Erlent

Danir gætu gefið fátækari ríkjum AstraZeneca-bóluefni

Kjartan Kjartansson skrifar
Søren Brostrøm, formaður heilbrigðisráðs Danmerkur, greindi frá ákvörðuninni um að notkun bóluefnis AstraZeneca yrði hætt í Danmörku í gær.
Søren Brostrøm, formaður heilbrigðisráðs Danmerkur, greindi frá ákvörðuninni um að notkun bóluefnis AstraZeneca yrði hætt í Danmörku í gær. Vísir/EPA

Dönsk stjórnvöld kanna nú möguleikann á því að deila skömmtum af bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni sem þau hafa ákveðið að hætta alfarið að nota með þróunarríkjum. Notkunin í Danmörku var stöðvuð vegna fátíðra tilfella blóðtappa.

Hans Kluge, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í Evrópu, segist hafa rætt við dönsk heilbrigðisyfirvöld í gær um ákvörðun þeirra um að hætta alfarið notkun á bóluefni AstraZeneca. Utanríkisráðuneytið sé tilbúið að kanna möguleikann á að senda efnið til fátækari ríkja í staðinn.

Danir eru fyrsta þjóðin sem hættir notkun bóluefnisins vegna tilkynninga um einstaka tilfelli blóðtappa hjá yngra fólki sem fékk bóluefnið. Lyfjastofnun Evrópu taldi möguleg tengsl á milli efnisins og blóðtappanna en að ávinningur bóluefnisins vægi mun þyngra en möguleg áhætta af notkun þess. 

WHO mælir einnig enn með notkun bóluefnisins. Fulltrúar stofnunarinnar hafa kosið að gagnrýna ekki ákvörðun Dana og segja þess í stað að öll ríki ættu að hafa sveigjanleika í því hvernig þau haga bólusetningaráætlun sinni, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, sagðist í gær ekki sjá fyrir sér að íslensk yfirvöld fylgdu í fótspor Dana. Norðmenn væru aftur á móti að íhuga að hætta notkun bóluefnis AstraZeneca.

Meirihluti þeirra bóluefna sem hafa verið framleidd gegn kórónuveirunni til þessa hafa farið til auðugustu þjóða heims. Forstjóri WHO gagnrýndi ójöfnuð í aðgengi að bóluefni á dögunum en þá hafði afhending á bóluefni til þróunarríkja nær stöðvast.


Tengdar fréttir

„Sjúk­dómurinn er svo marg­falt, marg­falt verri“

„Sjúkdómurinn er svo margfalt, margfalt verri að ég yrði mjög hissa ef menn leyfðu ekki notkun þessa bóluefnis eftir að hafa lagst betur yfir þessi gögn. Ekki nema það kæmi í ljós að þessi aukaverkun hafi þá verið verulega, verulega vanskráð.“ 

Sér ekki fyrir sér að Íslendingar fari dönsku leiðina

Sóttvarnalæknir telur ólíklegt að notkun á bóluefni AstraZeneca verði hætt hér á landi líkt og í Danmörku. Þá þykir honum líklegt að yngra fólk sem fengið hefur fyrri skammt af AstraZeneca-efninu fái seinni skammt af bóluefni Pfizer eða Moderna.

Danir hætta alfarið notkun bóluefnis AstraZeneca

Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að hætta að nota bóluefni lyfjaframleiðandans AstraZeneca gegn kórónuveirunni. Frá þessu er greint í dönskum fjölmiðlum í dag.

Af­hending á bólu­efnum til snauðra ríkja nær stöðvast

Nær ekkert hefur verið afhent af bóluefni gegn kórónuveirunni til fátækustu ríkja heims frá því á mánudag og nú stefnir í að allt að sextíu ríki geti ekki gefið seinni skammt af bóluefni fyrr en í júní. Forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar gagnrýnir harðlega misskiptingu í bólusetningum á milli ríkra þjóða og snauðra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×