Fleiri
Leiðtogar minnast Jeltsíns 24.4.2007 11:09 Í koju kerling -barnapían er komin Í sveitarfélaginu Bamble í Telemark í Noregi, geta barnafjölskyldur nú fengið barnapössun yfir nóttina, til þess að foreldrarnir geti búið til fleiri börn. Bamble er lítið sveitarfélag og íbúum hefur farið fækkandi þar. Það var Öysten Polland, forstjóri barnaheimilis sveitarfélagsins sem fann þessa lausn á vandanum. 24.4.2007 09:31 Veðjað á nafn nýfæddrar prinsessu Það má telja næsta öruggt að nýfædd prinsessa í Danmörku, dóttir Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu, beri nafnið Margrét ef marka má veðbankann Ladbrokes. 23.4.2007 23:01 Hillary og Obama njóta jafnmikils stuðnings Öldungadeildarþingmaðurinn Barack Obama, sem sækist eftir að verða forsetaefni demókrata í kosningum í Bandaríkjunum á næsta ári, nýtur nú jafnmikilla vinsælda og Hillary Clinton, starfssystir hans, sem einnig sækist eftir útnefningu demókrata. 23.4.2007 22:42 NASA birtir þrívíddarmyndir af sólinni Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, birti dag fyrstu þrívíddarmyndirnar sem teknar hafa verið af sólinni. Myndirnar voru teknar með tveimur gervitunglum sem eru hvort sínum megin sólarinnar en með því að hafa þá þannig og taka mynd náði Nasa dýptinni í myndunum. 23.4.2007 22:31 Ræður sér lögfræðing til að tryggja starfslok sín Paul Wolfowitz, bankastjóri Alþjóðabankans, hefur ráðið sér lögfræðing til þess að gæta hagsmuna sinna fari svo að hann verði rekinn frá bankanum. 23.4.2007 21:50 Staðfastur í friði, frelsi og framförum „Hann hélt um stjórnartaumana á erfiðum tímum en sagan mun bera honum fagurt vitni því hann var hugrakkur og staðfastur í helstu áherslumálum sínum, friði, frelsi og framförum," sagði Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í yfirlýsingu í dag í kjölfar fráfalls Borísar Jeltsíns, fyrrverandi forseta Rússalands. 23.4.2007 21:30 Fórnarlambanna í Virgina Tech minnst í skólanum í dag Nemendur og kennarar við Virgina Tech háskólann minntust í dag þeirra 33 sem létust í skotárás í skólanum fyrir viku. Lítill hópur kom saman um klukkan sjö í morgun við heimavistina þar sem Cho Seung-hui lét fyrst til skarar skríða og drap tvo. 23.4.2007 21:05 Telja hugsanlegt að Íranar hafi rænt fyrrverandi FBI-manni Bandaríkjastjórn telur hugsanlegt að fyrrverandi starfsmaður bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sé í haldi Írana. Þetta hefur Reuters-fréttaveitan eftir ónafngreindum heimildarmanni í bandaríska utanríkisráðuneytinu. 23.4.2007 20:19 Átti marga aðdáendur og fjendur Boris Jelstín, fyrrverandi Rússlandsforseti, lést í dag, 76 ára að aldri. Ekkert hefur verið gefið formlega út um banamein hans en líklegast talið að hjarta Jeltsíns hafi gefið sig. Óhætt er að segja að hann hafi átt sér bæði ótalda aðdáendur og fjendur enda litríkur maður sem þótti oft á tímum sýna einræðistilburði. 23.4.2007 19:45 Þrír létust í flugeldasprengingum í Napólí Þrír létust þegar sprenging varð í flugeldaverksmiðju í Napólí á Ítalíu í dag. Eftir því sem ANSA-fréttastofan greinir frá flugu líkamshlutar mörg hundð metra í sprengingunum og rúður í nærliggjandi veitingastöðum brotnuðu. 23.4.2007 19:31 Sjá næstu 50 fréttir
