Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Miðjuflokkurinn með forystu eftir fyrstu tölur í Finnlandi Miðjuflokkur Mattis Vahanens, forsætisráðherra Finnlands, hefur forystu þegar fyrstu tölur hafa verið birtar í þingkosningum í Finnlandi en búið er að telja fjórðung atkvæða. Hafði flokkurinn fengið 24,8 prósent atkvæða en samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn, Jafnaðarmannaflokkurinn, er með 22,9 prósent. 18.3.2007 18:59
Þjálfari Pakistans í krikket deyr á heimsmeistaramóti Þjálfari pakistanska landsliðsins í krikket lést á sjúkrahúsi í Kingston á Jamaíku en hann fannst meðvitundarlaus á hótelherbergi sínu fyrr í dag, degi eftir að liðið féll óvænt úr leik á heimsmeistaramótinu í krikket sem fram fer á Jamaíku. 18.3.2007 18:51
Milljón manns fallið í Írak Það er mat ástralsks sérfræðings að milljón mans hafi fallið í átökum í Írak frá því ráðist var inn í landið fyrir fjórum árum. Að sögn Sky fréttastofunnar byggir hann útreikninga sína á upplýsingum frá Barnahjálp og Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna og frá læknum í landinu. Aðfaranótt þriðjudagsins næsta eru fjögur ár liðin frá innrásinni í Írak. 18.3.2007 18:45
Munurinn á Sarkozy og Royal minnkar Aðeins hefur dregið saman með Ségolène Royal, forsetaframbjóðanda sósíalista í Frakklandi, og helsta andstæðingi hennar, íhaldsmanninum og innanríkisráðherranum Nicolas Sarkozy, samkvæmt tveimur nýjum skoðana könnunum. Tölurnar benda hins vegar enn til þess að Sarkozy verði næsti forseti Frakklands. 18.3.2007 17:03
Eldri gerðir berklabóluefnis betri Eldri gerðir berklabóluefnis virðast virka betur er þær nýrri. Þetta segja franskir læknar. Breytingar sem gerðar hafa verið á erfðaþáttum bóluefnisins til að reyna að draga úr hliðarverkunum þess hafa einnig leitt til þess að það virkar verr. Rannsakendur við Lois Pasteur-stofnunina vilja nú gera tilraunir með eldri gerðir bóluefnis og taka það aftur í notkun. 18.3.2007 16:21
Stjórnarandstæðingum meina að yfirgefa Simbabve Yfirvöld í Simbabve hafa meinað fjórum félögum í stjórnarandstöðunni að fara úr landi og börðu einn þeirra þegar hann hugðist fljúga til Evrópu á fund. 18.3.2007 16:15
Íhuga að malbika tunglið Vísindamenn kanna nú mögulega hættu sem geimförum stafar af því að anda að sér tunglryki. Rannsókn bendir til þess að smæstu agnir tunglryks gætu verið eitraðar en sannreyna á kenninguna með tilraunum á músum. NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur sett saman rannsóknarteymi sem á að kanna málið og komast að niðurstöðu fyrir fyrirætlaða tunglferð árið 2020. 18.3.2007 15:52
Níu skipverja saknað eftir árekstur flutningaskipa í Kínahafi Átta hafa fundist látnir og níu er saknað er eftir að tvö flutningaskip rákust saman á Austur-Kínahafi snemma í morgun. Björgunarsveitum tókst að bjarga 12 manns af skipunum upp í þyrlu og voru myndir af því sýndar í kínversku sjónvarpi. 18.3.2007 14:59
Innkallar katta- og hundamat vegna veikinda og dauða dýra Stór framleiðandi katta- og hundamatar í Bandaríkjunum innkallaði í gær 60 milljónir skammta af framleiðslu sinni eftir að bæði hundar og kettir hafa veikst og drepist eftir að hafa étið matinn. 18.3.2007 14:21
Fimm umferðaróhöpp á korteri í Danmörku Það er víðar en á Íslandi sem illviðri hefur áhrif á ferðir fólks því fimm umferðaróhöpp urðu á hraðbraut nærri Randers í Danmörku í morgun þegar mikið haglél skall skyndilega á. Óhöppin urðu á einungis fimmtán mínútum en í öllum tilvikum runnu bílarnir út af hraðbrautinni. 18.3.2007 13:34
Unglingur stunginn til bana í Lundúnum Fimmtán ára unglingur var stunginn til bana nærri heimaveill knattspyrnuliðsins West Ham í í Lundúnum í gærkvöld. Hann er annar unglingurinn sem stunginn er til bana á þremur dögum í borginni. 18.3.2007 13:15
