Erlent

Fjórir látnir í flóðum á Bretlandi

MYND/Getty

Tala látinna í flóðum á Bretlandi síðustu daga hefur hækkað og nú er ljóst að fjórir hafa látið lífið. Lögreglan í Worchestershire fann í kvöld lík ökumanns sem saknað hafði verið. Maðurinn hafði horfið stuttu eftir að hann hafði hafði náð sambandi við eiginkonu sína og sagt henni að bíll hans væri umlukinn vatni.

Þyrlur leituðu mannsins í nokkrar klukkustundir en það voru kafarar sem fundu manninn látinn í bifreið sinni á tveggja metra dýpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×