Rússar bulla segir Rice Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að það sé hlægilegt bull í Rússum að þykjast hafa af því áhyggjur að Bandaríkin komi upp eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu. 26.4.2007 09:54
Flugfreyjur SAS enn í verkfalli Flugfreyjur SAS-flugfélagsins eru enn í verkfalli og hefur félagið þurft að aflýsa rúmlega 550 flugferðum. Ferðaáætlanir tugþúsunda farþega hafa raskast af þessum sökum. 26.4.2007 09:15
Refsiaðgerðum ESB gegn EFTA ríkjum lýkur Refsiaðgerðum ESB gegn EFTA ríkjunum er lokið. Ákvörðun þess efnis var tekin af sambandinu og mun samstarf ESB við EFTA-ríkin hefjast að fullu um nýja löggjöf í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Þetta kemur fram í norska dagblaðinu Aftenposten. Blaðið segir að gripið hafi verið til þess ráðs að frysta EFTA-ríkin til að fá þau til að láta meira fé til þróunarsjóða Evrópusambandsins eftir að Búlgaría og Rúmenía fengu aðild í byrjun árs. 25.4.2007 16:33
Mæting nemenda skráð með fingraförum Háskóli í Kína hefur tekið í notkun fingrafaraskanna til þess að fylgjast með mætingu nemenda sinna. Dagblaðið The China daily greindi frá þessu á þriðjudag. Ekki eru víst allir á eitt sáttir við nýja kerfið. 25.4.2007 15:46
Bayrou neitar að styðja annaðhvort Sarkozy eða Royal Francois Bayrou, frambjóðandi miðjumanna í forsetakosningunum í Frakklandi sem fram fóru á sunnudag, segist ekki ætla lýsa yfir stuðningi við annan hvorn frambjóðandann í seinni umferð kosninganna sem fram fer 6. maí. 25.4.2007 14:49
Rannsókn á viðskiptaívilnunum Olmerts Ríkisendurskoðandi Ísraels hefur lagt til að gerð verði lögreglurannsókn á málefnum tengdum Ehud Olmert forsætisráðherra. Hann er grunaður um að hafa ólöglega komið viðskiptatækifærum í kring fyrir vini sína. Þetta á að hafa gerst á meðan Olmert gengdi annarri stöðu í ríkisstjórninni. 25.4.2007 14:31
Fréttamenn hjá Danmarks Radio mótmæla sparnaði Starfsmenn á fréttastofu danska ríkisútvarpsins, Danmarks Radio, lögðu í dag niður vinnu fram til miðnættis til þess að mótmæla þeim mikla sparnaði sem boðaður hefur verið hjá stofnuninni. 25.4.2007 13:30
Vilja að krónprinsinn sé heima að skipta um bleiur Kynja- og mannfræðingar í Danmörku hafa lýst vonbrigðum með að Friðrik krónprins skuli ekki taka sér fæðingarorlof. Honum fæddist ný prinsessa á laugardag, en strax í dag er hann kominn til opinberra starfa á nýjan leik. Þegar þau Mary eignuðust fyrsta barn sitt, soninn Kristján, tók Friðrk sér gott frí. 25.4.2007 13:30
Níu létust í ofsaveðri í Texas/Mexíkó Níu létust í ofsaveðri við landamæri Texas og Mexíkó í gær. Að minnsta kosti 114 slösuðust. Sex hús úr hjólhýsahverfi á svæðinu hafa enn ekki fundist. Chad Foster bæjarstjóri Eagle Pass í Texas þar sem sex létust sagði CNN fréttastofunni að stormurinn hefði valdið mikilli eyðileggingu í bænum. 25.4.2007 13:30
Maraþonhlauparinn lést vegna ofneyslu vatns David Rogers sem lést eftir maraþonhlaupið í London er talinn hafa látist vegna þess að hann drakk of mikið vatn. Dánarorsök hefur ekki verið staðfest, en samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar þjáðist hann af vatnseitrun. 25.4.2007 12:08
Fjöldi þjóðarleiðtoga við útför Jeltsíns Rússar kvöddu í morgun Borís Jeltsín, fyrrverandi forseta sinn, sem lést á mánudaginn. Hann var jarðsunginn með viðhöfn í Dómirkju Krists í Moskvu í morgun. Fjölmargir þjóðarleiðtogar voru viðstaddir útförina. 25.4.2007 12:06
