Fleiri fréttir 10 létust í lestarslysi í Frakklandi Að minnsta kosti 10 manns létust og tuttugu slösuðust í lestarslysi í Frakklandi í dag þegar farþegalest lenti í árekstri við vöruflutningalest sem kom úr gagnstæðri átt. Áreksturinn varð kl. 10.45 að íslenskum tíma í Zoufftgen í Norð-austurhluta landsins. Farþegalestin var á leið frá Lúxemborg til Nancy og hafði skipt um lestarteina, þar sem verið var að gera við teinana sem lestin átti að vera á. 11.10.2006 12:16 Önnur kjarnorkusprengja Japanskir fjölmiðlar segja frá því að hugsanlega hafi önnur kjarnasprengja verið sprengd í Norður Kóreu. Stjórnvöld í Pyongyang líta svo á að aukist þrýstingur Bandaríkjamanna jafngildi það stríðsyfirlýsingu. Þeir hafa hótað frekari kjarnatilraunum, en segjast einnig tilbúnir til bæði viðræðna og átaka. 11.10.2006 11:56 Alvarlegt lestarslys í Frakklandi Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka. 11.10.2006 11:33 Saddam Hussein mætir aftur í dómsal Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins. 11.10.2006 11:01 Hóta frekari tilraunasprengingum í N-Kóreu Norður-Kóreumenn hóta frekari kjarnorkutilraunum ef Bandaríkin halda herskárri stefnu sinni gagnvart landinu til streitu. Frá þessu greina japanskir fjölmiðlar og hafa eftir Kim-Yong-nam, næstráðanda við Kim Jong-il, forseta landsins, að ef Bandaríkin haldi áfram að beita Norður-Kóreu þrýstingi muni stjórnvöld í Pyongyang svara því með áþreifanlegum aðgerðum. 11.10.2006 10:06 Vilja refsiaðgerðir Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina. 10.10.2006 19:13 Fjórir fórust Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda. 10.10.2006 19:11 Opnað aftur á Heathrow 10.10.2006 16:52 Putin fordæmir morð á blaðakonu 10.10.2006 16:16 Playboykóngurinn minnkar við sig 10.10.2006 15:02 Vond eiginkona -og móðir 10.10.2006 14:49 Álma rýmd á Heathrow flugvelli 10.10.2006 14:36 Annað stóra flugslysið á Stord 10.10.2006 13:53 Múslimar ráðast á danskar vefsíður 10.10.2006 13:43 Neyðarástand vegna flóða í Grikklandi Miklar rigningar hafa orsakað skyndiflóð víða í Grikklandi síðasta sólarhringinn. Gríska ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi, en hundruð húsa hafa eyðilagst í flóðunum. Brýr og vegir í mörgum héruðum norður og miðhluta landsins hafa eyðilagst og járnbrautarteinar skolast burt og einangrað þannig fjölda íbúa við borgina Volos. 10.10.2006 11:57 Frakkar æfir vegna reykingarbanns Franskir reykingarmenn eru æfir vegna ákvörðunar franskra stjórnvalda um að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti í fyrradag að reykingar yrðu bannaðar í Frakklandi á flestum opinberum stöðum frá febrúar á þessu ári og á börum, veitingastöðum og næturklúbbum ellefu mánuðum síðar. 10.10.2006 11:00 Utanríkisráðherra Qatar og forseti Palestínu hittast Utanríkisráðherra Qatar fundaði með yfirvöldum í Palestínu í gær í von um að sætta andstæðar fylkingar í forystu stjórnarinnar. Sjeik Hamad Bin Jasseem hitti forseta Palestínu og yfirmann Fatah flokksins, Mahmoud Abbas, í þeirri von að með samvinnu verði aðstoð vesturlanda á Gaza og vesturbakkanum komið á aftur. 10.10.2006 10:45 Herstjórnin talin fresta stjórnarskrá Herstjórnin í Burma fundar í dag um nýja stjórnarskrá, en stjórnin er undir auknum alþjóðlegum þrýstingi vegna vantrúar á ríkjandi stjórnarfari í landinu. Herráðið valdi þá rúmlega 1,000 manns sem taka þátt í ráðstefnunni. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Aung San Suu Kyi, er í stofufangelsi og flokkur hennar er ekki þáttakandi í samningaviðræðunum. 10.10.2006 10:00 Google kaupir YouTube Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube, vefsíðu þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. YouTube var stofnað í febrúar á síðasta ári og varð fljótlega ein vinsælasta síðan á netinu sem dreifir myndbandsefni. 