Erlent

Trúlaus klerkur enn í vanda

Lene Espersen, kirkjumálaráðherra Danmerkur, hefur staðfest þá ákvörðun dönsku þjóðkirkjunnar að víkja prestinum Thorkild Grosböll úr embætti. Grosböll var rekinn úr embætti eftir að hann sagði Guð hafa afsalað sér völdum í hendur sonar síns og þar með mannkyns. Því væri engin trygging fyrir öðru himnaríki en því sem mennirnir sköpuðu á jörðu. Mál Grosbölls fer nú fyrir nefnd tveggja guðfræðinga og dómara sem kveða upp úr um hvort hann haldi starfi sínu, verði dæmdur til sektargreiðslu eða rekinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×