Fleiri fréttir Erfðabreyttur vírus sem krabbameinslyf? Erfðabreyttur vírus getur sýkt og drepið krabbameinsfrumur í heila fólks án þess að skaða heilbrigðar frumur. Þetta kom fram í nýjum rannsóknum sem voru birtar í dag. 9.11.2006 20:57 Allen viðurkennir ósigur George Allen, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Virgínufylki viðurkenndi rétt í þessu ósigur sinn í kosningunum sem fram fóru þann 7. nóvember síðastliðinn. 9.11.2006 20:17 Nýtt bænahús gyðinga opnar í Munchen Nýtt bænahús gyðinga opnaði í Munchen í Þýskalandi í dag, 68 árum eftir að Adolf Hitler lét rífa niður bænahúsið sem stóð þar áður. Litið er á byggingu bænahússins sem staðfestingu á fjölgun gyðingasamfélagsins í Munchen en nasistar hreinsuðu borgina af gyðingum á valdatíma sínum. 9.11.2006 20:05 Demókratar nær öruggir um sigur Allt bendir til að demókratar hafi náð meirihluta í báðum deildum í bandarísku þingkosningunum, í fyrsta sinn í tólf ár. George Bush forseti hefur rétt út sáttahönd til leiðtoga þeirra og kveðst nú opinn fyrir öllum hugmyndum um hernaðinn í Írak. 9.11.2006 19:15 Olmert segir að mistök hafi verið gerð Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að um "tæknileg mistök" hafi verið að ræða þegar stórskotaliðsárás var gerð á bæinn Beit Hanoun á Gazaströndinni sem kostaði átján lífið, þar af tíu börn. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræddi árásina á fundi sínum í dag. 9.11.2006 19:00 Palestínumenn hrópa á hefnd Tugir þúsunda Palestínumanna grétu og hrópuðu á hefnd þegar þeir fylgdu þeim sem létust í árásum Ísraela á Beit Hanoun til grafar í dag. Alls létust 18 óbreyttir borgara í árásinni sem Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, kallaði "tæknileg mistök". 9.11.2006 18:42 Fréttahaukurinn Ed Bradley látinn Fréttahaukurinn Ed Bradley, sem sjónvarpsáhorfendur þekkja úr fréttaskýringarþáttunum 60 mínútur, lést í dag á Mount Sinai spítalanum í New York. Hann var 65 ára og var banameinið hvítblæði. 9.11.2006 18:29 Demókratar að ná yfirhöndinni í öldungadeild bandaríska þingsins Búist er við því að repúblikaninn George Allen samþykki í dag að hann hafi tapað í kosningum, til öldungadeildar bandaríska þingsins, fyrir demókratanum Jim Webb. Ef þetta gengur eftir munu demókratar ná yfirhöndinni í öldungadeild bandaríska þingsins í fyrsta sinn í tólf ár. 9.11.2006 17:45 Flóttamenn framtíðarinnar munu flýja sjóinn Ef þær loftslagsbreytingar sem nú eru í gangi halda áfram að versna verða þjóðir heims verða að vera tilbúnar til þess að hjálpa milljónum "sjávarflóttamanna", en það er fólk sem þarf að flýja heimili sín vegna hækkandi yfirborðs sjávar. 9.11.2006 17:25 Bush er tilbúinn til að hlusta á allt og alla George Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann væri opinn fyrir öllum tillögum um hvernig skuli leysa málin í Írak. Forsetinn lét þessi orð falla á fundi með fréttamönnum, í Rósagarðinum. Þar var forsetinn mættur ásamt ríkisstjórn sinni. 9.11.2006 16:44 Sjóorrusta við strendur Sri Lanka Tuttugu og þrem hraðskreiðum fallbyssubátum var sökkt í mikilli sjóorrustu undan ströndum Sri Lanka, í dag, að sögn stjórnvalda. 9.11.2006 16:29 Það eru pabbarnir sem skipta máli Ný bandarísk rannsókn bendir til þess að ef feður tala gott og vandað mál, þá hafi það mikil áhrif á málþroska barna. Það skiptir hinsvegar engu máli hvort móðirin talar gott og vandað mál, eða ekki. 9.11.2006 16:03 Andlitslausi maðurinn er látinn Austur-þýski njósnarinn Markus Wolf er látinn, áttatíu og þriggja ára að aldri. Lengst af kalda stríðinu var hann einn valdamesti maður Austur-Þýskalands. 