Fleiri fréttir Mannfall á Srí Lanka Á sjötta tug Tamíl-tígra hafa fallið í bardögum við stjórnarherinn á norðan- og austanverðri Srí Lanka undanfarinn sólarhring. 7.10.2006 13:15 Tóku saklausan borgara af lífi Bandarískur herlæknir vitnaði fyrir herdómstól í gær hvernig landgönguliðar í herdeild hans tóku íraskan borgara af lífi. 7.10.2006 13:00 Spennan magnast á Kóreuskaga Suðurkóreski herinn skaut viðvörunarskotum að hermönnum frá Norður-Kóreu sem fóru yfir landamærin á milli ríkjanna í morgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á næstu dögum. 7.10.2006 12:30 Karlar sofa betur einir Karlar sem sofa einir í rúmi eru hressari á morgnanna og heilastarfsemi þeirra er öflugri en þeirra sem deila rúmi með maka. 7.10.2006 11:45 Sjálfsmorðsárás í Tal Afar Átta létust og sex særðust í bílsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í morgun. Árásin var gerð á eftirlitsstöð lögreglu en engu að síður voru fjórir óbreyttir borgarar í hópi þeirra sem dóu. 7.10.2006 11:30 Líkir aðgerðum við þjóðernishreinsanir Gela Bezhuasvhili, utanríkisráðherra Georgíu, segir að framganga Rússa undanfarna daga gegn Georgíu jaðri við þjóðernishreinsanir. 7.10.2006 11:15 Skutu viðvörunarskotum á hermenn frá Norður-Kóreu Suður-kóreski herinn lét skjóta viðvörunarskotum á hermenn frá Norður-Kóreu sem sagðir eru hafa farið yfir vopnahléslínuna sem skilur löndin að. Eftir að um 40 skotum hafði verið skotið sneru Norður-Kóreumennirnir við. 7.10.2006 10:15 Dæmdur fyrir morð í Írak Bandarískur herlæknir, sem átti þátt í að ræna Íraka og myrða hann, var í kvöld dæmdur í 10 ára fangelsi en mun aðeins afplána eitt ár þar sem hann mun bera vitni gegn félögum sínum, sem ákærðir eru fyrir morðið. 6.10.2006 23:52 Engin leynifangelsi í Þýskalandi Stjórnvöld í Þýskalandi hafa neitað fréttum frá í dag þess efnis að háttsettir liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna, þar á meðal einn höfuðpauranna á bak við hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001, hafi verið í haldið í fangelsi á herstöðvum Bandaríkjahers í Þýskalandi án vitneskju yfirvalda. Það voru bresk samtök sem sérhæfa sig í að veita lögfræðiaðstoð sem greindu frá þessu. Samtökin annast mál margra þeirra sem eru í haldi Bandríkjamanna í Guantanamo-fangabúðunum að Kúbu. 6.10.2006 23:00 Vélmenni sem læknar skalla Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja til jafnvirði tæplega 240 milljóna íslenskra króna til rannsókna hjá fyrirtæki í Cambridge sem er að þróa vélmenni sem mun vinna gegn skallamyndun. 6.10.2006 22:33 Geimrusl gerði gat á geimferju Geimrusl gerði gat á bandarísku geimferjuna Atlantis þegar hún var á ferð um geiminn í 12 daga. Á leið sinni fóru geimfararnir um borð í Alþjóðlegum geimstöðina og hófu á ný framkvæmdir við hana. Fulltrúar Bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, greindu frá því í dag að rusl sem komst nærri flauginni á leið hennar til jarðar hafi gert gat á hlífar á kæli. 6.10.2006 22:15 Bætur fyrir brottnám Þýskur lögfræðingur hefur ákveðið að fara nýstárlega leið til að afla fleiri viðskiptavina. Hann ætli að sækja fébætur til þýska ríkisins fyrir þá borgara sem geimverur hafi numið á brott. Lögfræðingurinn, Jens Lorek, segirl ljóst að hér sé þörf á lögfræðiaðstoð en fólk veigri sér við því að leita hjálpar af ótta við að það geri sig að fífli fyrir dómstólum. 