Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kínverjar sármóðgaðir út í Bandaríkjamenn Kínverjar hafa gagnrýnt Bandaríkjamenn harðlega fyrir að hafa veitt Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbet, Gullorðu Bandaríkjaþings í gær. Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins segir orðuveitinguna hafa grafið undan samskiptum landanna. 18.10.2007 08:26
Einn lagður inn á spítala eftir að hafa drukkið mengað vatn í Osló Íbúar Óslóar þurfa að minnsta kosti að bíða í tvær vikur áður en þeir geta óhræddir neytt drykkjarvatns úr krönum á ný. Þangað til er fólki ráðlagt að sjóða allt vatn í þrjár mínútur fyrir neyslu. Einn maður hefur verið lagður inn á spítala. 18.10.2007 08:01
Minn bingó vinningur....nei minn Breskur dómari hefur stöðvað greiðslu á 120 milljóna króna bingó vinningi eftir heiftarlegar fjölskyldudeilur um hver ætti hvað. 17.10.2007 16:52
Mamma Madeleine ekki nógu móðurleg Kate McCann telur að hún sé áreitt af fólki sem telji hana flækta í hvarf Madeleine af því að útlit hennar sé ekki nógu móðurlegt. Susan Healy, móðuramma Madeleine viðurkennir að hjónin hafi gert hræðileg mistök þegar þau skildu börnin þeirra þrjú eftir ein í íbúðinni í Praia da Luz. 17.10.2007 16:38
Bannað að reykja utandyra Borgarstjórnin í Oakland í Kaliforníu hefur einróma samþykkt ný lög sem banna reykingar utandyra á veitingahúsum. 17.10.2007 16:09
Angelina Pedersen Ozzy, Scarlett, Angelina, Bono og Shakira eru flutt til Danmerkur. Og einnig John Lennon. 17.10.2007 15:10
Tyrkneski herinn fékk heimild til innrásar í Írak Tyrkneska þingið samþykkti í dag með miklum meirihluta að gefa tyrkneska hernum heimild til þess að ráðast á víghreiður Kúrda í Norður-Írak. 17.10.2007 15:05
Ofurherskip til skrauts í norskum höfnum Norska ríkisendurskoðunin segir að norski flotinn hafi ekki aðstöðu til þess að þjálfa mannskap á nýjar ofurfreigátur sem pantaðar hafa verið frá Spáni. 17.10.2007 14:18
Fáleikar með Danaprinsum Danska Extra Bladet heldur því fram að kalt sé milli þeirra bræðra Friðriks krónprins og Jóakims. 17.10.2007 13:28
Ævaforn fótspor bylta þróunarkenningum Breskir vísindamenn fundu fyrir skömmu steingervð fótspor af eðlu sem talin eru vera um 315 milljón ára gömul. Uppgötvunin bendir til þess að eðlur hafi komið fram á sjónarsviðið mun fyrr en áður hefur verið talið. 17.10.2007 12:39
Íransforseta boðið til Rússlands Pútín Rússlandsforseti hefur boðið Ahmadinejad Íransforseta í opinbera heimsókn til Moskvu til að ræða samskipti ríkjanna og kjarnorkudeiluna við Írana. Íransforseti hefur þekkst boðið. 17.10.2007 12:22
Leyniþjónustumaður ákærður í máli Önnu Politkovskaya Níu hafa verið ákærði í Rússlandi fyrir morðið á blaðamanninum Önnu Politkovskaya sem var skotin til bana í október á síðasta ári. Meðal þeirra sem eru ákærðir er yfirmaður í rússnesku leyniþjónustunni. 17.10.2007 11:39
Hún gæti verið dáin -foreldrar Madeleine Foreldrar Madeleine McCann hafa nú viðurkennt í fyrsta skipti að hún kunni að vera dáin. Þau hafa fram til þessa ekki viljað ljá máls á því. 17.10.2007 11:31
Myrti eiginkonu sína í réttarsal Þrír létust og tveir særðust þegar albanskur karlmaður hóf skothríð inni í réttarsal í borginni Reggio Emilia á Ítalíu í morgun. Meðal þeirra sem létust var kona mannsins en réttarhöld í skilnaðarmáli þeirra hjóna stóðu yfir þegar maðurinn skaut hana. 17.10.2007 11:16
Bróðir barnaníðings; gefðu þig fram Bróðir barnaníðingsins sem alþjóðalögreglan Interpol leitar að hefur hvatt hann til þess að gefa sig fram. 17.10.2007 11:04
Bretar íhuga að gera tilkall til svæða við Suðurskautslandið Bresk stjórnvöld íhuga nú að gera tilkall til yfirráðar yfir hafsvæði við Suðurskautslandið sem er um milljón ferkílómetrar að stærð. Með því vilja Bretar tryggja hagsmuni sína á svæðinu en frestur til að gera tilkalla til svæða við Suðurskautslandið rennur út í maímánuði árið 2009. 17.10.2007 11:04
Drykkjarvatn Oslóar eitrað Hættulegur sníkill hefur fundist í drykkjarvatni frá veitu sem sér 80 prósentum Oslóarborgar fyrir vatni. 17.10.2007 10:30
Nærri 8 þúsund prósent verðbólga Verðbólgan í Afríkuríkinu Zimbabwe jókst um nærri 1.500 prósentustig í síðastliðnum mánuði. Verðbólgan mælist nú 7.982,1 prósent og hefur aldrei verið hærri. 17.10.2007 09:20
Bhutto snýr aftur til Pakistan Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, hyggst snúa aftur til heimalands síns á morgun eftir nærri átta ára sjálfskipaða útlegð. Þetta kom fram í máli Bhutto á blaðamannafundi í Dubai í morgun. 17.10.2007 08:53
Innflytjendur valda samfélagslegum vandamálum í Bretlandi Vaxandi fjöldi innflytjenda frá Austur Evrópu til Bretlands hefur valdið auknum samfélagslegum vandamálum þar í landi. Þetta kemur fram í skýrslu breskra stjórnvalda sem birt var í morgun. 17.10.2007 08:34
Kínverjar mótmæla fundi Bush og Dalai Lama Bush Bandaríkjaforseti hitti gær Dalai Lama, andlegan leiðtoga Tíbet, þrátt fyrir hörð mótmæli kínverskra stjórnvalda. Leiðtogarnir hittust í íbúð Bandaríkjaforseta. 17.10.2007 07:59
Sænskar orrustuþotur til Tælands Búist er við að Tælenski flugherinn kaupi sænskar Gripen orrustuþotur frekar en bandarískar F-16 þotur, þegar kemur að því að skipta út hluta af orrustuflugflota landsins. 16.10.2007 15:51
Líbýa, Víetnam og Burkina Faso í öryggisráðið Líbýa, Víetnam og Burkina Faso voru í dag kosin í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2008-2009. Ísland býður sig fram til ráðsins fyrir næsta tímabil á eftir. 16.10.2007 15:48
Engar myndir fundust af Madeleine Portúgalska lögreglan hefur ekki fundið neinar vísbendingar um Madeleine McCann meðal efnis á 150 tölvum grunaðra barnaníðinga . Vonast hafði verið til að komast á snoðir um hvarf stúlkunnar í tengslum við stærstu rannsókn lögreglunnar á barnaníðingum í landinu til þessa. 16.10.2007 14:45
Danaprinsi snúið frá Eystri-landsrétti Jafnvel Jóakim Danaprins komst ekki framhjá öryggisvörðum við Eystri-Landsréttinn í Kaupmannahöfn í dag, þegar þar fóru fram vitnaleiðslur í máli meintra hryðjuverkmanna sem handteknir voru í Óðinsvéum á dögunum. 16.10.2007 14:30
Vilja ekki að Dalai Lama fái orðu Bandaríkjaþing ætlar á morgun að veita Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta, heiðursorðu. Af því tilefni fundar hann með Bush Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í dag. Kínverjar eru æfareiðir Bandaríkjamönnum vegna þessa - vilja að fundinum verði aflýst og að orðan alls ekki veitt. 16.10.2007 13:52
Fjögurra hæða risaeðla Steingervingafræðingar í Argentínu hafa fundið einstaklega heillega beinagrind af einhverri stærstu risaeðlu sem um getur. 16.10.2007 13:45
Andvaka sebrafiskar Fiskar hafa kannski ekki augnlok, en þeir sofa samt. Og sumir þeirra þjást jafnvel af svefntruflunum. 16.10.2007 13:39
Henning Mankell gefur þorp í Afríku Sænski rithöfundurinn Henning Mankell hefur gefið 150 milljónir króna til þess að byggja SOS-barnaþorp í Mósambík. 16.10.2007 13:23
Engan sakaði í árekstri tveggja flugvéla á Heatrow Mikið lán var að engan sakaði og ekki kviknaði eldur þegar tvær farþegaflugvélar skullu saman á Heathrow flugvelli í Lundúnum í gærkvöldi. 16.10.2007 12:26
Vilja fjölga klósettum í heiminum Sérfræðingar í heilbrigðis- og hreinlætismálum frá yfir fjörtíu löndum hittast á ráðstefnu í Nýju Delí á Indlandi í lok mánaðarins. Markmiðið er að finna leiðir til að fjölga klósettum í heiminum. 16.10.2007 12:20
Afganskur harmleikur Afgönsk móðir og fjögur börn hennar létu lífið þegar hún reyndi að hindra son sinn í að gera sjálfsmorðssprengjuárás á erlenda hermenn í landinu. 16.10.2007 10:56
Nýskráðum bílum fækkar í Evrópu í september Nýskráningum bíla innan Evrópusambandsins og á Íslandi, í Noregi og Sviss, fækkaði um eitt og hálft prósent miðað við sama mánuð í fyrra eftir því sem fram kemur í tölum Samtaka bílaframleiðenda í Evrópu. 16.10.2007 10:48
Fundu göng undir landamærum Egyptalands og Palestínu Egypsk yfirvöld hafa fundið tvö göng sem liggja undir landamæri Palestínu og Egyptalands. Svo virðist sem göngin hafi verið notuð til að smygla vopnum og fíkniefnum milli landanna. Þrír menn hafa verið handteknir vegna málsins. 16.10.2007 10:16
„Ruglaði" barnaníðingurinn talinn Kanadamaður Grunaður internet-barnaníðingur sem Interpol hefur leitað að hefur verið nafngreindur sem Kanadamaðurinn Christopher Paul Neil. Alþjóðalögreglan hefur birt nýja mynd af manninum úr öryggismyndavél á flugvelli í Bangkok í Taílandi. Þar er hann með rakað höfuð og gleraugu. 16.10.2007 10:09
Kínverjar sprengja lengstu kínverjakeðju í heimi Borgaryfirvöld í kínversku borginni Liuyang vona að borgin komist á spjöld sögunnar og síður heimsmetabóka með því að sprengja yfir 18 km langa keðju af "kínverjum" eða hvellbombum. Þessi sprengjuveisla er samvinnuverkefni 35 flugeldaverksmiðja í borginni. 16.10.2007 09:26
Rússar selja Írönum þotuhreyfla í herþotur Íranir hafa ákveðið að kaupa 50 rússneska RD-33 þotuhreyfla sem sérstaklega eru hannaðir fyrir herþotur. Gert er ráð fyrir því að Pútín, forseti Rússlands, undirriti samkomulag þessa efnis á meðan opinber heimsókn hans í Íran stendur yfir. 16.10.2007 09:11
Lífstíðar fangelsi fyrir að myrða tvö börn Japönsk kona var í gær dæmd í lífstíðar fangelsi þar í landi fyrir að myrða tvö börn. Konan stakk börnin með hníf og losaði sig við líkin á hrísgrjónaakri. 16.10.2007 08:50
Kosningasjóður Hillary Clinton stækkar hratt Kosningasjóður Hillary Clinton, sem sækist eftir útnefningu demókrata fyrir bandarísku forsetakosningarnar, stækkar nú hraðar en nokkru sinni fyrr. Henni hefur nú tekist að safna nærri 200 milljónum króna meira en helsti keppinautur hennar Barack Obama. 16.10.2007 07:59
Írakar biðja Tyrki að hugsa sig um Íraska stjórnin hvatti Tyrki í dag til að hætta við yfirvofandi sókn gegn kúrdískum skæruliðum yfir landamæri Tyrklands og Íraks. 15.10.2007 18:10
Pútin fer til Írans í fyrramálið Pútin Rússlandsforseti ætlar að fara til Írans í fyrramálið, þó að njósnir hafi borist um að þar verði setið um líf hans. Pútin var í Þýskalandi í dag og búist var við að hann færi til Írans í kvöld. Því var þó frestað til morguns. 15.10.2007 18:09
Bíll Díönu gæti hafa lent í árekstri Bíllinn sem Díana prinsessa var í þegar hún lést gæti hafa rekist á annan stóran og dökkan bíl þegar hann keyrði inn göngin í París. Þetta eru upplýsingar vitna við réttarrannsókn á dauða Díönu og Dodi Fayed. 15.10.2007 16:57
Vírus strádrepur seli Óþekktur vírus hefur í sumar og haust drepið á þriðja þúsund seli í Kattegat og Skagerrak. 15.10.2007 16:33
"Ruglaði" barnaníðingurinn í Taílandi Alþjóðalögreglan Interpol telur sig hafa fundið barnaníðing sem birti myndir á internetinu af sjálfum sér þar sem hann misnotaði ung börn í Kambodíu og Víetnam. Maðurinn er talinn vera breskur enskukennari sem nú er í Taílandi. Hann hafði ruglað andlit sitt, en Interpol beitti sömu aðferð til að afrugla andlit hans. 15.10.2007 15:53
Serbar draga lappirnar í málum stríðsglæpamanna Yfirsaksóknari stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Haag, sagði í dag að samvinna serbneskra stjórnvalda hefði skánað nokkuð á síðasta ári, en væri samt ekki nógu góð. 15.10.2007 14:43