Þingkosningar í Finnlandi í dag Kosið er til þings í Finnlandi í dag. Búist er við að mið- og vinstristjórn Matti Vanhanen, forsætisráðherra, haldi velli en svo gæti þó farið að einhverjar hrókeringar yrðu. 18.3.2007 12:15
Lögregla og lögmenn takast á í Pakistan Til harðra átaka kom í dag milli lögreglumanna og lögfræðinga í borginni Lahore í Pakistan þar sem lögmennirnir mótmæltu brottvikningu eins af hæstaréttardómurum landsins úr embætti. 17.3.2007 20:07
Óhóf í drykkju Íra Dagur heilags Patreks er haldinn hátíðlegur í dag og þá innbyrða Írar töluvert af áfengi. Samkvæmt nýrri könnun eru Írar mestu óhófsdrykkjumenn í Evrópu og því vekur sérstakt bjórtilboð, hjá stórmarkaði í Dublin, nokkrar deilur. 17.3.2007 19:30
Fyrsta konan formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins Mona Sahlin var í dag kosin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, fyrst kvenna í 118 ára sögu flokksins. Formaður Samfylkingarinnar ávarpaði aukalandsfund flokksins í Stokkhólmi í dag og sagði það sögulegt að konur leiddu nú jafnaðarmenn í þremur Norðurlandanna. 17.3.2007 19:15
7 týndu lífi í flugslysi Að minnsta kosti 7 týndu lífi og nærri 30 slösuðust, þegar farþegaþota skall utan flugbrautar í lendingu í Síberíu í morgun. 50 farþegar og 7 manna áhöfn voru um borð. Vélin rann inn á flugbrautina og eftir henni þegar hún skall niður. Síðan valt hún. 17.3.2007 19:00
Klórgas notað í Írak 8 eru sagði látnir og 350 veikir, eftir 3 sjálfsmorðssprengjuárásir í Anbar-héraði í Írak í gær. Bílarnir voru allir fullir að klóri. Sprengjurnar sprungu með þriggja tíma millibili á þremur mismunandi stöðum í héraðinu en tveir árásarmannanna óku tankbílum og sá þriðji pallbíl. 17.3.2007 18:45
Norðmenn í hópi fyrstu þjóða til að viðurkenna þjóðstjórn Norðmenn eru í hópi fyrstu þjóða sem viðurkenna nýja þjóðsstjórn Palestínu, en hún var svarin í embætti í dag eftir að palestínska þingið hafði lagt blessun sína yfir hana. Norsk stjórnvöld hyggjast taka upp full stjórnmála- og efnahagsleg tengsl við Palestínumenn á ný og hvetja þá til að hafna ofbeldi og viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. 17.3.2007 17:38
Mótmæli vegna fjögurra ára afmælis Íraksstríðsins Mótmæli hafa farið fram víða í dag í tilefni þess að fjögur ár eru um þessar mundir frá því að Bandaríkjamenn réðust ásamt bandamönnum sínum inn í Írak og steyptu Saddam Hussein, forseta landsins, af stóli. 17.3.2007 17:25
Sígarettureykur hefur mismunandi áhrif á kynþætti Reykingar gætu valdið öðruvísi skaða á blökkumönnum en hvítum, niðurstöður bandarískrar rannsóknar benda til þess. Rannsóknin sem birt er í læknatímaritinu Chest tók til 220 barna með astma sem anda þurftu að sér sígarettureyk. Meira en helmingur barnanna voru blökkumenn. Rannsakendur mældu magn kótínín, sem er efni sem líkamin breytir nikótíni í. 17.3.2007 16:46
Þrír stungnir til bana í Manchester og nágrenni Þrír voru stungnir til bana í Manchester og nágrenni í Englandi í nótt eftir því sem lögregla í borginni greindi frá. Sjö manns á aldrinum 17-25 ára voru handteknir í tengslum við árás í úthverfi borgarinnar en fórnarlamb þeirra lést á spítala snemma í morgun. 17.3.2007 16:05
Palestínska þingið samþykkir myndun þjóðstjórnar Fulltrúar Hamas-samtakanna og Fata-hreyfingarinnar á palestínska þinginu í Gasaborg samþykktu í dag myndun nýrrar þjóðstjórnar á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna en samkomulag um slíka stjórn náðist milli fylkinganna á fimmtudag. 17.3.2007 15:08