10.10.2006 09:55 Rútuslys í Guatemala Að minnsta kosti fjörtíu og tveir eru látnir, þar af sex börn, eftir rútuslys í norðurhluta Guatemala í dag. Rútan gjöreyðilagðist þegar hún fór út af veginum og rann niður 300 metra fjallshlíð. Hún var á leið frá borginni Huehuetenango, sem er nálægt landamærunum að Mexíkó, til Barillas. Fjórtíu og sjö farþegar voru í rútunni en aðeins fimm komust lífs af. 9.10.2006 23:04 Kjarnorkutilraunir höfðu ekki áhrif á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum hélst stöðugt í dag, á meðan gengi hlutabréfa og gjaldmiðla á mörkuðum í Evrópu og Asíu lækkaði nokkuð vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna. 9.10.2006 22:15 Frakkar æfir vegna reykingarbanns Franskir reykingarmenn eru æfir ákvörðun franskra stjórnvalda að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. 9.10.2006 21:03 Google kaupir YouTube Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube sem er netsíða þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. 9.10.2006 20:27 Vilja banna sölu vopna til Norður-Kóreu Bandaríkin hafa lagt til að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykki refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Tillagan felur meðal annars í sér vopnasölubann á Norður-Kóreu. Ekki er enn ljóst hvort að Rússar og Kínverjar styðji tillöguna. 9.10.2006 20:03 Ekki ber á geislavirkum leka Norður-Kóreumenn gerðu tilraun með kjarnorkusprengju í nótt. Norður-kóreska ríkisfréttastofan sagði sprenginguna hafa gengið að óskum og að ekki bæri á neinum geislavirkum leka. Sprengjan virðist ekki hafa verið mjög stór, en ýmislegt varðandi hana er enn á huldu. 9.10.2006 19:20 700 fluttir á sjúkrahús 9.10.2006 16:51 Palestínumenn vígbúast - hverjir gegn öðrum 9.10.2006 16:34 Notaði barnið sem vopn 9.10.2006 16:19 Ban Ki-Moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna 9.10.2006 15:44 Nýtt stríð Dana og múslima Ungliðar danska Þjóðarflokksins eru margir komnir í felur, af ótta við afleiðingarnar af sumarhátíð sinni, þar sem þeir gerðu grín að múslimum og Múhammed spámanni. Danska ríkisstjórnin hefur aftur varað þegna sína við að ferðast til Miðausturlanda, í bráð. 9.10.2006 15:23 Eitraðan reyk leggur yfir Kolding 9.10.2006 14:25 Alþjóðasamfélagið mun svara George Bush, Bandaríkjaforseti, fordæmdi kjarnorkutilraun N-Kóremanna í ávarpi fyrir stundu og sagði að alþjóðasamfélagið myndi bregðast við henni. Bush sagði Norður Kóremenn einna stórtækasta allra þjóða í að flytja út skotflaugatækni, til dæmis til Íran og Sýrlands. Hann sagði að útflutningur á kjarnorkuþekkingu til annarra ríkja eða ríkisfangslausra aðila, teldist alvarleg ógnun við öryggi Bandaríkjanna og Norður Kórea yrði gerð fyllilega ábyrg fyrir því framferði. 9.10.2006 14:25 Spáir Dagsbrún sigri í dönsku fríblaðastríði 9.10.2006 13:49 Njósnarar í mýflugu mynd Breskir hermálavísindamenn eru að þróa vélflugu sem nýta má til að njósna um staðsetningu óvina. Verkefnisstjórinn, Dr. Rafal Zbikowski, segir að fyrstu flugurnar gætu verið tilbúnar innan sjö til tíu ára. Hann hefur nú þegar hannað frumgerð ófleygrar vélflugu sem hermir eftir vængslætti venjulegrar flugu. 9.10.2006 13:45 Sprengingin fordæmd alls staðar Þjóðarleiðtogar hafa fordæmt kjarnorkutilraun N-Kóreu. Sprengjan sprakk hálftíma áður en forsætisráðherra Japan lenti í Seoul , þar sem hann ræðir við forsætisráðherra Suður Kóreu um málið. Kallað hefur verið til neyðarfundar hjá þjóðaröryggisráði Suður Kóreu og herafli landsins settur á hæsta viðbúnaðarstig. 