Fleiri fréttir 20 þúsund flýja ofbeldi í Tsjad Ofbeldi í austurhluta Tsjad, sem upprunnið er í Darfur héraði í Súdan, hefur neytt 20 þúsund manns til þess að flýja heimili sín undanfarnar tvær vikur en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skýrði frá þessu í dag. 5.1.2007 19:45 Negroponte aðstoðarutanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti gagnrýndi í dag hvernig staðið var að aftöku Saddams Hussein en sagði þó einræðisherrann fyrrverandi hafa fengið réttlátan dóm. John Negroponte, yfirmaður leyniþjónustustofnana ríkisins, var í dag tilnefndur í embætti aðstoðarutanríkisráðherra. 5.1.2007 19:26 Rice varar Norður-Kóreu við Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ef Norður-Kórea framkvæmdi aðra tilraunasprengingu á kjarnavopnum, væri landið að auka enn á einangrun sína í alþjóðakerfinu. 5.1.2007 19:14 Offitulyf fyrir hunda komið á markað Matvælaeftirlit Bandaríkjanna hefur leyft offitulyf fyrir hunda en það virkar á þann hátt að það dregur úr matarlyst og upptöku líkamans á fitu. Lyfið, sem heitir Slentrol, á að hjálpa þeim bandarísku hundum sem glíma við offitu en talið er að um fimm prósent þeirra eigi við vandann að stríða. 5.1.2007 18:12 Litvinenko sakaður um fjárkúgun Alexander Litvinenko, fyrrum njósnari sem var eitrað fyrir í Lundúnum í nóvember síðastliðnum, ætlaði sér að fjárkúga rússneskan auðkýfing sem búsettur er í Lundúnum. Þetta fullyrti vinkona hans í samtali við fréttaþáttinn sextíu mínútur en hann verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn kemur. 5.1.2007 17:43 Frelsaður eftir sex ár í gíslingu Fyrrum ráðherra í Kólumbíu, sem hefur verið í haldi mannræningja í sex ár, tókst í dag að komast undan þeim eftir björgunaraðgerðir kólumbíska hersins. Talið er að tugir uppreisnarmanna í FARC hafi látið lífið í aðgerðunum. 5.1.2007 17:32 Litla moskan á sléttunni Framleiðendur nýrra gamanþátta fyrir sjónvarp, í Kanada , bíða spenntir eftir að sjá hver viðbrögðin verða við þáttunum. Þáttaröðin heitir "Litla moskan á sléttunni," og fjallar um hóp múslima sem setjast að í kristnum smábæ í Kanada, og samskiptum þessara tveggja hópa. 5.1.2007 16:45 VRÚÚMMMMM 5.1.2007 16:00 Bush tilnefnir Negroponte sem varautanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Mike McConnel, fyrrverandi yfirmann Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, sem nýjan yfirmann leyniþjónustustofnana landsins. Hann tekur við af John Negroponte sem verður varautanríkisráðherra og því staðgengill Condoleezu Rice. 5.1.2007 15:35 Amazon-geimfar á loft Miljarðamæringurinn Jeff Bezos sem stofnaði Amazon.com hefur skotið geimfari á loft. Geimfarið flaug 85 metra upp í loftið og lenti aftur mjúklega. 5.1.2007 15:00 Snyrtilegi pissuskálaþjófurinn Breska lögreglan leitar nú að manni sem stal pissuskálinni af Royal Oak pöbbinum í Southampton. Maðurinn kom þar inn, pantaði sér hálfpott af bjór og fór nokkrar ferðir á klósettið. Á öryggismyndavél sést hann svo troða skálinni í bakpoka sinn og fara með hana út. 5.1.2007 14:32 Höfrungar vernduðu sundmenn fyrir hákarli Höfrungavaða verndaði fjóra sundmenn fyrir stórum hvítum hákarli, undan ströndum Nýja Sjálands, á dögunum. Mennirnir voru strandverðir, sem voru á æfingasundi um eitthundrað metra frá landi, þegar hákarlinn kom aðvífandi. 5.1.2007 14:25 Erkibiskup Varsjár var njósnari kommúnista Kaþólska kirkjan í Póllandi segir að erkibiskupinn í Varsjá, sem Benedikt páfi skipaði í embætti í síðasta mánuði, hefði um tuttugu ára skeið verið njósnari fyrir leyniþjónustu kommúnistastjórnar landsins. Óvíst er hvort hann verður vígður í embættið, á sunnudag. 5.1.2007 14:00 Íranskir leyniþjónustumenn í Írak 5.1.2007 13:37 Krókódílaveiðimaður ekki á netið 5.1.2007 13:28
Sjá næstu 50 fréttir
20 þúsund flýja ofbeldi í Tsjad Ofbeldi í austurhluta Tsjad, sem upprunnið er í Darfur héraði í Súdan, hefur neytt 20 þúsund manns til þess að flýja heimili sín undanfarnar tvær vikur en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skýrði frá þessu í dag. 5.1.2007 19:45
Negroponte aðstoðarutanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti gagnrýndi í dag hvernig staðið var að aftöku Saddams Hussein en sagði þó einræðisherrann fyrrverandi hafa fengið réttlátan dóm. John Negroponte, yfirmaður leyniþjónustustofnana ríkisins, var í dag tilnefndur í embætti aðstoðarutanríkisráðherra. 5.1.2007 19:26
Rice varar Norður-Kóreu við Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ef Norður-Kórea framkvæmdi aðra tilraunasprengingu á kjarnavopnum, væri landið að auka enn á einangrun sína í alþjóðakerfinu. 5.1.2007 19:14
Offitulyf fyrir hunda komið á markað Matvælaeftirlit Bandaríkjanna hefur leyft offitulyf fyrir hunda en það virkar á þann hátt að það dregur úr matarlyst og upptöku líkamans á fitu. Lyfið, sem heitir Slentrol, á að hjálpa þeim bandarísku hundum sem glíma við offitu en talið er að um fimm prósent þeirra eigi við vandann að stríða. 5.1.2007 18:12
Litvinenko sakaður um fjárkúgun Alexander Litvinenko, fyrrum njósnari sem var eitrað fyrir í Lundúnum í nóvember síðastliðnum, ætlaði sér að fjárkúga rússneskan auðkýfing sem búsettur er í Lundúnum. Þetta fullyrti vinkona hans í samtali við fréttaþáttinn sextíu mínútur en hann verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn kemur. 5.1.2007 17:43
Frelsaður eftir sex ár í gíslingu Fyrrum ráðherra í Kólumbíu, sem hefur verið í haldi mannræningja í sex ár, tókst í dag að komast undan þeim eftir björgunaraðgerðir kólumbíska hersins. Talið er að tugir uppreisnarmanna í FARC hafi látið lífið í aðgerðunum. 5.1.2007 17:32
Litla moskan á sléttunni Framleiðendur nýrra gamanþátta fyrir sjónvarp, í Kanada , bíða spenntir eftir að sjá hver viðbrögðin verða við þáttunum. Þáttaröðin heitir "Litla moskan á sléttunni," og fjallar um hóp múslima sem setjast að í kristnum smábæ í Kanada, og samskiptum þessara tveggja hópa. 5.1.2007 16:45
Bush tilnefnir Negroponte sem varautanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Mike McConnel, fyrrverandi yfirmann Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, sem nýjan yfirmann leyniþjónustustofnana landsins. Hann tekur við af John Negroponte sem verður varautanríkisráðherra og því staðgengill Condoleezu Rice. 5.1.2007 15:35
Amazon-geimfar á loft Miljarðamæringurinn Jeff Bezos sem stofnaði Amazon.com hefur skotið geimfari á loft. Geimfarið flaug 85 metra upp í loftið og lenti aftur mjúklega. 5.1.2007 15:00
Snyrtilegi pissuskálaþjófurinn Breska lögreglan leitar nú að manni sem stal pissuskálinni af Royal Oak pöbbinum í Southampton. Maðurinn kom þar inn, pantaði sér hálfpott af bjór og fór nokkrar ferðir á klósettið. Á öryggismyndavél sést hann svo troða skálinni í bakpoka sinn og fara með hana út. 5.1.2007 14:32
Höfrungar vernduðu sundmenn fyrir hákarli Höfrungavaða verndaði fjóra sundmenn fyrir stórum hvítum hákarli, undan ströndum Nýja Sjálands, á dögunum. Mennirnir voru strandverðir, sem voru á æfingasundi um eitthundrað metra frá landi, þegar hákarlinn kom aðvífandi. 5.1.2007 14:25
Erkibiskup Varsjár var njósnari kommúnista Kaþólska kirkjan í Póllandi segir að erkibiskupinn í Varsjá, sem Benedikt páfi skipaði í embætti í síðasta mánuði, hefði um tuttugu ára skeið verið njósnari fyrir leyniþjónustu kommúnistastjórnar landsins. Óvíst er hvort hann verður vígður í embættið, á sunnudag. 5.1.2007 14:00
Þær berrössuðu unnu Nektardans hefur verið opinberlega viðurkenndur sem listform, í Noregi og fjármálaráðherra landsins er ekki skemmt. Hún ætlar að heimta af þessu skatt, hvað sem það kostar. 5.1.2007 13:21
Varar við áframhaldandi hættu á fuglaflensufaraldri Margaret Chan, nýr forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, segir fuglaflensu enn vera ógn við mannkyn þrátt fyrir að lítið hafi frést af fuglaflensutilvikum undanfarna mánuði. 5.1.2007 13:17
Verðlækkanir hérlendis ólíklegar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið undanfarna daga og hefur ekki verið lægra í hálft annað ár. Talsmenn íslensku olíufélaganna segja ólíklegt að eldsneytisverð lækki hér á landi á næstunni vegna óhagstæðrar gengisþróunar. 5.1.2007 12:04
Leikjatölva drepur dreng Sjö ára drengur frá Englandi fékk banvænt raflost á laugardaginn þegar hann var að hlaða Game Boy leikjatölvuna sína. Drengurinn var í fríi með foreldrum sínum í Pukhet í Thailandi og hafði fengið leikjatölvuna í jólagjöf. Hann var að taka hana úr sambandi við hleðslutæki sem móðir hans hafði keypt í Thailandi þegar hann fékk straum og lést. 5.1.2007 11:54
Pyntingarmál í Afganistan skekja dönsk stjórnmál Komið hefur í ljós að pyntingar fóru fram í fangabúðum í Kanadahar í Afganistan þar sem fangar ,sem danskir hermenn afhentu bandarískum starfsbræðrum sínum í mars 2002, dvöldu. Frá þessu er greint á vef Politiken. 5.1.2007 11:47
Rúmið hrundi í miðri fæðingu Þriggja barna móðir hefur lagt fram kvörtun til fæðingardeildar í Leeds eftir að rúm sem hún lá í hrundi í miðjum klíðum - í miðjum hríðum. Linda Makin segir að hún, barnið hennar nýfætt og ljósmóðirin hafi legið "í kássu" á gólfinu eftir að rúmið brast. 4.1.2007 21:57
Peretz hugsanlega á förum Ísraelsk sjónvarpsstöð hefur eftir heimildum á skrifstofu forsætisráðherrans Olmerts að Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels verði senn færður til í starfi og ef hann þiggi ekki annað ráðherraembætti þá verði hann rekinn. Skrifstofa Olmerts segir sögusagnirnar hins vegar tilhæfulausar. 4.1.2007 20:59
Olmert biðst afsökunar á drápunum Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, baðst í kvöld afsökunar á því að fjórir Palestínumenn létust í hernaðaraðgerð Ísraelsmanna í Ramallah á Vesturbakkanum í dag. Hermenn á skriðdrekum og jarðýtum réðust inn í bæinn til þess að handtaka grunaða hryðjuverkamenn. Fjórir létust og 20 slösuðust en hermennirnir handtóku fjóra. 4.1.2007 20:07
Demókratar við völd eftir 12 ár Demókratar tóku formlega völdin í Washington þegar meirihluti þeirra í báðum deildum Bandaríkjaþings sór embættiseið í dag. Nancy Pelosi varð fyrsta konan sem kjörin er forseti neðri deildarinnar, líkt og búist hafði verið við. Einnig var brotið blað í sögu þingsins þegar nýr þingmaður sór í fyrsta skipti embættiseið meö hönd á kóraninum en ekki biblíunni. 4.1.2007 19:46
Egyptar mótmæla árásum á Ramallah Forseti Egyptalands mótmælti hernaðaraðgerðum Ísraela í palestínska bænum Ramallah á einkafundi sínum með Ehud Olmert , forsætisráðherra Ísraels í dag. Fundur Olmerts og Hosni Mubaraks í egypska strandbænum Sharm el-Sheikh er tilraun til að stilla til friðar á svæðinu. Árásir Ísraela á Ramallah eru frekar sjaldgæfar. 4.1.2007 17:45
Spænska lögreglan finnur 100 kíló af sprengiefni Spænska lögreglan greindi frá því dag að hún hefði fundið 100 kíló af sprengiefni í baskneska bænum Atxondo. Telur hún að ETA, Aðskilnaðarhreyfing Baska, hafi átt sprengiefnið en það fannst í gámi í bænum. 4.1.2007 17:07
Átök í Ramallah í dag Að minnsta kosti fjórir Paletínumenn létust og 20 særðust í aðgerðum Ísraelshers í Ramallah á Vesturbakkanum í dag. Markmið hersins var að sögn ísraelskra yfirvalda að handtaka eftirlýsta Palestínumenn en í brýnu sló á milli þeirra og herskárra Palestínumanna í miðborg Ramallah. 4.1.2007 16:47
Offitufaraldurinn er kominn til Noregs Eftir að sjö mismunandi rannsóknir í Noregi hafa verið bornar saman í einni risarannsókn kemur í ljós að fimmti hver Norðmaður er of feitur. Í rannsókninni voru yfir 300.000 þátttakendur á aldrinum 20 -75 ára. 4.1.2007 16:41
Demókratar taka við stjórnvelinum á Capitol-hæð Nýkjörið Bandaríkjaþing kemur saman í fyrsta sinn í dag og þá verða það demókratar sem stjórna bæði fulltrúadeildinni og öldungadeildinni. Eftir þingkosningar í nóvemer er Demókrataflokkurinn í fyrsta sinn í tólf ár með meirihluta í báðum deildum og ljóst þykir að erfiðara verður fyrir stjórn Bush Bandaríkjaforseta að koma málum í gegnum þingið. 4.1.2007 15:38
Varað við frekari sprengjutilræðum í Bangkok Yfirvöld í Taílandi hafa varað almenning við frekari sprengjuárásum líkum þeim sem gerðar voru á gamlárskvöld í höfuðborginni Bangkok. Þá sprungu átta sprengjur á stuttum tíma í höfuðborginni með þeim afleiðingum að þrír létust og að minnsta kosti 30 særðust. 4.1.2007 14:29
Hótel í Osló kært vegna kynþáttamismununar Miðstöð gegn kynþáttahatri í Noregi hefur kært framferði forsvarsmanna hótels í Olsó til lögreglu eftir að hópi Kúbverja var neitað um gistingu á hótelinu. 4.1.2007 14:13
Hátt í sextíu látnir úr kulda í Bangladess Hátt í sextíu manns dáið úr kulda í norðurhluta Bangladess í vikunni, þar af um 40 í gær. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir yfirvöldum á svæðinu. Flestir hinna látnu eru betlarar og heimilislausir. 4.1.2007 13:39
Farþegaflugvél enn ófundin í Indónesíu Enn hefur hvorki fundist tangur né tetur af indónesísku farþegaflugvélinni sem saknað hefur verið frá því á nýársdag. Í morgun var greint frá því að ekkert neyðarkall hefði borist frá vélinni og engar vísbendingar væru um að vélarbilun hefði orðið. 4.1.2007 13:00
Árið í fyrra blautt í Noregi Árið í fyrra var votviðrasamt í Noregi og gildir þá einu hvort horft er til höfuðborgarinnar Olsóar eða annara hluta landsins. Fram kemur á vef norska ríkisútvarpsins að mest úrkoma hafi fallið á síðustu fjórum mánuðum ársins en hún var alls 930 millímetrar í Olsó á síðasta ári. 4.1.2007 11:49
Spá því að árið 2007 verði það heitasta frá upphafi mælinga Breskir veðurfræðingar spá því að árið 2007 verði það heitasta í heiminum frá því að mælingar hófust. Samkvæmt útreikningum eru 60 prósenta líkur á að árið verði jafnheitt eða heitara en metárið 1998. 4.1.2007 11:29
Darwin verðlaunin veitt Charles Darwin verðlaunin hafa verið veitt fyrir síðastliðið ár en þau eru veitt því fólki sem bætir genamengi mannsins mest með þeirri einföldu athöfn að draga sig úr því. Fyrstu verðlaun hlaut par sem náði sér í risastóran auglýsingabelg, fylltan af helíumi, sem það síðan skreið inn í, í von um að komast í vímu. Þau fundust síðar látin af völdum súrefnisskorts. 4.1.2007 11:25
Ólympíueldurinn skal upp á Everest Áður en kyndillinn með Ólympíueldinum kemur til Peking fyrir Ólympíuleikana 2008 mun leið hans liggja upp á hæsta tind á jörðinni, á Mount Everest í Himalaya-fjallgarðinum. Búið er að útbúa sérstaka öskju þar sem eldurinn getur brunnið þegar hann fer um súrefnissnautt háfjallaloftið. 3.1.2007 23:21
Ahmadinejad segir Ísraelsríki munu falla Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, réðst enn á ný gegn Ísraelsríki í ræðu sinni í dag og sagðist telja að það myndi brátt falla. Hann gengur þó ekki jafnlangt og hann hefur gert en hann hefur bæði hótað að þurrka Ísrael af kortinu og haldið því fram að helförin gegn gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni sé uppspuni. 3.1.2007 22:33
Kampusch hefði getað komist hjá mannráni Natascha Kampusch sagði í viðtali í dag að hún hefði getað komist hjá því að vera rænt af manninum sem hélt henni í 8 ár, ef hún hefði bara farið yfir götuna þegar hún sá að hann elti sig á bíl sínum daginn örlagaríka árið 1998. Hún var hins vegar hrædd um að það liti asnalega út. Viktor Priklopil hélt Natöschu fanginni í kjallaraholu undir bílskúrnum í átta ár. 3.1.2007 21:16
Láta umskera sig til að forðast HIV Æ fleiri úgandskir karlmenn sækjast nú eftir umskurði eftir að vísindamenn komust að þeirri niðurstöðu að forhúðarlausir væru menn ekki jafnmóttækilegir fyrir HIV-smiti. Þarlent dagblað segir að umskurðum hafi fjölgað úr tæplega 400 árið 2005 í 2.500 árið 2006. 3.1.2007 20:58
Þjóðvarðliðar stilla til friðar í Rio Alríkisstjórn Brasilíu segist ætla að senda þjóðvarðsveitir herlögreglunnar til Rio de Janeiro ríkis til þess að hafa hemil á götuofbeldi milli glæpagengja sem hafi orðið 20 manns að bana í borginni undanfarna daga. Ríkisstjórin Sergio Cabral segist líka ætla að biðja um aukinn stuðning frá hernum. 3.1.2007 20:41
Kenía lokar landamærunum Kenía hefur lokað landamærum sínum að Sómalíu og sent hersveitir til að stöðva stríðan straum sómalskra flóttamanna inn í landið. Helsta ástæðan fyrir lokuninni er ótti kenískra stjórnvalda við að íslamskir uppreisnarmenn flýi yfir til Kenía. 420 flóttamenn, flest konur og börn, hafa verið sendir til baka frá landamærunum. 3.1.2007 19:45
Hefðu farið öðruvísi að Kalt stríð er skollið á milli Bandaríkjamanna og forsætisráðherra Íraks. Ráðherrann segist vilja hverfa úr embætti hið fyrsta og segir Bandaríkjamenn hafa brugðist klúðurslega við ofbeldi í Írak. Bandaríkjamenn svara um hæl að þeir hefðu hagað aftöku Saddams Hússeins öðruvísi. 3.1.2007 18:45
Giftursamleg björgun miskunnsams samverja Lífi 19 ára unglings var bjargað, á giftusamlegan hátt, eftir að hann féll á neðanjarðarlestarteina í New York-borg í gær. Vegfarandi kastaði sér á teinana og lagðist ofan á drenginn til að halda honum niðri um leið og lest var ekið yfir þá. Báðum heilsast vel. 3.1.2007 18:45
Fundu annað fórnarlamb ETA Börgunarmenn á flugvellinum í Madríd fundu nú undir kvöld lík annars mannanna sem létust í kraftmikilli bílsprengingu ETA á laugardag. Lík mannsins fannst í rústum á bílastæðinu þar sem sprengjan sprakk. Mennirnir voru báðir ekvadorskir innflytjendur. Þeir eru fyrstu mennirnir sem látast í hryðjuverkum ETA í rúm þrjú ár. 3.1.2007 18:24