Erlent

Tígrisdýrahvolpar fæðast í Kína

Tveir tígrisdýrahvolpar fæddust í dýraverndunarmiðstöð í Kína í gær. Kínverski tígurinn er í bráðri útrýmingarhættu og er ákaft barist fyrir verndun hans. Aðeins eru til um fjörutíu dýr af þessari tegund og eru þau öll í dýragörðum. Í flestum tilvikum þarf tæknifrjóvgun til að tígrisdýrin fjölgi sér í dýragarði en þessir hvolpar voru hins vegar getnir á náttúrulegan hátt og þykja því mikið undur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×