Erlent

Yukos býður 7 milljarða dollara

Nýr yfirmaður Yukos olíufélagsins rússneska hefur boðið þarlendum stjórnvöldum rúmlega sjö milljarða dollara, eða sem samsvarar rúmum 500 milljörðum króna, upp í meintar skattaskuldir félagsins sem eru til rannsóknar ásamt svikum fyrrverandi forstjóra þess, Mikhails Khodorkovskys. Réttarhöld í málinu héldu áfram í dag og krefjast stjórnvöld þess að eignir fyrirtækisins verði gerðar upptækar vegna skulda. Dómari vísaði frá kröfu lögfræðings Khodorkovskys um að hann yrði látinn laus úr fangelsi vegna lélegrar heilsu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×