Díana strippaði fyrir Karl Díana prinsessa strippaði fyrir Karl prins, til þess að reyna að bjarga hjónabandi þeirra. Þessu er haldið fram í nýrri bók þar sem prinsessunni er ekki borin vel sagan. Höfundurinn, Tina Brown segir auk þess að hún hafi gifst Karli eingöngu til þess að verða prinsessa. 25.4.2007 12:00
SAS aflýsir öllu flugi frá Kastrup SAS flugfélagið hefur aflýst öllu flugi frá Kastrup vegna flugfreyjuverkfalls. Hundruð manna gistu í flughöfninni í nótt og upp undir 20.000 farþegar verða að breyta ferðaáætlunum sínum af þessum sökum. Farþegar eru hvattir til þess að sleppa því alveg að koma út á flugvöllinn. 25.4.2007 11:48
Ný eyja fannst við strendur Grænlands Ný eyja er fundin við austurströnd Grænlands. Hún er margra kílómetra löng og er í laginu eins og hönd með þrjá fingur. Eyjan er um 640 kílómetra norðan við heimskautsbaug. Hún er komin í ljós vegna bráðnunar grænlensku íshellunnar. 25.4.2007 11:14
Nunnur myrtar fyrir fjársjóð Lögregla í suðurhluta Grikklands leitar nú morðingja tveggja eldri nunna sem voru myrtar í klaustri sínu. Rán á munum úr klaustrinu virðist liggja að baki morðunum. Meðal þess sem hvarf var viðarbútur sem talinn er vera úr krossinum sem Jesú var krossfestur á. 25.4.2007 11:04
Krefjast þess að Johnston verði sleppt Tugir erlendra og palestínskra blaðamanna söfnuðust í dag saman á landmærum Ísraels og Gasasvæðisins til þess að krefjast þess að Alan Johnston, blaðmanni BBC, yrði sleppt. 25.4.2007 10:52
Konum að kenna ef þeim er nauðgað Annar hver norskur karlmaður er þeirrar skoðurnar að ef léttklædd kona daðrar opinskátt við mann, sé það henni sjálfri að kenna ef henni er nauðgað. Þetta kemur fram í könnun sem Amnesty International gerði í landinu. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra, er sleginn yfir þessum tölum. 25.4.2007 10:28
Borís Jeltsín borinn til grafar Útför Borísar Jeltsíns, fyrrverandi forseta Rússlands, fór fram í Moskvu í morgun að viðstöddum fjölmörgum þjóðarleiðtogum fyrr og nú. 25.4.2007 09:58
Ný súper-stjarna finnst í geimnum Stjörnufræðingar hafa fundið plánetu utan við sólkerfi okkar sem líkist jörðinni mest annarra hnatta. Talið er að vatn geti verið á yfirborði hennar. Plánetan er á sporbraut við stjörnuna Gliese 581, sem er 20,5 ljósár í burtu í stjörnumerki Vogarinnar. Vísindamenn áætla að hitastig á plánetunni sé á milli 0-40 stig á celsíus. 25.4.2007 09:58
Sjö létust í sprengjuárás í Afghanistan Sjö afganskir hermenn létust í vegasprengju í Afganistan í morgun. Árásin átti sér stað við landamæri Pakistan. Þetta er síðasta tilfellið í hrinu sprengjuárása á afganskar öryggissveitir í landinu. Hermennirnir voru á moldarvegi í Paktika héraði í suðurausturhluta landsins þegar sprengjan sprakk. 25.4.2007 09:21
Fóstureyðingar heimilaðar í Mexíkóborg Löggjafaryfirvöld í Mexíkóborg samþykktu í dag að heimila fóstureyðingar í borginni og nær það til fyrstu tólf vikna meðgöngu hjá konum. 46 þingmenn studdu frumvarp þessa efnis en 19 voru andsnúnir því. 24.4.2007 23:30
Kanadískt ungmenni ákært fyrir hryðjuverk Bandaríkjaher hefur ákært tvítugan Kanadamann, Omar Khadr, fyrir meðal annars morð og hryðjuverkastarfsemi og verður hann dreginn fyrir sérstakan stríðsglæpadómstól sem Bandaríkjastjórn kom á í Guantánamo-búðunum við Kúbu í fyrra. 24.4.2007 22:39
