Fleiri fréttir Ný brú mili Danmerkur og Svíþjóðar Eyrarsundsstofnunin svokallaða, sem sá um byggingu brúarinnar milli Kaupmannahafnar og Malmö vill láta byggja nýja brú milli landanna. Hún á að liggja milli Helsingjaborgar í Svíþjóð og Helsingjaeyrar í Danmörku. Tillaga stofnunarinnar er fram komin vegna þeirra miklu aukningar sem orðið hefur á umferð yfir Eyrarsundsbrúna. 3.1.2007 15:19 Hagur þýskra skánar 3.1.2007 14:24 Handtekinn fyrir hengingarmyndir 3.1.2007 13:53 Kona verður Buffæta Hinir skrautlega klæddu verðir við Tower of London hafa staðið vaktina síðan 1845. Allir hafa þeir verið karlmenn. Nú hefur hinsvegar verið tilkynnt að kona muni á næstunni ganga í raðir þeirra. 3.1.2007 13:36 Fimm handteknir vegna tengsla við hryðjuverkaárásir Spænska lögreglan hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að hafa hjálpað tveimur mönnum, sem grunaðir eru um aðild að sprengjuárásunum á lestarkerfið í Madríd í mars 2004, að flýja. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti landsins í dag. 3.1.2007 13:24 Amerískar rán-marglyttur í Oslóarfirði Norðmenn hafa af því áhyggjur að amerískar rán-marglyttur hafa fundist í miklum breiðum á Oslóarfirði. Það var þessi tegund af marglyttum sem lagði fiskveiðar í Svartahafi í rúst á áttunda áratugnum. 3.1.2007 12:59 Búinn að fá nóg Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, vill ekki sitja annað kjörtímabil í embætti og vill losna úr ráðuneytinu áður en núverandi tímabil er liðið. Hann gagnrýnir Bandaríkjamenn fyrir að bregðast of seint við ofbeldi í landinu. Bandaríkjamenn segja á móti að þeir hefðu hagað aftöku Saddams Hússein öðruvísi. 3.1.2007 12:45 Ostur ekki góður fyrir bresk börn Ostur er ekki góður kostur samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Bretlandi. Þar í landi er bannað að auglýsa mat sem hefur hátt innihald fitu, sykurs og salts í barnatímum. Samkvæmt stöðlunum sem notaðir eru um svokallað „ruslfæði“ þá er ostur mjög slæmur fyrir börn og reyndar talinn verri en sykrað morgunkorn, kartöfluflögur og ostborgarar. 3.1.2007 12:44 Flugvélar enn leitað Enn er allt á huldu með örlög rúmlega eitt hundrað farþega sem voru um borð í indónesískri flugvél sem hvarf að morgni nýársdags. Vélin var á leið frá Jövu til Súlavesí-eyja. Ranglega var sagt frá því í gær að flugvélin og 12 eftirlifendur hefðu fundist í gærmorgun og vakti það fyrst von hjá ástvinum þeirra sem er saknað en hún snerist síðan upp í reiði. 3.1.2007 12:30 Aðeins 17.206 myrtir á árinu Kólumbíska lögreglan fagnar því um áramótin að morðmál í landinu hafa ekki verið færri í 20 ár. "Einungis" 17.206 létust fyrir hendi morðingja á árinu, eða rétt rúmlega 47 á dag. Mannránum fækkar einnig umtalsvert, úr 329 árið 2005 niður í 200 á síðasta ári. Kólumbía hefur einna hæsta morðtíðni í heimi en hlutirnir virðast vera að færast í rétta átt. 2.1.2007 23:02 Kosið verður um hjónaband samkynhneigðra Kjósendur í Massachusetts fá að kjósa um það í kosningunum 2008 hvort banna eigi hjónaband samkynhneigðra í eina fylki Bandaríkjanna þar sem það er nú leyfilegt. Þessi ákvörðun löggjafarþings fylkisins verður hins vegar endurskoðuð og er hugsanlegt að hætt verði við að leyfa kjósendum að ákveða. 2.1.2007 21:52 Neituðu að spá um Kastró Æðstu prestar algengustu trúarbragða á Kúbu, hinnar afrísk-kúbönsku Santeria-trúar, neituðu að spá nokkuð fyrir um heilsu Fídels Kastrós á nýju ári en mæltu með því að eyjaskeggjar fórnuðu geit, til að leggja sitt af mörkum til friðar og félagslegrar einingar í landinu. Kastró hefur ekki sést opinberlega í rúmlega fimm mánuði. 2.1.2007 21:09 Ekki kynþáttahatur að gefa svínasúpu Franskur dómstóll ákvað í dag að samtök sem hafa tengsl við öfgahægriöfl megi halda áfram að bjóða heimilislausum svínasúpu. Lögregla hafði kært samtökin fyrir kynþáttahatur í fæðuvalinu, þar sem bæði múslimar og gyðingar neiti sér um svínakjöt af trúarlegum ástæðum. 2.1.2007 20:30 Maliki vill ekki sitja annað kjörtímabil Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, hefur ekki áhuga á að sitja annað kjörtímabil og óskar þess jafnvel að þurfa ekki að sitja út núverandi kjörtímabil. Hann segist einungis hafa tekið að sér embættið því hann hafi talið að það þjónaði hagsmunum þjóðarinnar. Þetta segir hann í viðtali við blaðið Wall Street Journal, sem birtist í dag. 2.1.2007 20:11 Stórhuga Ban Ki-moon Ban Ki-moon, nýr framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ætlar að byggja upp traust á samtökin. Hann ætlar einnig að beina sérstakri athygli að krefjandi verkefnum í Miðausturlöndum og Darfur auk þess sem hann ætlar að efna þúsaldarmarkmið S.þ. um að helminga fátækt fyrir árið 2015. Ban mætti í fyrsta skipti í nýju vinnuna í dag. 2.1.2007 19:15 Margmenni við útförina Útför Geralds Ford, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var haldin Washington í dag en hann andaðist á öðrum degi jóla, 93 ára að aldri. 2.1.2007 19:00 Aftökunni var næstum frestað Litlu munaði að aftökunni á Saddam Hussein yrði frestað vegna framkomu böðlanna í hans garð og hafa írösk stjórnvöld fyrirskipað rannsókn á málinu. Óttast er að átök trúarhópa muni magnast vegna þessa en aldrei hafa jafnmargir borgarar látið lífið vegna átaka í Írak og í síðasta mánuði. 2.1.2007 18:45 Misvísandi upplýsingar frá þorpshöfðingja Enn er allt á huldu með örlög um hundrað farþega og áhafnar um borð í farþegaflugvél sem hvarf á leið sinni frá Jövu til Súlavesíu-eyja í gærmorgun. Í morgun var sagt að flakið og 12 eftirlifendur væru fundnir en svo var ekki. Rangar upplýsingar frá þorpshöfðinga á Súlavesíu-eyju hafi ratað í fjölmiðla. 2.1.2007 18:38 Uppreisnarmennirnir segjast munu snúa aftur Sómalsku uppreisnarmennirnir í Íslamska dómstólaráðinu hótuðu síðdegis að þeir myndu snúa aftur og halda áfram baráttunni við stjórnarherinn. Uppreisnarmennirnir þverneita að þiggja boð stjórnarinnar um uppgjöf saka í skiptum fyrir að uppreisnarmennirnir skili vopnum sínum. 2.1.2007 18:07 Fjórir forsetar minntust Fords George Bush, forseti Bandaríkjanna, og þrír fyrrverandi forsetar, George Bush eldri, Bill Clinton og Jimmy Carter, fylgdu Gerald Ford, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna til grafar í Washington í dag. Núverandi forseti minntist Fords sem mannsins sem tókst að endurreisa trú Bandaríkjamanna á lýðræði í landinu eftir Watergate-hneykslið. 