Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Olíuverð yfir 40 dollara Olíuverð fór á ný yfir 40 dollara á fatið í morgun, en í lok júní var fatið komið í ríflega 35 dollara og 50 sent í Bandaríkjunum. Verðhækkunin er einkum rakin til aukinnar eftirspurnar eftir bensíni í Bandaríkjunum, en framleiðsluaukning OPEC-ríkjanna, sem stefnt er að í ágúst, nægir rétt svo til að svara henni. 9.7.2004 00:01
Ráku ólöglegt einkafangelsi Þrír Bandaríkjamenn hafa verið handteknir í Afganistan fyrir að reka þar ólöglegt einkafangelsi. Svo virðist sem Bandaríkjamennirnir hafi svo mánuðum skiptir haldið átta Afgönum í fangelsinu. Við yfirheyrslur sögðu Bandaríkjamennirnir, að þeir hefðu viljað taka þátt í stríðinu gegn hryðjuverkum. Þeir munu ekki hafa pyntað fanga sína en beitt þá nokkru ofbeldi. 9.7.2004 00:01
Nautin stungu fjóra Eftir tvo tiltölulega slysalausa daga brást lukkan fjórum hlaupurum sem freistuðu þess að hlaupa á undan nautunum á götum Pamplona í gær. Hlaupararnir fjórir fengu allir að kenna á hornum nautanna sem voru mun sprækari í gær en fyrri daga. 9.7.2004 00:01
Óvenju viðamiklar flotaæfingar Bandaríkjafloti er að hefja viðamestu æfingar sínar um nokkurra áratugaskeið. Sjö af tólf flugmóðurskipaflotadeildum þeirra eru á leið til æfinga víðs vegar á heimshöfunum. Síðustu 30 árin hafa aldrei verið meira en þrjár flugmóðurskipaflotadeildir við æfingar á sama tíma. 9.7.2004 00:01
Ræða þjóðstjórn í Ísrael Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels og leiðtogi Likud, fundar á morgun með Shimon Peres, leiðtoga Verkamannaflokksins - stærsta stjórnarandstöðuflokksins í Ísrael - um að flokkarnir taki höndum saman ásamt Shinui um þjóðarstjórn. Ljóst er þó að andstaða er við slíka stjórn í báðum flokkum, einkum þó í Likud. 9.7.2004 00:01
Ofmátu vopnabúnað stórlega Leyniþjónustan CIA veitti rangar upplýsingar í aðdraganda Íraksstríðsins. Þetta er niðurstaða bandarískrar þingnefndar sem kannað hefur forsendur stríðsins. 9.7.2004 00:01
Matvælaverð hækkað með aðild Matvælaverð hefur hækkað verulega í Póllandi eftir að landið varð aðili að Evrópusambandinu 1. maí. Þar með er ótti margra, sem höfðu efasemdir um aðild, að verða að veruleika. Bændur hafa hins vegar ástæðu til að kætast þar sem hækkun matvælaverðs hefur skilað þeim auknum tekjum. Þó var mesta andstöðu við aðild að finna í þeirra röðum. 9.7.2004 00:01
Boða fjölmenn mótmæli Mótmælendur í Belfast hyggjast efna til fjölmennra mótmæla á mánudag til að mótmæla því að þeim hefur verið bannað að ganga um hverfi kaþólskra til að minnast sigurs mótmælenda yfir kaþólikkum í orrustunni við Boyne árið 1690. 9.7.2004 00:01
Endurfundir liðhlaupa Bandarískur liðhlaupi í Norður-Kóreu hitti í dag japanska eiginkonu sína í fyrsta sinn í tvö ár í Indónesíu. Allar líkur eru á að hann verði að snúa aftur til Norður-Kóreu en hún til Japans; þeim virðist ekki skapað nema að skilja. 9.7.2004 00:01
Hrun í laxveiðum Algjört hrun er í laxveiðum í norskum ám það sem af er sumri og í Vestur-Noregi er aflinn aðeins þriðjungur af afla í meðal ári, að því er Intra Fish greinir frá. Engin einhlít skýring er á þessu en sumir kenna þrálátum norðanáttum um ástandið. 8.7.2004 00:01