Cheney deilir hart á demókrata vegna Íraksfrumvarps George Bush Bandaríkjaforseti og Dick Cheney varaforseti skiptust á hörðum skotum við demókrata í dag í tengslum við frumvarp um aukafjárveitingu fyrir Íraksstríðið. 24.4.2007 22:21
Fimmtán látnir eftir sjálfsmorðsárás í Ramadi Fimmtán hið minnsta eru sagðir látnir og 25 særðir eftir sjálfsmorðsárás manns í útjaðri Ramadi í Írak í dag. Maður á stórum flutningabíl sprengdi sig í loft upp þegar lögregla í eftirlitsferð átti leið hjá markaði í norðurhluta borgarinnar. 24.4.2007 21:52
Rooney hetja Manchester United gegn Milan Wayne Rooney var hetja Manchester United sem lagði AC Milan 3-2 í fyrri leik undanúrslita í Meistaradeild Evrópu á Old Trafford í kvöld. Rooney tryggði United sigur með marki þegar hálf mínúta var komin fram yfir venjlegan leiktíma. 24.4.2007 20:45
Myrtu yfir 70 manns á olíuvinnslusvæði í Eþíópíu Uppreisnarmenn í Eþíópíu myrtu í dag að minnsta kosti 74 menn í árás á olíuvinnslusvæði nærri landamærum Sómalíu. 65 þeirra voru Eþíópíumenn en níu kínverskir verkamenn. Þá voru sjö Kínverjar teknir í gíslingu í árásinni. 24.4.2007 20:30
Hundruð manna votta Jeltsín virðingu sína Hundruð manna hafa lagt leið sína Frelsarakirkjuna í Moskvu í dag þar sem lík Borisar Jeltsín, fyrrverandi Rússlandsforseta, hefur staðið uppi á viðhafnarbörum. 24.4.2007 20:00
Fimm ára útlegð fyrir rangan klæðaburð Yfirsaksóknarinn í Teheran sagði í dag að konur sem ekki klæddu sig siðsamlega verði gerðar útlægar frá höfuðborginni í fimm ár. Eftir múslimabyltinguna sem gerð var í Íran árið 1979 voru sett sharía lög sem kveða á um að konur skuli hylja hár sitt og klæðast síðum víðum flíkum til þess að hylja kvenleika sinn. 24.4.2007 17:04
BBC maður við góða heilsu Fréttamaður BBC sjónvarpsstöðvarinnar, sem rænt var á Gaza ströndinni í síðasta mánuði er við góða heilsu, að sögn aðstoðarforsætisráðherra Palestínumanna. Alan Johnston var rænt þar sem hann var á ferð í bíl sínum 12. mars síðastliðinn. Hann hafði flutt fréttir frá Miðausturlöndum í þrjú ár. 24.4.2007 16:15
Slæmar fréttir fyrir Súpermann Nýtt steinefni hefur fundist í námu í Serbíu sem hefur samskonar efnasamsetningu og grænu Kryptónít kristallarnir úr kvikmyndinni „Superman Returns“. 24.4.2007 14:59
Hamas gerir árás -aflýsir vopnahléi Hamas samtökin skutu í dag 30 eldflaugum og 60 vörpusprengjum á Ísrael, frá Gaza ströndinni. Jafnframt lýsti einn talsmanna þeirra því yfir að fimm mánaða vopnahléi væri lokið. Heimastjórn Palestínumanna hvatti hinsvegar til þess að staðið væri við vopnahléið. 24.4.2007 14:02
Veðjað um nafn á nýfæddu prinsessunni Talið er nær öruggt að nýfædd prinsessa Dana beri nafnið Margrét ef marka má veðbanka. Nöfnin Benedikta og Elísabet þykja einnig koma til greina. 24.4.2007 13:00
Þjóðarsorg í Rússlandi Pútín Rússlandsforseti hefur lýst yfir þjóðarsorg vegna fráfalls Borísar Jeltsíns, forvera hans í embætti. Jeltsín lést í gær. 24.4.2007 12:30
Varnarasamkomulag við Dani og Norðmenn í höfn Samningar um varnarsamstarf Íslendinga við Dani og Norðmenn verða undirritaðir á fimmtudaginn á NATO fundi í Ósló. Ekki fæst gefið upp hvað felst í þeim fyrr en eftir undirritun. Samkvæmt norska blaðinu Aftonposten felur samkomulagið við Norðmenn það í sér að norski flughersinn sjái um eftirlit í lofthelgi Íslands á friðartímum. 24.4.2007 12:00