6.10.2006 22:07 Ekki fengu allir Nyhedsavisen Nýja danska fréttablaðið Nyhedsavisen, sem hóf göngu sína í morgun, stendur ekki undir hástemmdum loforðum stjórnenda um byltingarkennt dagblað, að mati lektors í danska blaðamannaháskólanum. Erfiðleikar hrjáðu blaðið á fyrsta degi, því vegna bilunar í prentvél tókst aðeins að koma helmingi upplagsins í umferð. 6.10.2006 20:45 Stóð af sér vantrauststillögu Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra Ungverjalands, baðst í dag afsökunar á því að hafa ekki tekist á við alvarlegt ástand efnahagsmála í landinu fyrir þingkosningar í apríl. Ríkisstjórn forsætisráðherrans stóð af sér vantrauststillögu. 6.10.2006 19:45 Enn logar í eiturefnaverksmiðju Búið er að flytja um 17 þúsund manns frá heimilum sínum í smábæ í Norður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum í dag vegna stórbruna í efnaverksmiðju í bænum. Efnaúrgangur er brotinn niður í verksmiðjunni og urðu á bilinu 20 til 30 sprengingar í henni í nótt. 18 slösuðust, þar á meðal lögreglu- og slökkviliðsmaður. 6.10.2006 19:30 Reinfeldt forsætisráðherra, Bildt utanríkisráðherra Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 19:15 Sprengi fyrr en síðar Allt eins er búist við því að Norður-Kóreumenn láti verða af því að sprengja kjarnorkusprengju nú um helgina. Í gegnum njósnahnetti hefur sést óvenjuleg umferð á nokkrum stöðum í landinu, sem talin er benda til þess að verið sé að undirbúa tilraunasprengingu. 6.10.2006 19:00 Haniyeh hné niður Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hné niður þar sem hann flutti ræðu á fjöldafundi í Gaza-borg í dag. Haniyeh, sem er 46 ára, þagnaði í miðri setningu og féll í fang aðstoðarmanna sinna sem stóðu á bak við hann. 6.10.2006 17:56 Hamas vill reyna til þrautar að mynda stjórn 6.10.2006 16:54 Varst þetta þú ? 6.10.2006 16:33 Búist við kjarnorkusprengingu um helgina Allt eins er búist við því að Norður-Kórea láti verða af því að sprengja kjarnorkusprengju strax nú um helgina. 6.10.2006 15:43 Standa vörð um Íran 6.10.2006 15:07 Unglingafæla fær friðarverðlaun Ig Nobels Tæki sem fælir unglinga frá hefur unnið friðarverðlaun Ig Nobels í ár en verðlaunin eru skopútgáfa hinna viðurkenndu Nobel verðlauna. Tækið er hannað af Howard Stapleton og það framleiðir hátíðnihljóð sem fullorðnir nema ekki, en hefur truflandi áhrif á unglinga. 6.10.2006 13:45 Þúsundir flýja eld í efnaverksmiðju Rúmur helmingur íbúa í smábæ í Norður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum hefur í dag þurft að yfirgefa heimili sín vegna bruna í efnaverksmiðju. Íbúar í bænum Apex, þar sem verksmiðjan er staðsett, eru 28 þúsund og hafa um 16 þúsund þeirra orðið að flytja sig á öruggari svæði. Töluvert af hættulegum efnum og efnaúrgangi er að finna í verksmiðjunni sem stendur nú í ljósum logum. 6.10.2006 12:39 Carl Bildt utanríkisráðherra Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 12:30 Bakkað út úr óbyggðunum Ökumaður á ferð um óbyggðir Ástralíu á leið til borgarinnar Perth lenti í vandræðum þegar gírkassinn fyrir áfram-gírana bilaði. Maðurinn átti tæplega 500 kílómetra eftir á áfangastað þegar hann ákvað að í staðinn fyrir að hringja á bifvélavirkja, myndi hann bakka á leiðarenda. Hinn 22ja ára ökumaður hafði keyrt um 20 km afturábak þegar hann var stöðvaður af lögreglu á 60 km hraða. 