Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yukos býður 7 milljarða dollara Nýr yfirmaður Yukos olíufélagsins rússneska hefur boðið þarlendum stjórnvöldum rúmlega sjö milljarða dollara, eða sem samsvarar rúmum 500 milljörðum króna, upp í meintar skattaskuldir félagsins sem eru til rannsóknar ásamt svikum fyrrverandi forstjóra þess, Mikhails Khodorkovskys. 12.7.2004 00:01
Ræddu nýja þjóðstjórn Leiðtogar tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna í Ísrael hittust í gær og ræddu möguleika á þjóðstjórn þrátt fyrir að mikillar andstöðu gæti við þá hugmynd innan beggja flokka. Búist er við að flokkarnir skipi samninganefndir í dag og að formlegar stjórnarmyndunarviðræður hefjist á næstu dögum. 12.7.2004 00:01
Vörn Milosevic frestað Vörn Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, í réttarhöldunum yfir honum fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag hefur verið frestað þar til í næstu viku. Ástæðan er sögð vera heilsufar Milosevic en blóðþrýstingur hans er víst mjög hár þessa dagana. 12.7.2004 00:01
Fresturinn framlengdur Mannræningjarnir sem hafa filippseyskan vörubílstjóra í haldi sínu í Írak hafa framlengt frest stjórnvalda á Filippseyjum til að kalla herlið sitt heim frá Írak, ellegar verði gíslinn afhöfðaður. Arabísk sjónvarpsstöð greindi frá þessu fyrr í dag. 12.7.2004 00:01
Launakerfið er veikleikinn Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, segir að niðurstöður Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga árið 2003 komi sér ekki á óvart. Hann segir stærsta veikleikann í ríkisfjármálum vera fólgið í launakerfinu. 12.7.2004 00:01
Jarðskjálfti í Slóveníu og Ítalíu Jarðskjálfti upp á 5,2 á Richter skók Slóveníu og norðvesturhluta Ítalíu um þrjúleytið í dag að staðartíma. Engin alvarleg meiðsl hafa verið tilkynnt en skjálftans varð m.a. vart í Feneyjum. 12.7.2004 00:01
5 ára drengur týndist í Danmörku Fimm ára drengur frá Hróarskeldu í Danmörku hvarf í meira en fjórtán tíma í gær en fannst heill á húfi við dýragarðinn í Klampenborg. Samkvæmt frétt dagblaðs í Hróarskeldu fór drengurinn ungi í göngutúr með öldruðum frænda sínum á sunnudagsmorgun. 12.7.2004 00:01
Vantrauststillaga felld Vantrauststillaga gegn efnahagsstefnu Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, var felld í dag á ísraelska þinginu. 55 greiddu atkvæði með tillögunni og jafnmargir voru á móti henni. 12.7.2004 00:01
Fundust á árabáti úti á reginhafi Þýskt skip með þrjátíu og sex súdanska flóttamenn innanborðs fékk að leggjast að bryggju á Ítalíu í dag. Fólkið flúði vargöld og hungursneyð í heimalandi sínu á árabát sem þýska skipið fann úti á reginhafi. 12.7.2004 00:01
Tígrisdýrahvolpar fæðast í Kína Tveir tígrisdýrahvolpar fæddust í dýraverndunarmiðstöð í Kína í gær. Kínverski tígurinn er í bráðri útrýmingarhættu og er ákaft barist fyrir verndun hans. Aðeins eru til um fjörutíu dýr af þessari tegund og eru þau öll í dýragörðum. 12.7.2004 00:01
Neyðaráætlun vegna hryðjuverka Bandaríkamenn óttast hryðjuverk í tengslum við forsetakosningarnar í nóvember og hafa undirbúið neyðaráætlun um að fresta kosningunum ef svo fer. 12.7.2004 00:01
Ný ríkisstjórn í Ísrael Unnið er að myndun nýrrar ríkisstjórnar í Ísrael þar sem Ariel Sharon forsætisráðherra og stjórnarandstöðuleiðtoginn Símon Peres hafa tekið höndum saman. Með þessu gæti Sharon aflað nægs stuðnings við áætlanir sínar um að Ísraelsmenn fari frá landnemabyggðum á Gasa. <font size="2"></font> 12.7.2004 00:01
Ástandið verður betra í Írak Ástandið í Írak verður betra en í tíð Saddams Hússeins takist að byggja upp lýðræðisríki þar, segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. Hann gerir ekki athugasemdir við orð Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í Hvíta húsinu í síðustu viku. 12.7.2004 00:01
Besta vopnið gegn alnæmi Skírlífi og virðing fyrir hjónabandinu er besta vopnið í baráttunni gegn alnæmi - ekki smokkurinn, sagði forseti Úganda á ráðstefnu um alnæmi í dag. Orð hans ollu undrun meðal ráðstefnugesta enda sýnir reynslan annað. 12.7.2004 00:01
Hvernig varð til líf á jörðinni? Kviknaði líf á jörðinni eða barst það hingað með halastjörnu? Þetta er meðal spurninga sem margir af virtustu vísindamönnum heims í stjörnulíffræði velta upp á ráðstefnu sem nú er haldin í Reykjavík. <font size="2"></font> 12.7.2004 00:01
Þrír dæmdir til dauða Í Karbala hafa þrír menn verið dæmdir til dauða. Þetta eru fyrstu dauðarefsingarnar sem írösk stjórnvöld hafa fellt yfir þegnum sínum frá því Bandaríkin og bandamenn þeirra létu af stjórninni í Írak í lok júní. 12.7.2004 00:01
Google á Nasdaq Leitarvélafyrirtækið Google hefur ákveðið að félagið verði skráð á Nasdaq-markaðinn að loknu frumútboði. Vangaveltur voru um að félagið yrði skráð á NYSE-markaðinn. 12.7.2004 00:01
Trúlaus klerkur enn í vanda Lene Espersen, kirkjumálaráðherra Danmerkur, hefur staðfest þá ákvörðun dönsku þjóðkirkjunnar að víkja prestinum Thorkild Grosböll úr embætti. Grosböll var rekinn úr embætti eftir að hann sagði Guð hafa afsalað sér völdum í hendur sonar síns og þar með mannkyns. 12.7.2004 00:01
Var ekki sleppt eins og talið var Mannræningjar í Írak neituðu seint í gær að hafa sleppt filipseyskum gísl sínum og hótuðu enn á ný að afhöfða manninn yrðu friðargæsluliðar frá Filipseyjum ekki kallaðir heim innan sólarhrings. Í gær var talið að manninum hefði verið sleppt, þar sem forseti Filipseyja sagði umboð fimmtíu friðargæsluliða í Írak ekki verða framlengt, og þeir kæmu því heim á næstunni. 11.7.2004 00:01
Fyrsta sprenging í fjóra mánuði Kona fórst þegar sprengja á vegum palestínskra hryðjuverkamanna sprakk við strætisvagnastoppistöð í Tel Aviv í morgun. Yfir þrjátíu særðust í sprengingunni, sem al-Aksa herdeildin kveðst bera ábyrgð á. 11.7.2004 00:01
Fyllyrðingar Blairs voru rangar Fullyrðingar Tonys Blairs um hættuna af gjöreyðingarvopnum Íraka voru ekki einungis ýktar, heldur beinlínis rangar. Þetta er niðurstaða rannsóknar Butlers lávarðar. Blair er enn sagður íhuga afsögn. 11.7.2004 00:01
Baráttan gegn eyðni gengur of hægt Baráttan gegn alnæmi gengur of hægt, ekki síst þar sem ráðamenn um víða veröld hafa ekki horfst í augu við vandann og tekið á honum. Þetta sagði Kofi Annan á ráðstefnu um vána í dag. Fjórtán þúsund smitast af HIV-veirunni daglega og fæstir fá nokkra aðhlynningu. 11.7.2004 00:01
Hákarlaárás í Ástralíu Tveir risavaxnir, hvítir hákarlar réðust í gær á þrítugan brimbrettakappa suður af borginni Perth í Ástralíu. Fimm metra langur hákarl réðst á Brad Smith þar sem hann var á bretti sínu, og annar þriggja metra langur hákarl svamlaði í kring. 11.7.2004 00:01