9.10.2006 11:47 Fordæmdi þá sem teiknuðu skopmyndir Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, fordæmdi í dag þá flokksmeðlimi Danska þjóðarflokksins sem teiknuðu skopmyndir af Múhameð spámanni. 8.10.2006 20:16 Leitað að fórnarlömbum flugslys Brasilísk stjórnvöld sendu í dag áttatíu hermenn til viðbótar til að taka þátt í leit á Amazon svæðinu að fórnarlömbum flugslys. Slysið er versta fluglslys í sögu landsins en 154 létu lífið þegar flugvéli hrapaði á svæðinu 29. september síðastliðinn. 8.10.2006 20:00 Múslimar reiðir Dönum Ný Múhameðsmyndadeila gæti verið í uppsiglingu eftir að fréttir bárust af því að ungliðar í Danska þjóðarflokknum hefðu haft spámanninn að háði og spotti. Formaður flokksins segir að um saklaust grín hafi verið að ræða en múslimar í Arabaheiminum hóta aðgerðum. 8.10.2006 18:52 Fjórir létust í sprengingu í Bagdad Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja sprakk við vegkant nálægt Tíkrit í Írak í dag. Þeir slösuðu vrou fluttir á Tæknisjúkrahúsið í Tíkrit. Sprengjan sprakk um hundrað og þrjátíu kílómetra norður af Bagdad. 8.10.2006 18:39 Litháar vísa grunuðum njósnara úr landi Litháísk stjórnvöld eru sögð hafa rekið hátt settan starfsmann rússneska sendiráðsins úr landi í dag vegna gruns um njósnir. 8.10.2006 17:57 Íranar vanir hótunum Utanríkisráðherra Írana sagði í dag Írana vana hótunum um refsiaðgerðir og að þær hefðu engin áhrif á áform þeirra um að auðga Úran. 8.10.2006 17:15 Harðir bardagar í Diwaniya Bandarískar og íraskar hersveitir felldu tuttugu liðsmenn úr herflokki sjíaklerksins Muqtada al-Sadr í hörðum bardaga í borginni Diwaniya í nótt. 8.10.2006 11:30 Abe kominn til Kína Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er staddur í Kína í fyrstu opinberu heimsókn japansks leiðtoga þangað í fimm ár. Frá Kína mun Abe svo halda til Suður-Kóreu. 8.10.2006 11:00 Í óformlegum viðræðum við ETA Fulltrúar aðskilnaðarsamtaka Baska, ETA, og spænsku ríkisstjórnarinnar hafa átt í leynilegum könnunarviðræðum að undanförnu í Noregi. 8.10.2006 10:41 Kalvitis lýsir yfir sigri Ríkisstjórnin í Lettlandi hélt velli í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær, þeim fyrstu frá því ríkið gekk í Evrópusambandið fyrir rúmum tveimur árum. 8.10.2006 10:30 Sjá næstu 50 fréttir
10 létust í lestarslysi í Frakklandi Að minnsta kosti 10 manns létust og tuttugu slösuðust í lestarslysi í Frakklandi í dag þegar farþegalest lenti í árekstri við vöruflutningalest sem kom úr gagnstæðri átt. Áreksturinn varð kl. 10.45 að íslenskum tíma í Zoufftgen í Norð-austurhluta landsins. Farþegalestin var á leið frá Lúxemborg til Nancy og hafði skipt um lestarteina, þar sem verið var að gera við teinana sem lestin átti að vera á. 11.10.2006 12:16
Önnur kjarnorkusprengja Japanskir fjölmiðlar segja frá því að hugsanlega hafi önnur kjarnasprengja verið sprengd í Norður Kóreu. Stjórnvöld í Pyongyang líta svo á að aukist þrýstingur Bandaríkjamanna jafngildi það stríðsyfirlýsingu. Þeir hafa hótað frekari kjarnatilraunum, en segjast einnig tilbúnir til bæði viðræðna og átaka. 11.10.2006 11:56
Alvarlegt lestarslys í Frakklandi Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka. 11.10.2006 11:33
Saddam Hussein mætir aftur í dómsal Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins. 11.10.2006 11:01
Hóta frekari tilraunasprengingum í N-Kóreu Norður-Kóreumenn hóta frekari kjarnorkutilraunum ef Bandaríkin halda herskárri stefnu sinni gagnvart landinu til streitu. Frá þessu greina japanskir fjölmiðlar og hafa eftir Kim-Yong-nam, næstráðanda við Kim Jong-il, forseta landsins, að ef Bandaríkin haldi áfram að beita Norður-Kóreu þrýstingi muni stjórnvöld í Pyongyang svara því með áþreifanlegum aðgerðum. 11.10.2006 10:06
Vilja refsiaðgerðir Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina. 10.10.2006 19:13
Fjórir fórust Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda. 10.10.2006 19:11
Neyðarástand vegna flóða í Grikklandi Miklar rigningar hafa orsakað skyndiflóð víða í Grikklandi síðasta sólarhringinn. Gríska ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi, en hundruð húsa hafa eyðilagst í flóðunum. Brýr og vegir í mörgum héruðum norður og miðhluta landsins hafa eyðilagst og járnbrautarteinar skolast burt og einangrað þannig fjölda íbúa við borgina Volos. 10.10.2006 11:57
Frakkar æfir vegna reykingarbanns Franskir reykingarmenn eru æfir vegna ákvörðunar franskra stjórnvalda um að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti í fyrradag að reykingar yrðu bannaðar í Frakklandi á flestum opinberum stöðum frá febrúar á þessu ári og á börum, veitingastöðum og næturklúbbum ellefu mánuðum síðar. 10.10.2006 11:00
Utanríkisráðherra Qatar og forseti Palestínu hittast Utanríkisráðherra Qatar fundaði með yfirvöldum í Palestínu í gær í von um að sætta andstæðar fylkingar í forystu stjórnarinnar. Sjeik Hamad Bin Jasseem hitti forseta Palestínu og yfirmann Fatah flokksins, Mahmoud Abbas, í þeirri von að með samvinnu verði aðstoð vesturlanda á Gaza og vesturbakkanum komið á aftur. 10.10.2006 10:45
Herstjórnin talin fresta stjórnarskrá Herstjórnin í Burma fundar í dag um nýja stjórnarskrá, en stjórnin er undir auknum alþjóðlegum þrýstingi vegna vantrúar á ríkjandi stjórnarfari í landinu. Herráðið valdi þá rúmlega 1,000 manns sem taka þátt í ráðstefnunni. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Aung San Suu Kyi, er í stofufangelsi og flokkur hennar er ekki þáttakandi í samningaviðræðunum. 10.10.2006 10:00
Google kaupir YouTube Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube, vefsíðu þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. YouTube var stofnað í febrúar á síðasta ári og varð fljótlega ein vinsælasta síðan á netinu sem dreifir myndbandsefni. 10.10.2006 09:55
Rútuslys í Guatemala Að minnsta kosti fjörtíu og tveir eru látnir, þar af sex börn, eftir rútuslys í norðurhluta Guatemala í dag. Rútan gjöreyðilagðist þegar hún fór út af veginum og rann niður 300 metra fjallshlíð. Hún var á leið frá borginni Huehuetenango, sem er nálægt landamærunum að Mexíkó, til Barillas. Fjórtíu og sjö farþegar voru í rútunni en aðeins fimm komust lífs af. 9.10.2006 23:04
Kjarnorkutilraunir höfðu ekki áhrif á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum hélst stöðugt í dag, á meðan gengi hlutabréfa og gjaldmiðla á mörkuðum í Evrópu og Asíu lækkaði nokkuð vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna. 9.10.2006 22:15
Frakkar æfir vegna reykingarbanns Franskir reykingarmenn eru æfir ákvörðun franskra stjórnvalda að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. 9.10.2006 21:03
Google kaupir YouTube Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube sem er netsíða þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. 9.10.2006 20:27
Vilja banna sölu vopna til Norður-Kóreu Bandaríkin hafa lagt til að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykki refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Tillagan felur meðal annars í sér vopnasölubann á Norður-Kóreu. Ekki er enn ljóst hvort að Rússar og Kínverjar styðji tillöguna. 9.10.2006 20:03
Ekki ber á geislavirkum leka Norður-Kóreumenn gerðu tilraun með kjarnorkusprengju í nótt. Norður-kóreska ríkisfréttastofan sagði sprenginguna hafa gengið að óskum og að ekki bæri á neinum geislavirkum leka. Sprengjan virðist ekki hafa verið mjög stór, en ýmislegt varðandi hana er enn á huldu. 9.10.2006 19:20
Nýtt stríð Dana og múslima Ungliðar danska Þjóðarflokksins eru margir komnir í felur, af ótta við afleiðingarnar af sumarhátíð sinni, þar sem þeir gerðu grín að múslimum og Múhammed spámanni. Danska ríkisstjórnin hefur aftur varað þegna sína við að ferðast til Miðausturlanda, í bráð. 9.10.2006 15:23
Alþjóðasamfélagið mun svara George Bush, Bandaríkjaforseti, fordæmdi kjarnorkutilraun N-Kóremanna í ávarpi fyrir stundu og sagði að alþjóðasamfélagið myndi bregðast við henni. Bush sagði Norður Kóremenn einna stórtækasta allra þjóða í að flytja út skotflaugatækni, til dæmis til Íran og Sýrlands. Hann sagði að útflutningur á kjarnorkuþekkingu til annarra ríkja eða ríkisfangslausra aðila, teldist alvarleg ógnun við öryggi Bandaríkjanna og Norður Kórea yrði gerð fyllilega ábyrg fyrir því framferði. 9.10.2006 14:25
Njósnarar í mýflugu mynd Breskir hermálavísindamenn eru að þróa vélflugu sem nýta má til að njósna um staðsetningu óvina. Verkefnisstjórinn, Dr. Rafal Zbikowski, segir að fyrstu flugurnar gætu verið tilbúnar innan sjö til tíu ára. Hann hefur nú þegar hannað frumgerð ófleygrar vélflugu sem hermir eftir vængslætti venjulegrar flugu. 9.10.2006 13:45
Sprengingin fordæmd alls staðar Þjóðarleiðtogar hafa fordæmt kjarnorkutilraun N-Kóreu. Sprengjan sprakk hálftíma áður en forsætisráðherra Japan lenti í Seoul , þar sem hann ræðir við forsætisráðherra Suður Kóreu um málið. Kallað hefur verið til neyðarfundar hjá þjóðaröryggisráði Suður Kóreu og herafli landsins settur á hæsta viðbúnaðarstig. 9.10.2006 11:47
Fordæmdi þá sem teiknuðu skopmyndir Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, fordæmdi í dag þá flokksmeðlimi Danska þjóðarflokksins sem teiknuðu skopmyndir af Múhameð spámanni. 8.10.2006 20:16
Leitað að fórnarlömbum flugslys Brasilísk stjórnvöld sendu í dag áttatíu hermenn til viðbótar til að taka þátt í leit á Amazon svæðinu að fórnarlömbum flugslys. Slysið er versta fluglslys í sögu landsins en 154 létu lífið þegar flugvéli hrapaði á svæðinu 29. september síðastliðinn. 8.10.2006 20:00
Múslimar reiðir Dönum Ný Múhameðsmyndadeila gæti verið í uppsiglingu eftir að fréttir bárust af því að ungliðar í Danska þjóðarflokknum hefðu haft spámanninn að háði og spotti. Formaður flokksins segir að um saklaust grín hafi verið að ræða en múslimar í Arabaheiminum hóta aðgerðum. 8.10.2006 18:52
Fjórir létust í sprengingu í Bagdad Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja sprakk við vegkant nálægt Tíkrit í Írak í dag. Þeir slösuðu vrou fluttir á Tæknisjúkrahúsið í Tíkrit. Sprengjan sprakk um hundrað og þrjátíu kílómetra norður af Bagdad. 8.10.2006 18:39
Litháar vísa grunuðum njósnara úr landi Litháísk stjórnvöld eru sögð hafa rekið hátt settan starfsmann rússneska sendiráðsins úr landi í dag vegna gruns um njósnir. 8.10.2006 17:57
Íranar vanir hótunum Utanríkisráðherra Írana sagði í dag Írana vana hótunum um refsiaðgerðir og að þær hefðu engin áhrif á áform þeirra um að auðga Úran. 8.10.2006 17:15
Harðir bardagar í Diwaniya Bandarískar og íraskar hersveitir felldu tuttugu liðsmenn úr herflokki sjíaklerksins Muqtada al-Sadr í hörðum bardaga í borginni Diwaniya í nótt. 8.10.2006 11:30
Abe kominn til Kína Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er staddur í Kína í fyrstu opinberu heimsókn japansks leiðtoga þangað í fimm ár. Frá Kína mun Abe svo halda til Suður-Kóreu. 8.10.2006 11:00
Í óformlegum viðræðum við ETA Fulltrúar aðskilnaðarsamtaka Baska, ETA, og spænsku ríkisstjórnarinnar hafa átt í leynilegum könnunarviðræðum að undanförnu í Noregi. 8.10.2006 10:41
Kalvitis lýsir yfir sigri Ríkisstjórnin í Lettlandi hélt velli í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær, þeim fyrstu frá því ríkið gekk í Evrópusambandið fyrir rúmum tveimur árum. 8.10.2006 10:30