6.10.2006 12:11 Carl Bildt verður utanríkisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra, verður utanríkisráðherra. Ráðherrar eru tuttugu og tveir, þar af tíu konur. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 11:42 Rússar vísa 130 Georgíu mönnum úr landi Rússar ætla að vísa 130 Georgíu mönnum úr landi fyrir að hafa bortið innflytendalög í Rússlandi, að sögn Interfax fréttastofunnar. Spennan á milli ríkjanna virðist síst í rénun. 6.10.2006 11:21 AerLingus hafnar tilboði Rayanair Eigendur meirihluta í flugfélaginu AerLingus, meðal annarra írska ríkið, höfnuðu í gær yfirtökutilboði lággjaldafélagsins Rayanair upp á 130 milljarða íslenskra króna. Rayanair á 16 prósent í félaginu og vildi eignast það allt. 6.10.2006 10:59 Kjarnorkutilraun mun breyta 21.öldinni Framkvæmi Norður Kóreumenn kjarnorkutilraunir mun það breyta 21. öldinni eins og við þekkjum hana segir Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann segir að ef verði af kjarnorku tilrauninni sýni það gagnleysi og veikleika alþjóðasamfélagsins og þess yrði ekki langt að bíða að önnur lönd komi sér upp kjarnavopnum. 6.10.2006 10:14 Fimmta stúlkan jarðsett í dag Fjórar stúlknanna sem skotnar voru af byssumanni í Amish skóla í Bandaríkjunum voru jarðsettar í gær. Götum í þorpinu Nickel Mines var lokað fyrir almennri umferð á meðan líkfylgdin fór um bæinn. Hún fór meðal annars framhjá heimili morðingjans Charles Roberts, en Amish fólkið hefur sýnt konu hans og börnum mikinn stuðning. 6.10.2006 10:00 Öllum ákærum gegn John Mark Karr vísað frá Dómari í Kaliforníu vísað í dag frá dómi ákæru áhendur John Mark Karr um vörslu barnakláms. Karr hafði áður gefið sig fram í Tælandi og sagðist hafa myrt barnafegurðadrottninguna JonBenet Ramsey árið 1996. Síðar leiddi athugun á erfðaefni í ljós að Karr var ekki morðinginn og því var ákæru í því máli vísað frá. 5.10.2006 23:03 Faldi sig í helli Kínverskur maður hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hafa falið í helli í tæpan áratug. Maðurinn segist hafa verið að fela sig fyrir innheimtumönnum auk þess sem hann er sakaður um að hafa ógnað aðkomufólki með byssu. 5.10.2006 22:57 Ákærður fyrir að smygla dínamíti Bandarískur ferðamaður, sem reyndi að flytja dínamít með sér í farangri heim frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna, var ákærður í dag byrir brot á öryggislöggjöf. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi. 5.10.2006 22:19 Hastert ætlar ekki að víkja Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur. 5.10.2006 22:00 Hugsanlega sleppt þrátt fyrir fjöldamorð Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur mótmælt tillögu dómstóls í Bandaríkjunum um að herskáum andstæðingi stjórnar Fídels Kastró, forseta Kúbu, verði sleppt úr fangelsi þrátt fyrir að hann sé borin sökum um að bera ábyrgð á dauða 73 flugfarþega fyrir 20 árum. 5.10.2006 21:45 Rán í beinni útsendingu Löngum hefur verið sagt að armur laganna sé langur. Nýlegir atburðir í Bretlandi færðu sönnur á að almenningur getur framlengt hann enn frekar. Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í hús í Lancaster á dögunum, vissu ekki betur en þeir væru að athafna sig óséðir í skjóli myrkurs. Svo var þó ekki því húsráðandi horfði á þá láta greipar sópa úr töluverðri fjarlægð í gegnum öryggismyndavél sem hann hafði tengt við farsíma sinn. 5.10.2006 21:30 Verðlaunamynd tryggði gervihendi Níu ára drengur, sem missti vinstri hönd sína í jarðskjálftanum í Pakistan í október í fyrra, hefur fengið gervihendi eftir að þýsk kona sá mynd af honum og ákvað að færa hann undir hendur færustu sérfræðinga á Ítalíu. 80 þúsund manns fórust í hamförunum og fjölmargir örkumluðust. 5.10.2006 21:15 Óvíst hvort al-Masri er lífs eða liðinn Írakar rannsaka nú erfðaefni úr látnum manni til að kanna hvort hann hafi verið Abu Ayyub al-Masri, nýr leiðtogi al Kaída í Írak. Tvær arabískar sjónvarpsstöðvar fullyrða að hann hafi fallið í loftárásum Bandaríkjamanna fyrr í vikunni. 5.10.2006 19:30 NATO tekið við í Afganistan Atlantshafsbandalagið tók í dag við stjórn öryggismála í Austur-Afganistan úr höndum Bandaríkjahers. Bandalagið hefur þegar tekið við stjórn mála í öðrum landshlutum, þar á meðal í höfuðborginni, Kabúl. 5.10.2006 19:15 Útgefendur Nyhedsavisen gagnrýndir Útgefendur Nyhedsavisen í Danmörku eru gagnrýndir harðlega í dönskum fjölmiðlum í dag fyrir að hafa ekki nú þegar gefið upp hverjir fjármagna útgáfu blaðsins. Hagfræðingur, sem hefur kannað málið fyrir danska blaðamannafélagið, segir þetta ótrúverðugt. Blaðið kemur út í fyrsta sinn á morgun. 5.10.2006 19:00 Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. 5.10.2006 18:10 Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag. Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. 5.10.2006 17:51 Grænfriðungar stýra fiskverslun í Englandi 5.10.2006 16:49 OPEC hækkar verð á olíu 5.10.2006 16:08 Sjá næstu 50 fréttir
Mannfall á Srí Lanka Á sjötta tug Tamíl-tígra hafa fallið í bardögum við stjórnarherinn á norðan- og austanverðri Srí Lanka undanfarinn sólarhring. 7.10.2006 13:15
Tóku saklausan borgara af lífi Bandarískur herlæknir vitnaði fyrir herdómstól í gær hvernig landgönguliðar í herdeild hans tóku íraskan borgara af lífi. 7.10.2006 13:00
Spennan magnast á Kóreuskaga Suðurkóreski herinn skaut viðvörunarskotum að hermönnum frá Norður-Kóreu sem fóru yfir landamærin á milli ríkjanna í morgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á næstu dögum. 7.10.2006 12:30
Karlar sofa betur einir Karlar sem sofa einir í rúmi eru hressari á morgnanna og heilastarfsemi þeirra er öflugri en þeirra sem deila rúmi með maka. 7.10.2006 11:45
Sjálfsmorðsárás í Tal Afar Átta létust og sex særðust í bílsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í morgun. Árásin var gerð á eftirlitsstöð lögreglu en engu að síður voru fjórir óbreyttir borgarar í hópi þeirra sem dóu. 7.10.2006 11:30
Líkir aðgerðum við þjóðernishreinsanir Gela Bezhuasvhili, utanríkisráðherra Georgíu, segir að framganga Rússa undanfarna daga gegn Georgíu jaðri við þjóðernishreinsanir. 7.10.2006 11:15
Skutu viðvörunarskotum á hermenn frá Norður-Kóreu Suður-kóreski herinn lét skjóta viðvörunarskotum á hermenn frá Norður-Kóreu sem sagðir eru hafa farið yfir vopnahléslínuna sem skilur löndin að. Eftir að um 40 skotum hafði verið skotið sneru Norður-Kóreumennirnir við. 7.10.2006 10:15
Dæmdur fyrir morð í Írak Bandarískur herlæknir, sem átti þátt í að ræna Íraka og myrða hann, var í kvöld dæmdur í 10 ára fangelsi en mun aðeins afplána eitt ár þar sem hann mun bera vitni gegn félögum sínum, sem ákærðir eru fyrir morðið. 6.10.2006 23:52
Engin leynifangelsi í Þýskalandi Stjórnvöld í Þýskalandi hafa neitað fréttum frá í dag þess efnis að háttsettir liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna, þar á meðal einn höfuðpauranna á bak við hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001, hafi verið í haldið í fangelsi á herstöðvum Bandaríkjahers í Þýskalandi án vitneskju yfirvalda. Það voru bresk samtök sem sérhæfa sig í að veita lögfræðiaðstoð sem greindu frá þessu. Samtökin annast mál margra þeirra sem eru í haldi Bandríkjamanna í Guantanamo-fangabúðunum að Kúbu. 6.10.2006 23:00
Vélmenni sem læknar skalla Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja til jafnvirði tæplega 240 milljóna íslenskra króna til rannsókna hjá fyrirtæki í Cambridge sem er að þróa vélmenni sem mun vinna gegn skallamyndun. 6.10.2006 22:33
Geimrusl gerði gat á geimferju Geimrusl gerði gat á bandarísku geimferjuna Atlantis þegar hún var á ferð um geiminn í 12 daga. Á leið sinni fóru geimfararnir um borð í Alþjóðlegum geimstöðina og hófu á ný framkvæmdir við hana. Fulltrúar Bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, greindu frá því í dag að rusl sem komst nærri flauginni á leið hennar til jarðar hafi gert gat á hlífar á kæli. 6.10.2006 22:15
Bætur fyrir brottnám Þýskur lögfræðingur hefur ákveðið að fara nýstárlega leið til að afla fleiri viðskiptavina. Hann ætli að sækja fébætur til þýska ríkisins fyrir þá borgara sem geimverur hafi numið á brott. Lögfræðingurinn, Jens Lorek, segirl ljóst að hér sé þörf á lögfræðiaðstoð en fólk veigri sér við því að leita hjálpar af ótta við að það geri sig að fífli fyrir dómstólum. 6.10.2006 22:07
Ekki fengu allir Nyhedsavisen Nýja danska fréttablaðið Nyhedsavisen, sem hóf göngu sína í morgun, stendur ekki undir hástemmdum loforðum stjórnenda um byltingarkennt dagblað, að mati lektors í danska blaðamannaháskólanum. Erfiðleikar hrjáðu blaðið á fyrsta degi, því vegna bilunar í prentvél tókst aðeins að koma helmingi upplagsins í umferð. 6.10.2006 20:45
Stóð af sér vantrauststillögu Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra Ungverjalands, baðst í dag afsökunar á því að hafa ekki tekist á við alvarlegt ástand efnahagsmála í landinu fyrir þingkosningar í apríl. Ríkisstjórn forsætisráðherrans stóð af sér vantrauststillögu. 6.10.2006 19:45
Enn logar í eiturefnaverksmiðju Búið er að flytja um 17 þúsund manns frá heimilum sínum í smábæ í Norður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum í dag vegna stórbruna í efnaverksmiðju í bænum. Efnaúrgangur er brotinn niður í verksmiðjunni og urðu á bilinu 20 til 30 sprengingar í henni í nótt. 18 slösuðust, þar á meðal lögreglu- og slökkviliðsmaður. 6.10.2006 19:30
Reinfeldt forsætisráðherra, Bildt utanríkisráðherra Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 19:15
Sprengi fyrr en síðar Allt eins er búist við því að Norður-Kóreumenn láti verða af því að sprengja kjarnorkusprengju nú um helgina. Í gegnum njósnahnetti hefur sést óvenjuleg umferð á nokkrum stöðum í landinu, sem talin er benda til þess að verið sé að undirbúa tilraunasprengingu. 6.10.2006 19:00
Haniyeh hné niður Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hné niður þar sem hann flutti ræðu á fjöldafundi í Gaza-borg í dag. Haniyeh, sem er 46 ára, þagnaði í miðri setningu og féll í fang aðstoðarmanna sinna sem stóðu á bak við hann. 6.10.2006 17:56
Búist við kjarnorkusprengingu um helgina Allt eins er búist við því að Norður-Kórea láti verða af því að sprengja kjarnorkusprengju strax nú um helgina. 6.10.2006 15:43
Unglingafæla fær friðarverðlaun Ig Nobels Tæki sem fælir unglinga frá hefur unnið friðarverðlaun Ig Nobels í ár en verðlaunin eru skopútgáfa hinna viðurkenndu Nobel verðlauna. Tækið er hannað af Howard Stapleton og það framleiðir hátíðnihljóð sem fullorðnir nema ekki, en hefur truflandi áhrif á unglinga. 6.10.2006 13:45
Þúsundir flýja eld í efnaverksmiðju Rúmur helmingur íbúa í smábæ í Norður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum hefur í dag þurft að yfirgefa heimili sín vegna bruna í efnaverksmiðju. Íbúar í bænum Apex, þar sem verksmiðjan er staðsett, eru 28 þúsund og hafa um 16 þúsund þeirra orðið að flytja sig á öruggari svæði. Töluvert af hættulegum efnum og efnaúrgangi er að finna í verksmiðjunni sem stendur nú í ljósum logum. 6.10.2006 12:39
Carl Bildt utanríkisráðherra Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 12:30
Bakkað út úr óbyggðunum Ökumaður á ferð um óbyggðir Ástralíu á leið til borgarinnar Perth lenti í vandræðum þegar gírkassinn fyrir áfram-gírana bilaði. Maðurinn átti tæplega 500 kílómetra eftir á áfangastað þegar hann ákvað að í staðinn fyrir að hringja á bifvélavirkja, myndi hann bakka á leiðarenda. Hinn 22ja ára ökumaður hafði keyrt um 20 km afturábak þegar hann var stöðvaður af lögreglu á 60 km hraða. 6.10.2006 12:11
Carl Bildt verður utanríkisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra, verður utanríkisráðherra. Ráðherrar eru tuttugu og tveir, þar af tíu konur. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 11:42
Rússar vísa 130 Georgíu mönnum úr landi Rússar ætla að vísa 130 Georgíu mönnum úr landi fyrir að hafa bortið innflytendalög í Rússlandi, að sögn Interfax fréttastofunnar. Spennan á milli ríkjanna virðist síst í rénun. 6.10.2006 11:21
AerLingus hafnar tilboði Rayanair Eigendur meirihluta í flugfélaginu AerLingus, meðal annarra írska ríkið, höfnuðu í gær yfirtökutilboði lággjaldafélagsins Rayanair upp á 130 milljarða íslenskra króna. Rayanair á 16 prósent í félaginu og vildi eignast það allt. 6.10.2006 10:59
Kjarnorkutilraun mun breyta 21.öldinni Framkvæmi Norður Kóreumenn kjarnorkutilraunir mun það breyta 21. öldinni eins og við þekkjum hana segir Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann segir að ef verði af kjarnorku tilrauninni sýni það gagnleysi og veikleika alþjóðasamfélagsins og þess yrði ekki langt að bíða að önnur lönd komi sér upp kjarnavopnum. 6.10.2006 10:14
Fimmta stúlkan jarðsett í dag Fjórar stúlknanna sem skotnar voru af byssumanni í Amish skóla í Bandaríkjunum voru jarðsettar í gær. Götum í þorpinu Nickel Mines var lokað fyrir almennri umferð á meðan líkfylgdin fór um bæinn. Hún fór meðal annars framhjá heimili morðingjans Charles Roberts, en Amish fólkið hefur sýnt konu hans og börnum mikinn stuðning. 6.10.2006 10:00