Krefjast þess að Johnston verði sleppt Palestínskir blaðamenn komu saman fyrir utan þingshúsið í Gasaborg í dag til þess að krefjast þess að fréttamanni BBC, Alan Johnston, yrði sleppt en talið er að vopnaðir byssumenn hafi rænt honum í borginni á mánudag. Síðan þá hefur ekkert spurst til hans. 17.3.2007 14:56
350 sagðir veikir eftir klórgasárásir í Írak Átta eru sagði látnir og yfir 350 veikir eftir að þrír sjálfsmorðsárásarmenn á stórum bílum fullum af klóri sprengdu bílana í loft upp í Anbar-héraði í Írak í gær. Frá þessu greindi Bandaríkjaher í dag. 17.3.2007 14:42
Svíþjóð þarf nýja ríkisstjórn, segir Sahlin Svíar þurfa ekki nýjar eða gamlar hófsemishugmyndir heldur nýja ríkisstjórn, sagði Mona Sahlin, sem í dag var kosin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins á landsfundi í Stokkhólmi. 17.3.2007 14:25
Klórgasárásir í Fallujah kosta átta lífið Átta eru sagði látnir og yfir 85 særðir eftir að tveir sjálfsmorðsárásarmenn á tankbílum fullum af klóri sprengdu bílana í loft upp í borginni Fallujah, vestur af Bagdad, í dag. 17.3.2007 13:59
Ísraelar segjast ekki munu semja við nýja þjóðstjórn Palestínumanna Palestínska þingið kom saman til fundar í morgun til að greiða atkvæði um nýja þjóðstjórn Fatah og Hamas. Búist er við að skipan í embætti verði samþykkt. Ísraelar segja nýja stjórn styðja hryðjuverkamenn og við hana verði ekki samið. 17.3.2007 13:34
Kaupmannahafnarlögreglan viðurkennir mistök Danska lögreglan notaði lífshættuleg og öflug táragashylki gegn mótmælendum við Ungdómshúsið á Norðurbrú í Kaupmannahöfn fyrr í þessum mánuði. Kaupmannahafnarlögreglan hefur viðurkennt mistök sín. 17.3.2007 12:52
Mona Sahlin kosin formaður sænskra jafnaðarmanna í dag Mona Sahlin verður valinn formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð á aukaflokksþingi í dag, fyrst kvenna í 118 ára sögu flokksins. Meðal heiðursgesta á þinginu er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. 17.3.2007 11:45
Ætlar að knýja þingið til aðgerða Al Gore hefur safnað fleiri en 300.000 undirskriftum sem hann ætlar sér að færa bandaríska þinginu í von um að það berjist gegn þeim loftslagsbreytingum sem gróðurhúsaáhrif eru talin valda. 16.3.2007 23:36
Þjóðstjórn tekur við völdum á morgun Nýja þjóðstjórnin í Palestínu mun taka við völdum klukkan níu í fyrramálið að íslenskum tíma. Hún var mynduð eftir að friðarsamkomulag náðist á milli Hamas og Fatah hreyfinganna á sáttafundi sem konungur Sádi-Arabíu stóð fyrir. Ísraelar hafa þvertekið fyrir að starfa með stjórninni og Bandaríkjamenn bíða ávarps Mahmouds Abbas, forseta Palestínu, á morgun en það mun útskýra hverjar stefnur og gildi hinnar nýju stjórnar verða. 16.3.2007 23:21
Kuldakast gengur yfir Bandaríkin Mikið vetrarveður er nú í norðausturhluta Bandaríkjanna og hafa margir ferðamenn þurft að staldra við um stund. Fjölmörg flugfélög aflýstu ferðum sínum til og frá New York, Fíladelfíu og Boston. Skólum í og við New York hefur einnig verið lokað vegna veðurs. 16.3.2007 23:11
Þrír lögreglumenn ákærðir vegna skotárásar Þrír lögreglumenn í New York verða ákærðir fyrir að hafa skotið 50 skotum að þremur óvopnuðum blökkumönnum og drepið einn þeirra aðeins nokkrum klukkutímum áður en hann átti að gifta sig. Skorárásin átti sér stað 25. nóvember á síðasta ári. Gríðarleg reiði braust út á meðal svertingja í New York eftir að atvikið átti sér stað. 16.3.2007 22:59
Segir stjórnvöld hafa lekið nafni sínu til fjölmiðla Valerie Plame, fyrrum útsendari bandarísku leyniþjónustunnar CIA, fullyrti í dag að bandarísk stjórnvöld hefðu vísvitandi afhjúpað hana til þess að ná sér niður á eiginmanni hennar en hann hafði gagnrýnt stjórnvöld harkalega fyrir stríðsreksturinn í Írak. 16.3.2007 22:36
