas úr gildi og er líklegt að bannið komi nú til kasta íhaldssams Hæstaréttar Bandaríkjanna. 14.4.2021 13:09