Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skotárás Nørrebro Maður var skotinn í brjóstkassann á Nørrebro í Kaupmannahöfn í gærkvöldi og er lögregla engu nær um hver framdi ódæðið. 13.10.2009 07:16
Elvis-lokkar á uppboði Harðir Presley-aðdáendur hyggja sér nú gott til glóðarinnar þar sem nokkrir hárlokkar af höfði rokkgoðsins verða boðnir upp hjá Leslie Hindman í Chicago í næstu viku. 13.10.2009 07:14
Missti átta fingur í listaskóla Listaskóli nokkur í bresku borginni Boston í Lincolnskíri þarf heldur betur að endurskoða kennsluaðferðir sínar eftir að 16 ára gömul stúlka missti átta fingur við gerð gipslistaverks sem hún festi hendurnar í en listaverkið hitnaði í framhaldinu upp í 60 gráður. 13.10.2009 07:10
Norður-Kóreumenn skjóta á ný Norður-Kóreumenn virðast eiga í nokkrum erfiðleikum með að ákveða hvort þeir ætla að standa við gefin orð eður ei. 13.10.2009 07:07
Aldrei fleiri konur verðlaunaðar Bandaríski stjórnmálafræðingurinn Elinor Ostrom varð í gær fyrst kvenna til að hljóta Nóbelsverðlaunin í hagfræði. Hún hlaut verðlaunin ásamt landa sínum, hagfræðingnum Oliver Williamson. 13.10.2009 05:00
Það var ekki Guð Í fyrstu Mósebók segir; Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Prófessor Ellen van Wolde er virtur sérfræðingur í Gamla testamentinu og hefur skrifað margar fræðibækur um trúmál. 12.10.2009 16:21
Ungir danskir hermenn í Afganistan Danir hafa af því nokkrar áhyggjur að hermenn sem þeir senda á vígvelli eins og Afganistan verða sífellt yngri. Nýlega voru sendir þangað nítján hermenn sem allir eru nítján ára að aldri. 12.10.2009 14:08
Ögra enn með eldflaugaskotum Rússar segjast vera ráðvilltir yfir fréttum af því að Norður-Kóreumenn hafi skotið á loft tveimur skammdrægum eldflaugum. 12.10.2009 13:57
Sex ára rekinn fyrir vopnaburð Sex ára strák í Bandaríkjunum hefur verið vikið úr skóla í fjörutíu og fimm daga fyrir ólöglegan vopnaburð. 12.10.2009 13:48
Hríðskotarifflar við bankarán í Kaupmannahöfn Fjórir útlendingar vopnaðir hríðskotarifflum og flugeldablysum rændu í morgun banka í Kaupmannahöfn. Einn bankastarfsmaður slasaðist. 12.10.2009 10:24
Frakkar styðja kynlífsfíkil Mikill meirihluti frönsku þjóðarinnar vill að Frederic Mitterand sitji áfram sem menningarmálaráðherra, samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í dag. 12.10.2009 09:36
Mannskæð árás í Pakistan Að minnsta kosti 24 eru látnir eftir sprengjuárás nálægt Swat dalnum í Pakistan í dag. Talið er að um sjálfsmorðsprengjumann hafi verið að ræða en sprengjan sprakk við bíl á vegum hersins og eru liðsmenn öryggissveita Pakistanska hersins á meðal látinna. 12.10.2009 08:26
Poe jarðsunginn aftur Bandaríski rithöfundurinn Edgar Allan Poe var loksins lagður til hinstu hvílu í gær, 160 árum eftir dauða sinn. 12.10.2009 08:09
Heimsendir líklega ekki 2012 Heimsendir verður að öllum líkindum ekki í desember 2012 þrátt fyrir spár fólks sem legið hefur í fornum dagatölum maja-indíána. 12.10.2009 07:38
Handtekinn með skammbyssu á Kastrup Flugfarþegi á sjötugsaldri var handtekinn á Kastrup-flugvelli í gær eftir að skammbyssa fannst í fórum hans. 12.10.2009 07:21
Skaut verðandi eiginkonu sína til bana Brúðgumi í Winter Springs í Flórída skaut verðandi eiginkonu sína til bana daginn fyrir brúðkaup þeirra í þeirri trú að hún væri innbrotsþjófur. Brúðguminn, John Tabutt, er 62 ára gamall. 12.10.2009 07:15
Þrefalt sprengjutilræði í Írak Rúmlega 20 eru látnir í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks eftir þrefalt sprengjutilræði þar í gær. Fyrst var bíl, stútfullum af sprengiefni, ekið á vegg lögreglustöðvar og hann sprengdur í loft upp. 12.10.2009 07:13
Mótmælendur á þaki breska þingsins Að minnsta kosti 30 umhverfisverndarsinnum á vegum Greenpeace-samtakanna tókst að komast upp á þak breska þinghússins í London í nótt. 12.10.2009 07:04
Stærði sig af líflegu kynlífi Dómstólar í Sádi-Arabíu hafa dæmt 32 ára gamlan mann í fimm ára fangelsi fyrir að stæra sig af líflegu kynlífi sínu í sjónvarpi. Fangelsisdómurinn dugði þó ekki alveg sem refsing því honum er líka gert að þola þúsund svipuhögg. 12.10.2009 05:00
Samskipti ríkjanna enn stirð Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, segir að Armenar verði að yfirgefa Nagorno-Karabach, fjallahérað í Aserbaídsjan sem að mestu er byggt Armenum. Þetta sagði hann í gær, daginn eftir að Tyrkland og Armenía undirrituðu samning um að hefja stjórnmálasamskipti á ný eftir sextán ára hlé. 12.10.2009 05:00
Gordon Brown ætlar að selja Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að safna þremur milljörðum punda í breska ríkissjóðinn með sölu ríkiseigna. Meðal annars stendur til að selja járnbrautarleiðina milli London og Ermarsundsganganna. Einnig verður Dartford-brúin yfir ána Thames og göng undir ána á sama stað seld. Þá á að selja veðmálafyrirtækið Tote og 33 prósenta hlut breska ríkisins í evrópska fyrirtækinu Urenco, sem framleiðir kjarnorkueldsneyti.- gb 12.10.2009 03:00
Nítján létust í átökunum í höfuðstöðvum pakistanska hersins Nítján létust í Pakistan í gær eftir að til átaka kom þegar hópur herskárra múslima réðst á höfuðstöðvar hersins í borginni Rawalpindi. 11.10.2009 19:24
Sprengjurnar í Ramadi voru þrjár Að minnsta kosti 22 eru látnir og meira en 60 eru særðir eftir árás hryðjuverkmanna í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í morgun. Sprengjurnar voru þrjár en í fyrstu var talið að þær hafi verið tvær. 11.10.2009 15:34
Mannskæð sprengjuárás í Írak Að minnsta kosti 10 létust og margir slösuðust þegar tvær bílasprengjur sprungu á sama tíma í morgun fyrir utan opinbera byggingu í Írak. Árásin var gerð í borginni Ramadi sem er í vesturhluta landsins. 11.10.2009 10:57
Obama hyggst bæta stöðu samkynhneigðra innan hersins Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar að bæta verulega stöðu samkynhneigðra innan bandaríska hersins. Hann lýsti þessu yfir á fundi með baráttuhóp fyrir réttindum samkynhneigðra í gær. Áður hafði forsetinn sagst ætla að vinna að bættum réttindum samkynhneigðra. 11.10.2009 09:55
Gíslar frelsaðir í Pakistan Pakistönskum hermönnum tókst í morgun að frelsa 40 gísla sem voru í haldi Talibana í herstöð nálægt höfuðborginni Islamabad. Fólkið var tekið í gíslingu í gær þegar Talibanar náðu herstöðinni á sitt vald. Þrír gíslar létu lífið í átökunum í morgun, sex hermenn og að minnsta kosti fjórir Talibanar. 11.10.2009 09:51
70 létust eftir að olíuflutningabíll sprakk Að minnsta kosti 70 létust eftir að olíuflutningabíll sprakk í loft upp í suðurhluta Nígeríu í gær. Það er talið allt eins líklegt að tala látinna komi til með að hækka en fjöldi fólks slasaðist. Margir alvarlega. 11.10.2009 07:45
Maóistar drápu 13 lögreglumenn Skæruliðar Maóista á Indlandi myrtu að minnsta kosti 13 lögreglumenn í Maharashtra héraði í suðurhluta landsins í gærkvöldi. Skæruliðarnir segjast vera að berjast fyrir rétti fátækra bænda og farandverkamanna. Þeir hafa hert aðgerðir sínar að undanförnu í Indlandi en einungis eru nokkrir dagar síðan þeir myrtu 17 lögreglumenn. 11.10.2009 06:30
Sendu blöðrur yfir til Norður Kóreu Um 200 manns komu saman í Suður Kóreu og slepptu blöðrum sem svifu svo yfir til nágrannana í Norður Kóreu. Blöðrurnar voru fylltar af dreifibréfum sem á hafði verið ritaðar fréttir og víðs vegar að úr heiminum. 10.10.2009 20:45
Mótmæltu vinnubrögðum borgarstjórans Mótmælendur komu saman í Moskvu til að mótmæla borgarstjórunum Yri Lushkov, og vinnubrögðum hans. Lushkov hefur verið borgarstjóri í 17 ár og hefur gjörbreytt Moskvu á þeim tíma. Flestir segja til hins betra. En Luskov hefur verið gagnrýndur fyrir spillingu, eiginkona hans er ríkasta kona Rússlands, en hún er einmitt fyrirferðamikil verktakabransanum í Moskvu. Mómælin í dag fóru friðsamlega fram en þau eru haldin í tilefni þess að sveitastjórnarkosningar eru á næsta leiti. 10.10.2009 19:37
Castro ánægður ákvörðun Nóbelsverðlaunanefndarinnar Fídel Kastró, fyrrverandi forseti Kúbú, er ánægður með ákvörðun norsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar um að veita Barack Obama Bandaríkjaforseta friðarverðlaunin í ár. Ákvörðun nefndarinnar hefur vakið furðu margra. 10.10.2009 15:13
Halda hermönnum í gíslingu Hópur herskárra múslima sem réðst á höfuðstöðvar pakistanska hersins í borginni Rawalpindi í morgun halda innan við tíu hermönnum í gíslingu.Að minnsti kosti 12 féllu í árásinni. 10.10.2009 14:41
Reynir að fresta staðfestingu Lissabon sáttmálans Eiríkur Bergmann, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, segir að Vaclav Klaus, forseti Tékkalands, reyni nú hvað hann geti til að koma í veg fyrir að Lissabon sáttmálinn verði samþykktur heima fyrir. 10.10.2009 14:12
Pólland staðfestir Lissabon sáttmálann Forseti Póllands undirritaði Lissabon sáttmálann við hátíðlega athöfn í morgun. Tékkar eiga nú einir Evrópusambandsþjóða eftir að staðfesta sáttmálann. 10.10.2009 12:16
Átta hermenn látnir Átta pakistanskir hermenn eru látnir eftir árás sem gerð var á höfuðstöðvar þeirra í Rawalpindi í morgun. Fjórir árásarmannanna voru skotnir til bana í átökum sem brutust út. Tveggja árásarmanna er hins vegar leitað. 10.10.2009 10:14
Á þriðja hundrað látnir eftir aurskriður Að minnsta kosti 260 eru látnir eftir aurskriður og flóð sem fellibylurinn Parma hefur valdið á Filippseyjum undanfarna daga. Parma fór yfir Filippseyjar aðeins tveimur vikum eftir að fellibylurinn Ketsana fór þar um og olli flóðum, gífurlegri eyðileggingu og manntjóni. Talið er að 600, að minnsta kosti, hafi látist á Filippseyjum af völdum þessara tveggja fellibylja. 10.10.2009 10:07
Louvre skilar verðmætum Frakkar létu í gær undan kröfum Egypta um að ómetanlegum menningarminjum á Louvre-safninu í París yrði skilað aftur til Egyptalands. Egyptar, með fornleifafræðinginn Zahi Hawas í fararbroddi, hættu í vikunni samstarfi við Louvre-safnið til þess að þrýsta á kröfu sína. Samstarfsslitin hefðu orðið til þess að fornleifauppgröftur á vegum Louvre í Egyptalandi væri í uppnámi. 10.10.2009 06:00
Kona í dásvefni eignast barn Fertug kona í Þýskalandi hefur fætt heilbrigt barn þrátt fyrir að hafa verið í dásvefni síðustu 22 vikur meðgöngunnar. Starfsfólk á háskólasjúkrahúsinu í Erlangen sagði aðstandendur konunnar hafa óskað eftir því að barnið yrði látið fæðast þrátt fyrir erfitt ástand móðurinnar, sem fékk hjartaáfall og hefur verið í dái síðan. 10.10.2009 05:30
Fyrstu myndirnar sýndu lítið Bandarískt geimfar brotlenti á suðurpól tunglsins í gær. Harkaleg lendingin var vel skipulögð og taldist vel heppnuð. Um borð í geimfarinu eru mælitæki sem ætlað er að finna ummerki vatns á tunglinu. 10.10.2009 04:30
Ástandið að batna í Zimbabwe Morgan Tswangirai forsætisráðherra Zimbabwes segir að ástandið í mannréttindamálum hafi skánað mikið síðan flokkur hans myndaði þjóðstjórn með Robert Mugabe forseta. 9.10.2009 15:50
Undrun yfir friðarverðlaunum Obamas Áttatíu og tveggja ára gömul Bandarísk kona sagði þegar hún heyrði að Barack Obama hefði hlotið friðarverðlaun Nóbels; -Það er dásamlegt. Ég vildi bara að ég vissi af hverju. 9.10.2009 15:33
Taylor orðin góðhjörtuð á nýjan leik Leikkonan Elísabet Taylor sagði frá því á Twitter síðu sinni í dag að hjartaaðgerð sem hún gekkst undir í vikunni hafi heppnast fullkomlega. 9.10.2009 13:42
McCann hjónin snúa aftur til Portúgals Eftir miklar vangaveltur hefur Gerry McCann nú upplýst að hann muni snúa til Praia da Luz ásamt Kate eiginkonu sinni á þessu ári. Foreldrar hinnar horfnu Madeleine McCann dvelja nú á Spáni en Kate hefur ekki komið til staðarins þar sem dóttir þeirra hvarf í meira en tvö ár. Það hefur Gerry hinsvegar gert. 9.10.2009 10:53
Á annað hundrað féllu og særðust í sprengjuárás í Pakistan Yfir fjörutíu manns fórust og meira en eitthundrað særðust í sprengjuárás á markaðstorg í borginni Peshawar í Pakistan í dag. Sprengjan var í bíl sem ekið var inn á torgið. 9.10.2009 10:27
Barack Obama fær friðarverðlaun Nóbels Barack Obama, forseti Bandaríkjanna hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Norska Nóbelnefndin sem úthlutar þessum verðlaunum tilkynnti um þetta í dag. 9.10.2009 09:20