Fleiri fréttir

R2D2-póstkassar í Bandaríkjunum

Bandaríska póstþjónustan hefur ákveðið að skreyta póstkassa um gjörvöll Bandaríkin í líki geðþekka vélmennisins R2D2 úr Stjörnustríðsmyndunum. Brátt eru 30 ár liðin frá því að fyrsta mynd þessa víðfræga sagnabálks kom út.

Mikil spenna í Ekvador

Fjölmenni gerði árásir að þingmönnum í Ekvador í dag. Múgurinn henti steinum í þá og lömdu bíla þeirra en átök á milli stjórnarandstöðuþingmanna, sem eru í meirihluta, og forsetans Rafael Correa, aukast sífellt.

Komin aftur til Bretlands

Utanríkisráðherra Bretlands skýrði frá því í dag að fólkinu sem var rænt í Eþíópíu fyrir 12 dögum síðan væri komið til Bretlands á ný. Því var sleppt á þriðjudaginn var og var það við góða heilsu. Fólkið var þá afhent yfirvöldum í Erítreu en talið er að ættbálkahöfðingjar á svæðinu þar sem þeim var rænt hafi samið um lausn þeirra.

Forseti Írans vill ávarpa öryggisráð SÞ

Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, hefur beðið um leyfi til þess að ávarpa öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til þess að verja kjarnorkuáætlanir þjóðar sinnar. Forseti öryggisráðsins, hinn Suður-afríski Dumisani Kumalo, skýrði frá þessu nú í kvöld.

Krefjast afsagnar forsætisráðherra Ungverjalands

Lögregla og mótmælendur í Ungverjalandi tókust á í kvöld eftir að um eitt hundrað þúsund mótmælendur í miðborg Búdapest kröfðust afsagnar forsætisráðherra landsins, Ferenc Gyurcsany. Þetta eru stærstu mótmælin í landinu síðan árið 2005 en þá krafðist almenningur þess að hann segði af sér eftir að hann viðurkenndi að hafa logið til stöðu ríkisfjármála. Forsætisráðherrann laug þá til þess að auka líkurnar á því að hann yrði kosinn á ný.

Spánverjar samþykkja jafnréttislög

Spænska þingið samþykkti í dag lög um jafnrétti karla og kvenna. Lögin kveða á um jafnan rétt karla og kvenna til atvinnutækifæra og um fæðingarorlof karlmanna. Sósíalistastjórn Spánar hefur leitast við að auka jafnrétti á Spáni allt frá því hún tók við völdum árið 2004. Forsætisráðherra Spánar, Jose Luis Rodriguez Zapatero skipaði þá konur í helming ráðherrastóla í ríkisstjórn sinni.

Íraksfrumvarp fellt í öldungadeild

Frumvarp um að kalla bandaríska hermenn í Írak heim fyrir 31. mars á næsta ári var í dag fellt í öldungadeild bandaríska þingins. Fyrr í dag hafði nefnd fulltrúadeildarinnar samþykkt frumvarp sem kveður á um að bardagabúnir hermenn verði kallaðir heim fyrir september á næsta ári. Kosið verður um það í næstu viku.

Hermennirnir hugsanlega heim fyrir september árið 2008

Nefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti nú síðdegis áætlun demókrata um að kalla alla bardagabúna hermenn heim frá Írak fyrir fyrsta september á næsta ári. Nefndin samþykkti aukafjárútlát til stríðsrekstursins en með þungum skilyrðum.

Ný hlébarðategund fundin

Vísindamenn á Indónesíu hafa fundið nýja tegund af hlébörðum sem helst er að finna á Borneó og Súmötru. Áður var talið að þeir tilheyrðu hlébarðategund sem var að finna á meginlandi Suðaustur-Asíu. Vísindamenn telja að um sömu tegund hafi verið að ræða þar til fyrir rúmlega milljón árum, en þá hafi skilið á milli og tvær tegundir hlébarða þróast.

Þjóðstjórn skipuð

Hreyfingar Fatah og Hamas hafa komið sér saman um skipan óháðs fræðimanns í embætti innanríkisráðherra í þjóðstjórn Palestínumanna. Þetta var síðasti ásteytingarsteinn viðræðnanna og var stjórnin kynnt í dag. Hana skipa 9 Hamas-liðar, 6 fulltrúar Fatah og 3 óháðir í innanríkis-, fjármála- og utanríkisráðuneyti. Þing greiðir atkvæði um stjórnina á laugardaginn.

Sjúkrahús í niðurníðslu í Írak

Sjúkrahús eru skítug í Írak, lyf vantar og læknar hverfa frá landinu í stórum hópum. Mikil þörf er á læknisaðstoð í Írak þar sem fjölmargir örkumlast í átökum á degi hverjum. Forsætisráðherra Bretlands segir ekki hægt að kenna vesturveldunum um hörmungarnar í landinu nú.

Pólskum kennurum bannað að tala um samkynhneigð

Pólskir kennarar, sem kynna og stuðla að samkynhneigð, verða reknir samkvæmt nýju frumvarpi sem áætlað er að verði að lögum eftir rúman mánuð. Aðstoðarmenntamálaráðherra Póllands skýrði frá þessu í dag, mannréttindahópum í landinu til mikillar mæðu. Engu að síður segja stjórnvöld í Póllandi að lögin séu ekki ætluð gegn samkynhneigðum kennurum í landinu.

Putin eykur við eftirlit með fjölmiðlum

Vladimir Putin, forseti Rússlands, hefur fyrirskipað að stofnuð verði ný eftirlitsstofnun sem á að fylgjast með og gefa leyfi til fjölmiðla. Hin nýja ofur-stofnun mun fylgjast með sjónvarpsstöðvum, útvarpsstöðvum, dagblöðum og vefsíðum. Rússneskir fréttmenn óttast að stofnunin verði notuð til þess að herða enn að málfrelsi í Rússlandi en vefsíður eru nær eini miðillinn sem enn nýtur þokkalegs frelsis.

Chirac verður yfirheyrður

Háttsettir menn í franska dómsmálaráðuneytinu fullyrða að Jacques Chirac verði yfirheyrður þegar hann lætur af embætti sem forseti Frakklands vegna hugsanlegra tengsla hans við spillingu á þeim tíma sem hann var borgarstjóri Parísar.

Þáttur móður í ráninu á Natösju rannsakaður

Dómstóll í Vínarborg mun í dag hefja rannsókn á því hvort móðir Austurrísku stúlkunnar Natösju Kampusch hafi átt þátt í ráni hennar. Natösju var rænt þegar hún var á leið í skólann árið 1998 og var í haldi ræningjans í átta ár. Henni tókst loks að flýja síðastliðið sumar, þá orðin nítján ára gömul. Ræningi hennar framdi þá sjálfsmorð.

Þriðji hver Breti ekki farið á Netið

Ungir. ríkir og menntaðir nota internetið mest en eldra fólk, fátækir og ómenntaðir minna. Þetta kemur fram í nýrri sýrslu bresku Hagstofunnar. Skýrsla sýnir í auknum mæli muninn á milli ríkra og fátækra þar í Bretlandi. Mikill minnihluti fólks yfir fimmtugt hefur aldrei komið nálægt tölvu. Einn af hvejrum tólf hefur ekki aðgang að netinu, farsíma eða stafrænu sjónvarpi. Meirihluti eldra fólks segist ekki hafa sjálfstraust til að læra á tölvu, eða sjá ekki tilganginn í því að læra á hana. Þriðji hver Breti segist aldrei hafa notað internetið.

Ég hjó höfuðið af gyðingnum Daniel Pearl

Khalid Sheikh Mohammed, sem hefur viðurkennt að hafa skipulagt árásirnar á tvíburaturnana, og önnur ódæðisverk, hefur viðurkennt að það hafi verið hann sem myrti bandaríska blaðamanninn Daniel Pearl, sem rænt var í Pakistan árið 2002. "Ég hjó með minni blessuðu hægri hendi höfuðið af ameríska Gyðingnum Daniel Pearl," segir í útskrift sem bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur sent frá sér, um yfirheyrslurnar yfir Mohammed.

Frú Abramovich fær minna en 2%

Fyrrverandi eiginkona Roman Abramovich verður ekki ríkasta fráskilda kona heims. Irina fær um 20 milljarða króna eða minna en tvö prósent af 1200 milljarða króna auði hans. Skilnaðurinn mun ekki hafa nein áhrif á fyrirtæki Abramovich eins og Chelsea, breska úrvalsdeildarliðið í knattspyrnu.

Allir stríðsaðilar nauðga á Fílabeinsströndinni

Hundruðum og jafnvel þúsundum kvenna hefur verið nauðgað á Fílabeinsströndinni, þeim misþyrmt og þær neyddar til að gerast kynlífsþrælar, að sögn mannréttindasamtakanna Amnesty International. Samtökin segja að konur á Fílabeinsströndinni séu hin gleymdu fórnarlömb sem enginn skipti sér af, hvorki innan lands né utan.

Berjast gegn kynlífstúrisma

Stærstu ferðaskrifstofur Danmerkur ætla að taka höndum saman við lögregluna til þess að koma í veg fyrir að danskir ferðamenn misnoti börn í öðrum löndum kynferðislega. Svokallaðar kynlífsferðir eru vinsælar víða um heim, en í þeim eru kynlífsfélagar innifaldir í verðinu. Stundum eru þessir kynlífsfélagar börn.

Heildargreiðslur til ESB yrðu 12 milljarðar

Heildargreiðslur íslenska ríkisins til Evrópusambandsins gætu orðið allt að tólf komma einn milljarður króna á ári ef gengið yrði í sambandið. Þetta er niðurstaða Evrópunefndar forsætisráðherra sem skilaði skýrslu sinni í vikunni. Samkvæmt útreikningum nefndarinnar yrðu heildargreiðslur ríkissjóðs við aðild tíu og hálfur milljarður króna á ári en að hámarki tólf komma einn milljarður.

Samkomulag um viðskiptaþvinganir gegn Írönum

Samkomulag mun hafa tekist meðal vesturveldanna, Kína og Rússlands, um frekari viðskiptaþvinganir á hendur Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Samkvæmt heimildum Breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur verið samið um grundvallaratriði í nýjum ályktunum og uppkast verður lagt fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á fundi í New York í kvöld.

Upplýst um skipun þjóðstjórnar

Ismail Haniya forsætisráðherra og Mahmoud Abbas forseti Palestínu hafa nú upplýst hverjir skipi ráðherra sæti í nýrri þjóðstjórn Palestínumanna. Kosið verður um hvort stjórnin njóti trausts á laugardaginn. Lykilembætti fjármála-, innanríkis-, og utanríkisráðherra verða skipuð mönnum sem hvorki eru hluti af Hamas- né Fatah-hreyfingunni.

Æ, litla krúttið

Starfsfólk sjúkrahúss í Dortmund í Þýskalandi brá heldur betur í brún þegar það fann fullorðinn mann í neyðar-hitakassa fyrir óvelkomin ungabörn. Heinrich Mueller hafði klifrað inn um lúgu og rennt sér dauðadrukkinn niður sérstaka rennu ætlaða ungabörnum.

Bera ábyrgð á dauða sjö vistmanna

Hjón á fimmtugsaldri sem rekið hafa elliheimili í London voru handtekin á dögunum vegna dauða sjö manns sem dvalið hafa á heimilinu. Farið var að skoða málið eftir að 97 ára maður dó skyndilega. Einnig hafa sex aðrir vistmenn dáið þar á skyndilegan síðan árið 2004 og eru skötuhjúin einnig grunum um aðild að dauða þeirra.

Blair: „Við erum að gera hið rétta“

Tony Blair forsætisráðherra Bretlands þvertekur fyrir að vera hersveita Breta og Bandaríkjamanna í Írak geri illt verra. Hann segir að vesturveldin eigi að hætta að biðjast afsökunnar á því að gera „hið rétta“ í Írak. Þetta sagði Blair í viðtali á Sky News í morgun en nú stendur yfir sérstök Íraksvika á stöðinni. Blair sagði: „Við eigum að vera þar að berjast við fólk sem reynir að eyðileggja möguleika á lýðræði með hryðjuverkum“. Innrásin í Írak er sennilega stærsta ákvörðun sem Blair hefur tekið á tíu ára ferli sínum sem forsætisráðherra og sú sem hefur reynst honum erfiðust. Mörg flokkssystkina hans hafa snúist gegn honum vegna hennar.

Sýknaður af sölu hakakrossa

Hæstiréttur Þýskalands hefur snúið við dómi gegn eiganda póstverslunar sem var dæmdur í 300 þúsund króna sekt fyrir að selja vörur með hakakrossi nazista. Samkvæmt þýskum lögum er bannað að bera eða sýna hakakrossinn opinberlega.

Tíu ára stúlka í Egyptalandi greinist með fuglaflensu

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin greindi frá því í dag að tíu ára stúlka hefði greinst með fuglaflensu í Egyptalandi, en hún er 25. manneskjan þar í landi sem greinist með sjúkdóminn. Haft er eftir egypskum fjölmiðlum að komið hafi verið með stúlkuna á sjúkahús í gær þar sem hún þjáðist af hita og verkjum í vöðvum.

Hækkanir á mörkuðum í Bandaríkjunum í dag

Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum réttu sig af í dag eftir nokkuð skarpa lækkun í gær upp á tvö prósent sem hafði áhrif víða um heim. Dow Jones fór á tímabili niður fyrir 12 þúsund stig í dag í fyrsta sinn í fjóra mánuði en endaði 12.133 stigum í lok dags og hækkaði því um nærri hálft prósent frá því í gær.

Írar drykkfelldastir ESB-þjóða

Írar eru drykkfelldastir Evrópusambandsþjóða ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var á drykkjuvenjum innan sambandsins. Rúmlega þriðjungur Íra drekkur áfengi í óhófi þegar hann fær sér í glas en með óhófi er miðað við fimm drykki eða meira í hvert skipti sem menn blóta Bakkusi.

Reka 300 starfsmenn

Danska ríkisútvarpið ætlar að segja upp 10% starfsmanna sinna á þessu ári vegna kostnaðar við byggingu nýrra höfuðstöðva sem hefur farið fram úr áætlun. Fjölmargir starfsmenn lögðu niður vinnu í dag til að mótmæla aðgerðunum.

Vaknaði og féll svo aftur í dá

Læknar í Bandaríkjunum standa ráðþrota frammi fyrir ráðgátunni um konuna sem vaknaði úr 6 ára dái, vakti í 3 daga og féll síðan aftur í dá. Þeir kunna engar skýringar á því hvað hafi vakið hana og síðan valdið því að hún féll aftur í dá.

Írak vill afnema dauðarefsingu

Ríkisstjórn Íraks, sem hlaut mikla gagnrýni fyrir hvernig staðið var að aftöku Saddams Hussein, vill afnema dauðarefsingu, að sögn mannréttindaráðherra landsins. Wijdan Michael segir að það verði gert í áföngum. Fyrsta skrefið verði að afnema dauðarefsingar fyrir brot önnur en þau allra verstu, svosem þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu.

Bretar vilja ekki opna Heathrow

Bretar vilja fresta gildistöku samnings um frjálst flug milli Evrópu og Bandaríkjanna, um eitt ár. Samningurinn á að taka gildi í október á þessu ári, og kemur í staðin fyrir gamlan samning sem rekja má allt aftur til síðari heimsstyrjaldarinnar. Bretar veigra sér við því að létta hömlum af Heathrow flugvelli sem er stærsta flugmiðstöð í Evrópu.

Tsvangirai á gjörgæslu

Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe hefur verið lagður inn á gjörgæsludeild á sjúkrahúsi vegna gruns um höfuðkúpubrot. Á myndum má sjá að hann er með svöðusár á höfði, sem hann hlaut meðan hann var í vörslu lögreglunnar. Talsmaður hans segir að Tsvangirai muni fara í heilaskönnun og einnig þurfi hann að fá blóðgjöf vegna mikils blóðmissis af sárum sínum.

Kosið um þjóðstjórn á laugardag

Kosið verður um hvort þjóðstjórn Palestínumanna nýtur trausts í þinginu nú á laugardag. Þetta samþykktu þeir Mahmoud Abbas forseti og Ismail Haniyeh forsætisráðherra í dag. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildamönnum sínum. Fatah- og Hamas hreyfingarnar samþykktu á fundi í Mekka fyrir um mánuði síðan að mynda þjóðstjórn Palestínumanna til að binda endi á skærur á milli stuðningsmanna fylkinganna.

Tilbreyting í kynlífinu

Lestarstjórar í Þrándheimi, í Noregi, horfa nokkuð áhyggjufullir til sumarsins sem brátt fer í hönd. Þá þurfa þeir að takast á við nýja hættu í starfi sínu. Nýjasta sportið hjá ungum spennufíklum í Norður-Noregi er nefnilega að stunda ástaleiki á járnbrautarteinum. Vandamálið er orðið það alvarlegt að þegar lestarstjórar í Þrándheimi mæta á vakt um helgar, fá þeir aðvörun, ef vitað er til þess að verið sé að halda partí í almenningsgarðinum í Verdal.

El Baradei segir viðræður hafa tekist vel

Mohammad El Baradei yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir Norður-Kóreumenn staðfasta í áætlunum sínum um að láta af allri notkun kjarnorku. El Baradei er nýkominn til Peking í Kína þar sem hann vitnar um árangur af fundum sínum með yfirvöldum í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu. Hann sagðist vonast til þess að brátt gætu kjarnorkueftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna snúið aftur til Norður-Kóreu en það er talið lykilinn að árangri. Fyrir rétt um mánuði síðan samþykktu Norður-Kóreumenn að láta af allri notkun kjarnorku í skiptum fyrir efnahagsaðstoð í viðræðum sex ríkja, Norður- og Suður-Kóreu, Kína, Japan, Rússlands og Bandaríkjanna.

Tsvangirai höfuðkúpubrotinn

Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve er höfuðkúpubrotinn eftir ofbeldi lögreglu og er á gjörgæslu á spítala. Þetta sagði talsmaður hans í morgun. „Hann hefur þurft að fá lítra af blóði vegna þess að læknar segja að hann hafi misst mikið blóð. Þá var höfuð hans sneiðmyndað vegna þess að höfuðkúpan er brotin", sagði William Bango talsmaður Tsvangirai. Tsvangirai, sem er 55 ára þarf að líkindum að liggja um nokkra hríð á spítala að segir talsmaðurinn við Reuters-fréttastofuna.

Táningar sem fara í megrun líklegri til að þyngjast til lengri tíma

Táningar sem fara í megrun til að missa nokkur kíló eru líklegri en aðrir að sleppa morgunverði og til að borða á milli mála. Það gæti verið hluti skýringar þess að þessir táningar eru líklegri til þess að þyngjast til lengri tíma en þeir jafnaldrar þeirra sem ekki fara í megrun.

Fréttamenn Danska útvarpsins í verkfalli

Fréttamenn Danska ríkisútvarpsins eru í verkfalli til að mótmæla uppsögnum meira en 300 starfsmanna útvarpsins. Þeir segja leið stofnunarinnar liggja beint niður ef ekkert verði að gert og biðla til stjórnmálamanna að veita meiri fjármunum til hennar. Sparnaðaraðgerðirnar sem stjórn útvarpsins hefur kynnt munu hafa áhrif um komandi ár en segja fréttamennirnir það algjörlega óverjandi. „DR hættir nú á að hlustendur, áhorfendur og starfsmenn fari að flýja frá borði ef ríkisstjórn og þing standa ekki undir ábyrgð sinni“, segir í yfirlýsingu fréttamanna. Það sem hefur reynst útvarpinu fjötur um fót eru gríðarlega kostnaðarsamar framkvæmdir við byggingu á útvarpsþorpi á Amager, „DR-byen“ í útjaðri Kaupmannahafnar.

Græn stefna í Bretlandi

Bresk stjórnvöld ætla að draga úr losun koltvísýrings um 60% fyrir árið 2050. Frumvarpsdrög sem miða að því voru kynnt á breska þinginu í dag. Málið er þverpólitískt enda umhverfismál ofarlega á dagskrá hjá öllum stjórnmálaflokkum í Bretlandi.

Sjá næstu 50 fréttir