2.1.2007 17:51 Vill alþjóðlegt bann við dauðarefsingum 2.1.2007 16:52 Danir þyngdust um 7000 tonn um jólin Prófessor við danska landbúnaðarháskólann hefur reiknað út að Danir hafi þyngst um samtals sjöþúsund tonn um hátíðarnar. Það er 1,8 kíló á mann. Arne Astrup segir að það sé mikið borðað þessa daga og að gangan í kringum jólatréð dugi ekki til þess að halda þyngdinni í skefjum. 2.1.2007 16:21 Giuliani ætlar að safna sjö milljörðum Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, ætlar að safna eitthundrað milljónum dollara eða rúmlega sjö milljörðum króna í kosningasjóð sinn fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Þetta, meðal annars, kemur fram í 140 blaðsíðna kosningaáætlun sem blaðið New York Daily News komst yfir, með einhverjum hætti. 2.1.2007 16:01 Ekkert spurst til flugvélar 2.1.2007 15:22 Reykingar bannaðar í dönsku járnbrautarlestunum Reykingar í dönsku járnbrautarlestunum verða bannaðar frá og með næstkomandi sunnudegi þegar ný ferðaáætlun tekur gildi. 2.1.2007 15:15 Mengunarkvóti fyrir embættismenn Norðmenn ætla að kaupa mengunarkvóta fyrir embættismenn sem ferðast með flugvélum, í opinberum erindagjörðum. Útblástur flugvéla er sá út blástur gróðurhúsalofttegunda sem vex hvað hraðast, og eru ódýr fargjöld lággjaldaflugfélaga helsti þátturinn í því. 2.1.2007 14:57 Teddy Kollek látinn Teddy Kollek, fyrrverandi borgarstjóri í Jerúsalem, er látinn, 95 ára að aldri. Kollek var með litríkari ísraelskum stjórnmálamönnum og óþreytandi baráttumaður fyrir friðsamlegri sambúð Ísraela og Palestínumanna. Hann var fimm sinnum kjörinn borgarstjóri í Jerúsalem og gegndi því embætti í tuttugu og átta ár. 2.1.2007 14:34 Sér fyrir endann á snjóleysi í Austurríki Skíðaiðkendur í Austurríki taka líklegast gleði sína á ný þegar líður á vikuna enda er búist við að langvarandi hitaskeiði ljúki þá og það fari að snjóa í landinu. 2.1.2007 14:20 Gæsluvarðhald vegna morða á vændiskonum 2.1.2007 14:16 Hefndu sín á bæjardólginum Um 400 íbúar smábæjar á Spáni hefndu sín á bæjardólginum um hátíðarnar, með því að brenna allar eigur hans. Javier Bernui hafði búið í Villaconejos í sjö ár og íbúarnir voru orðnir þreyttir á yfirgangi hans. Hann fór oft um vopnaður hnífi eða byssu, hrinti frá sér fólki á börum og í verslunum og tók það sem honum sýndist, án þess að borga. 2.1.2007 14:07 Sátu föst í lyftu á gamlárskvöld Gamlárskvöldið fór á annan veg en áætlað var hjá ólánssömum hópi fólks í Schrannenhalle-verslunarmiðstöðinni í München. Í stað þess að eyða þessu síðasta kvöldi ársins í faðmi fjölskyldu og vina þurftu fjórtánmenningarnir að dúsa í þriggja fermetra stórri lyftu sem fest hafði á milli hæða. 2.1.2007 13:15 Aldrei fleiri látist í einum mánuði í Írak en í desemer Fleiri íraskir borgarar létust vegna ofbeldisverka í desember en í nokkrum öðrum mánuði frá því að landið var hernumið vorið 2003. Átök á milli trúarhópa í landinu eru höfuðorsök þessa mikla mannfalls. 2.1.2007 13:00 Fimm ára stúlka bitin til bana Fimm ára stúlka var í gær bitin til bana af pit bull terrier hundi í Englandi. Amma hennar, sem var með hana í pössun, meiddist líka mikið á höndum þegar hún var að reyna að forða stúlkunni frá hundinum. Hundurinn var í eigu frænda stúlkunnar og bjó í sama húsi og amman. 2.1.2007 11:56 Flakið ekki enn fundið Yfirvöld á Indónesíu upplýstu fyrir stundu að flak farþegaflugvélar sem hrapaði á leið sinni frá Jövu til Súmötru í gær hefði ekki fundist líkt og haldið hefði verið fram. Fregnir bárust af því í morgun að vélin hefði fundist í fjallgarði á vestari hluta Súlavesíu-eyju. 2.1.2007 11:46 Enginn lést í pílagrímsferðum Pílagrímsferðum til Mekka er nú lokið án þess að nokkur hafi látist. Í fyrra létust 362 pílagrímar í troðningi og árið 2004 létust 250 manns en öll öryggisgæsla var hert til muna þetta árið og þá sérstaklega vegna staðfestingar á dauðdómi yfir Saddam Hússein og hugsanlegra árása al-Kaída. 2.1.2007 11:22 Kárahnjúkavirkjun mótmælt í Lundúnum í dag Kárahnjúkavirkjun var mótmælt með sérstökum hætti í Lundúnum í dag. Mótmælendur frá ýmsum löndum klifruðu upp á Sánkti Pálskirkju þar í borg og Tate Modern listasafnið til að vekja athygli á framkvæmdum á Íslandi. 1.1.2007 19:15 Loftárás í Írak Bandarískar orustuþotur gerðu snemma í morgun loftárás á húsaþyrpingu nærri skrifstofu háttsetts stjórnmálamanns súnnía vestur af Bagdad, höfuðborg Íraks. Vitni segja hermenn síðan hafa myrt meðlimi súnní-fjölskyldu í nálægu húsi. Árásin eykur enn á spennu sem hefur magnast í landinu frá aftöku Saddams Hússeins, fyrrverandi forseta, í fyrradag. 1.1.2007 19:00 Nýju ári og ESB aðild fagnað Flugeldar lýstu upp nýársnóttina víðar en á Íslandi. Skoteldar tóku á móti nýju ári í Lundúnum, Berlín og Búkarest. Á síðastnefnda staðnum var þó einnig verið að fagna inngöngu í Evrópusambandið en á miðnætti urðu Búlgarar og Rúmenar aðilar að bandalaginu og sambandsríkin eru því orðin 27. 1.1.2007 18:45 Leitað að indónesískri flugvél Leitar- og björgunarmenn hafa verið sendir af stað til að leita að indónesískri farþegavél með 102 innanborðs sem ekki hefur heyrst í síðan klukkan 7 í morgun. Flugvélin var á leiðinni frá Jövu til Manado á Sulawesi-eyju. Flugið ætti ekki að taka nema tvo tíma en á miðri leið tapaðist samband við vélina og hefur ekki heyrst í henni síðan. 1.1.2007 15:26 Óttast um farþegavél með 102 um borð í Indónesíu Ekkert hefur spurst til indónesískrar farþegavélar síðan klukkan 7 í morgun en hún átti að lenda um átta-leytið í morgun. 96 farþegar eru í vélinni, sem er af gerðinni Boeing 737-400, og 6 áhafnarmeðlimir. Flugumferðarstjórar töpuðu sambandi við hana þegar hún var í 35 þúsund feta hæð á leið til Manado á Sulawesi-eyju. 1.1.2007 13:14 Slysalaus pílagrímsganga Engin meiri háttar slys hafa orðið í pílagrímsferð múslima í og við Mekka í Sádi-Arabíu. Meira en tvær og hálf milljón múslima taka í dag þátt í lokagrýtingarathöfninni, þar sem 362 pílagrímar létust fyrir tæpu ári síðan. Pílagrímarnir þakka Allah, - og umfangsmiklum öryggisráðstöfunum Sádi-Araba. 1.1.2007 13:09 Nýju ári fagnað víða um heim Sinn er siður í hverju landi þegar kemur að því að fagna nýju ári. Í New York var ekki brugðið út af hefðinni og tímamótunum fagnað á Times-torgi. 1.1.2007 13:00 Uppreisnarmenn hraktir á flótta Íslamskir uppreisnarmenn hörkust í morgun frá hafnabroginni Kismayo í suðurhluta Sómalíu. Borgin var síðasta vígi uppreisnarmanna eftir að þeir hröktust frá höfuðborginni Mogadishu fyrir helgi. Forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn Sómalíu hefur gefið uppreisnarmönnum þriggja daga frest til að leggja niður vopn. Þeim verði gefnar upp sakir geri þeir það ellegar afvopnaðir með valdi. 1.1.2007 12:30 Sjá næstu 50 fréttir
Ný brú mili Danmerkur og Svíþjóðar Eyrarsundsstofnunin svokallaða, sem sá um byggingu brúarinnar milli Kaupmannahafnar og Malmö vill láta byggja nýja brú milli landanna. Hún á að liggja milli Helsingjaborgar í Svíþjóð og Helsingjaeyrar í Danmörku. Tillaga stofnunarinnar er fram komin vegna þeirra miklu aukningar sem orðið hefur á umferð yfir Eyrarsundsbrúna. 3.1.2007 15:19
Kona verður Buffæta Hinir skrautlega klæddu verðir við Tower of London hafa staðið vaktina síðan 1845. Allir hafa þeir verið karlmenn. Nú hefur hinsvegar verið tilkynnt að kona muni á næstunni ganga í raðir þeirra. 3.1.2007 13:36
Fimm handteknir vegna tengsla við hryðjuverkaárásir Spænska lögreglan hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að hafa hjálpað tveimur mönnum, sem grunaðir eru um aðild að sprengjuárásunum á lestarkerfið í Madríd í mars 2004, að flýja. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti landsins í dag. 3.1.2007 13:24
Amerískar rán-marglyttur í Oslóarfirði Norðmenn hafa af því áhyggjur að amerískar rán-marglyttur hafa fundist í miklum breiðum á Oslóarfirði. Það var þessi tegund af marglyttum sem lagði fiskveiðar í Svartahafi í rúst á áttunda áratugnum. 3.1.2007 12:59
Búinn að fá nóg Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, vill ekki sitja annað kjörtímabil í embætti og vill losna úr ráðuneytinu áður en núverandi tímabil er liðið. Hann gagnrýnir Bandaríkjamenn fyrir að bregðast of seint við ofbeldi í landinu. Bandaríkjamenn segja á móti að þeir hefðu hagað aftöku Saddams Hússein öðruvísi. 3.1.2007 12:45
Ostur ekki góður fyrir bresk börn Ostur er ekki góður kostur samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Bretlandi. Þar í landi er bannað að auglýsa mat sem hefur hátt innihald fitu, sykurs og salts í barnatímum. Samkvæmt stöðlunum sem notaðir eru um svokallað „ruslfæði“ þá er ostur mjög slæmur fyrir börn og reyndar talinn verri en sykrað morgunkorn, kartöfluflögur og ostborgarar. 3.1.2007 12:44
Flugvélar enn leitað Enn er allt á huldu með örlög rúmlega eitt hundrað farþega sem voru um borð í indónesískri flugvél sem hvarf að morgni nýársdags. Vélin var á leið frá Jövu til Súlavesí-eyja. Ranglega var sagt frá því í gær að flugvélin og 12 eftirlifendur hefðu fundist í gærmorgun og vakti það fyrst von hjá ástvinum þeirra sem er saknað en hún snerist síðan upp í reiði. 3.1.2007 12:30
Aðeins 17.206 myrtir á árinu Kólumbíska lögreglan fagnar því um áramótin að morðmál í landinu hafa ekki verið færri í 20 ár. "Einungis" 17.206 létust fyrir hendi morðingja á árinu, eða rétt rúmlega 47 á dag. Mannránum fækkar einnig umtalsvert, úr 329 árið 2005 niður í 200 á síðasta ári. Kólumbía hefur einna hæsta morðtíðni í heimi en hlutirnir virðast vera að færast í rétta átt. 2.1.2007 23:02
Kosið verður um hjónaband samkynhneigðra Kjósendur í Massachusetts fá að kjósa um það í kosningunum 2008 hvort banna eigi hjónaband samkynhneigðra í eina fylki Bandaríkjanna þar sem það er nú leyfilegt. Þessi ákvörðun löggjafarþings fylkisins verður hins vegar endurskoðuð og er hugsanlegt að hætt verði við að leyfa kjósendum að ákveða. 2.1.2007 21:52
Neituðu að spá um Kastró Æðstu prestar algengustu trúarbragða á Kúbu, hinnar afrísk-kúbönsku Santeria-trúar, neituðu að spá nokkuð fyrir um heilsu Fídels Kastrós á nýju ári en mæltu með því að eyjaskeggjar fórnuðu geit, til að leggja sitt af mörkum til friðar og félagslegrar einingar í landinu. Kastró hefur ekki sést opinberlega í rúmlega fimm mánuði. 2.1.2007 21:09
Ekki kynþáttahatur að gefa svínasúpu Franskur dómstóll ákvað í dag að samtök sem hafa tengsl við öfgahægriöfl megi halda áfram að bjóða heimilislausum svínasúpu. Lögregla hafði kært samtökin fyrir kynþáttahatur í fæðuvalinu, þar sem bæði múslimar og gyðingar neiti sér um svínakjöt af trúarlegum ástæðum. 2.1.2007 20:30
Maliki vill ekki sitja annað kjörtímabil Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, hefur ekki áhuga á að sitja annað kjörtímabil og óskar þess jafnvel að þurfa ekki að sitja út núverandi kjörtímabil. Hann segist einungis hafa tekið að sér embættið því hann hafi talið að það þjónaði hagsmunum þjóðarinnar. Þetta segir hann í viðtali við blaðið Wall Street Journal, sem birtist í dag. 2.1.2007 20:11
Stórhuga Ban Ki-moon Ban Ki-moon, nýr framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ætlar að byggja upp traust á samtökin. Hann ætlar einnig að beina sérstakri athygli að krefjandi verkefnum í Miðausturlöndum og Darfur auk þess sem hann ætlar að efna þúsaldarmarkmið S.þ. um að helminga fátækt fyrir árið 2015. Ban mætti í fyrsta skipti í nýju vinnuna í dag. 2.1.2007 19:15
Margmenni við útförina Útför Geralds Ford, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var haldin Washington í dag en hann andaðist á öðrum degi jóla, 93 ára að aldri. 2.1.2007 19:00
Aftökunni var næstum frestað Litlu munaði að aftökunni á Saddam Hussein yrði frestað vegna framkomu böðlanna í hans garð og hafa írösk stjórnvöld fyrirskipað rannsókn á málinu. Óttast er að átök trúarhópa muni magnast vegna þessa en aldrei hafa jafnmargir borgarar látið lífið vegna átaka í Írak og í síðasta mánuði. 2.1.2007 18:45
Misvísandi upplýsingar frá þorpshöfðingja Enn er allt á huldu með örlög um hundrað farþega og áhafnar um borð í farþegaflugvél sem hvarf á leið sinni frá Jövu til Súlavesíu-eyja í gærmorgun. Í morgun var sagt að flakið og 12 eftirlifendur væru fundnir en svo var ekki. Rangar upplýsingar frá þorpshöfðinga á Súlavesíu-eyju hafi ratað í fjölmiðla. 2.1.2007 18:38
Uppreisnarmennirnir segjast munu snúa aftur Sómalsku uppreisnarmennirnir í Íslamska dómstólaráðinu hótuðu síðdegis að þeir myndu snúa aftur og halda áfram baráttunni við stjórnarherinn. Uppreisnarmennirnir þverneita að þiggja boð stjórnarinnar um uppgjöf saka í skiptum fyrir að uppreisnarmennirnir skili vopnum sínum. 2.1.2007 18:07
Fjórir forsetar minntust Fords George Bush, forseti Bandaríkjanna, og þrír fyrrverandi forsetar, George Bush eldri, Bill Clinton og Jimmy Carter, fylgdu Gerald Ford, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna til grafar í Washington í dag. Núverandi forseti minntist Fords sem mannsins sem tókst að endurreisa trú Bandaríkjamanna á lýðræði í landinu eftir Watergate-hneykslið. 2.1.2007 17:51
Danir þyngdust um 7000 tonn um jólin Prófessor við danska landbúnaðarháskólann hefur reiknað út að Danir hafi þyngst um samtals sjöþúsund tonn um hátíðarnar. Það er 1,8 kíló á mann. Arne Astrup segir að það sé mikið borðað þessa daga og að gangan í kringum jólatréð dugi ekki til þess að halda þyngdinni í skefjum. 2.1.2007 16:21
Giuliani ætlar að safna sjö milljörðum Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, ætlar að safna eitthundrað milljónum dollara eða rúmlega sjö milljörðum króna í kosningasjóð sinn fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Þetta, meðal annars, kemur fram í 140 blaðsíðna kosningaáætlun sem blaðið New York Daily News komst yfir, með einhverjum hætti. 2.1.2007 16:01
Reykingar bannaðar í dönsku járnbrautarlestunum Reykingar í dönsku járnbrautarlestunum verða bannaðar frá og með næstkomandi sunnudegi þegar ný ferðaáætlun tekur gildi. 2.1.2007 15:15
Mengunarkvóti fyrir embættismenn Norðmenn ætla að kaupa mengunarkvóta fyrir embættismenn sem ferðast með flugvélum, í opinberum erindagjörðum. Útblástur flugvéla er sá út blástur gróðurhúsalofttegunda sem vex hvað hraðast, og eru ódýr fargjöld lággjaldaflugfélaga helsti þátturinn í því. 2.1.2007 14:57
Teddy Kollek látinn Teddy Kollek, fyrrverandi borgarstjóri í Jerúsalem, er látinn, 95 ára að aldri. Kollek var með litríkari ísraelskum stjórnmálamönnum og óþreytandi baráttumaður fyrir friðsamlegri sambúð Ísraela og Palestínumanna. Hann var fimm sinnum kjörinn borgarstjóri í Jerúsalem og gegndi því embætti í tuttugu og átta ár. 2.1.2007 14:34
Sér fyrir endann á snjóleysi í Austurríki Skíðaiðkendur í Austurríki taka líklegast gleði sína á ný þegar líður á vikuna enda er búist við að langvarandi hitaskeiði ljúki þá og það fari að snjóa í landinu. 2.1.2007 14:20
Hefndu sín á bæjardólginum Um 400 íbúar smábæjar á Spáni hefndu sín á bæjardólginum um hátíðarnar, með því að brenna allar eigur hans. Javier Bernui hafði búið í Villaconejos í sjö ár og íbúarnir voru orðnir þreyttir á yfirgangi hans. Hann fór oft um vopnaður hnífi eða byssu, hrinti frá sér fólki á börum og í verslunum og tók það sem honum sýndist, án þess að borga. 2.1.2007 14:07
Sátu föst í lyftu á gamlárskvöld Gamlárskvöldið fór á annan veg en áætlað var hjá ólánssömum hópi fólks í Schrannenhalle-verslunarmiðstöðinni í München. Í stað þess að eyða þessu síðasta kvöldi ársins í faðmi fjölskyldu og vina þurftu fjórtánmenningarnir að dúsa í þriggja fermetra stórri lyftu sem fest hafði á milli hæða. 2.1.2007 13:15
Aldrei fleiri látist í einum mánuði í Írak en í desemer Fleiri íraskir borgarar létust vegna ofbeldisverka í desember en í nokkrum öðrum mánuði frá því að landið var hernumið vorið 2003. Átök á milli trúarhópa í landinu eru höfuðorsök þessa mikla mannfalls. 2.1.2007 13:00
Fimm ára stúlka bitin til bana Fimm ára stúlka var í gær bitin til bana af pit bull terrier hundi í Englandi. Amma hennar, sem var með hana í pössun, meiddist líka mikið á höndum þegar hún var að reyna að forða stúlkunni frá hundinum. Hundurinn var í eigu frænda stúlkunnar og bjó í sama húsi og amman. 2.1.2007 11:56
Flakið ekki enn fundið Yfirvöld á Indónesíu upplýstu fyrir stundu að flak farþegaflugvélar sem hrapaði á leið sinni frá Jövu til Súmötru í gær hefði ekki fundist líkt og haldið hefði verið fram. Fregnir bárust af því í morgun að vélin hefði fundist í fjallgarði á vestari hluta Súlavesíu-eyju. 2.1.2007 11:46
Enginn lést í pílagrímsferðum Pílagrímsferðum til Mekka er nú lokið án þess að nokkur hafi látist. Í fyrra létust 362 pílagrímar í troðningi og árið 2004 létust 250 manns en öll öryggisgæsla var hert til muna þetta árið og þá sérstaklega vegna staðfestingar á dauðdómi yfir Saddam Hússein og hugsanlegra árása al-Kaída. 2.1.2007 11:22
Kárahnjúkavirkjun mótmælt í Lundúnum í dag Kárahnjúkavirkjun var mótmælt með sérstökum hætti í Lundúnum í dag. Mótmælendur frá ýmsum löndum klifruðu upp á Sánkti Pálskirkju þar í borg og Tate Modern listasafnið til að vekja athygli á framkvæmdum á Íslandi. 1.1.2007 19:15
Loftárás í Írak Bandarískar orustuþotur gerðu snemma í morgun loftárás á húsaþyrpingu nærri skrifstofu háttsetts stjórnmálamanns súnnía vestur af Bagdad, höfuðborg Íraks. Vitni segja hermenn síðan hafa myrt meðlimi súnní-fjölskyldu í nálægu húsi. Árásin eykur enn á spennu sem hefur magnast í landinu frá aftöku Saddams Hússeins, fyrrverandi forseta, í fyrradag. 1.1.2007 19:00
Nýju ári og ESB aðild fagnað Flugeldar lýstu upp nýársnóttina víðar en á Íslandi. Skoteldar tóku á móti nýju ári í Lundúnum, Berlín og Búkarest. Á síðastnefnda staðnum var þó einnig verið að fagna inngöngu í Evrópusambandið en á miðnætti urðu Búlgarar og Rúmenar aðilar að bandalaginu og sambandsríkin eru því orðin 27. 1.1.2007 18:45
Leitað að indónesískri flugvél Leitar- og björgunarmenn hafa verið sendir af stað til að leita að indónesískri farþegavél með 102 innanborðs sem ekki hefur heyrst í síðan klukkan 7 í morgun. Flugvélin var á leiðinni frá Jövu til Manado á Sulawesi-eyju. Flugið ætti ekki að taka nema tvo tíma en á miðri leið tapaðist samband við vélina og hefur ekki heyrst í henni síðan. 1.1.2007 15:26
Óttast um farþegavél með 102 um borð í Indónesíu Ekkert hefur spurst til indónesískrar farþegavélar síðan klukkan 7 í morgun en hún átti að lenda um átta-leytið í morgun. 96 farþegar eru í vélinni, sem er af gerðinni Boeing 737-400, og 6 áhafnarmeðlimir. Flugumferðarstjórar töpuðu sambandi við hana þegar hún var í 35 þúsund feta hæð á leið til Manado á Sulawesi-eyju. 1.1.2007 13:14
Slysalaus pílagrímsganga Engin meiri háttar slys hafa orðið í pílagrímsferð múslima í og við Mekka í Sádi-Arabíu. Meira en tvær og hálf milljón múslima taka í dag þátt í lokagrýtingarathöfninni, þar sem 362 pílagrímar létust fyrir tæpu ári síðan. Pílagrímarnir þakka Allah, - og umfangsmiklum öryggisráðstöfunum Sádi-Araba. 1.1.2007 13:09
Nýju ári fagnað víða um heim Sinn er siður í hverju landi þegar kemur að því að fagna nýju ári. Í New York var ekki brugðið út af hefðinni og tímamótunum fagnað á Times-torgi. 1.1.2007 13:00
Uppreisnarmenn hraktir á flótta Íslamskir uppreisnarmenn hörkust í morgun frá hafnabroginni Kismayo í suðurhluta Sómalíu. Borgin var síðasta vígi uppreisnarmanna eftir að þeir hröktust frá höfuðborginni Mogadishu fyrir helgi. Forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn Sómalíu hefur gefið uppreisnarmönnum þriggja daga frest til að leggja niður vopn. Þeim verði gefnar upp sakir geri þeir það ellegar afvopnaðir með valdi. 1.1.2007 12:30