Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stærstu mafíuréttarhöldin í áratugi hafin Stærstu mafíuréttarhöld í áratugaraðir hófust á Ítalíu í morgun. 355 meintir mafíósar og spilltir embættismenn eru sakaðir um skipulagða glæpastarfsemi. 13.1.2021 17:30
Forsetinn lagður inn á sjúkrahús með Covid-19 Armen Sargsyan, forseti Armeníu, hefur verið lagður inn á sjúkrahús í London í Englandi, eftir að hafa greinst með smit í síðustu viku. 13.1.2021 12:27
Navalní snýr aftur til Rússlands Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní mun snúa aftur til Rússlands á sunnudaginn. 13.1.2021 10:17
Forsætisráðherra Eistlands segir af sér í skugga mútumáls Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, hefur ákveðið að segja af sér. Frá þessu greindi forsætisráðherrann í morgun en þrýstingur á Ratas hefur aukist mikið síðustu misserin vegna mútumáls sem fjöldi háttsettra stjórnmálamanna í landinu hefur verið bendlaður við. 13.1.2021 08:52
YouTube lokar tímabundið á Donald Trump Myndbandssíðan YouTube, sem er í eigu tæknirisans Google, hefur ákveðið að loka tímabundið á það að Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, geti hlaðið upp efni á síðuna. Trump getur þannig hvorki hlaðið upp myndböndum né verið í beinu streymi á YouTube. 13.1.2021 08:49
Sinovac með rétt rúmlega 50 prósent virkni Kínverska bóluefnið Sinovac sem þróað var gegn Covid-19 virðist aðeins hafa rétt rúmlega 50 prósent virkni ef marka má niðurstöður klínískra rannsókna í Brasilíu. 13.1.2021 07:18
Fyrsta konan sem tekin er af lífi í alríkinu í sjötíu ár Lisa Montgomery, 52 ára gömul kona frá Kansas í Bandaríkjunum, hefur verið tekin af lífi með banvænni sprautu í Terre Haute-fangelsinu í Indiana. Hún er fyrsta konan sem tekin er af lífi í bandaríska alríkinu í tæp sjötíu ár. 13.1.2021 07:14
Þingmenn Repúblikana snúast gegn Trump Kapphlaup Demókrata á Bandaríkjaþingi til að koma Donald Trump forseta frá völdum með ákæru fyrir brot í starfi virðist vera að fá nokkurn byr í seglin en nú þegar hafa þó nokkrir Repúblikanar sagst ætla að samþykkja tillöguna. 13.1.2021 07:14
Kim, systir Kim, segir herforingja Suður-Kóreu heimska Kim Yo Jong, systir Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir herforingja í Suður-Kóreu vera vitleysinga og aðhlátursefni. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem birt var af ríkismiðli Norður-Kóreu í dag en Kim er yfir samskiptum einræðisríkisins við nágranna sína í suðri. 12.1.2021 23:51
Níu þúsund börn létust á írskum heimilum fyrir ógiftar mæður Á 19. og 20. öld létust 9.000 börn á átján stofnunum á Írlandi fyrir konur og stúlkur sem urðu þungaðar utan hjónabands. Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var í dag en forsætisráðherra landsins segir um að ræða myrkan, erfiðan og skammarlegan kafla í sögu þjóðarinnar. 12.1.2021 23:04
Búið að ákæra sjötíu og búist við hundruð ákæra til viðbótar Búið er að ákæra rúmlega 70 manns vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku en líklegt er að hundruð eða jafnvel þúsundir verði að endingu ákærðir. Meðal annars stendur til að ákæra fólk fyrir uppreisnaráróður, fyrir að fara inn í þinghúsið í leyfisleysi og morð. 12.1.2021 22:21
Sektuð fyrir að taka ólaðan manninn í göngutúr Par í Kanada hefur verið sektað fyrir að brjóta gegn útgöngubanni vegna Covid-19 eftir að lögregla stöðvaði þau þar sem konan leiddi manninn í ól. Konan sagðist bara vera „úti að ganga með hundinn“, sem er heimilt samkvæmt reglunum. 12.1.2021 21:52
Evrópskir ráðamenn neituðu að hitta Pompeo Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hætti í skyndi við síðustu embættisferð sína í dag, eftir að ráðamenn og embættismenn í Evrópusambandsinu neituðu að hitta hann. Ástæðan er sögð vera árásin á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku og aðkoma Donalds Trump, forseta, að henni. 12.1.2021 20:34
Munu ekki þrýsta á þingmenn að segja nei við ákærum á hendur Trump Leiðtogar Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa ákveðið að þrýsta ekki á flokksfélaga sína um að greiða atkvæði gegn því að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði ákærður fyrir embættisbrot. 12.1.2021 20:16
Hefur barist fyrir lífi sínu í þrjú ár: Sprelllifandi úrskurðuð látin Frönsk kona hefur freistað þess í þrjú ár að sannfæra yfirvöld um að hún sé sannarlega á lífi eftir að hún var úrskurðuð látin án þess að gögn þess efnis væru lögð fram. 12.1.2021 18:48
Segist enga ábyrgð bera Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir gífurlega reiði í Bandaríkjunum vegna þess að fulltrúadeild þingsins undirbúi að kæra hann aftur fyrir embættisbrot. Að þessu sinni er verið að kæra hann fyrir að hvetja fólk til uppreisnar. 12.1.2021 18:05
Spilavítaeigandinn Sheldon Adelson er látinn Bandaríski auðjöfurinn Sheldon G. Adelson, sem rak spilavíti og var lengi einn mest áberandi maðurinn í viðskiptalífinu í Las Vegas, er látinn. Hann varð 87 ára. 12.1.2021 14:07
Mesti samdráttur í losun í Bandaríkjunum frá lokum seinna stríðs Losun á gróðurhúsalofttegundum í Bandaríkjunum fór á síðasta ári í fyrsta skipti á síðustu þremur áratugum niður fyrir það magn sem var árið 1990. Loftslagsrannsóknafyrirtækið Rhodium áætlar að samdrátturinn hafi numið um 10 prósent milli ára og þannig verið sá mesti frá lokum seinna stríðs. 12.1.2021 13:35
Kafarar fundu flugrita vélarinnar Kafarar á vegum indónesíska hersins hafa fundið flugrita flugvélar Sriwijaya Air sem hrapaði í Jövuhafi um helgina með 62 um borð. AP greinir frá þessu, en vélin hrapaði skömmu eftir flugtak í höfuðborginni Jakarta á laugardag. 12.1.2021 11:43
Stefna á markaðsleyfi fyrir AstraZeneca eftir rúmar tvær vikur Lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur sótt um skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefni sínu gegn kórónuveirunni hjá Lyfjastofnun Evrópu. Umsóknin mun fá flýtimeðferð hjá stofnuninni og leyfið gæti verið gefið út 29. janúar, eftir rúmar tvær vikur. 12.1.2021 09:30
WHO: Hjarðónæmi næst ekki á þessu ári Soumya Swaminathan, aðalvísindamaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), segir að heimurinn nái ekki hjarðónæmi gegn Covid-19 á þessu ári. Þetta er þrátt fyrir að bólusetningar séu hafnar í um þrjátíu löndum í heiminum, þar á meðal hér á Íslandi. 12.1.2021 08:48
Þingmaður smitaður eftir árásina á þinghúsið Pramila Jayapal, þingmaður demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur smitast af kórónuveirunni. Jayapal segir frá því á Twitter að hún hafi smitast í kjölfar þess að hafa ásamt öðrum þingmönnum verið flutt í skjól, í lokað herbergi, þegar múgur réðst á bandaríska þinghúsið í síðustu viku. 12.1.2021 08:48
22 kínverskir námumenn fastir eftir sprengingu Hópur námumanna í Shandong-hérði í norðausturhluta Kína hefur verið fastur í gullnámu í tvo daga eftir sprengingu í námunni. Sprengingin skemmdi fjarskiptakerfi námunnar og hefur ekki tekist að ná sambandi við hópinn. 12.1.2021 08:30
Fresta aftöku einu konunnar sem er á dauðadeild bandaríska alríkisins James Hanlon, dómari í Indiana í Bandaríkjunum, hefur úrskurðað að fresta beri aftöku Lisu Montgomery, 52 ára gamallar konu sem var dæmd til dauða árið 2007 fyrir að myrða Bobbie Jo Stinnett og ræna ófæddu barni hennar árið 2004. 12.1.2021 08:18
Flugritinn enn ekki fundinn Enn hefur ekki tekist að finna flugrita farþegaþotunnar sem fórst undan ströndum Indónesíu á laugardag með 62 innanborðs. 12.1.2021 07:45
Taka skinkusamlokur af bílstjórum eftir Brexit Vegna nýs viðskiptasamnings Evrópusambandsins og Bretlands eftir Brexit er innflutningur einstaklinga á ýmsum vörum óheimill, til dæmis þeim sem innihalda kjöt eða mjólkurvörur. Þessum reglum hafa bílstjórar sem ferðast á milli fengið að finna fyrir. 11.1.2021 23:47
FBI varar við mótmælum og ofbeldi víða um Bandaríkin Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að hópar vopnaðra manna ætli sér að mótmæla embættistöku Joe Bidens, verðandi forseta Bandaríkjanna, þann 20 janúar. Mótmælin eru sögð eiga að hefjast seinna í þessari viku og standa yfir þar til Biden tekur við embætti og jafnvel lengur. 11.1.2021 22:30
Óttast „falskt áhyggjuleysi“ vegna bóluefnis Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir þjóðina vera á hættulegum tímapunkti í faraldrinum. Smitum fer ört fjölgandi en bólusetningar hófust í desember síðastliðnum. Johnson óttast að fólk sé kærulausara vegna þessa. 11.1.2021 18:47
Árásarmaðurinn í Forbury Gardens hlaut lífstíðardóm Khairi Saadallah, árásarmaðurinn sem stakk þrjá menn til bana í Forbury Gardens í Bretlandi í fyrra, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Þá játaði Saadallah fyrir dómi að hafa reynt að myrða þrjá aðra menn sem voru einnig staddir í garðinum. 11.1.2021 17:55
Lögðu fram frumvarp um aðra kæru gegn Trump Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa lagt formlega fram frumvarp um að kæra Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í annað sinn fyrir embættisbrot. Það felur í sér að kæra hann sérstaklega fyrir að hvetja fólk til uppreisnar og þá fyrir hlutverk hans í því að æsa fólk upp, sem á endanum braut sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna til að stöðva formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember. 11.1.2021 17:51
Sporin hræða: Sérfræðingar segja afstöðu Frakka til bólusetninga byggja á slæmri reynslu Kannanir sýna að allt að 60% Frakka hyggjast afþakka bólusetningu gegn Covid-19 en sérfræðingar segja mögulegt að niðurstöðurnar séu villandi. Þeir segja afstöðuna ekki snúast um bóluefnin sjálf, heldur traust til stjórnmálamanna, lækna og fjölmiðla. 11.1.2021 16:04
Burns mun stýra leyniþjónustunni CIA Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, mun tilnefna William Burns sem næsta forstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Hinn 64 ára Burns hefur áður starfað sem diplómati í bandarísku utanríkisþjónustunni og gegndi embætti aðstoðarutanríkisráðherra á árunum 2011 til 2014. 11.1.2021 12:30
Freistar þess að koma Kim Kielsen frá völdum Formaður Siumut-flokksins á Grænlandi, Erik Jensen, sem felldi Kim Kielsen úr formannsstólnum á flokksþingi í lok nóvember, freistar þess núna að ná einnig af honum forsætisráðherrastólnum. Grænlenska ríkisútvarpið KNR skýrir frá því að Erik haldi í dag frá heimabæ sínum, Sisimiut, til höfuðstaðarins Nuuk til viðræðna við flokksfélaga sína og samstarfsflokka um að hann taki jafnframt við forsæti landsstjórnar Grænlands. 11.1.2021 12:14
Japarov vann stórsigur í forsetakosningunum Svo virðist sem að Sadyr Japarov hafi unnið stórsigur í forsetakosningum í Mið-Asíuríkinu Kirgistan sem fram fórum um helgina. Þegar búið er að telja nær öll atkvæði virðist sem að Japarov hafa fengið um 80 prósent greiddra atkvæða. 11.1.2021 11:48
Borgaryfirvöld í Seúl til óléttra kvenna: Hugaðu að útlitinu og eldaðu mat fyrir karlinn fyrir fæðinguna Mikil reiði braust út á samfélagsmiðlum í Suður-Kóreu þegar borgaryfirvöld í Seúl gáfu út leiðbeiningar til óléttra kvenna, þar sem þeir var meðal annars ráðlagt að huga að útlitinu og hafa tilbúnar máltíðir og hrein föt fyrir karlinn fyrir fæðingu. 11.1.2021 08:42
Setja aukinn kraft í bólusetningar Bretar ætla að setja aukinn kraft í bólusetningar þar í landi í vikunni og í dag opna sjö bólusetningamiðstöðvar víðs vegar um landið sem geta tekið á móti miklum fjölda fólks. 11.1.2021 08:15
Aðeins Íslendingar undanþegnir skimun í Eistlandi Frá og með deginum í dag taka nýjar sóttvarnareglur gildi á landamærum Eistlands. Samkvæmt þeim eru farþegar sem koma frá Íslandi þeir einu sem undanþegnir verða skimun fyrir kórónuveirunni við komuna til landsins. 11.1.2021 07:17
Fulltrúadeildin ætlar að leggja fram ákæru á hendur Trump Fulltrúadeild Bandaríkjaþings mun á næstu dögum ákæra Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir embættisbrot. Þetta sagði Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, í bréfi til þingmanna á sunnudag. 11.1.2021 00:50
Trump bað kosningaeftirlitsmann í Georgíu að „finna svindlið“ Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hvatti kosningaeftirlitsmann í Georgíu til þess að „finna svindlið“ og sagði að hann yrði þjóðhetja ef það tækist. Þetta er þriðja skiptið sem því er lýst að Trump hafi hringt í háttsetta embættismenn í Georgíu í von um að þeir myndu snúa niðurstöðum kosninganna. 10.1.2021 16:01
Bandaríkin aflétta samskiptabanni við Taívan Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að áratugalöngu samskiptabanni við Taívan verði aflétt. Bannið var kynnt í Bandaríkjunum fyrir mörgum áratugum síðan, til þess að friðþægja yfirvöld á meginlandi Kína. 10.1.2021 12:55
Yfir áttatíu þúsund hafa látist í Bretlandi Frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst í Bretlandi hafa rúmlega áttatíu þúsund látist af völdum veirunnar. Undanfarnar vikur hafa um þúsund manns látist á hverjum sólarhring, en faraldurinn hefur verið í miklum vexti í landinu. 10.1.2021 12:12
Sækja svarta kassann úr flugvélinni sem hrapaði Búið er að staðsetja svarta kassann úr flugvélinni sem hrapaði stuttu eftir flugtak á Jakarta í Indónesíu í gær. Björgunarskip hafa haldið út aðgerðum frá því í gær og kafarar sjóhersins ættu fljótlega að geta sótt kassann, sem er í hafinu. 10.1.2021 12:07
Pence verður viðstaddur embættistöku Biden Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, ætlar að vera viðstaddur þegar Joe Biden og Kamala Harris verða sett í embætti síðar í þessum mánuði. Fjölmiðlar vestanhafs hafa þetta eftir heimildarmanni í Washington, en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sjálfur lýst því yfir að hann muni ekki vera viðstaddur innsetningarathöfnina. 10.1.2021 11:15
Hafa fundið út hvar flugvélin hrapaði Yfirvöld í Indonesíu segjast hafa fundið hvar vél Sriwijaya Air hrapaði. Vélin, flug SJ182, var á leið frá höfuðborginni Jakarta til borgarinnar Pontianak í gær þegar hún hvarf af ratsjám um það bil fjórum mínútum eftir flugtak. 10.1.2021 08:22
Búið að bólusetja Elísabetu og Filippus Elísabet II Bretadrottning og Filippus prins, hertogi af Edinborg voru í dag bólusett við Covid-19. Bættast hjónin þar með í hóp um 1,5 milljón Breta sem hafa allavega fengið fyrri skammtinn af bóluefni. 9.1.2021 23:33