Ætla að hunsa úrskurð dómstólsins Alþjóðadómstólnum í Haag er kennt um sprengjuárás í Tel Aviv í morgun. Ísraelar segja árásina sýna nauðsyn öryggismúrsins og ætla að hunsa úrskurð dómstólsins um að hann brjóti í bága við alþjóðalög. 11.7.2004 00:01
Bosnía grætur Yfir tíu þúsund íbúar Bosníu komu saman í gær þegar lík 338 fórnarlamba ógnaratburðanna sem urðu í Srebrenica 1995 voru loks lögð til hinstu hvílu. Líkin fundust nýlega í fjöldagröfum sem enn þann dag í dag finnast í landinu en áætlað er að alls átta þúsund múslimar, bæði karlar og drengir, hafi verið teknir af lífi af hermönnum Serba. 11.7.2004 00:01
Óánægður með matinn Franskur fangi sem situr í lífstíðarfangelsi fyrir morð og mannát á árum áður notaði tækifærið nýlega til að bragða á öðrum fanga þegar verið var að dreifa hádegismat í fangelsinu. 11.7.2004 00:01
Sýkingarhætta á sjúkrahúsum Breska heilbrigðisráðuneytið hyggst senda eftirlitsfólk inn á spítala landsins á þriggja mánaða fresti til að gera úttekt á hreinlæti starfsfólks en á því hefur borið að sýkingar innan spítala hafi margfaldast síðustu árin. 11.7.2004 00:01
Róttækar breytingar á vegamálum Hægt er að minnka umferð á þjóðvegum Bretlands um helming með róttækum aðferðum sem breska samgönguráðuneytið er að skoða. Er um nokkurs konar vegatoll að ræða en þó ekki með því móti sem margir þekkja frá Evrópu þar sem ekið verður gegnum sérstök tollhlið. Bretarnir sýna því meiri áhuga að nota gervihnattatækni til að rukka breska ökumenn 11.7.2004 00:01
Lestur á undanhaldi Innan við helmingur átján ára og yngri í Bandaríkjunum lesa eða hafa lesið bókmenntir af einhverju tagi. Kemur þetta fram í könnun sem Hagstofa Bandaríkjanna stóð fyrir árið 2002. 11.7.2004 00:01
Náðu ekki markmiðum sínum Á alþjóðlegri ráðstefnu um alnæmisvandann á heimsvísu sem fram fer í Bankok í Taílandi hefur komið fram gagnrýni á Alþjóðaheilbrigðisstofnunina. Athugasemdir eru gerðar við að stofnuninni hafi ekki tekist að framfylgja þeim markmiðum sínum að koma þrem milljónum fátækra sjúklinga til hjálpar með lyfjum. 11.7.2004 00:01
Einn lést og tugir slösuðust Öflug sprengja varð einum að bana og særði minnst 30 aðra í miðborg Tel Aviv í Ísrael í gærmorgun. Lýstu herskáir Palestínumenn sprengingunni á hendur sér skömmu síðar en þetta mun vera fyrsta sprengjuárás þeirra síðan í mars. 11.7.2004 00:01
Húsbátar í stað sumarhúsa Sífellt fleiri Danir varpa hugmyndinni um sumarhús fyrir róða og kaupa sér húsbát í staðinn en með þeim hætti fæst eigulegur sumarbústaður með útsýn til hafs á mun lægra verði en dýr eign á landi. 11.7.2004 00:01
Kólígerlar lífsseigari en talið Greint er frá því í Danmörku að samkvæmt rannsóknarverkefni sem þar fór fram eru kólígerlar í vatni mun lífsseigari en áður var talið. Hefur hingað til þumalputtareglan verið sú að gerlar af þessari tegund lifa ekki í drykkjarvatni lengur en nokkra daga en Danirnir hafa uppgötvað að bakteríurnar geta þrifist margar vikur ef aðstæður eru réttar. 11.7.2004 00:01
Ritstjóri rússneska Forbes myrtur Ritstjóri rússnesku útgáfu viðskiptatímaritsins Forbes var skotinn til bana fyrir utan ritstjórnarskrifstofur blaðsins í Moskvu í gærkvöldi. Paul Khlebnikov var nýkominn út af skrifstofu sinni þegar bifreið ók upp að honum og hann var skotinn nokkrum sinnum. 10.7.2004 00:01
Blair íhugaði afsögn Tony Blair býr sig undir pólitíska orrahríð í næstu viku. Þá er væntanleg skýrsla um gallaðar upplýsingar sem lagðar voru stríðinu í Írak til grundvallar, auk þess sem aukakosningar fara fram sem talið er að Verkamannaflokkurinn gjörtapi. 10.7.2004 00:01
Framlengja ekki veru hersveita Myndbandsupptaka af filipseyskum gísl í Írak var birt í morgun á arabískri sjónvarpsstöð. Þar sést maðurinn biðja Gloriu Macapagal, forseta Filipseyja, að kalla filipseyskar hersveitir heim frá Írak og þar með þyrma lífi mannsins. 10.7.2004 00:01
Leiðir ekki til minni matarlystar Það er ekki ýkja langt síðan að fréttir af hormóninu FYY breiddust sem eldur í sinu út um heimsbyggðina. FYY átti að vera lausn allra offituvandamála, slá á matarlyst og leiða til þess að fólk léttist. 10.7.2004 00:01
Breytast í hrygnur Þriðjungur hænga í breskum ám er að breytast í hrygnur vegna mengunar. Einkum eru það hormónaleifar í skólpi, ekki síst vegna getnaðarvarnarpilla, sem taldar eru valda þessu. Breska umhverfisstofnunin gerði rannsókn á 1500 fiskum í 50 breskum ám, og komst að því að ríflega þriðjungur hænga sýni merki þess að kynskiptast. 10.7.2004 00:01
Dönsk - sænsk orðabók Í fyrsta sinn í 50 ár verður gefin út dönsk/sænsk orðabók, segir í danska blaðinu Politiken. Þar segir að Danir eigi í jafn miklum erfiðleikum með að skilja Svía eins og Svíar Dani. Svíar eigi auðveldara með að lesa dönsku en skilja og tala hana en Dönum finnist jafn erfitt að lesa og skilja sænskuna. 10.7.2004 00:01
Filipeyskum gísl sleppt Filipeyskum gísl hefur verið sleppt úr haldi mannræningja í Írak. Þetta gerðist í kjölfar þess að stjórnvöld í Filipseyjum ákváðu að framlengja ekki veru sveita sinna í Írak. Myndbandsupptaka af manninum var birt í morgun á arabískri sjónvarpsstöð. Þar sást maðurinn biðja forseta Filipseyja, að kalla filipseyskar hersveitir heim frá Írak 10.7.2004 00:01
Útför forseta Austurríkis Útför Thomas Klestils forseta Austurríkis fór fram í dag en hann lést í vikunni, tveimur dögum áður en hann lét af embætti. Meðal þeirra sem mættu í útförina var ríkisstjóri Kaliforníu, Arnold Schwarzenegger, sem er fæddur í Austurríki. Þá voru einnig viðstaddir Vladimir Pútin Rússlandsforseti, Felipe krónprins Spánar og fyrrverandi forseti Tékklands Vaclav Havel. 10.7.2004 00:01
Milljarða lottóvinningur Ævintýrin gerast enn. 68 ára ræstingakona gaf sig fram í gær með vinningsmiða í bandaríska lottóinu. Hún vann hvorki meira né minna en tæplega tuttugu og tvo milljarða króna. 10.7.2004 00:01
Hunsa fyrirmæli Evrópusambands Evrópusambandið hefur nú gefið Bretum sínu þriðju og síðustu aðvörun vegna aðgerða breskra tollayfirvalda sem sýna mikla hörku gagnvart þeim þegnum sínum sem kaupa áfengi og tóbak í öðrum Evrópusambandslöndum. 10.7.2004 00:01
Dæmdur til lífstíðarfangelsis Breskur vísindamaður sem hélt uppi skipulegu eftirliti og árásum á hóp opinberra starfsmanna hefur verið dæmdur til lífstíðarfangelsis. Kom í ljós við yfirheyrslur að vísindamaðurinn, Richard Jan, átti í persónulegu stríði við ríkisbáknið. 10.7.2004 00:01
Alnæmi heftir framþróun ríkja Alþjóðavinnumálastofnunin gerir ráð fyrir að allt að 50 milljón manns á vinnufærum aldri muni láta lífið úr alnæmi á næstu fimm árum. Telur stofnunin að slíkt eigi eftir að hafa alvarleg efnahagsleg áhrif víða um heim og telur mjög brýnt að auka baráttuna gegn þessum skæða faraldri hið fyrsta. 10.7.2004 00:01