Öllum ákærum gegn John Mark Karr vísað frá Dómari í Kaliforníu vísað í dag frá dómi ákæru áhendur John Mark Karr um vörslu barnakláms. Karr hafði áður gefið sig fram í Tælandi og sagðist hafa myrt barnafegurðadrottninguna JonBenet Ramsey árið 1996. Síðar leiddi athugun á erfðaefni í ljós að Karr var ekki morðinginn og því var ákæru í því máli vísað frá. 5.10.2006 23:03
Faldi sig í helli Kínverskur maður hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hafa falið í helli í tæpan áratug. Maðurinn segist hafa verið að fela sig fyrir innheimtumönnum auk þess sem hann er sakaður um að hafa ógnað aðkomufólki með byssu. 5.10.2006 22:57
Ákærður fyrir að smygla dínamíti Bandarískur ferðamaður, sem reyndi að flytja dínamít með sér í farangri heim frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna, var ákærður í dag byrir brot á öryggislöggjöf. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi. 5.10.2006 22:19
Hastert ætlar ekki að víkja Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur. 5.10.2006 22:00
Hugsanlega sleppt þrátt fyrir fjöldamorð Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur mótmælt tillögu dómstóls í Bandaríkjunum um að herskáum andstæðingi stjórnar Fídels Kastró, forseta Kúbu, verði sleppt úr fangelsi þrátt fyrir að hann sé borin sökum um að bera ábyrgð á dauða 73 flugfarþega fyrir 20 árum. 5.10.2006 21:45
Rán í beinni útsendingu Löngum hefur verið sagt að armur laganna sé langur. Nýlegir atburðir í Bretlandi færðu sönnur á að almenningur getur framlengt hann enn frekar. Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í hús í Lancaster á dögunum, vissu ekki betur en þeir væru að athafna sig óséðir í skjóli myrkurs. Svo var þó ekki því húsráðandi horfði á þá láta greipar sópa úr töluverðri fjarlægð í gegnum öryggismyndavél sem hann hafði tengt við farsíma sinn. 5.10.2006 21:30
Verðlaunamynd tryggði gervihendi Níu ára drengur, sem missti vinstri hönd sína í jarðskjálftanum í Pakistan í október í fyrra, hefur fengið gervihendi eftir að þýsk kona sá mynd af honum og ákvað að færa hann undir hendur færustu sérfræðinga á Ítalíu. 80 þúsund manns fórust í hamförunum og fjölmargir örkumluðust. 5.10.2006 21:15
Óvíst hvort al-Masri er lífs eða liðinn Írakar rannsaka nú erfðaefni úr látnum manni til að kanna hvort hann hafi verið Abu Ayyub al-Masri, nýr leiðtogi al Kaída í Írak. Tvær arabískar sjónvarpsstöðvar fullyrða að hann hafi fallið í loftárásum Bandaríkjamanna fyrr í vikunni. 5.10.2006 19:30
NATO tekið við í Afganistan Atlantshafsbandalagið tók í dag við stjórn öryggismála í Austur-Afganistan úr höndum Bandaríkjahers. Bandalagið hefur þegar tekið við stjórn mála í öðrum landshlutum, þar á meðal í höfuðborginni, Kabúl. 5.10.2006 19:15
Útgefendur Nyhedsavisen gagnrýndir Útgefendur Nyhedsavisen í Danmörku eru gagnrýndir harðlega í dönskum fjölmiðlum í dag fyrir að hafa ekki nú þegar gefið upp hverjir fjármagna útgáfu blaðsins. Hagfræðingur, sem hefur kannað málið fyrir danska blaðamannafélagið, segir þetta ótrúverðugt. Blaðið kemur út í fyrsta sinn á morgun. 5.10.2006 19:00
Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. 5.10.2006 18:10
Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag. Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. 5.10.2006 17:51