9.11.2006 15:32 Forsætisráðherra Ísraels segir árásina tæknileg mistök Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í dag að árásin sem gerð var á Gaza-svæðið í gær, hefði verið tæknileg mistök hjá stórskotaliðinu. Átján óbreyttir borgarar féllu í árásinni, þar á meðal mörg börn. 9.11.2006 14:56 Tveimur kjarnorkueldflaugum skotið í dag Kalda stríðinu kann að vera lokið, en kjarnorkuveldin vilja þó vera viss um að þau geti ennþá sprengt hvert annað í loft upp, ef svo ber undir 9.11.2006 14:45 Interpol óttast týnd norsk vegabréf 9.11.2006 14:26
Sjá næstu 50 fréttir
Erfðabreyttur vírus sem krabbameinslyf? Erfðabreyttur vírus getur sýkt og drepið krabbameinsfrumur í heila fólks án þess að skaða heilbrigðar frumur. Þetta kom fram í nýjum rannsóknum sem voru birtar í dag. 9.11.2006 20:57
Allen viðurkennir ósigur George Allen, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Virgínufylki viðurkenndi rétt í þessu ósigur sinn í kosningunum sem fram fóru þann 7. nóvember síðastliðinn. 9.11.2006 20:17
Nýtt bænahús gyðinga opnar í Munchen Nýtt bænahús gyðinga opnaði í Munchen í Þýskalandi í dag, 68 árum eftir að Adolf Hitler lét rífa niður bænahúsið sem stóð þar áður. Litið er á byggingu bænahússins sem staðfestingu á fjölgun gyðingasamfélagsins í Munchen en nasistar hreinsuðu borgina af gyðingum á valdatíma sínum. 9.11.2006 20:05
Demókratar nær öruggir um sigur Allt bendir til að demókratar hafi náð meirihluta í báðum deildum í bandarísku þingkosningunum, í fyrsta sinn í tólf ár. George Bush forseti hefur rétt út sáttahönd til leiðtoga þeirra og kveðst nú opinn fyrir öllum hugmyndum um hernaðinn í Írak. 9.11.2006 19:15
Olmert segir að mistök hafi verið gerð Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að um "tæknileg mistök" hafi verið að ræða þegar stórskotaliðsárás var gerð á bæinn Beit Hanoun á Gazaströndinni sem kostaði átján lífið, þar af tíu börn. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræddi árásina á fundi sínum í dag. 9.11.2006 19:00
Palestínumenn hrópa á hefnd Tugir þúsunda Palestínumanna grétu og hrópuðu á hefnd þegar þeir fylgdu þeim sem létust í árásum Ísraela á Beit Hanoun til grafar í dag. Alls létust 18 óbreyttir borgara í árásinni sem Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, kallaði "tæknileg mistök". 9.11.2006 18:42
Fréttahaukurinn Ed Bradley látinn Fréttahaukurinn Ed Bradley, sem sjónvarpsáhorfendur þekkja úr fréttaskýringarþáttunum 60 mínútur, lést í dag á Mount Sinai spítalanum í New York. Hann var 65 ára og var banameinið hvítblæði. 9.11.2006 18:29
Demókratar að ná yfirhöndinni í öldungadeild bandaríska þingsins Búist er við því að repúblikaninn George Allen samþykki í dag að hann hafi tapað í kosningum, til öldungadeildar bandaríska þingsins, fyrir demókratanum Jim Webb. Ef þetta gengur eftir munu demókratar ná yfirhöndinni í öldungadeild bandaríska þingsins í fyrsta sinn í tólf ár. 9.11.2006 17:45
Flóttamenn framtíðarinnar munu flýja sjóinn Ef þær loftslagsbreytingar sem nú eru í gangi halda áfram að versna verða þjóðir heims verða að vera tilbúnar til þess að hjálpa milljónum "sjávarflóttamanna", en það er fólk sem þarf að flýja heimili sín vegna hækkandi yfirborðs sjávar. 9.11.2006 17:25