Forstjóri Enron ákærður Eftir þriggja ára flókna rannsókn hefur Kenneth Lay, fyrrverandi forstjóri orkurisans Enron, verið ákærður. Enron fór á hausinn í kjölfar þess að greint var frá gríðarlegu bókhaldsfalsi og leynilegum samningum til að fela skuldir fyrirtækisins og þar með falsa gróðatölur. 8.7.2004 00:01
6 drepnir á Gaza Ísraelskar hersveitir drápu sex Palestínumenn í einhverjum hörðustu bardögum undanfarinna vikna á Gaza-ströndinni. Sjónarvottar segja fjóra mannanna hafa verið byssumenn. 8.7.2004 00:01
Lagastaða fanganna könnuð Bandaríska varnarmálaráðuneytið hyggst koma á fót sérfræðinganefnd til að kanna lagastöðu fanga í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu, hvort það standist lög að halda þeim föngnum og hvort þeir hafi rétt á að véfengja það fyrir bandarískum dómstólum. 8.7.2004 00:01
Fuglaflensa aftur í Kína Tuttugu þúsund kjúklingar hafa verið drepnir í Kína til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu fuglaflensu sem greinst hefur enn á ný í landinu. 8.7.2004 00:01
Harry Potter hættulegur Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að vestrænar stórmyndir sumarsins geti spillt siðferðiskennd kínverskra barna og hafa því bannað nokkrar myndir. Harry Potter, köngulóarmaðurinn og græna tröllið Skrekkur eru meðal þeirra sem taldir eru hafa hættuleg áhrif á æskuna. 8.7.2004 00:01
Mijailovic úrskurðaður geðsjúkur Mijailo Mijailovic, morðingi Önnu Lindh utanríkisráðherra Svíþjóðar, var í morgun úrskurðaður geðsjúkur af Hæstaréttinum í Stokkhólmi en hópur geðlækna hefur haft Mijailovic til meðferðar undanfarnar vikur. Þetta þýðir að hann verður vistaður á geðsjúkrahúsi, í stað fangelsis, þar sem hann mun gangast undir meðferð. 8.7.2004 00:01
Langar vaktir skapa hættu Líkur á mistökum hjá hjúkrunarfræðingum þrefaldast fari vaktir þeirra yfir tólf og hálfa klukkustund. Fjórar af hverjum tíu vöktum hjúkrunarfræðinga í Bandaríkjunum eru svo langar. 8.7.2004 00:01
Miðausturlönd án kjarnorkuvopna "Forsætisráðherrann staðfesti við mig að stefna Ísraels yrði áfram sú að í samhengi við frið í Miðausturlöndum teldi Ísrael æskilegt að komið yrði á kjarnorkuvopnalausu svæði í Miðausturlöndum," sagði Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar eftir fund með Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels. 8.7.2004 00:01
Norac segist saklaus Mirko Norac, fyrrverandi herforingi í króatíska hernum, lýsti yfir sakleysi sínu fyrir alþjóðadómstólnum í Haag í Hollandi í dag. Hann er ákærður fyrir stríðsglæpi gegn Serbum frá því Króatar börðust fyrir sjálfstæði sínu frá Júgóslavneska sambandsríkinu árið 1993. 8.7.2004 00:01
Allawi ekki á fund ESB? Vegna versnandi ástands í Írak er óvíst hvort forsætisráðherra landsins, Iyad Allawi, fari til fundar við utanríkisráðherra aðildarlanda Evrópusambandsins í næstu viku. 8.7.2004 00:01
Standa ekki við loforð Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi stjórnvöld í Súdan fyrir að standa ekki við fyrirheit um að hjálpa til við að binda endi á þjáningar í Darfurhéraði. Fjöldi þeldökkra íbúa héraðsins hefur lagt á flótta vegna árása arabískra vígasveita sem hafa notið stuðnings stjórnvalda. 8.7.2004 00:01
Sjö létust og 15 slösuðust á Gaza Að minnsta kosti sjö Palestínumenn létust og fimmtán slösuðust þegar hersveitir Ísraela réðust inn í borg á norðurhluta Gaza-svæðisins í dag. Jassir Arafat, leiðtogi Palestínumanna, segir að árásirnar séu fjöldamorð og að Ísraelsmenn hafi útilokað frið á svæðinu með þessum aðgerðum. 8.7.2004 00:01
Lífstíðardómur Mijailovic ógiltur Áfrýjunardómstóll í Svíþjóð ógilti í dag lífstíðardóm yfir Mijailo Mijailovic, morðingja Önnu Lindh utanríkisráðherra Svíþjóðar, og dæmdi hann þess í stað til vistunar á réttargeðdeild. Mögulegt er að niðurstöðunni verði áfrýjað til hæstaréttar Svíþjóðar. 8.7.2004 00:01
Óttast hryðjuverk í Bandaríkjunum Landvarnarráðherra Bandaríkjanna óttast hryðjuverkaárásir í Bandaríkjunum fyrir forsetakosningarnar í haust. 8.7.2004 00:01
Óttast árásir al-Kaída Al-Kaída hryðjuverkasamtökin stefna að árás á Bandaríkin fyrir forsetakosningarnar þar í landi í nóvember. Þessu lýsti Tom Ridge, ráðherra heimavarnarmála í Bandaríkjunum, yfir í dag. 8.7.2004 00:01
Ólst upp hjá kjúklingum Sunjit-Kumar, 32 ára frá Fídjieyjum, gengur undir nafninu kjúklingamaðurinn. Hann lærir nú að umgangast menn á nýjan leik eftir að hafa alist upp með kjúklingum. 8.7.2004 00:01
Á engan töfrasprota Mohamed Elbaradei, framkvæmdastjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, kom til Ísraels í gær. Elbaradei var ekki bjartsýnn við komuna til landsins og sagðist engan töfrasprota eiga til þess að hafa áhrif á þá stefnu Ísraelsmanna að viðurkenna ekki að eiga kjarnorkuvopn. 7.7.2004 00:01
Varað við morðum Tsahi Hanegbi, lögreglumálaráðherra Ísraels, varaði við því í gær að öfgasinnaðir gyðingar ætluðu sér að ráða áberandi stjórnmálamenn og háttsetta embættismenn af dögum þegar ríkisstjórnin hóf að flytja landnema frá Gazasvæðinu. 7.7.2004 00:01
Keppinautur verður samherji Sá sem atti lengst kappi við John Kerry í baráttunni um útnefningu Demókrataflokksins í komandi forsetakosningum var í gær kynntur til sögunnar sem varaforsetaefni hans í slagnum sem er framundan. 7.7.2004 00:01
Myrti tugi ferðamanna Dómari í Nepal frestaði því að kveða upp dóm yfir Charles Sobhraj, tæplega sextugum karlmanni sem hefur viðurkennt að hafa myrt fjölda vestrænna ferðamanna í Asíu og Mið-Austurlöndum á áttunda áratugnum. 7.7.2004 00:01
Milljónasekt fyrir ölvunarakstur Norsk kona hefur verið dæmd til að greiða andvirði rúmra fimm milljóna króna í sekt fyrir að keyra bíl undir áhrifum áfengis. Sektin jafngildir einum mánaðarlaunum konunnar, svo sem venja er til í Noregi þegar ökumenn verða uppvísir að því að keyra bíl fullir. 7.7.2004 00:01
Málmstoðir ástæða hrunsins Málmstoðir sem liggja í steyptu þaki nýju flugstöðvarinnar á Charles deGaulle flugvelli í París er líkast til ástæða þess að þakið hrundi að hluta til í maí og fjórir fórust. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar sem unnið hefur að því að komast að ástæðum hrunsins. 7.7.2004 00:01
Fjórir hermenn féllu Skæruliðar skammt vestur af Bagdad drápu fjóra bandaríska hermenn í gær þar sem þeir voru við öryggiseftirlit. Talsmenn Bandaríkjahers gáfu ekki frekari upplýsingar. 7.7.2004 00:01
Forseti Austurríkis látinn Thomas Klestil, forseti Austurríkis, lést í gærkvöldi, sjötíu og eins árs að aldri. Hann fékk tvö öflug hjartaáföll fyrr í vikunni og var fluttur á sjúkrahús. 7.7.2004 00:01
Fimm látnir á Srí Lanka Að minnsta kosti fimm manns létu lífið og um tugur særðist í sjálfsmorðsárás uppreisnarmanna í Kólombó á Srí Lanka í morgun. Hjördís Finnbogadóttir, talsmaður norrænu friðargæslunnar á Srí Lanka, segir spennu og ótta hafa aukist í landinu að undanförnu. </font /> 7.7.2004 00:01
Flugskeytaárás á Gaza Fjöldi manna særðist í flugskeytaárás Ísraelsmanna á Gaza-svæðinu í morgun. Ísraelsk herþyrla skaut nokkrum flugskeytum á bifreiðar í Zeitoun hverfinu sem Ísraelsmenn telja bækistöðvar herskárra Palestínumanna. Ekki er vitað hvort einhver hafi látið lífið í árásinni. 7.7.2004 00:01
Ný öryggislög í Írak Ríkisstjórn Íraks birti í morgun ný öryggislög til að berjast gegn herskáum uppreisnarmönnum í landinu. Á sama tíma og ráðherra kynnti áætlunina héldu bardagar áfram á götum Bagdad. 7.7.2004 00:01
Fimm slösuðust í Pamplóna Fimm voru fluttir slasaðir á sjúkrahús eftir hið árlega nautahlaup í Pamplóna á Spáni í morgun. Þúsundir manna hlupu í dauðans ofboði á undan fimm nautum sem vega hvert um sig hálft tonn og hafa banvæn horn á höfði. 7.7.2004 00:01
Stendur við fyrri yfirlýsingar Bandaríska rannsóknanefndin sem hefur rannsakað aðdraganda hryðjuverkaárásanna 11. september segist standa við fyrri yfirlýsingar sínar um að al-Kaída hafi haft mjög takmörkuð samskipti við Írak fyrir árásirnar. Forsvarsmenn hennar segja enn fremur að ekki verði annað séð en að nefndin hafi haft aðgang að sömu skjölum og Dick Cheney varaforseti. Cheney, sem hefur gert mikið úr samskiptum al-Kaída og Íraka, hafði sagt að líklega hefði hann haft aðgang að meiri gögnum en nefndin. 7.7.2004 00:01
Höfðu mök á sviðinu Tónleikar hljómsveitarinnar Cumshot á Quartstónleikahátíðinni í Kristiansand tóku nokkuð aðra stefnu en tónleikagestir höfðu gert ráð fyrir í upphafi. Skömmu eftir að tónleikarnir hófust kallaði söngvari sveitarinnar par á sviðið. Parið unga afklæddist og byrjaði að hafa mök en hljómsveitin hélt spili sínu áfram. 7.7.2004 00:01
Kirkja í greiðslustöðvun Erkibiskupsumdæmið í Portland í Bandaríkjunum hefur farið fram á greiðslustöðvun, fyrst allra kirkjudeilda í Bandaríkjunum. Þetta er gert til að vernda erkibiskupsumdæmið gegn skaðabótamálum sem forsvarsmenn kirkjunnar óttast að geti riðið henni að fullu. 7.7.2004 00:01
Hundruðir tonna af olíu lekið út Megnið af þeirri olíu sem var um borð í togaranum Guðrúnu Gísladóttur þegar skipið sökk fyrir norðurströnd Noregs fyrir tveimur árum síðan hefur lekið út. 7.7.2004 00:01
Kafbátur í óskilum Ómannaður kafbátur sem fannst undan ströndum Svíþjóðar í síðasta mánuði tilheyrir breska sjóhernum að sögn sænskra flotayfirvalda. Bretar hafa þó litlar tilraunir gert til að nálgast þennan kafbát sinn. Hann er hlaðinn myndavélum og sónar og er rúmlega 70 milljóna króna virði. 7.7.2004 00:01
Þriðjungur hugbúnaðar stolinn Meira en þriðjungur alls tölvuhugbúnaðar í heiminum er stolinn. Þetta er niðurstaða úttektar Business Software Alliance, BSA, samtaka eigenda hugbúnaðarréttar. Samkvæmt því er 36 prósent alls hugbúnaðar sem tölvunotendur settu upp á síðasta ári stolinn. 7.7.2004 00:01
Kanar finnast varla undir stýri Innan við fimmti hver leigubílstjóri í New York er fæddur í Bandaríkjunum og hefur hlutfall þeirra aldrei verið lægra. 7.7.2004 00:01