Í koju kerling -barnapían er komin Í sveitarfélaginu Bamble í Telemark í Noregi, geta barnafjölskyldur nú fengið barnapössun yfir nóttina, til þess að foreldrarnir geti búið til fleiri börn. Bamble er lítið sveitarfélag og íbúum hefur farið fækkandi þar. Það var Öysten Polland, forstjóri barnaheimilis sveitarfélagsins sem fann þessa lausn á vandanum. 24.4.2007 09:31
Veðjað á nafn nýfæddrar prinsessu Það má telja næsta öruggt að nýfædd prinsessa í Danmörku, dóttir Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu, beri nafnið Margrét ef marka má veðbankann Ladbrokes. 23.4.2007 23:01
Hillary og Obama njóta jafnmikils stuðnings Öldungadeildarþingmaðurinn Barack Obama, sem sækist eftir að verða forsetaefni demókrata í kosningum í Bandaríkjunum á næsta ári, nýtur nú jafnmikilla vinsælda og Hillary Clinton, starfssystir hans, sem einnig sækist eftir útnefningu demókrata. 23.4.2007 22:42
NASA birtir þrívíddarmyndir af sólinni Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, birti dag fyrstu þrívíddarmyndirnar sem teknar hafa verið af sólinni. Myndirnar voru teknar með tveimur gervitunglum sem eru hvort sínum megin sólarinnar en með því að hafa þá þannig og taka mynd náði Nasa dýptinni í myndunum. 23.4.2007 22:31
Ræður sér lögfræðing til að tryggja starfslok sín Paul Wolfowitz, bankastjóri Alþjóðabankans, hefur ráðið sér lögfræðing til þess að gæta hagsmuna sinna fari svo að hann verði rekinn frá bankanum. 23.4.2007 21:50
Staðfastur í friði, frelsi og framförum „Hann hélt um stjórnartaumana á erfiðum tímum en sagan mun bera honum fagurt vitni því hann var hugrakkur og staðfastur í helstu áherslumálum sínum, friði, frelsi og framförum," sagði Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í yfirlýsingu í dag í kjölfar fráfalls Borísar Jeltsíns, fyrrverandi forseta Rússalands. 23.4.2007 21:30
Fórnarlambanna í Virgina Tech minnst í skólanum í dag Nemendur og kennarar við Virgina Tech háskólann minntust í dag þeirra 33 sem létust í skotárás í skólanum fyrir viku. Lítill hópur kom saman um klukkan sjö í morgun við heimavistina þar sem Cho Seung-hui lét fyrst til skarar skríða og drap tvo. 23.4.2007 21:05
Telja hugsanlegt að Íranar hafi rænt fyrrverandi FBI-manni Bandaríkjastjórn telur hugsanlegt að fyrrverandi starfsmaður bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sé í haldi Írana. Þetta hefur Reuters-fréttaveitan eftir ónafngreindum heimildarmanni í bandaríska utanríkisráðuneytinu. 23.4.2007 20:19
Átti marga aðdáendur og fjendur Boris Jelstín, fyrrverandi Rússlandsforseti, lést í dag, 76 ára að aldri. Ekkert hefur verið gefið formlega út um banamein hans en líklegast talið að hjarta Jeltsíns hafi gefið sig. Óhætt er að segja að hann hafi átt sér bæði ótalda aðdáendur og fjendur enda litríkur maður sem þótti oft á tímum sýna einræðistilburði. 23.4.2007 19:45
Þrír létust í flugeldasprengingum í Napólí Þrír létust þegar sprenging varð í flugeldaverksmiðju í Napólí á Ítalíu í dag. Eftir því sem ANSA-fréttastofan greinir frá flugu líkamshlutar mörg hundð metra í sprengingunum og rúður í nærliggjandi veitingastöðum brotnuðu. 23.4.2007 19:31
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent