Erlent

Tugir hafa látist í hitabylgju í Suður-Evrópu

Börn í Norður-Grikklandi kæla sig í gosbrunni
Börn í Norður-Grikklandi kæla sig í gosbrunni MYND/AP

Samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar hafa að minnsta kosti 40 manns látist í hitabylgju sem gengur nú yfir Suður-Evrópu. Í Rúmeníu hafa 29 látist, fjórir í Grikklandi, þrír í Albaníu og að minnsta kosti fimm í Bosníu, Króatíu og Tyrklandi.

Viðvörun vegna hitabylgjunnar var gefin út í Grikklandi og á Ítalíu í dag. Hitinn á sumum svæðum hefur farið upp í 46 gráður en venjulega er hann í kringum þrjátíu gráður á þessum árstíma. Vatnsból í Grikklandi hafa lækkað vegna hita og regnskorts og hefur það haft í för með sér mikinn skort á rafmagni.

Yfirvöld í Grikklandi hafa gripið til þess ráðs að gefa opinberu starfsfólki frí hluta úr degi í dag og á morgun. Markmiðið er að reyna að draga úr rafmagnsnotkun og eins að leyfa fólki að vera heima á meðan mesti hitinn er. Yfirvöld í Tyrklandi hafa gripið til svipaðra aðgerða og víða hefur verið komið á fót sérstökum samkomustöðum fyrir heilsuveila þar sem loftkæling er næg. Einnig er biðlað til almennings að fara sparlega með rafmagn.

Það er hæð yfir Miðjarðarhafi sem veldur hitabylgjunni og var hitamet slegið á Ítalíu í gær þegar hitinn í Amendola fór upp í 47 gráður. Búist er við að hitinn nái hámarki í dag og að bylgjan færist í austurátt á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×