Bush er tilbúinn til að hlusta á allt og alla George Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann væri opinn fyrir öllum tillögum um hvernig skuli leysa málin í Írak. Forsetinn lét þessi orð falla á fundi með fréttamönnum, í Rósagarðinum. Þar var forsetinn mættur ásamt ríkisstjórn sinni. 9.11.2006 16:44
Sjóorrusta við strendur Sri Lanka Tuttugu og þrem hraðskreiðum fallbyssubátum var sökkt í mikilli sjóorrustu undan ströndum Sri Lanka, í dag, að sögn stjórnvalda. 9.11.2006 16:29
Það eru pabbarnir sem skipta máli Ný bandarísk rannsókn bendir til þess að ef feður tala gott og vandað mál, þá hafi það mikil áhrif á málþroska barna. Það skiptir hinsvegar engu máli hvort móðirin talar gott og vandað mál, eða ekki. 9.11.2006 16:03
Andlitslausi maðurinn er látinn Austur-þýski njósnarinn Markus Wolf er látinn, áttatíu og þriggja ára að aldri. Lengst af kalda stríðinu var hann einn valdamesti maður Austur-Þýskalands. 9.11.2006 15:32
Forsætisráðherra Ísraels segir árásina tæknileg mistök Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í dag að árásin sem gerð var á Gaza-svæðið í gær, hefði verið tæknileg mistök hjá stórskotaliðinu. Átján óbreyttir borgarar féllu í árásinni, þar á meðal mörg börn. 9.11.2006 14:56
Tveimur kjarnorkueldflaugum skotið í dag Kalda stríðinu kann að vera lokið, en kjarnorkuveldin vilja þó vera viss um að þau geti ennþá sprengt hvert annað í loft upp, ef svo ber undir 9.11.2006 14:45
Hamas hikar við árásir á Ísrael Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, ræddi í dag í síma við Khaled Mashaal, hinn útlæga leiðtoga Hamas-samtakanna. Embættismenn segja að þetta sé vísbending um að þeir séu nálægt því að ná samkomulagi um þjóðstjórn. 9.11.2006 14:09
Nýtt afbrigði af blátunguveirunni greinist á Sardiníu Áður óþekkt afbrigði af blátunguveirunni sem veldur sjúkdómi í dýrum hefur fundist á ítölsku eyjunni Sardiníu og hefur 20 kílómetra varnarsvæði verið lokað af í kringum þar sem veiran fannst. Evrópuráðið tilkynnti í dag að veiran hefði greinst á mánudag og að hún hefði líklega borist til Evrópu með skordýrum. Hún hefur ekki áður fundist í Evrópu. 9.11.2006 13:00
Fórnarlömb árása Ísraels borin til grafar Tugþúsundir Palestínumanna fylgdu fórnarlömbum árásar Ísraela í Beit Hanoun í fyrrinótt til grafar í morgun. Átján manns létust í árásinni, þar á meðal fjölmargar konur og börn. Yfir höfðum syrgjenda sveimuðu ómannaðar ísraelskar eftirlitsflugvélar. 9.11.2006 12:19
Ekki búist við róttækum breytingum á stefnu Bandaríkjanna Þótt Donald Rumsfeld hafi látið af embætti varnarmálaráðherra og Robert Gates, fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustunnar CIA, komið í stað hans er ekki búist við róttækum breytingum á stefnu Bandaríkjamanna í Írak. 9.11.2006 12:00
Íhuga kosti við að vinna saman Sameinuðu þjóðirnar íhuga að blanda saman sveitum Sameinuðu þjóðanna í Darfur-héraði og sveitum Afríkusambandsins. Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Darfur-héraði í Súdan hafa mætt mikilli andstöðu. Sveitir Afríkusambandsins hafa takmarkað fjármagn og eru illa útbúnar. Sameinaðar sveitir gætu nýtt styrkleika beggja og náð þannig betri árangri. 8.11.2006 23:39
Ungir fjölmenntu á kjörstaði Fjöldi ungra Bandaríkjamanna sem mætti á kjörstaði í gær hefur ekki verið meiri í tuttugu ár. Í kringum 24% kosningabærra Bandaríkjamanna undir þrítugu kaus í þingkosningunum í gær. Talið er að þróun mála í Írak hafi ýtt á hópinn að kjósa og tryggja Demókrötum meirihluta á þingi. 8.11.2006 23:01