Hermönnum í Írak hugsanlega fjölgað Æðsti yfirmaður bandaríska hersins í Írak, David Petraeus, hefur lagt fram beiðni um að fleiri hermenn verði sendir til Íraks. Dagblaðið Boston Globe fullyrðir þetta á fréttavef sínum í dag og segir háttsetta menn innan varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna heimildarmenn sína. 16.3.2007 22:26
Forseti Írans fær að ávarpa öryggisráðið Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag beiðni Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, um að fá að verja kjarnorkuáætlun þjóðar sinnar áður en atkvæðagreiðsla um refsiaðgerðir gegn Íran fer fram í ráðinu. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær atkvæðagreiðslan fer fram. 16.3.2007 22:03
Mikill viðbúnaður í Nígeríu Stjórnvöld í Nígeríu sögðu í dag að lögreglu- og hermenn í landinu væru í viðbragðsstöðu þar sem varaforseta landsins hefur verið meinað að bjóða sig fram í forsetakosningunum en þær fara fram þann 21. apríl næstkomandi. 16.3.2007 20:52
Kínverjar samþykkja lög sem vernda einkaeignarrétt Kínverska þingið samþykkti í dag lög sem eiga að vernda einkaeignarrétt landsmanna. Þetta er í fyrsta sinn sem að lög eru sett sem að vernda einkaeignarréttinn. Alls eru um 14 ár síðan kínverski kommúnistaflokkurinn fór fyrst að huga að slíkri löggjöf. 16.3.2007 20:29
Mugabe hótar að reka erlenda erindreka úr landi Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, hefur hótað því að reka úr landi alla vestræna erindreka en hann sakar þá um að styðja stjórnarandstöðuna í landinu. Hann sagði þá þurfa að „hegða sér almennilega“ ellegar eiga á hættu að vera reknir úr landi. 16.3.2007 20:15
Dansa sig inn í heimsmetabækurnar Það var merkileg sjón sem mætti vegfarendum í bænum Tirgoviste í Rúmeníu á dögunum. 2.600 manns að dansa í takt við hressilegt lag. Það var útvarpsstöð í bænum sem efndi til dansins til þess að slá heimsmet í fjölda dansara á einum stað að hrista líkama sína í takt. 16.3.2007 19:30
Frosið vatn á Mars Evrópskir vísindamenn hafa fundið heilmikið jökulsvæði á suðurpóli Mars. Ef það bráðnaði er talið að vatn myndi þekja stóran hluta plánetunnar. Það er geimfar á braut um Mars sem hefur tekið myndir af ísbreiðunum. Það eru vísindamenn á vegum Evrópusku geimferðastofnunarinnar sem kynntu niðurstöðurnar og birtu í dag. Rannsóknin var gerð með tækni frá Bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, og ítölskum aðilum. 16.3.2007 19:10
Hitnar undir menningarmálaráðherra Dana Stjórnarandstaðan á danska þinginu krefst þess að menningarmálaráðherra landsins segi af sér. Hann hafi logið að þinginu um yfirvofandi uppsagnir hjá Danska ríkisútvarpinu og reynt að hafa áhrif á ritstjórnarstefnu þess. Fjármál útvarpsins eru í molum vegna framkvæmda við nýjar höfuðstöðvar. 16.3.2007 18:45
Lögðu hald á 13 milljarða íslenskra króna Lögreglan í Mexíkó lagði í dag hald á 13 milljarða íslenskra króna við leit í höfuðstöðum eiturlyfjahrings í Mexíkóborg. Upphæðin er tvisvar sinnum hærri en lagt var hald á allt árið í fyrra. Þetta er mesta magn peninga sem nokkru sinni hefur verið gert upptækt í Mexíkó. 16.3.2007 18:26
Castro tilbúinn í næstu forsetakosningar Forseti kúbverska þjóðþingsins segir að Fidel Castro sé hinn hressasti og verði tilbúinn til þess að bjóða sig enn einusinni fram til embættis forseta í mars á næsta ári. Ricardo Alarcon segir að Castro taki fullan þátt í stjórn landsins og að leitað sé til hans með meiriháttar ákvarðanir. 16.3.2007 16:27
Táragasi beitt á sjónvarpsstöð Pakistanskir óeirðalögreglumenn réðust í dag inn í einkarekna sjónvarpsstöð og úðuðu þar táragasi, eftir að fréttastjórinn neitaði að hætta beinum útsendingum af óeirðum í höfuðborginni Islamabad. Mótmælin voru vegna þess að forseta hæstaréttar landsins var vikið úr embætti síðastliðinn föstudag. 16.3.2007 15:26