Fleiri fréttir

Sjúkrahús í Los Angeles losa sig við heimilislausa

Saksóknarar í Los Angeles hafa skráð borgaralega kvörtun gegn tveimur sjúkrahúsum og flutningafyrirtæki fyrir að losa sig við heimilislausa sem þurfa hjálp. Vitað er um fjögur aðskilin atvik. Á meðal þeirra sem hafa verið sendir í burtu er hinn 54 ára gamli Gabino Olvera.

Mikil endurnýjun í stjórn Browns

Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, skipaði í dag Jacqui Smith innanríkisráðherra í ríkisstjórn sinni og David Miliband, fráfarandi umhverfisráðherra, sem utanríkisráðherra landsins. Smith er fyrsta konan sem gegnir embætti innanríkisráðherra en mikil endurnýjun er í stjórn Browns.

Lockerbie-málið verður tekið upp á ný

Hæstiréttur Skotlands þarf að taka fyrir áfrýjun í máli líbíska leyniþjónustumannsins Abdel Basset al-Megrahi sem sakfelldur var fyrir aðild sína að Lockerbie sprengjuárásinni árið 2001. Sjálfstæð eftirlitsnefnd skoska ríkisins komst að þessari niðurstöðu í morgun. Víst þykir að aðstandendur fórnarlambanna eigi eftir að mótmæla niðurstöðunni harkalega.

FIFA endurskoðar hæðarbann

Forseti FIFA, Sepp Blatter, sagði í dag að hann myndi endurskoða ákvörðun sambandsins um að banna alþjóðlega knattspyrnuleiki 3.000 metrum yfir sjávarmáli og athuga hvort ætti að ógilda hana. Yfirlýsing Blatters kemur í kjölfar fundar með forseta Bólivíu, Evo Morales. Það var í gær sem að FIFA ákvað að hækka viðmiðið úr 2.500 metrum í 3.000. Lokaniðurstöðu í málinu verður að vænta í næstu viku.

Unglingspiltur dregur játningu til baka í Bandaríkjunum

Kenneth Bartley hefur dregið játningu sína til baka, en hann var dæmdur fyrir tæplega tveimur árum fyrir morð á aðstoðarskólastjóranum sínum. Einnig var hann dæmdur fyrir tilraun til manndráps. Bartley, sem er 15 ára, segir nú að þáverandi lögfræðingur sinn hafi sagt honum að játa.

Eþíópía býr sig undir innrás frá Eritreu

Stjórnvöld í Eþíópíu sögðu frá því í dag að þau séu að búa sig undir innrás frá grannþjóðinni Eritreu. Löndin tvö börðust hatrammlega um svæði á landamærum sínum á árunum 1998 til 2000. Ráðamenn í Eþíópíu segja undirbúninginn fyrirbyggjandi og til þess að geta hrundið árás ef til hennar kemur. Stjórnvöld í Eritreu neita því hins vegar að þau hafi í hyggju að ráðast inn í Eþíópíu.

Fjöldi fanga eykst ört

Fjöldi fanga í fangelsum í Bandaríkjunum fjölgaði um 42.000 síðasta ár. Það er mesti fjöldi nýrra fanga síðan árið 2000. Samtals eru 2,2 milljónir manna í fangelsum í Bandaríkjunum.

Indónesískum flugfélögum bannað að fljúga í Evrópu

Öllum indónesískum flugfélögum hefur verið bannað að fljúga til Evrópusambandsins frá og með næstu viku. Ekkert indónesískt flugfélag flýgur um þessar mundir til Evrópu svo að bannið er frekar viðvörun en nokkuð annað.

Hörð átök í fátækrahverfum Rio de janeiro

Að minnsta kosti 18 létu féllu í hörðum bardögum brasílískra lögreglumanna og íbúa í fátækrahverfi í Rio de Janeiro í dag. Fjölmennar sveitir lögreglumanna fóru inn í hverfið og segja yfirvöld að hinir föllnu hafi verið grunaðir um eiturlyfjasmygl.

Vilja aftökur án dóms og laga

Meirihluti íbúa Gvatemala eru þeirrar skoðunar að lögregla og aðrir sjálfskipaðir baráttumenn gegn glæpum sé stætt á því að myrða glæpamenn án dóms og laga. Þetta kom fram í könnun dagblaðs sem sagt er það virtasta þar í landi. Landsmenn trúa því margir að þessháttar aðgerðir myndu draga úr glæpum í landinu.

Ræningjarnir skildu tuttugu milljarða eftir

Réttarhöld standa nú yfir sakborningum í stærsta peningaráni í sögu Bretlands. Ránið var framið í febrúar í fyrra og komust mennirnir á brott með sex og hálfan milljarð íslenskra króna í reiðufé þegar þeir rændu peningageymslu í Kent. Þeir neyddust hins vegar til að skilja um tuttugu milljarða eftir á staðnum, vegna þess að þeir komu þeim ekki fyrir í bílnum sem þeir notuðu við ránið.

Krefjast gagna vegna hlerana

Öldungadeild bandaríska þingsins hefur krafið Hvíta Húsið um skjöl sem tengjast eftirliti stjórnvalda á grunuðum hryðjuverkamönnum. Ráðamenn í Hvíta húsinu hafa hingað til neitað að afhenda gögnin og Bush forseti hefur þvertekið fyrir að lög hafi verið brotin þegar hleranir voru fyrirskipaðar án þess að fyrir þeim væru heimildir.

Ekki séð aðra eins úrkomu fyrr

Íslendingur sem búið hefur í Hull í 20 ár segir ástandið skelfilegt á flóðasvæðunum í Bretlandi. Samgöngur eru enn í lamasessi á Englandi og í Wales eftir flóðin þar í gær og fyrradag. Íbúarnir bíða milli vonar og ótta því spáð er meiri úrkomu á svæðinu um næstu helgi.

Boðar breytingar

Gordon Brown boðaði breytingar og nýja forgangsröðun þegar hann tók við embætti forsætisráðherra Bretlands í dag. Þingmenn allra flokka á breska þinginu hylltu Tony Blair eftir að hann flutti síðasta ávarp sitt á þinginu í morgun. Síðdegis sagði Blair af sér þingmennsku en hann tekur við embætti sérstaks erindreka fjórveldanna svo kölluðu í friðarviðræðum fyrir botni Miðjarðarhafs.

Tennur faraós

Fornleifafræðingar í Egyptalandi hafa fundið múmíu Hatshepshut sem er 3000 ára gömul. Hún var ein fárra kvenna sem voru faraóar og frægasti kvenleiðtogi Egyptalands. „Mesta fornleifauppgötvun síðan grafhýsi faraósins Tutankhamons fannst 1922,“ segir yfirmaður fornleifamála í Egyptalandi.

Blair verður sérstakur erindreki Miðausturlanda-kvartettsins

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur verið tilnefndur sérstakur erindreki hins svokallaða Miðausturlandakvartetts sem vinnur að friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Frá þessu greindi talsmaður hjá Sameinuðu þjóðunum í dag. Blair hefur jafnframt sagt af sér sem þingmaður á breska þinginu.

Meira en helmingur jarðarbúa í borgum árið 2008

Meira en helmingur jarðarbúa mun búa í borgum árið 2008, flestir í þróunarlöndunum. Þetta kemur fram í skýrslu Mannfjöldastofnunar Sameinuðu Þjóðanna. Fólksfjöldi í þéttbýli mun tvöfaldast í borgum Afríku og Asíu næstu 30 árin.

Eftirlitsmenn fá leyfi til að skoða kjarnaofn í N-Kóreu

Bráðlega fá eftirlitsmenn Sameinuðu Þjóðanna leyfi til að skoða kjarnaofn í Norður Kóreu. Þetta verður fyrsta alþjóðlega eftirlitssveitin sem fær leyfi til að skoða Yongbyon kjarnaofninn síðan 2002. Fjórir menn munu skipa sveitina.

MCC styrkir Mósambík um 507 milljónir dala

Laura Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að MCC sjóðurinn muni veita Mósambík fjárhagslega aðstoð. Sjóðurinn hyggst veita Mósambík 507 milljónir dala til vegagerðar og til að styrkja baráttuna við malaríu. Malaría banar 150 manns á dag í Mósambík, meirihluti þeirra eru börn.

Þýskir stjórnmálamenn fordæma tölvugerða mynd

Þýskir stjórnmálamenn hafa fordæmt tölvugerða mynd af leiðtogum Póllands vera að sjúga brjóst þýska kanslarans, Angelu Merkel. Myndin birtist á forsíðu pólska vikuritsins Wprost, og er titluð sem „Stjúpmóðir Evrópu."

Geri mitt allra besta fyrir bresku þjóðina

Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, sagðist myndu gera sitt allra besta í starfi fyrir bresku þjóðina og boðaði breytingar á tröppum Downing-strætis 10 þangað sem hann mun flytjast. Þangað kom hann skömmu eftir að Blair-fjölskyldan hafði kvatt þessi híbýli sín til síðustu tíu ára.

Missti hluta fótanna í skemmtigarði í Nashville

Líðan 13 ára stúlku sem missti hluta af báðum fótum sínum í síðustu viku er stöðug. Kaitlyn Lasitter var í leiktæki í skemmtigarði í Nashville þegar vír úr tækinu slitnaði og hjó lappinar af henni fyrir ofan ökla.

Fuglaflensa í Þýskalandi

Þjóðverjar fundu þrjá sýkta svani í Leipzig í gær, og um helgina fundust sex tilfelli í fuglum í Nürnberg. Þetta er fyrstu tilfellin sem að fuglaflensan finnst í Þýskalandi á þessu ári.

Réttargeðlæknar í Svíþjóð óttast sjúklinga sem hafa í hótunum

Réttargeðlæknar í Sundsvall í Svíþjóð hafa gefið út yfirlýsingu um að þeir ætli að hætta að leggja mat á ástand hættulegra sjúklinga, sem haldnir eru ofsóknarhugsunum eða hafa í hótunum, undir eigin nafni. Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að geðveikur maður er grunaður um að hafa skotið lögreglumann í Nyköping í Svíþjóð til bana.

Mugabe reiður út í spillt fyrirtæki

Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, hótaði í morgun öllu illu gegn erlendum fyrirtækjum og námum í landinu. Mugabe segir mörg fyrirtækjanna vera spillt og segist hann ætla að þjóðnýta fyrirtækin ef að þau halda áfram að reyna að grafa undan honum.

Niðurstaða áfrýjunar birt í dag

Suður-Ameríkulönd komast að því í dag hvort að FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandið, snúi við úrskurði sínum um að banna fótboltaleiki sem fara fram ofar en 2.500 metra yfir sjávarmáli. Suður-ameríska knattspyrnusambandið áfrýjaði banninu þar sem þau sögðu það ósanngjarnt og ónauðsynlegt.

Fangelsi fyrir að smita börn af HIV

17 starfsmenn í heilbrigðisgeiranum í Kasakstan hlutu fangelsisdóm fyrir að smita tugi barna af HIV veirunni. Alls voru 21 kærðir en fjórir af æðstu mönnum hópsins fengu skilorðsbundna dóma, sem vakti mikla reiði á meðal foreldra barnanna.

Fimmta hver bjór- og gosflaska keypt ólöglega í Danmörku

Fimmta hver bjór- og gosflaska í Danmörku er keypt á ólöglegan hátt samkvæmt skýrslu sem skattaráðuneyti Danmerkur kynnir í dag. Fram kemur á viðskiptafréttavefnum Börsen að Danir leggi enn þá mikið á sig til þess að komast hjá því að greiða skatta af þessum drykkjarvörum.

Fjórir látnir í flóðum á Bretlandi

Tala látinna í flóðum á Bretlandi síðustu daga hefur hækkað og nú er ljóst að fjórir hafa látið lífið. Lögreglan í Worchestershire fann í kvöld lík ökumanns sem saknað hafði verið. Maðurinn hafði horfið stuttu eftir að hann hafði hafði náð sambandi við eiginkonu sína og sagt henni að bíll hans væri umlukinn vatni.

Ræningjar Johnstons ítreka hótanir sínar

Mannræningjarnir sem haldið hafa breska blaðamanninum Alan Johnston föngnum síðan í mars hafa ítrekað hótanir sínar um að myrða Johnston verði ekki tekið undir kröfur þeirra. Ræningjarnir sem sagðir eru tilheyra samtökunum „Her íslams,“ sendu frá sér tilkynningu í dag, degi eftir að mynband birtist af Johnston þar sem hann var sýndur með sprengjubelti um sig miðjan.

Rússar sagðir tregir til að samþykkja Blair sem sáttasemjara

Vesturveldunum gekk illa í dag að komast að samkomulagi um að tilnefna Tony Blair sem sáttasemjara í Mið-Austurlöndum. Búist var við því að „kvartettinn" svokallaði, en hann skipa fulltrúar frá Bandaríkjunum, Evrópusambandinu, Rússlandi og Sameinuðu Þjóðunum, myndi tilkynna um útnefningu Blairs sem aðalsáttasemjara í dag en sú ákvörðun hefur dregist.

Mótmæli í Íran vegna bensínskömmtunar

Íranskur almenningur hefur mótnælt fyrirhuguðum skömmtunum á bensíni í höfuðborg landsins, Teheran í dag. Kveikt var í bensínstöð og hrópuðu mótmælendur ókvæðisorð að stjórnvöldum. Fréttastofa Reuters hefur eftir heimildamanni á staðnum að eldar logi glatt á bensínstöð í fátækari hverfum borgarinnar og að kveikt hafi verið í bílum.

Tilkynnt um að Blair leiði friðarviðræður á morgun?

Svo gæti farið að Tony Blair, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, verði tilnefndur sem sáttasemjari á milli stríðandi fylkinga í Mið-Austurlöndum strax á morgun. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir háttsettum bandarískum embættismanni.

Búðafell bjargaði ólöglegum innflytjanda úr sjávarháska

Ólöglegum innflytjanda var bjargað á dögunum úti fyrir ströndum Möltu. Maðurinn hafði verið í hópi 26 manna sem freistuðu þess að komast til Evrópu á lítilli bátskænu sem hvolfdi með þeim afleiðingum að aðeins fjórir komust lífs af. Manninum var bjargað um borð í togarann Búðafell sem skráð er á Möltu, en gerði áður út frá Fáskrúðsfirði eins og sjá má á myndinni.

Abbas bannar vopnaburð

Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, hefur gefið út tilskipun, sem bannar Palestínumönnum að bera vopn og sprengiefni án sérstaks leyfis. Ákvörðunin miðar að því að veikja stöðu Hamasliða á Vesturbakkanum og er ein af mörgum tilskipunum sem forsetinn hefur gefið út í þessum tilgangi síðan hann leysti ríkisstjórn Palestínu frá völdum.

Bensín skammtað í einu stærsta olíuríki heims

Annar stærsti olíuframleiðandi innan olíusamtakanna OPEC, Íran, ætlar að skammta bensín til landsmanna frá og með morgundeginum, að því er íranska ríkissjónvarpið greindi frá í kvöld. Tilgangurinn er að hamla gegn eldsneytiseyðslu í landinu.

Hitabylgja í Evrópu kostar 31 mannslíf

Að minnsta kosti 31 hefur látið lífið síðustu daga vegna hitabylgju sem gengið hefur yfir í suðausturhluta Evrópu. Hitinn mældist víða 45 gráður í Grikklandi í dag þar sem almenningsþjónustu og fyrirtækjum var víða lokað. Hitinn var það mikill að eldur kviknaði í rafmagnslínum og olli rafmagnsleysi.

Fjórir af Minnesota-sexburunum látnir

Einungis tveir af sexburunum sem fæddust í Minnesota 10 júní eru á lífi. Fjórði sexburinn lést á sunnudaginn. Þrír voru látnir þegar vika hafði liðið frá fæðingu. Ástand hinna tveggja eftirlifandi er tvísýnt. Forsvarsmenn sjúkrahússins þar sem fjölskyldan dvelur vildu ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Tugir hafa látist í hitabylgju í Suður-Evrópu

Samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar hafa að minnsta kosti 40 manns látist í hitabylgju sem gengur nú yfir Suður-Evrópu. Í Rúmeníu hafa 29 látist, fjórir í Grikklandi, þrír í Albaníu og að minnsta kosti fimm í Bosníu, Króatíu og Tyrklandi.

Saksóknari í máli Milosevic ósátt við lát hans

Carla Del Ponto, saksóknari Sameinuðu Þjóðanna segir að dauði Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Serbíu, ásæki sig. Hún lýsir því hversu ósátt hún sé við að hann hafi dáið áður en dómur féll yfir honum fyrir stríðsglæpi í stjórnartíð hans.

Tannhvítun ekki hættulaus

Í mörgum tegundum búnaðar til tannhvítunar hefur fundist ólöglega mikið magn vetnisperoxíðs, sem leysir upp liti. Efnið er aðallega notað í hárliti og sótthreinsiefni. Í mælingu á vegum TSI-eftirlitsins var magn vetnisperoxíðs yfir settum mörkum í 18 af 20 vörum. Í einu tilfelli reyndist vera notaður 230 sinnum löglegur skammtur.

Danir greiða mest í skatt

Launþegar í Danmörku borga mestan skatt miðað við önnur Evrópusambandslönd, eða 59 prósent. Þetta kemur fram í samantekt frá Evrópsku hagstofunni sem greint er frá í Jyllands-Posten í dag.

Uppbyggingu lengstu brúar í heimi lokið

Uppbyggingu lengstu brúar í heimi var formlega lokið í dag. Brúin, sem er í Kína, er 36 kílómetra löng verður þó ekki tekin í notkun fyrr en á næsta ári. Brúin mun verða sexbreið og heildarkostnaður við hana verður í kringum 97 milljarða króna.

Sjá næstu 50 fréttir