Komast leiðar sinnar með stolið norskt vegabréf Norðmenn eru uggandi yfir þeirri þróun að sífellt fleiri séu stöðvaðir við vegabréfaeftirlit með falsað norskt vegabréf. Fréttavefur Aftenposten í Noregi greinir frá því að hjá Interpol séu tilkynningar um 130.000 norsk vegabréf sem er saknað. Alls eru 12 milljón stolin vegabréf á skrá hjá Interpol. Haft er eftir yfirmanni hjá lögreglunni í Noregi að stolin norsk vegabréf séu vinsæl erlendis. 8.11.2006 22:24
Rumsfeld taldi gott fyrir alla að hann léti af embætti Donald Rumsfeld, fráfarandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir niðurstöður þingkosninganna sem fram fóru í gær hluta ástæðunnar fyrir því að hann ákvað að segja af sér. 8.11.2006 22:00
Vatíkanið fordæmir Gleðigöngu samkynhneigðra Vatíkanið hefur fordæmt Gleðigöngu samkynhneigðra sem halda á í Jerúsalem í Ísrael á föstudaginn kemur. Vatíkanið telur gönguna særandi í garð trúaðra og hvetur yfirvöld í Ísrael til að koma í veg fyrir gönguna. 8.11.2006 21:20
Viðurkenndi að stefnan í málefnum Íraks virki ekki nógu vel George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í ræðu sem hann hélt fyrr í dag að stefna Bandaríkjamanna í málefnum Íraks væri ekki að virka nógu vel og ekki nógu hratt. 8.11.2006 20:12
Demókratar hafa tryggt sér Montana Demókrataflokkurinn hefur tryggt sér öldunadeildarþingsæti í Montana en ekki er talin þörf á endurtalningu þar eins og líklegt var talið fyrr í dag. Þar með hafa Demókratar bætt við sig fimm öldungadeildarþingsætum og vantar aðeins eitt þingsæti til að ná völdum í Öldungadeildinni. 8.11.2006 19:35
Donald Rumsfeld sagði af sér Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur sagt af sér. Við starfi hans tekur Robert Gates fyrrverandi yfirmaður CIA. Afsögnin er tilraun Bush forseta til að sætta ólík sjónarmið um utanríkisstefnu Bandaríkjanna eftir ósigur repúblikana í þingkosningunum í gær. Bandaríkjaforseti tilkynnti þetta í sjónvarpsávarpi nú fyrir skömmu. 8.11.2006 18:09
Viðbrögð Bush við niðurstöðum kosninganna Demókratar unnu stórsigur í þingkosningunum í Bandaríkjunum í gær. Flokkurinn náði aftur meirihluta í fulltrúadeild eftir tólf ára eyðimerkurgöngu. Svo gæti farið að flokkurinn nái einnig meirihluta í öldungadeild en eftir er að telja á ný í tveimur fylkjum. Útlit er fyrir að tvö síðustu ár George Bush, Bandaríkjaforseta, í embætti verði honum erfið. Hann flytur sjónvarpsávarp kl. 18 að íslenskum tíma sem verður sent út beint á visir.is 8.11.2006 17:08
Sjáðu Napólí og deyðu Lögreglan í Napólí, á Ítalíu, handtók í dag þrjátíu og, tvo menn, í fyrstu stóraðgerð sinni til þess að binda enda á morðöldu sem gengið hefur yfir borgina undanfarna mánuði. 8.11.2006 16:50
Skothríð í Danmörku Danska lögreglan hefur beitt skotvopnum sínum mun oftar á þessu ári, en undanfarin ár. Það sem af er árinu hefur verið hleypt af níutíu skotum. 8.11.2006 16:32
Móðir Parísar stolt af klámmyndbandinu Móðir Parísar Hilton er stolt af öllu sem hún hefur gert, einnig klámmyndbandinu sem fór á netið, ef marka má nýja ævisögu hennar sem Jerry nokkur Oppenheimer skráði. 8.11.2006 15:47
Evrópusambandið setur Tyrkjum úrslitakosti Evrópusambandið hefur gefið Tyrkjum frest fram í miðjan desember til þess að opna hafnir sínar fyrir skipum frá Kýpur, eða taka þeim afleiðingum sem áframhaldandi hafnbann hefði á aðildarumsókn landsins. 8.11.2006 15:43
Segir Bandaríkjastjórn áfram stefna að öryggi í Írak Zalmey Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, fullvissaði í dag írakska stjórnmálamenn um að George Bush Bandaríkjaforseti stefndi áfram að því að tryggja öryggi í Írak og að hann myndi vinna með demókrötum að því markmiði. Þessi orð lét hann falla í kjölfar sigurs demókrata í kosningum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær, en kosningarnar þóttu um margt mælikvarði á stuðning Bandaríkjamanna við aðgerðirnar í Írak. 8.11.2006 15:37
Þrennt hálshöggvið í Saudi-Arabíu Þrír Pakistanar, voru teknir af lífi í Saudi-Arabíu, í dag, fyrir smygl á fíkniefnum. Þetta voru tvær konur og einn karlmaður. Þau voru hálshöggvin á almannafæri. 8.11.2006 14:55
Spennið beltin og kveikið ykkur í sígarettu "Við viljum minna farþega á að það er leyfilegt að reykja í þessu flugi". Þannig hljóðar kynningin hjá nýju þýsku flugfélagi, sem hefur fengið nafnið Smokers International Airways. 8.11.2006 14:40
Plastpokar bannaðir Zanzibar hefur bannað plastpoka, til þess að vernda umhverfið. Háar sektir, og jafnvel fangelsi, liggur við því að framleiða, flytja inn eða selja plastpoka. 8.11.2006 14:01
Rússar tvöfalda verð á gasi til Georgíu Forsætisráðherra Georgíu sakaði Rússa í dag um pólitíska kúgun, vegna ákvörðunar um að meira en tvöfalda verð á gasi sem Rússar selja til landsins. Slík hækkun myndi leggja efnahag Georgíu í rúst. 8.11.2006 13:31
Michael Jackson snýr aftur á sviðið Michael Jackson mun snúa aftur og flytja lög af albúminu "Thriller" á tónlistarhátíð í Lundúnum um miðjan þennan mánuð. Jackson mun þar taka við viðurkenningu fyrir að hafa selt meira en eitthundrað milljón plötur á ferli sínum. 8.11.2006 13:23
Erfiður róður framundan hjá Bush Landslagið í bandarískum stjórnmálum er breytt eftir niðurstöður þingkosninga þar í gær. Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum segja ljóst að Bandaríkjaforseta muni reynast erfitt að koma stefnumálum sínum í gegnum þingið og staða hans verði allt önnur en síðustu sex árin. 8.11.2006 12:15
Fleiri miðaldra karlmenn drekka sig til dauða Fjöldi þeirra miðaldra karlmanna sem drekka sig til dauða hefur meira en tvöfaldast frá árinu 1991. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Bretlands birti í dag. Aukning á dauðsföllum tengdum áfengisdrykkju hefur orðið hvað mest í hópi karlmanna á aldrinum 35 ára til 54 ára. 7.11.2006 21:28
Á þriðja tug hafa látist í sprengingum í Írak í dag Sautján týndu lífi og að tuttugu slösuðust þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á kaffihúsi í Bagdad fyrr í kvöld. Að minnsta kosti tuttugu og tveir hafa látist í sprengingum í Írak í dag. 7.11.2006 21:19
Boðið að fara í HIV próf eftir spítalalegu Sjúklingum á fjórum sjúkrahúsum í Bretlandi hefur verið boðið að fara í HIV próf þar sem komið hefur í ljós að starfsmaður sem annaðist þá er HIV smitaður. 7.11.2006 20:50
Býst við að dauðadómnum verði framfylgt innan árs Nouri Maliki, forsætisráðherra Íraks, býst við að dauðadómnum yfir Saddam Hussein verði framfylgt innan árs. Fréttastofan BBC greinir frá þessu en Maliki býst ekki við að horfið verið frá því að framfylgja dómum vegna þrýstings þar um. 7.11.2006 20:00
Umsátrinu lokið Ísraelski herinn hefur dregið lið sitt til baka frá bænum Beit Hanoun á Gazaströndinni eftir sex daga langt umsátur. Fimmtíu Palestínumenn og einn Ísraeli liggja í valnum eftir umsátrið. 7.11.2006 19:30
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent