Nýtt stríð Dana og múslima 9. október 2006 15:23
Ungliðar danska Þjóðarflokksins eru margir komnir í felur, af ótta við afleiðingarnar af sumarhátíð sinni, þar sem þeir gerðu grín að múslimum og Múhammed spámanni. Danska ríkisstjórnin hefur aftur varað þegna sína við að ferðast til Miðausturlanda, í bráð. Birtar hafas verið myndir af því þegar ungliðarnir, mismikið drukknir, gerðu grín að múslimum og spámanni þeirra, á nokkuð ósmekklegan hátt. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Mótmælaalda hefur risið í nokkrum arabaríkjum og til dæmis hefur Dönum á Gaz svæðinu verið hótað. Þá hefur verið hafin ný herferð fyrir því að fólk hætti að kaupa danskar vörur. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur hefur kalla framferðið á sumarhátíðinni ósmekklega framkomu lítils hóps af ungu fólki, sem á engan hátt endurspegli viðhorf Dana til Múslima. Danska utanríkisráðuneytið hefur engu að síður séð ástæðu til þess að vara Dani við því að fara til Miðausturlanda í bráð. Pia Kjærsgaard, formaður Þjóðarflokksins, aftekur með öllu að biðjast afsökunar. Hún segir að þegar ölið fari inn fari vitið út. Það sé ekki gaman að horfa á hóp af ungum fíflum verða sér til skammar, en það komi ekkki til greina að láta önnur ríki, eða Bræðrasamtök múslima ráða því hvað Danir geri.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira